Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 41 Verkfalhð í Ford verksmiðjiiniim í Bretlaiidi; Ríkísstjórnin hyggst ekki grípa í taumana Lundúnum, Reuter. BRESKA stjórnin er staðrádin í að grípa ekki til aðgerða vegna verkfalisins í Ford verksmiðjun- um sem hófst á mánudag. Tals- maður Ford verksmiðjanna sagði á þriðjudag að fyrirtækið hygðist ekki að svo stöddu halda áfram samningaviðræðum við leiðtoga verkamannanna. Áhrifa verk- fallsins er þegar farið að gæta í Ford verksmiðjunum á megin- landi Evrópu. 2500 manns var til að mynda sagt upp störfum í Ford verksmiðju í Genk í Belgíu á þriðjudag. Norman Fowler, atvinnumála- ráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu á mánudag að hann teldi ekki ráðlegt að ríkisstjómin grípi inn í verkfallið í Ford verksmiðjun- um, sem nær 32 þúsund manns. David Nash, talsmaður Ford verksmiðjanna, sagði að öllum bresku Ford verksmiðjunum 22 hefði verið lokað og um 100 manns hefði þegar verið sagt upp störfum í Ford verksmiðjunni í Antwerpen í Belgíu, auk uppsagnanna í Genk. „Við höfum ekki í hyggju að halda samningaviðræðunum áfram enn sem komið er,“ sagði Nash. Talið er að Ford verksmiðjurnar tapi 19 milljónum punda (um 1,3 milljarði íslenskra króna) á degi hverjum vegna deilunnar um laun og vinnutilhögun. Ennfremur má búast við að fleiri belgískum starfs- mönnum Ford fyrirtækja í Belgíu verði sagt upp störfum og að fram- leiðsla Ford verksmiðjanna í Vest- ur-Þýskalandi og Spáni minnki verulega. Gaddafi Líbýuleiðtogi íAlsír Reuter Muammar Gaddafi, leiðtogi Lobýu, átti á sunnudag viðræður við Chadli Benjedid, forseta Alsír. Að sögn APS, hinnar opinberu fréttastofu Alsír, var umræðu- efnið hugmjmdir Gaddafis um aukna samstöðu fimm arabaríkja á norðurströnd Afríku. Gaddafi ræddi um helgina við ráðamenn í Túnis og kynnti þar hug- myndir sínar um sameiningu ríkjanna fimm, sem síðar gæti orðið til þess að sameina öll ríki araba. Að sögn sendimanna vilja stjómvöid í Líbýu og Túnis að Hassan konungur Marokkó eigi einnig hlut að slíku samkomulagi. Alsírbúar styðja hins vegar skæruliða Polisario-hreyfingarinnar, sem hafa í 12 ár barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis í Spönsku- sahara, sem Hassan konungur telur að tilheyri Marokkó. Ástralía: Ahrifamikill ráðherra segir af sér Canberra, Reuter. MICK Young, formaður ástr- alska Verkamannaflokksins og ráðherra innflytjendamála, sagði á mánudaginn af sér ráðherra- embætti og þingmennsku vegna deilna sem risið hafa um fjár- stuðning sem renna átti í kosn- ingasjóð Verkamannaflokksins en var notaður i annan rekstur flokksins. Samkvæmt áströlskum kosn- ingalögum þarf að gera opinberlegá grein fyrir fjárstuðningi í kosninga- sjóði stjómmálaflokka, en ekki ef fjármunimir ganga í annan rekstur flokkanna. Young hefur hins vegar verið sakaður um að hafa notað 10.000 ástralska dali (259 þúsund íslenskra króna) í almennan rekstur Verkamannaflokksins, en ekki í kosningasjóðinn eins og gefandinn hafi ætlast til. Young hefur ekki enn tilkynnt hvort hann ætli að segja af sér sem formaður Verkamannáflokksins, en að sögn talsmanns ríkisstjómar er líklegt að hann geri það á fundi framkvæmdastjómar flokksins á föstudag. Bob Hawke, forsætisráð- herra, sagðist hafa reynt án árang- urs að fá Young til að halda áfram þingmennsku. Filippseyjar: Uppreisnar- menn drepa 12 manns Manila, Reuter. SKÆRULIÐAR drápu opinberan embættismann í árás úr launsátri í Manila og 11 aðrir voru drepn- ir í árásum utan höfuðborgarinn- ar á mánudag. Talsmaður hersins sagði að sjö hermenn og tveir óbreyttir borgarar hefðu verið drepnir þegar ráðist hefði verið á bílalest hersins á leið til þorpsins Tudaya, þar sem her- mennimir áttu að fylgjast með sveitarsjómarkosningum sem þar fóru fram í gær. Þrír launmorðingj- ar hefðu drepið sáttasemjara ríkis- ins í Manila, og tveir lögreglumenn á vélhjólum hefðu verið skotnir í Negros-eyju. Þá hefði 60 manna skæruliðahópur drepið 3 óbreytta borgara um helgina og kveikt í kapellu í norðvestur Filippseyjum. Hermenn drápu fimm uppreisnar- menn í þremur hémðum. Launareíkníngur Alþýðubankans er tékkareikníngur með háa nafnvexti og skapar lántökurétt. Cegn reglubundnum viðskiptum á launareikningí í a.m.k. 3 mánuði fást tvennskonar lán án milligöngu bankastjóra, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. AMt að kr. 50.000 á eígin víxlí tíl fjögurra mánaða. 8EIIN Allt að kr. 150.000 á skuldabréfi til átján mánaða. Víð gerum vel við okkar fólk Alþýðubankínn hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.