Morgunblaðið - 11.02.1988, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR II. FEBRÚAR 1988
51
JÓHANNES ARA-
SON ÞULUR
Eiginlega
genginn
aftur
Gamalkunn rödd heyrðist á
dögunam á Rás 1 og þóttt-
ust kunnugir þar þekkja rödd
Jóhannesar Arasonar, þular, í
tilkynningalestrinum. Jóhannes
lét af störfum í haust er leið og
kom þetta því mörgum á óvart.
í örstuttu spjalli sagðist Jóhann-
es hálft í hvoru vera hættur hjá
Útvarpinu. Hann hefði hætt í
sínu gamla þularstarfí í haust
og farið á eftirlaun. Þá hefði
verið gei»gið þannig frá hnútun-
um að til hans mætti leita ef
með þyrfti. „Líklega hefur verið
litið svo á að ég hafi verið í
Iausamennsku. Gerður Bjarklind
„er flogin sem engill" suður í
lönd í sumarfrí og þannig stend-
ur nú á því að ég er eiginlega
genginn aftur hér.“
- ■
mfmrnm
tmmmá
wimmmmmsmmá
Aretha Franklin blómstrar með aukinni ábyrgð í upptökuverinu.
Poul SchlUter (t.h.), kunni hreint
ekki að meta hryðjuverkastarf-
semi Karíusar og Baktusar.
POUL SCHLÚTER
*
Ovænt og
sársaukafull
heimkoma
Forsætisráðherra þeirra Dana,
Poul Schliiter, kom öllum að
óvörum mun fyrr heim úr sum-
arfríi sínu en áætlað var. Brosið,
sem yljað hefur löndum hans um
hjartarætur, var stirðnað í sárs-
aukagrettu er forsætisráðherran sté
út úr flugvélinni sem bar hann frá
hinum sólríku Kanaríeyjum. Gífur-
leg öryggisvarsla var við komu
Pouls sem að þessu sinni brá út af
vananum og neitaði að ræða við
forviða og forvitna blaðanienn.
Poul hafði fjórum dögum áður
brugðið sér til Kanaríeyja til að
hvfla lúin bein og þreytt höfuð og
var því eiginkona hans skilin eftir
í Danmörku. Hún vissi ekki betur
en að hann sólaði sig á Kanarí-
ströndum á sama tíma og allt var
gert til að koma honum um borð í
yfirfulla flugvélina sem flytja átti
sólbrúna Dani til heimahagana.
Á endanum tókst ötulum starfs-
mönnum forsætisráðuneytis og
flugfélags að hola Poul niður hjá
flugstjóranum. Þar sat hann á besta
útsýnisstað flugvélarinnar og hafa
án efa margir litið til hans öfundar-
augum. En þeir hefðu fljótt látið
af því ef þeir hefðu vitað að ástæða
hinnar ótímabæru heimferðar var
afar illvíg... tannpína.
Fatasaumur - Saumanámskeið
eru að hefjast fyrir byrjendur og lengra komna.
Aðeins 4 í hóp.
Ásgerður Ósk Júlíusdóttir, klæðskeri,
Uppl. og innritun í símum 18706 - 21719.
Glæsileg karlmannaföt
dökkröndótt o.fl. litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og
1.795,- teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 790,-, 850,- og 875,- sandþvegnar.
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
Auk þess koma fram:
Douglas P (Death in june) - Rose McDowall
- HÖH - Godkrist - Björk Guðmundsdóttir
- Inga Guðmundsdóttir o.fl.
KYNNIR: HALLGRIMURTHORSTEINSSON
Forsala aðgöngumiða: Gramm, Laugavegi 17
Miðaverð kr. 850.-
S.tVÍÍ
I
gramm
Sími: 12040
BINGÖ!
Hefst kl. 19.30
Aðalvinninqur að verðmaeti
kr.40Þús._________________
Heildarverðmæti vinninga
________kr.180 þús.______
TEMPLARAHÖLUN
Eiríksgötu 5 — S. 20010