Morgunblaðið - 11.02.1988, Page 48

Morgunblaðið - 11.02.1988, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 48 Minning: Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir Fædd 26. ágúst 1925 Dáin 1. febrúar 1988 í dag er kvödd Ragnheiður Ey- gló Eyjólfsdóttir, tækniteiknari á skrifstofu bæjarverkfræðings í Hafnarfírði. Sjáum við starfsfélag- ar hennar þar á bak hæfum og samviskusömum starfsmanni, sem ekki mátti vamm sitt vita og hafði ávallt heilbrigðan metnað fyrir hönd vinnustaðarins um vönduð og áreið- anleg vinnubrögð i hvívetna. Hér munu ekki hafðar uppi orða- lengingar um æviatriði hennar, en lítillega minnst þeirra ára er við áttum saman. Eygló, en svo var hún jafnan nefnd í daglegu tali, var fædd 26. ágúst 1925 og lést 1. febrúar 1988 eftir stranga baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún hafði ung lært ljós- myndun og starfaði við hana í um áratug uns við tóku annir á vax- andi heimili. Hún giftist árið 1951 Sævari Magnússyni, sem lengi var starfsmaður {Hafnarfjarðarapóteki og nú seinni árin fulltrúi á skrif- stofu Hafnarfjarðarhafnar. Þau áttu þrjú böm: Kristin tæknifræð- ing, Armann verkfræðing og Önnu Kristínu kennara. Eru þau öll gift og búsett í Hafnarfirði. Sá er þetta ritar vissi fátt um þá konu, sem gaf sig fram og vildi taka að sér starf tækniteiknara fyrir nærri 15 árum. Fram kom þó, að hún hafði lært ljósmyndun og starfað við þá iðn í tæpan áratug. A þeim tíma hafði hún gifst og átt böm eins og gengur, en einnig átt við þrálát veikindi að stríða, þjáðst af astma ámm saman og verið með köflum vemlega illa haldin. Hálffímmtug að aldri, er sá fyrir endann á uppeldi og umönnun bama hennar hafði hún drifíð sig í að læra tækniteiknun og var nú að leita fyrir sér um sitt fyrsta starf utan heimilis í áratugi. Allir, sem reynt hafa, vita hvert átak er fyrir konur á þessum aldri að komast aftur á skrið í atvinnu eftir langt hlé. Það var gæfa okkar á skrifstofunni að sjá í hendi okk- ar, að kunnátta í ljósmyndun og reynsla af stjóm heimilis í áratugi mundi vera gott veganesti, þótt alla starfsreynslu við tækniteiknun vantaði. Allt gekk að óskum frá fyrsta degi, enda var hér kominn starfsmaður sem ekki var físjað saman. Það sem á vantaði kunnáttu og starfsreynslu var umsvifalaust afgreitt með því að kynna sér mál- in, spyija skynsamlegra spuminga þegar á þurfti að halda og ræða verkefnin frá ýmsum hliðum. Kom fljótlega að því að okkur fannst Eygló aldrei hafa gert annað en að sinna þessu starfí, sem krefst sífelidrar árvekni, nákvæmni og alúðar. Kom sér þar vel, að Eygló var vel af guði gerð til munns og handa, greind vel, listræn, nákvæm og vönd að virðingu sinni í hvívetna. Heilsa hennar var þokkaleg á þess- um ámm og mun betri en verið hafði lengi. Minnist ég vel, hve okkur hinum á skrifstofunni fannst syrta að fyr- ir sex ámm, er Eygló sagði okkur með stöku æðmleysi, að fundist hefði meinsemd í bijósti sínu, sem taka yrði föstum tökum þegar í stað. Tók nú við hörð barátta, sem þó virtist ljúka með fullum sigri um hálfu ári síðar. Kom hún þá aftur til starfa og lét engan bilbug á sér fínna, þótt sjá mætti, að henni væri verulega bmgðið. Tóku nú enn við góð ár, eða ekki lét hún á öðm bera en vel gengi. Fyrir um ári héldum við að henn- ar fomi fjandi, astmaveikin, væri að hrella hana eins og oft vill verða í vetrarkulda og kveftíð. Hér fór hins vegar í verra, því bijóstveikin reyndist illkynja og varð ekki við neitt ráðið. Sá tími sem nú tók við, en gat aðeins einn endi fengið, var öllum kunnugum erfíður. Sjálfri var Eygló manna ljósast að hveiju dró, en bar sig ætíð vel og hetjulega. Helst hefur verið huggun í því að vita hana í góðum og ömggum höndum á Vífílsstaðaspítala, * þar sem frábært starfsfólk létti henni lífíð á allan hátt, enda fékk hún þá einkunn, að hún væri góður og duglegur sjúklingur. A okkar litla vinnustað er nú skarð fyrir skildi. Hér em starfs- menn ekki fleiri en svo, að forföll og frí verður oft að brúa með sam- vinnu og hjálpsemi. Gildir þá einu hver hefðbundin verkaskipting er á staðnum, hver grípur í störf annars eftir því sem geta og kunnátta leyf- ir. í þessu sem öðm var Eygló hinn dyggi og trúi þjónn síns vinnustað- ar og samfélags. Þótt Eygló ætti við andbyr að stríða á löngum köflum lífs síns, hélt hún reisn sinni til hins síðasta. Hún átti fjölmennan frændgarð hér í Hafnarfirði, eignaðist góðan maka og afkomendur, svo gleðjast mátti yfír mörgu, þótt á móti blési. Veit ég mig mæla fyrir munn allra hér á skrifstofunni, er ég kveð með söknuði þessa prúðu konu, er nú hefur mætt þungum örlögum sínum, róleg og hnarreist eins og ætíð áður. Innilegar kveðjur okkar allra til Sævars, bamanna, maka þeirra og bamabamanna. Björn Árnason Dag er tekið að lengja. Eitt hænufet á dag sækir sólarljósið fram á kostnað skugga og myrk- urs. Smám saman hörfar kuldi og dmngi vetrar fyrir birtu og yl vor- komunnar. Þetta er lífsins gangur. Arstíðimar koma og fara. Flest emm við sennilega böm birtunnar — bíðum í eftirvæntingu eftir sum- arkomu á hveiju ári. Eftir sem áður tökum við því sem að höndum ber — umberum og lifum við langa skugga vetrarins. Náttúran fer sínu fram og manninum er gert að búa við hana hvort sem honum líkar betur eða verr. Á sama hátt er æviskeið manns- ins jafnan háð breytingum. Lífíð er ekki áfallalaus gleðiganga. Það skiptast á skin og skúrir í lífi hvers manns, sambærilegt því þegar nátt- úran hefur sín hamskipti. Og víst er það svo, að alveg á sama hátt og árstíðimar koma og fara, þá víkst enginn undan þeim stóra dómi almættisins, að á þeirri tilveru sem við þekkjum er upphaf og endir, fæðing og dauði. Sá tími rennur upp í lífí hvers manns að lokið er hans æviskeiði hér á jörð — á þessu tilverustigi. Dauðinn er óumflýjan- leg staðreynd í lífí hvers manns. Á þann hátt em líf og dauði jafn sam- ofín og vetur og sumar. Hitt er það, að stundum gerir náttúran eins konar uppreisn gegn sjálfri sér hvað veðurfar varðar. Fyrir kemur að vetur konungur tek- ur öll völd löngu fyrir hans upp- gefna tíma samkvæmt dagatalinu. Það gerir él um mitt sumar. Þann- ig er því líka stundum farið þegar samferðamenn em langt fyrir aldur fram burtkallaðir úr þessari vist hér á Hótel Jörð. Kveðjustundin rennur upp miklu fyrr en okkur öllum fínnst ástæða til — fínnst réttlátt. Og við fyllumst eftirsjá og trega, jafnvel biturð í garð almættisins. En engu verður breytt. Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir, sem um árabil hefur unnið hjá Hafnarfjarðarbæ, á skrifstofu bæj- arverkfræðings, var kölluð fyrir tímann. Hún átti svo margt ógert í lífínu; með fjölskyldunni, vinum, í starfí. En ekki tjáir að deila við dómarann. Og hún mun, þrátt fyrir langvar- andi alvarleg veikindi, aldrei hafa misst kjarkinn. Andlegur kraftur hennar og æðmleysi á örlagastundu er vissulega styrkur til handa þeim sem eftir lifa. En sorgin er sár — eftirsjáin mikil á kveðjustund. Ég vil þakka fyrir samfylgdina og hafa átt þess kost að vinna með og þekkja hana Eygló. Það verða allir betri eftir slík kynni. Starfs- fólk Hafnarfjarðarbæjar sér á eftir samstarfsmanni og vini. Þar er skarð fyrir skildi. Sævari Magnússyni, eiginmanni Eyglóar, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hans missir er mikill. Og ekki síður hjá bömunum, Kristni, Armanni og Önnu Kristínu. Megi Guð milda sorg þeirra og allra annarra ættingja og vina, sem um sárt eiga að binda. Blessuð sé minning Ragnheiðar Eyglóar Eyjólfsdóttur. Guðmundur Arni Stefánsson Frændkona mín, Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir, andaðist á Vífílsstaðaspítala 1. febrúar eftir langa og stranga sjúkdómslegu. Jarðarförin fer fram frá Þjóð- kirkjunni í dag. Eyja, eins og hún var alltaf köll- uð af minni fjölskyldu, fæddist í Hafnarfirði 26. ágúst 1925, dóttir hjónanna Eyjólfs Kristinssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur. Þau bjuggu alla tíð á Selvogsgötu 2 í Hafnar- fírði. Eygló átti glaða og áhyggju- lausa æsku í faðmi stórrar fjöl- skyldu. Frá heimilinu á Selvogsgötu 2 á ég margar ljúfar minningar. Mæður okkar Eyju voru systur og mjög samiýndar. Mikill samgangur var á milli heimilanna, ekki bara á stór- hátíðum eins og nú tíðkast heldur hittust þær minnst einu sinni í viku og þá fengum við krakkamir oft að fylgja með. Það var skemmtilegt að heim- sækja Gunnu frænku suður í Fjörð. Fjölskyldan á Selvogsgötu var stór, bömin voru sex: Eyja elst, Ólafur Hermann f. 1927, Þórunn Marta f 1931, Eyrún f. 1933, d. 1935, Eyrún Sigurlaug f. 1935 og Inga María f. 1941. Á heimilinu voru einnig Massi bróðir Eyjólfs. Ragn- heiður, móðir þeirra, sem var rúm- föst þegar ég man til, og Kristinn, afínn sem setti virðulegan blæ á heimilið. Kristinn var gott skáld, smiður og listaskrifari, sem ætt- menn hans margir hafa erft, ekki síst Eygló. Hún fékk líka fljótt æfínguna því afi Kristinn var sjóndapur, seinna blindur og skrif- aði Eygló það sem hann orti. Hús- bóndinn Eyjólfur var sjaldnast heima eins og títt er um togarasjó- menn en húsmóðirin hafði nóg að starfa á stóm heimili. Þama ríkti gleði og góðvild, sem allir fundu og var mikill gestagangur. Á loftinu bjuggu hjón með 2 eða 3 böm og í kjallaranum var líka bamafjölskylda. Þetta þætti þröngt setinn bekkur í dag í litlu húsi. Ragnheiður fór í Flensborgar- skóla, lauk þaðan gagnfræðaprófí 1943, lærði síðan ljósmyndun og starfaði við það þar til hún stofnaði heimili 1951. Þegar bömin fóm að stækka lærði hún tækniteiknun við Tækni- skóla íslands og starfaði hjá Bæjar- verkfræðingi Hafnarfjarðarbæjar þar til heilsan fór að bresta. Ung að ámm felldu þau hugi saman Eygló og Sævar Magnússon, loftskeytamaður. Hann er borinn og bamfæddur Hafnfírðingur. Þau vora bekkjarsystkini í Flensborg. Heimili þeirra var alla tíð í Hafnar- fírði, mörg síðustu árin í húsi sem þau byggðu að Álfaskeiði 59. Sævar og Eygló vom sérlega samhent og einstök snyrtimennska jafnt úti sem inni einkenndi heimili þeirra. Þeim varð þriggja bama auðið, Kristinn Amar f. 1946, raf- tæknifræðingur, kvæntur Bjöigu Leifsdóttur. Þau eiga 2 böm; Ar- mann f. 1952, verkfræðingur, kvæntur Gunnvöra Karlsdóttur. Böm þeirra em 3; Anna Kristín f. 1956. Maður hennar er Þórður Helgason, verkfræðingur. A unglingsámm var Eyja mikið í íþróttum, lék í handboltaliði FH. Þó hún væri ekki há í loftinu var hún meðal bestu leikmanna liðsins. Hún var kappsöm og hafði mikinn metnað til þess að ná langt, hugð- ist meðal annars fara á íþrótta- skóla. Þá bilaði heilsan. Ekki var um annað að ræða en láta þennan bemskudraum á hilluna. Sævar og Eygló fóra í mörg ferðalög bæði innanlands og utan. Náttúran var henni hugleikin og kær. Eyja réðst til tengdaforeldra minna þegar þau fluttu heim frá Ameríku 1947 og komu sér fyrir á gamla heimilinu Esjubergi við Þing- holtsstræti, þar sem nú er Borgar- bókasafnið. Þetta var áður en ég tengdist þessari Qölskyldu. Guðrún, tengdamóðir mín, talaði oft um hvað henni líkaði vel við Eygló, verk hennar bám af verkum annarra. Ég kveð Eyju frænku mína með bæninni sem amma Herdís kenndi okkur: Bænin má aldrei bresta þig. Búin er freisting ýmisleg, þá líf og sál er líð og þjáð, lykill er hún af drottins náð. Maðurinn minn, t BJÖRN SVEINBJÖRNSSON fyrrv. hæstaréttardómari, lést 10. þ.m. Rósa Loftsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.