Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 Höfum bætt við á útsöluna mikið af góðum fatnaði. Stórkostleg verðlækkun, t.d.: Kápur....... Blússur...... Kjólar....... Úlpur........ Jogginggallar frá kr. 2.000,- frá kr. 500,- frá kr. 500,- frá kr. 1.500,- frá kr. 1.500,- Eddufdli 2 *Sínú 71730 Símar 35408 og 83033 SKERJAFJ. Einarsnes SELTJNES Látraströnd Hrólfsskálavör MIÐBÆR Tjarnargata 3-40 Tjarnargata 39- Lindargata 39-63 o.fl. Hverfisgata 4-62 Laugavegur1-33o.fl. ÚTHVERFI Ystibæro.fi. Sogavegur Sæviðarsund lægri tölur Sæviðarsund hærri tölur Efstasund 2-59 Kambsvegur KOPAVOGUR Sunnubraut Laufbrekka Nýbýlavegur VESTURBÆR Hringbraut 37-77 Hringbraut 74-91 Ægisíða 44-78 Frakkland: Barre gefur kost á sér sem forseta Af mörgum talin helsta von hægrimanna gegn Mitterrand Lyon. Reuter. RAYMOND Barre, fyrrum for- sætísráðherra Frakklands, tíl- kynnti á mánudag að hann ætl- aði að gefa kost á sér í forseta- kosningunum, sem verða í apríl eða maí. Á sínum tima beittí hann sér fyrir mjög hörðum verð- bólguaðgerðum og var þá ekki i miklu uppáhaldi meðal almenn- ings en siðan hefur vegur hans farið vaxandi. Barre skýrði frá ákvörðun sinni á fréttamannafundi í borginni Lyon, sem er hans kjördæmi, og sagði, að í kosningabaráttunni ætlaði hann að leggja mesta áherslu á efnahags- málin. „Atvinnuleysið er orðið við- varandi og á síðustu árum höfum við Frakkar dregist aftur úr keppi- nautum okkar. Við erum á kross- götum. Ef kjósendur vilja sósíal- ismann, sem einkennist af efna- hagslegum ófamaði, munu afturför og hnignun taka við af einstökum áföllum," sagði Barre á fundinum en margir hægrimenn telja, að hann sé líklegastur til geta steypt Fran- cois Mitterrand forseta af stóli. Barre var forsætisráðherra þegar Valery Giscard d’Estaing var for- seti 1976 til 1981 og einna óvinsæl- astur franskra stjómmálamanna þegar hann lét af embætti. Stafaði það af baráttu hans gegn verð- bólgunni og ströngum efnahagsað- gerðum en þær ollu atviiínuleysi og kaupmáttarrýmun. Hann hélt því ávallt fram, að aðgerðimar hefðu Raymond Barre verið nauðsynlegar og hefur þeim sífellt fjölgað, sem taka undir það. í skoðanakönnunum hefur Barre yfirleitt haft heldur meira fylgi en Jacques Chirac, forsætisráðherra, sem einnig sækist eftir forsetaemb- ættinu, en síðustu vikumar hefur þó Chirac farið fram úr honum. Er fylgi hvors um 20% en Mitterrand forseti fær jafnan um 40%. Samnmgnr um eyðingn meðaldrægra kjarnaflaug: Æðstaráðið hvatt til að staðfesta samninginn Moskvu, Reuter. EDUARD Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, hvattí utanríkisnefndir beggja deilda Æðstaráðsins á þriðjudag til að staðfesta afvopnunarsamn- inginn sem leiðtogar stórveld- anna undirrituðu i Washington. Hann sagði meðal annars að Sov- étmenn ættu ekki að hafa áhyggjur þótt þeir eyðilegðu fleiri eldflaugar en Bandaríkja- menn. Shevardnadze sagði á sameigin- legum fundi utanríkisnefndanna að samningurinn um upprætingu með- al- og skammdrægra kjamorkueld- flauga væri „réttlát málamiðlun." Samkvæmt samningnum eiga Sov- étmenn að eyðileggja 1.752 kjam- orkuflugskeyti, sem draga 500 til 5.000 kílómetra, á meðan Banda- ríkjamenn eyðileggja aðeins 859. Shevardnadze sagði að einfaldur reikningur ætti ekki við þegar um hemaðarjafnvægi væri að ræða, því lókaárangurinn skipti öllu máli. Utanríkisnefndimar eiga að at- Reuter Dimitri Jasov, vamarmálaráð- herra Sovétríkjanna sagði á fundi utanrikisnefnda Æðsta- ráðsins að sovéski herinn styddi samninginn um upprætingu með- aldrægra kjarnorkueldflauga. huga samning stórveldanna og skila áliti um hann til framkvæmda- stjómar Æðstaráðsins, sem hefur meðal annars það hlutverk að stað- festa alþjóðlega samninga. í lok fundarins á þriðjudag vísuðu ut- anríkisnefndimar málinu til undir- nefnda sem athuga eiga samning- inn frekar. Fundinum var sjónvarpað beint um morguninn og erlendir frétta- menn fengu að fylgjast með honum. Fréttaskýrendur sögðu að sovésk stjómvöld virtust vilja sýna að Sov- étríkin væm að taka upp lýðræðis- legar aðferðir. Enginn mælti hins -vegar gegn samningnum og allir þeir sem tóku til máls hvöttu til þess að hann yrði staðfestur sem fyrst. Sovéskir embættismenn hafa gefið í skyn að sovésk stjómvöld hygðust staðfesta samninginn, en svo gæti farið að þau vildu breyta honum færi svo að Bandaríkjaþing gerði vemlegar breytingar á hon- um. Geimvarnaráætlun Bandaríkjastjórnar: Gervitungli skotið á loft í tilraunaskyni Kanaveralhöfða, Reuter. BANDARÍKJAMENN hafa komið sérhönnuðu gervitungli á braut umhverfis jörðu og er þetta Iiður í tílraunum með búnað tengdan geiinvarnará- ætlun Bandaríkjastjórnar. Að sögn vísindamanna sem vinna við áætlunina er tilraun þessi sérlegfa mikilvæg og fullyrða þeir að þetta sé eitt tæknilega erfiðasta verkefnið frá upphafi geimaldar. Gervitunglinu var skotið með burðarflaug af gerðinni Delta frá Kanaveralhöfða á mánudag. Áætlað er að tilraunir með búnað- inn standi yfir í níu daga. í gervi- tunglinu hefur verið komið fyrir sérhönnuðum búnaði sem á að geta greint kjamorkueldflaugar, sem skotið hefur verið á loft, og fylgt eftir ferðum þeirra. Fyrir- hugað er að skjóta fjórum eld- flaugum á loft, sem eiga að líkja eftir ferðum langdrægra sovéskra kjamorkuflauga, og er búnaðin- um ætlað að greina þær frá gervi- tunglum sem eru á sveimi um- i hverfís jörðu. Kostnaðurinn við þessar til- raunir nemur um 200 milljónum Bandaríkjadala en að sögn dr. Gordons Smiths, sem fer fyrir hópi sérfræðinga sem vinnur að áætluninni, munu þær upplýsing- ar sem fást með þessum hætti koma að gagni á öllum stigum geimvamaráætlunarinnar. Von- ast er til að tilraunir þessar verði til þess að flýta fyrir hönnun bún- aðar er geti greint raunverulegar lqamorkueldflaugar frá öðrum sem hugsanlega yrði skotið á loft í blekkingarskyni. Sérfræðingar í bandaríska vamarmálaráðuneyt- inu telja að hægt verði að ljúka uppsetningu hluta geimvamar- kerfísins seint á næsta áratug. Tilraunir þessar eru taldar sér- lega mikilvægar, ekki síst í ijósi þess að ýmsir virtir sérfræðingar hafa látið í ljós efasemdir um að geimvamaráætlunin sé f raun framkvæmanleg. Þingmenn hafa takmarkað nokkuð Qárframlög til áætlunarinnar og bindur ríkis- stjómin vonir við að unnt verði að sannfæra þingheim um gildi áætlunarinnar gangi tilraunimar með gervitunglið að óskum. Upphaflega hafði verið ráðgert að skjóta gervitunglinu á loft síðasta fimmtudag en því var frestað á síðustu stundu vegna bilunar í burðarflauginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.