Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988
Dómstólar og
stjómarskrá
I kvöld, fimmtudaginn 11. febrúar, kl. 20.30 munu Heimdall-
ur, FUS í Reykjavík, og landsmálafélagið Vörður halda
sameiginlegan fund um hlutverk dómstólanna og stjórnar-
skrána.
Frummælandi verður Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögfræðingur og höfundur
bókarinnar „Deilt á dómarana". Hann mun
svara fyrirspurnum að loknu framsögu-
erindi.
Allir sjálfstæðismenn eru hvattir til að fjöl-
menna á fundinn. Kaffiveitingar verða á
boðstólum.
Fundurinn verður haldinn i neðri-deild Valhallar.
Stjómimar.
Antik
Rýmingarsala
Allt á að seljast.
Húsgögn, speglar, lampar,
málverk, postulín,
kristall, nýr sængur-
fatnaður, gjafavörur.
Góö greiöslukjör
Antikmunir,
Grettisgötu 16, sími 24544.
Opið frá kl. 12-18 virka daga.
Láugardaga frá kl. 12-16.
TÖLVUPRENTARAR
Samtökin 78:
Stofnuð ráðgjafar-
þjónusta um alnæmi
Samtökin 78, félag homma
og lesbía á íslandi, eru um þess-
ar mundir að hefja síma- og
ráðgjafarþjónustu um sjúk-
dóminn alnæmi. Á blaðamanna-
fundi, sem samtökin boðuðu til
af þessu tilefni, kom fram, að
Island er meðal verst settu
þjóða heims varðandi fjölda
smitaðra, miðað við íbúafjölda.
Þorvaldur Kristinsson, fræðslu-
fulltrúi samtakanna, sagði veru-
lega þörf fyrir þessa þjónustu. Hún
væri ætluð jafnt öllum þegnum
þjóðfélagsins, sem vildu fræðast
um sjúkdóminn og leita ráða.
Fram kom í máli Þorvaldar, að
hér á landi eru nú 39 manns með
alnæmissmit, þar af 5 með sjúk-
dóminn á lokastigi. Á síðustu fjór-
um mánuðum hafa 5 bæst í hóp
smitaðra.
Viðbót við verslunarinn-
réttingar
Gínurog útstillinga-
vörur í miklu úrvali á
mjög hagstæðu verði.
WHF.OFNASMIflJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI 7. S: 21220
Þorvaldur gagnrýndi heilbrigð-
isyfirvöld fyrir að bregðast ekki
við alnæmi af nægilegri alvöru,
„...heilbrigðisyfirvöld haga sér aft-
ur og aftur eins og sjúkdómurinn
sé ekki kominn til að vera“, sagði
hann. Þorvaldur sagði biýnasta
verkefnið nú, að hefja öflugt
fræðslustarf og fyrirbyggjandi
aðgerðir. Helsti áhættuhópurinn
og jafnframt sá, sem erfiðast væri
að ná til væru„...karlar, sem lifa
kynlifí með öðrum körlum, en kalla
sig ekki homma“, eins og Þorvald-
ur orðaði það. Þeir væru ekki
reiðubúnir til að horfast í augu
við kynhneigð sína og þar af leið-
andi ekki heldur kynhegðan sína.
Þorvaldur hvatti heilbrigðisyfír-
völd til að fara að dæmi annarra
Norðurlandaþjóða í fyrirbyggjandi
starfí gegn eyðni.
Fræðslufulltrúi Samtakanna 78
er til viðtals á skrifstofu samtak-
anna alla virka daga kl 15 til 18,
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í íslenskum „ viskubrunni“ stend-
ur þessi lífsspeki:
„Ef þú vilt að aðrír leyni,
þá leyn þú sjálfur.“
Það er smá leyndardómur falinn
í næsta rétti, en hann á ekki að
fara leynt. Þessi réttur getur verið
kærkominn þeim sem gera vilja
mikið úr litlu. Hér er „helgarsteik-
in“ úr hökkuðu kjöti. Eldunartími
1 klst.
Kjöthleifur
í brauðhjúp
með sænskum kartöflum og
ASEA Cylinda
uppþvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu
neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð-
leika og orkusþarnað. Efnisgæði og öryggi
einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar!
3 /FOniX
HATUNI 6A SÍMI (91)24420
-------------
WK Viðtalstími borgarfulltrúa
Ví Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til
viðtajs í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardög-
um frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma
þessa.
Laugardaginn 13. febrúar verða til viðtals Hilmar Guðlaugsson, formaður bygg-
inganefndar Reykjavíkurborgar og varaformaður stjórnar verkamannabústaða
og Guðrún Zoega, í skólamálaráði, fræðsluráði og í stjórn veitustofnana.
kryddjurtasósu
700 g hakkað lambakjöt
l/2 bolli brauðmylsna
1 tsk. salt + malaður pipar
V2 tsk. oregano
1 eggjahvíta
undanrenna
4 sneiðar beikon
1. Hakkaða kjötið er sett í skál
og er brauðmylsna, saít, krydd og
eggjahvíta blandað vel saman við
kjötið. Undanrennu, u.þ.b. V4 úr
bolla, er bætt við þar til kominn
er vel viðráðanlegur kjöthleifur.
2. Kjötið er síðan mótað í aflang-
an hleif (brauðhleif) og sett á
smurðan, eidfastan disk. Beikonið
er skorið í 1 sm breiðar ræmur.
Þeim er þrýst með borðhnífsoddi
niður í kjöthleifínn-hverri við hlið
annarrar. Beikonið gefur kjötinu
mjög gott bragð.
3. Kjötið er síðan sett inn í 225
gráðu heitan ofn og bakað í 1
klukkustund. Þegar það hefur bak-
ast í 30 mínútur er það tekið úr
ofninum og það vafíð brauðdeginu
og siðan bakað áfram í 30 mínútur.
Brauðdeig
Fljótgert smjördeig:
IV4 bolli hveiti
V2 bolli smjörlíki
V2 bikar sýrður ijómi
1 eggjarauða + 1 matsk. mjólk
1. Hveiti, smjörlíki og sýrður
ijómi (lítið eitt salt) er sett í skál
og hrært vel saman. Best er að
útbúa það nokkru áður og láta það
Þorvaldur Kristinsson, formaður
Samtakanna 78, á blaðamanna-
fundi um ráðgjafarþjónustu sam-
takanna vegna eyðni.
og síma- og ráðgjafarhópur sam-
takanna svarar í síma þijú kvöld
í viku í síma félagsins, viðtalstím-
amir eru auglýstir í dagblöðunum.
standa í kæli áður en það er notað.
2. Brauðdeigið er flatt út í af-
Ianga köku, nægjanlega stóra til
að hægt sé að skera af lengdinni
tvær þunnar ræmur (með kleinu-
jámi) og þijár af enda, en hafa
samt nóg eftir til að setja utan um
kjöthleifínn.
3. Brauðdeigið er lagt utan um
kjötið með samskeytin undir hleifn-
um. Brauðræmumar eru síðan lagð-
ar á brauðdeigið á ská og kross.
Það er sfðan stungið út með gaffli
og penslað vel með eggjarauðu,
þeyttri með litlu einu af mjólk.
Eggjarauðan gefur brauðinu fal-
lega glansandi, stökka áferð.
4. Kjötið með smördeiginu er
síðan sett í ofninn aftur og bakað
áfram í 30 mínútur til viðbótar.
Sænskar
kartöflur
1 kg kartöflur meðalstórar og
lítið eitt aflangar
50 g smjör eða smjörvi
salt
Kartöflumar eru afhýddar,
hreinsaðar vel og þerraðar. 'Síðan
er hver kartafla sett f matskeið, hún
er skorin í þunnar sneiðar, en að-
eins niður að rönd skeiðarinnar.
Kartöflunum er síðan raðað í smurt
eldfast mót og er bræddu smjöri
hellt yfír þær. Ágætt er að pensla
þær síðan svo smjörið nái að kom-
ast á milli sneiðanna.
Kartöflumar eu bakaðar í 1
klukkustund í ofni, samtfmis kjöt-
inu. Á meðan kartöflumar og kjötið
ér að bakast er sósan útbúin:
Kryddjurtasósa
2 matsk. smjörlíki eða matarolía
V2 laukur saxaður
1 hvítlauksrif, pressað
1 bolli vátn
1 tsk. rósmarin-lauf, mulið
1 tsk. tarragon
2 ten. kjúklingakraftur
1 matsk. kartöflumjöl
V2 bikar sýrður ijómi
1. Feitin er hituð í litium potti
og er laukur og hvítlaukur látinn
rétt mýkjast upp í kraumandi feiti.
Þá er vatni, kryddi og kjúklinga-
krafti bætt út í. Lok er sett yfír
pottinn 0g er sósuefnið látið sjóða
við vægan hita í 20 mínútur.
2. Sósan á að vera 1 bolli og er
vatni bætt við ef þarf, einnig salti
og pipar eftir smekk. Sósuefnið er
sfað og sósan jöfnuð með kartöflu-
mjöli. Sýrður ijómi er settur í sós-
una sfðast eða rétt áður en hún er
borin fram.
Soðið grænmeti, eins og
strengjabaunir, gulrætur og einnig
grænar baunir, er gott meðlæti.