Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 1
96 SIÐURB
43. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
Prentsmiðja MorgTinblaðsins
Shultz hittir
Shevardnadze
og Gorbatsjov
í Moskvu í dag
Helsinki, Reuter.
6E0RGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kom í gær
til Helsinki á leið sinni til Moskvu
þar sem hann mun reyna að
koma skriði á viðræður um hugs-
anlegt samkomulag risaveldanna
um lielmings fækkun lang-
drægra kjarnorkuflauga. Shultz
mun eiga fundi með Eduard
Shevardnadze, sovézkum starfs-
bróður sínum, og Míkhaíl Gorb-
atsjov, leiðtoga Sovétríkjanna.
Leiðtogar risaveldanna urðu
sammála um að hittast í Moskvu í
sumar og sagði Shuitz eftir leið-
togafundinn í Washington í des-
ember sl. að útlínur samkomulags
um fækkun langdrægra flauga
væru borðliggjandi. Hægt hefur
hins vegar miðað í Genfarviðræðum
ríkjanna um fækkun langdrægra
kjamorkuvopna. Embættismenn,
sem eru í för með Shultz, sögðu
að óheyrilega mikil vinna væri eftir
ef takast ætti að undirrita sam-
komulag á leiðtogafundinum.
Shultz og Shevardnadze munu einn-
ig hittast f marz og apríl til þess
að freista þess að koma samkomu-
lagi um flaugamar f höfn fyrir leið-
togafundinn í Moskvu.
Hæstiréttur Svíþjóðar:
Dómsorð um
forræði yfir
dauðum ketti
Stokkhólmi, Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Svíþjóðar
hefur dæmt dýravemdarsam-
tökum forræði yfir dauðum
fressketti. Úrskurði réttarins
er ætlað að skýra lög um
meðferð flækingsdýra, sem
útvegaður er nýr samastaður.
Með dómi þessum, sem kveð-
inn var upp á föstudag, lýkur
langvinnum og bitrum málaferl-
um milli dýravemdarsamtak-
anna undir forystu Else Wigh
og fjölskyldunnar, sem tók að
sér köttinn.
Wigh fann köttinn f Gauta-
borg árið 1985 og skaut skjóls-
húsi yfir hann, áður en hún út-
vegaði honum nýja forsjármenn.
Kötturinn, sem kallaður var
Astor, strauk frá fósturforeldr-
unum, og Wigh, sem fann hann
aftur eftir margra vikna leit,
neitaði að afhenda þeim hann
aftur og bar fyrir sig klásúlu í
forræðissamningnum, þar sem
kveðið var á um illa meðferð. Á
eftir fylgdi mikið málastapp.
Astor drapst í fyrra, þegar til
slagsmála kom á fósturheimil-
inu, eftir að fjölskyldan hafði
tapað forræðismálinu í undir-
rétti. Hæstiréttur staðfesti und-
irréttardóminn. í dómsorðinu
sagði, að málið hefði verið tekið
fyrir í því skyni að skýra viðkom-
andi iög.
„Þetta felur í sér, að við höf-
um rétt til að taka ketti frá fóst-
urfjölskyldum, sem fara illa með
þá,“ sagði Else Wigh.
Punjab:
Mikið
manntjón
í aðgerð-
um síka
Amritsar, Reuter.
ÖFGAMENN síka myrtu 10
manna fjölskyldu nærri Amrits-
ar, hinni helgu borg síka í
Punjab-fylki á Indlandi, i gær-
morgun. Stöfluðu þeir líkunum
upp, helltu benzíni yfir köstinn
og kveiktu í. Talið er að um
hefndarmorð hafi verið áð ræða.
í fyrradag biðu 13 manns bana
og að minnsta kosti 50 slösuðust
er sprengjur sprungu í dóm-
húsum þriggja borga í Punjab.
Öfgasinnaðir síkar eru grunaðir
um að hafa komið sprengjunum
fyrir. Lögregla er nú í viðbragðs-
stöðu í Punjab og dómhúsum
hefur verið lokað.
Að sögn lögreglu í Chandigarh,
höfuðborg Punjab, eru þetta fyrstu
meiriháttar sprengjuárásir síka í tvö
ár ög í fyrsta skigti er þeim beint
gegn dómhúsum. í borginni helgu,
Amritsar, var heimatilbúinni
sprengju varpað að aðsetri dóms-
yfirvalda á hádegi í gær. Einn
maður fórst og 19 særðust. Klukku-
stundu síðar sprakk sprengja í
borginni Gurdaspur með þeim af-
leiðingum að tveir létust og 23
særðust. Nokkrum mínútum síðar
létust tveir menn og fjórir særðust
er sprengja sprakk í borginni Hos-
hipur.
Að sögn yfirvalda voru sprengj-
umar þijár á stærð við hand-
sprengjur og samanstóðu af
sprengiefni, nöglum og skrúfum.
Félagar í Khalistan-hersveitunum
sem berjast fyrir heimastjóm síka
í Punjab em gmnaðir um sprengju-
árásimar.
Alls hafa 220 manns beðið bana
í ofbeldisverkum í Punjab það sem
af er árinu. í fyrra biðu 1.200
manns bana í ofbeldisaðgerðum í
Punjab.
0 ^ Morgunblaðið/RAX
IGRIMSEY
Hallar á Waldheim 1
nýrrí skoðanakönnun
Vin. Reuter.
KURT Waldheim, sem lýst hefur yfir, að hann muni ekki segja
af sér embætti forseta Austurríkis, fékk enn eitt bakslagið í skoð-
anakönnun, sem birtist í gær. Samkvæmt niðurstöðum hennar
hefur hann tapað fylgi meirihluta kjósenda. Fleiri voru fylgjandi
afsögn hans en áframhaldandi setu í embætti.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar, sem birtist í íhaldsblað-
inu Salzburger Nachrichten töldu
45% þeirra 522 kjósenda, sem
spurðir vom, að forsetinn ætti að
segja af sér, en 42% töldu, að hann
ætti að sitja áfram.
Einnig kom fram, að 42% að-
spurðra kváðust ekki mundu ljá
honum atkvæði, ef forsetakosning-
ar fæm fram í dag, en 31% kvaðst
mundu lcjósa hann. Af þeim, sem
þá em eftir og ekki vom eins af-
dráttarlausir í svömm, kváðu 11%
ólíklegt, að þeir mundu kjósa Wald-
heim, en 14% kváðu það líklegt.
Þetta er fyrsta skoðanakönnun-
in, sem sýnir, að Waldheim hefur
tapað meirihlutafylgi meðal aust-
urrískra kjósenda._ Margt bendir
einnig til þess, að í íhaldsflokknum,
sem stutt hefur dyggilega við bak-
ið á honum, sé nú verið að endur-
skoða afstöðuna til forsetans.
Helmut Hukacka, aðalritari
flokksins, segir í viðtali, sem birtist
í íhaldsblaðinu Die Presse í gær,
að sumir flokksmanna muni ekki
styðja Waldheim á kostnað flokks-
ins. „Forsetinn verður að taka af
skarið og veija sig gegn ásökunum
um, að hann hafi logið til um feril
sinn í stríðinu og ávinna sér það
traust, sem hann hefur glatað,“
sagði Hukacka í viðtalinu.
Waldheim hefur lýst yfír þeim
staðfasta ásetningi sínum að sitja
áfram í forsetaembættinu, þar sem
hann njóti stuðnings meirihluta
Austurríkismanna og afsögn hann
mundi leiða til glundroða í landinu.