Morgunblaðið - 11.02.1988, Page 34

Morgunblaðið - 11.02.1988, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 Grímseying- artakaöll veiðarfæri áland BÁTAR í Grímsey voru allir í höfn í gær vegna íshættu. Þeir fóru flestir á sjó í fyrra- dag, en tóku þá upp öll veið- arfæri sín og héldu til hafn- ar. Slæmt skyggni var í eynni í gær og sáu menn aðeins um það bil 500 metra út á hafið frá ströndinni og nokkurt íshrafl á sveimi í sjónum. Ekki var farið í könnunarflug í gær. „Ástandið virðist svipað og í fyrradag að því er við best sjáum. ísinn er ekki ennþá orðinn land- fastur hjá okkur, en við bíðum eftir fréttum úr fyrirhuguðu ískönnunarflugi. Á meðan sitjum við rólegir heima með netin í landi," sagði Finnur Jónsson Grímseyingur í samtali við Morg- unblaðið í gær. Árekstrum fjölgar mjög mikið Aukið eftirlit með ölvunar- og hraðaakstri Árekstrafjöldi hefur verið mjög mikill á Akureyri undan- farin ár. Er þar ýmislegt sem kemur til, svo sem tíðarfar, lega bæjarins og fleira. Þó virðist það algengast er að öku- menn virða ekki einfaldar reglur um það hvernig á að aka. Allt of algengt er að hvorki biðskylda né umferðarréttur sé virtur, að sögn Ólafs Ásgeirssonar aðstoðaryfirlögreglu- þjóns. Á árinu 1986 urðu samtals 436 árekstrar og umferðarslys sem lögreglan gerði skýrslur um og 344 árekstrar þar sem umferðar- réttur var augljós og ökumenn því sendir beint til tryggingafélaga sinna til skýrslugerðar. Þetta eru samtals 780 árekstrar. Á árinu 1987 varð töluverð aukning á þessum óhöppum. Lögreglan gerði skýrslur um 543 óhöpp, og í 381 skipti voru ökumenn sendir til tryggingafélaga sinna, en alls ger- ir þetta 924 árekstra og óhöpp. í mörgum tilfellum var um slys á fólki að ræða og tvisvar varð dauðaslys. Á árinu 1986 voru 363 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, en 616 á árinu 1987. Eftirlit með of hröðum akstri eykst sífellt og bú- ast má við að þetta eftirlit aukist til muna á þessu ári, þar sem lög- reglan mun þá hafa til umráða tvær bifreiðir með fullkomnum búnaði til að mæla akstur bifreiða sem lögreglan mætir eða ekur á eftir. Á árinu 1986 voru 90 ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akst- ur en 115 árið 1987. Að sögn lög- reglunnar má sennilega rekja þessa fjölgun einnig til aukins eft- irlits með ástandi ökumanna, en ekki til þess að öivun við akstur fari vaxandi. Svo virðist sem al- menningur vinni með lögreglunni hvað þetta varðar, þar sem sífellt fleiri hringja inn til að tilkynna um ölvaða ökumenn. í fyrra voru 1.985 ökumenn kærðir fyrir að leggja bílum sínum ólöglega og um 700 voru kærðir fyrir að greiða ekki í stöðumæla. Áf þeim 1.985 sem kærðir voru fyrir ranga stöðu voru 576 kærðir fyrir að leggja bifreiðum sínum á gangstíg sunnan við Alþýðubank- ann, en þar rétt við eru mjög stór og góð almenningsbifreiðastæði, þar sem engin gjaldskylda er, að sögn lögreglunnar. Sekt fyrir að leggja bifreið rangt er 1.000 krón- ur. Leikfélag Akureyrar: Pétur læt- uraf störf- um leik- hússtjóra PÉTUR Einarsson, sem verið hefur leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar síðastliðin tvö ár, lætur af störfum þann 1. maí nk. og hyggst flytja sig aftur suður á bóginn. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið i gær ekki vera búinn að ráða sig í neitt ákveðið fyrir sunn- an, en það væri ýmislegt á pijónunum. Theódór Júlíusson, form- aður leikhússtjómar, sagði í samtali við Morgunblaðið að á næstu dögum yrði auglýst eftir nýjum leikhússtjóra, en enginn arftaki væri í sigtinu að svo stöddu. Theódór sagði að mikil eftirsjá væri í Pétri. Hann hefði sjálfur ákveðið að hætta, enda hefði hann upprunalega verið ráðinn til tveggja ára. Það tímabil væri nú á enda. Arleg maraþon- danskeppni hald- in um aðra helgi Pétur Einarsson HIN árlega maraþon-danskeppni hefst laugardaginn 20. febrú- ar klukkan 10.00. Keppendur eiga að mæta klukkan 9.00 og hafa meðferðis læknisvottorð eða vottorð frá foreldrum um að þeir séu nógu hraustir og heilsugóðir til þátttöku. Dansað verður í 28 klukku- stundir og lýkur keppninni þá klukkan 14.00 á sunnudag. Á klukkustundar fresti verður gefín þriggja mínútna hvíld. Dómnefnd getur vísað þátttakendum úr keppni ef þeir virðast pína sig eða eru að niðurlotum komnir. Ef fleiri en einn eru eftir þegar keppni lýk- ur, sker dómnefnd úr um hver vinnur. Tekið er mið af hressleika og hreyfígetu, svo og dansstíl og úthaldi. Reykingar verða bannaðar í húsinu. Læknir verður á bakvakt og kemur ef þurfa þykir. hliða keppninni og hefst klukkan 21.00. Miðaverð verður 250 krón- ur. Skráning fer fram í Dynheim- um á opnu húsi alla virka daga milli kl. 15.00 og 19.00. Frestur til að skrá sig rennur út föstudag- inn 19. febrúar klukkan 18.00. Fyrstu verðlaun eru 5.000 krón- ur auk farandbikars. Önnur verð- laun eru 3.000 krónur og þriðju verðlaun eru 2.000 krónur. Þá fá allir þátttakendur viðurkenningar- spjöld. Opið hús verður klukkan 14-17 og eru þá allir velkomnir að líta inn og fylgjast með. Diskótek ’74 verður á laugardagskvöldið sam- Útsending í fullum gangi í Hljóðbylgjunni. Morgunblaðið/GSV Oddur Thorar- ensen kaupir Hljóðbylgjuna ODDUR Thorarensen hefur keypt útvarpsstöðina Hljóðbylgjuna á Akureyri. Hljóðbylgjan hóf útsendingar síðastliðið vor og stofnuðu fyrirtækið fimm einstaklingar á Akureyri. Fljótlega komu fleiri aðilar inn i reksturinn og hafa hluthafar lengst af verið fjórtán talsins og átti Oddur 10% hlutafjár. Oddur vildi ekki staðfesta kaupverð á fyrirtækinu í samtali við Morgunblaðið í gær, en sagði að kaupin hefðu farið fram. Aðeins væri eftir að lögfesta þau hjá bæjarfógeta. „Þetta er búið að standa til í allnokkum tíma, að minnsta kosti frá því fyrir jól. Nú stendur til að fara vel ofan í reksturinn og gera betur þar sem því verður við kom- ið. Við höfum til dæmis ekki verið með útsendingar á sunnudögum hingað til og aðeins til miðnættis á virkum dögum nema um helgar er útvarpað hefur verið til kl. 4. Til að byija með verður uppteknum hætti haldið, en breytinga má vænta smám saman. Fastir starfs- menn stöðvarinnar eru fjórir auk lausráðins dagskrárgerðarfólks og er engra verulegra breytinga að vænta á því að svo stöddu. Ómar Pétursson mun eftir sem áður vera útvarpsstjóri," sagði Oddur. Oddur á og rekur tvö önnur fyrirtæki á Akureyri, Nýja filmu- húsið og Borgarsöluna. Oddur sagði að ýmsar þreifíngar hefðu verið uppi hjá Hljóðbylgjumönnum um samstarf við sunnlenskar út- varpsstöðvar og hefur Stjaman sýnt þeirri hugmynd mikinn áhuga. Oddur sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um samstarf. Fyrst vildi hann sjá hvort norðlenski markaðurinn gæti ekki einn og sér haldið starfsemi Hljóð- bylgjunnar uppi. Ætlunin væri að fullreyna það áður en gengið yrði til samstarfs við utanaðkomandi aðila. „Stöðin er rekin á auglýs- ingatekjum einum saman og hefur reksturinn hingað til ekki gengið nægjanlega vel. Það kostar okkur jafnmikið að koma á fót útvarps- stöð hér fyrir norðan og þá fýrir sunnan. Hinsvegar er auglýsinga- markaðurinn margfalt minni hjá okkur, 14.000 manns á við 130.000 manna markað fyrir sunn- an. Óneitanlega vorum við of stór- tækir í byijun þannig að markað- urinn stóð einfaldlega ekki undir rekstrinum. Dagskráin var allt of dýr. Því var farið í endurskipulagn- ✓ Oddur Thorarensen eigandi Hljóðbylgjunnar. ingu í haust.“ Oddur sagðist ætla að sinna félagsstarfssemi á Akureyri og í nágrannabyggðunum meira en gert hefði verið og gera þannig stöðina meira fyrir fólkið en hingað til hefði tíðkast. Samvinna við ýmis heimafyrirtæki kæmi þar vel til greina og væri til dæmis nú þegar komin vísir af slíku með samvinnu Hljóðbylgjunnar, Zebra og Stjörnusólar um keppnina „Herra ísland". „Það á eftir að koma í ljós hvort hægt er að reka stöðina með einhveijum árangri. Samkeppnin um auglýsingamar er örugglega eins mikil hér norðan- lands og fyrir sunnan. Hljóðbylgj- an væri í beinni samkeppni við svæðisútvarpið RUVAK. TVö dag- skrárrit, sem gefín em út á Akur- eyri, taka sinn toll af auglýsinga- markaðnum auk þess sem dag- blaðið Dagur og Eyfírska sjón- varpsfélagið selur auglýsingar. Hljóðbylgjan er í eigin húsnæði á Ráðhústorgi 1. Svæðið er rúm- lega 100 fermetra stórt sem er nægjanlegt fyrir þá starfsemi sem fram fer á vegum Hljóðbylgjunn- ar, að sögn nýja eigandans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.