Morgunblaðið - 11.02.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Flugleiðir — góð þjónusta
S.E. hringdi:
„Níu ára dóttursonur minn sem
býr í Gautaborg var hjá okkur
fyrir skömmu. Eg varð að senda
hann til baka einan og fór með
hann út á flugvöll til innritunar.
Stúkan sem sá um innritun var
ákaflega greiðvikin við okkur.
Þegar hún vissi að hann var einn
á ferð tók hún að sér að fylgja
honum alveg að dyrunum þar sem
gengið er út í flugvélina. Einnig
sendi hún telex til Gautaborgar
þar sem starfsfólk var beðið að
taka á móti honum, fylgja honum
í gegn um tollinn og gæta hans
þar til foreldrar hans tóku á móti
honum. Mer leið miklu betur að
vita um þetta allt saman þegar
ég skildi við hann. Hafí Flugleiðir
þökk fyrir."
Of mikið spilað af
sömu lögunum
Sigtryggur hringdi:
„Mér fínnst að fijálsu útvarps-
stöðvamar spili allt of mikið af
sömu lögunum sem sum er búið
að spila alltof oft. Hins vegar
mætti spila meira af lögum sem
sjaldan hafa heyrst og væri það
kærkomin tilbreyting."
Köttur
Hálfstálpaður fressköttur, grár
með hvíta bringu og hvítar hosur,
kom í hús á Baldursgötu fyrir
nokkru. Eigandi hans er beðinn
að hringja í síma 25859.
Gullhringur
Gullhringur með ekta perlu tap-
aðist við Hlemm. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 35188. Fundarlaun.
Síamsköttur
Vegna flutnings vantar mjög
elskulegum síamsfressketti gott
heimili þar sem hann fengi ástúð
og umhyggju, helst í sveit. Síminn
er 19492 á kvöldin.
Sirkus Zoo
Geir Þormar hringdi:
„Árið 1951 var hér á ferð
danskur sirkus sem nefndist Sirk-
us Zoo og kom hann hingað á
vegum SIBS. Þegar sirkusinn
ætlaði að sýna hér í Reykjavík
gerði danska aðstoðarfólkið verk-
fall og framdi skemmdarverk á
raflögnum fyrir sýninguna. Var
þá leitað til mín um viðgerðir og
fékk ég annan rafvirkjameistara
með mér í þetta verk. Ég hef
verið að rifja ýmislegt upp fyrir
mér frá þessum tíma og vantar
að komast í samband við þennan
rafvirkjarpeistara. Bið ég hann að
hringja í mig í síma 19896 ef
hann les þetta.
Hvaða rök eru fyrir
afnámi vaxtafrádráttar?
Stefán Ingólfsson hringdi:
„Hver eru rökin fyrir þvi að
afnema I raun vaxtafrádrátt þann
sem húsbyggendur hafa notið með
þessari nýju vaxtaafsláttarreglu.
Bamlaus hjón með eina milljón
og fímmhundruð þúsund í tekjur
og hundrað og fímmtíu þúsund í
vaxtafrádrátt samkvæmt gömlu
reglunni fá aðeins átján þúsund
krónur í vaxtaafslátt eftir breyt-
inguna. Húsbyggendur hljóta að
mótmæla þessari aðför harðlega.
Óskað er eftir svari íjármálaráð-
herra."
Veitum Bubba
viðurkenningu
Þröstur J. Karlsson hringdi:
„Ég þekki Bubba ekki neitt
persónulega en veit þó það að
þama er snillingur á ferð, bæði
hvað varðar lög og ljóð. Þessum
manni þarf að veita viðurkenn-
ingu að mínu mati og hann ætti
vera einn af þeim er hljóta æðstu
listamannagráðu hérlendis.“
Hvernig er farið að því að
ganga úr Þjóðkirkjunni?
Þegn hringdi:
„Ég var innlimaður í íslensku
Þjóðkirkjuna í frumbernsku en nú
er ég kominn til vits og ára og
er ekki viss um að ég vilji vera í
henni lengur. Hvemig á ég að
fara að því að ganga úr Þjóðkirkj-
unni og láta það gjald sem greiða
ber fremur renna til Háskólans?“
Hvítur páfagaukur
Hvítur páfagaukur flaug út um
svaladyr í Stangarholti 5 fyrir
skömmu. Þeir sem orðið hafa var-
ir við hann eru vinsamlegast beðn-
ir að hringja í síma 21437 á kvöld-
in eða síma 622265 á daginn.
Kápa
Þykk grá vetrarkápa, tvíhneppt
með stórum kraga tapaðist í
Lækjartungli, laugardaginn 30.
janúar. Sá sem kápuna hefur und-
ir höndum er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 83956.
Ennisband
Skærgrænt ennisband tapaðist
í rútunni sem fór frá Bláfjöllum
kl. 6 fostudaginn 5. febrúar. Á
armbandinu stendur m.a. „Lech“.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 31293 eða
36688.
+
Fylgjumst betur með er-
lendum ferðamönnum
Til Velvakanda.
Erlendir menn sem hér dvelja eru
sumir með vafasama pappíra. Til
dæmis fólk sem dvelur hér lengi
án þess að skrá sig búsett á íslandi
og kemst þannig hjá því að greiða
lögbundin gjöld af tekjum sínum,
öllum eða hluta þeirra. Síðan eru
mörg dæmi um menn sem kalla sig
ferðamenn, en koma - til þess að
afla sér tekna hér, til dæmis með
sölumennsku, umboðssölu, nám-
skeiðum eða ráðgjafarstörfum.
Sumir koma hingað aftur og aftur
og sleppa til þessa oftast við að
greiða venjuleg gjöld af tekjunum.
I sumum tilvikum getur hið nýja
staðgreiðslukerfi skatta gert þessu
fólki erfíðara fyrir, en án aukinnar
árvekni almennings stoðar hið nýja
kerfí lítið eitt sér. Engin ástæðá
er til þess að erlendir menn sem
afla sér tekna hér á landi greiði
ekki af þeim gjöld. Undanlátssemi
gagnvart útlendingum í þessu efni
leiðir bara til þess að gjöld okkar
sem hér búum löglega hækka.
íslendingar eru því hvattir til
þess að gera fyrirspumir eða koma
upplýsingum til yfirvalda um erlent
fólk sem ofangreint gæti átt við,
til skattstjóra, hagstofu (þjóðskrá)
eða útlendingaeftirlits.
Að auki getur bætt árvekni og
meira eftirlit almennings gagnvart
erlendum mönnum hér á landi leitt
til handtöku fleiri svokallaðra sölu-
manna dauðans, en í að minnsta
kosti tveimur mjög stórtækum og
nýlegum fíkniefnamálum hafa er-
lendir menn verið beinir innflytjend-
ur hinna ólögmætu efna.
Lesandi góður: Gerðu óhikað fyr-
irspumir til ofangreindra embætta
ef þér þykir ástæða til. Við verðum
að vemda íslenska menningu og
þjóðskipulag fyrir mönnum sem
ekki fínnst taka því að semja sig
að réttum íslenskum lögum. Við
megum ekki líða það að erlendir
MIG langar til að skrifa stuttlega
um umfjöllun Stöðvar 2 um biór-
málið í þætti Jóns Óttars Ragn-
arssonar, „Leiðaranum" þann 1.
febrúar. Þar fullyrti sjónvarps-
stjórinn, ásamt Katrínu Fjeldsted
lækni, að yrði bjórinn leyfður hér
myndi það minnka drykkju.
Ég tel þessa fullyrðingu alranga,
því ég er viss um að bjórinn yrði
notaður sem eins konar „íkveikja".
Fyrst drykkju menn bjór og svo
færðu þeir sig yfir í sterkari drykki.
Þá óttast ég mjög að bjórinn yrði
misnotaður af unglingum.
Ég tala af töluverðri reynslu í
þessum málum. Mér þykir sjálfri
bjórinn góður, en hann yrði mér
mjög hættulegur, sem og öðrum
áfengissjúklingum. Bjórinn virðist
saklaus „afréttari", en er stór-
hættulegur skaðvaldur.
Ég vil benda á, að á Vogi er allt-
af yfírfullt og fjöldi fólks á biðlista,
svo ég held að öllum ætti að vera
ljóst að við búum við nægan vanda
nú þegar, án þess að láta bjórinn
flæða yfír landið. Ég vil þakka Ótt-
ari Guðmundssyni lækni og Árna
Gunnarssyni, alþingismanni, fyrir
þein-a framlag í þætti Jóns Öttars.
Þeir töluðu af mikilli þekkingu og
menn reki svarta eða gráa atvinnu-
starfsemi í skjóli þess fijálsræðis
sem á íslandi er við lýði.
íslendingur
vonandi hafa orð þeirra valdið þvi
að færri óska eftir böli bjórsins.
Vonandi verður bjórfrumvarpið
aldrei samþykkt.
Að lokum vil ég geta þess að ég
er mjög ánægð með efni Stöðvar 2
og þá sérstaklega „Nærmyndir"
Jóns Óttars.
María Sigurðardóttir,
6452- 0407.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski naftileyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Bjór er böl
Árshátíð
Hestamannafélagsins Fáks verður haldin í
félagsheimilinu laugardaginn 13. febrúar nk.
oghefstkl. 19.00 meðborðhaldi.
Miðar eru seldir á skrifstofu Fáks kl. 15.00-
18.00 þriðjudag og fimmtudag.
Einnig í versluninni Astund, Austurveri og
Hestamanninum, Ármúla.
Hestamannafélagið Fákur.
vörum t.d.
CANON TOP SHOT
verð 15.400
verð nú
12.290
TILBOÐSVERÐ
f
15% AFSLAIIUR
AF FRAMKÖLLUN
LJÓSMYNOABÚÐIN
LouQavegi 118
(vio Hlemm)
s. 27744
30-50%
afsláttur
STIMPILDÆLUR
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMi 624260 §
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER £