Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIB, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 BÆTIÐ HEILSUNA MEÐ INNHVERFRIÍHUGUN Rannsókn, sem nýlega birtist í hinu virta lækna- tímariti „Psychosomatic Medicine“, sýndi að þeir, sem iðkuöu íhugunartækni Maharishi, Innhverfa íhugun (Transcendental Meditation), leituðu 44% sjaldnar til læknis en aðrir og vora 53% sjaldnar lagð- ir inn á sjúkrahús. Munurinn var enn meiri hjá þeim sem vora eldri en 40 ára. Þeir leituðu 74% sjaldnar til læknis og lögðust 69% sjaldnar inn á sjúkrahús. eið hefst með kynningu í kvöld, fimmtudag í Garðastræti 17 (3. hæð) kl. 20.30. íslenska íhugunarfélagið, si'mi 16662. Bakarar og aðrir matvælaframleiðendur Til sölu lítið notuð pökkunarvél (keyrslutími 330 klst.) frá Rose Forgrove, gerð RF 250 N Flowpak. Hagkvæm fjárfesting. ★ COzpökkun möguleg. ★ Hraði 30-85 pakkar/mín. ★ Stærðirvörunnar: Lengd 50-380 mm. Breidd 203 mm - max. Hæð 102 mm - max. ★ Filmustærð: Lengd 102 mm-406 mm. Breidd 482 mm - max. Upplýsingar veitir Óskar Húnfjörð í síma 95-4500 eða 95-4501. Annie Anxiety Bandez í kvöld heldur breska hljóm- svertin Current 93, söngkonan Annie Anxiety Bandez, S.h. draumur og Megas tónleika f Hótel íslandi. Current 93 er hljómsveit breska tónlistarmannsins Tíbet 93, en hann skýrði frá því fyrir skemmstu aö þetta yrðu síöustu tónleikar hljómsveitarinnar. Tíbet hefur starfað hór á landi með Hilmari Erni Hilmarssyni og syngur meðal annars í laginu Crowleymass sem Hilmar sendi frá sér fyrir jól. Hilm- 93 Current 93 Hughljómun á Hótel íslandi ar borgar fyrir sig og leikur með Current 93 í kvöld, en auk hans mun Guðlaugur Óttarsson leika á gítar. Þeir Hilmar og Guðlaugur hafa meira fyrir stafni þetta kvöld, því þeir koma fram með Megasi og kynna með honum plötu sem verið er að leggja síðustu hönd á um þessar mundir, en á þeirri plötu leika Megas, Hilmar og Guðlaugur á öll hljóðfæri og gera útsetningar í sameiningu. Þær Inga og Björk Guðmundsdætur syngja bakraddir hjá Megasi og Rose McDowell, söngkona Current 93, syngur einn- ig bakraddir. Eins og áöur sagði kemur S.h. draumur fram á tónleikunum, en þetta verða fyrstu tónleikar sveit- arinnar frá því platan Goð kom út. Auk ofangreindra kemur fram skáldið Jóhamar, en tónleikarnir verða hljóðritaðir til síðari útgáfu. Morgunblaðið/Einar Falur Megas kemur fram á tónleikunum og kynnir þá væntanlega plötu með þeim Guðlaugi Óttarssyni og Hilmari Erni Hilmarssyni. Rokkkvöld í Duus Næstkomandi miðvikudag, 17. febrúar, verður rokkkvöld í Duus. Fram koma hljómsveitirnar 16 eyrnahlífabúðir, Múzzólíní, Fjúkyrðin með að utan, Daisy Hill Puppy Farm og Bleiku bastarnir. 16 eyrnahlífabúðir er á meðal nýrri sveita þó svo hún hafi átt lög á Snarlspól- unni síðari og Fjúkyrðin með að utan er og ný. Fjúkyrðin er reyndar stofnuð uppúr Akra- nessveitinni Óþekktum andlit- um, sem átti 3 lög á Snarlspól- unni, og er á nokkuð annarri línu tónlistarlega að sögn sveitarmeðlima. Múzzólíní hef- ur ekki látið mikið á sér bera sem af er vetri og gengu þær sögur fjöllum hærra, reyndar komnar frá sveitarmeðlimum, að sveitin hefði lagt upp laup- ana. Svo er þó ekki og sl. mánudagskvöld hélt sveitin tónleika með fjórum öðrum í Duus. Daisy Hill Puppy Farm hefur haldið tónleikafjöld í sumar og vetur og væntanleg er frá sveitirini fjögurra laga plata sem Erðanúmúsík gefur út. Bleiku bastarnir hafa víða leikið og gaf hljómplötuútgáfan Gramm út plötu með þeim stuttu fyrir jól. Talsmaður Bastanna lét þau orð falla að á þessum tónleikum yrðu ein- göngu leikin lög sem sveitin hefur ekki flutt opinberlega áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.