Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 5

Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 Jón Baldvin Hannibalsson: Sjálfsagt að afnema innflutn- ingsbann á frönskum kartöflum Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Litlu munaði að jarðýtan rynni af vagninum og skylli á götuna. Ohapp við flutning FJORUTlU tonna jarðýta, sem verið var að flytja hér í gegnum bæinn, rann til á dráttarvagni og munaði litlu að hún skylli niður á götu hér inni í bæ. Jarðýtan er í eigu eins aðstand- enda Héraðsverks og var verið að flytja hana i gegnum Egilsstaðabæ að athafnasvæði nýja flugvallarins. Töluverðar tilfæringar þurfti að viðhafa til að rétta þetta stórvirka tæki á dráttarvagninum en ýtan veg- ur um 40 tonn eftir að ýtutönn hefur verið tekin af til að auðvelda flutning. Héraðsverk er nú að hefja undir- búning við annan áfanga nýs Egils- staðaflugvallar eftir hlé frá því um jól en fyritækið lauk 1. áfanga verks- ins að mestu. í öðrum áfanga verks- ins felst m.a. uppgröftur og fylling í 600 m af um 2000 m flugbraut Myndlistar- sýning í Is- lensku óperunni í TILEFNI frumsýningar Islensku óperunnar á Don Giovanni gáfu listamennimir Jóhannes Geir Jónsson og Jón E. Guðmundsson operunni málverk til fjáröflunar fyrir starfsemina. Þetta er annað árið í röð sem lista- menn gefa íslensku óperunni mál- verk en í janúar fyrir ári var opnuð sýning á verkum fjölda listamanna í íslensku óperunni. Frá því sýningin var opnuð hafa æ fleiri listmálarar sent myndir á sýninguna og hafa þeir allir gefið operunni verk sín. Andvirði allra myndanna nemur tæp- lega 2 milljónum króna og þegar hafa selst myndir fyrir rúmar 1,5 milljónir króna. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 15.00 til 18.00 og að sjálf- sögðu einnig fyrir gesti operunnar þau kvöld sem sýningar fara fram. nýja vallarins og gerð nýs farvegs fyrir Eyvindará. - Bjöm JÓN Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra segir að það hafi verið sjálfsagður hlutur, í fram- haldi af tollabreytingunum um síðustu áramót, að tilkynna tollayfirvöldum að ekkert inn- flutningsbann væri lengur á frönskum kartöflum. Jón Baldvin sagði við 'Morgun- blaðið að ekkert sérstakt byggi á bak við þessa ákvörðun. „Það var sjálfsagður hlutur að tilkynna tollayfírvöldum, í framhaldi af toll- breytingunum, að áður útgefið bréf um stöðvun á þessum inn- flutningi ér ekki í gildi. Við höfum aðeins tilkynnt að þetta beri að meðhöndla eins og hvem annan innflutning, þetta er ekki undir neinu sérstöku banni," sagði Jón Baldvin. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagði við Morgunblaðið á miðvikudag að þessi ákvörðun hefði komið sér mjög á óvart og ekkert hefði verið rætt við land- búnaðarráðuneytið áður. Um þetta sagði fj ármálaráðherra að §ár- máðaráðuneytið hefði litið svo á að þama væri um einfald fram- kvæmdaatriði að ræða á eigin verksviði. „En ég minni á að það var ekki haft samráð við okkur við útgáfu á reglugerð um það að koma kjúklinga- og eggjafram- leiðslu undir framleiðslustjómun þrátt fyrir að ágreiningur væri um það í ríkisstjóm og fyrri ríkisstjóm hefði skuldbundið sig til þess í kjarasamningum að grípa ekki til slíkra aðgerða," sagði Jón Baldvin. -Er þá þama að kristallast tog- streita milli Qármála- og land- búnaðarráðuneytis? „Eg vil ekkert um það segja," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Hið íslenska náttúrufræðif élag: Æxlunarhegð- un bleikju í Þingvallavatni HREFNA Siguijónsdóttir líffræð- ingur heldur fyrirlestur mánu- dagskvöldið 22. febrúar og segir þar frá niðurstöðum rannsókna á kuðungableikju i Þingvallavatni. M.a. kom í ljós að mikil sam- keppni er milli hænga um hrygnur. Hængamir hegða sér mismunandi eftir stærð og stöðu og er óhætt að segja að meira gerist niðri í vatninu en halda mætti við fyrstu sýn. í lok- in verður sýnt myndband, sem enn er ekki fullunnið, af hegðun fiskanna niðri við botn vatnsins. Fyrirlesturinn, sem er er öllum opinn, verður í stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Háskólans, og hefst kl. 20.30. Höfðar til .fólksí öllum starfsgreinum! Páskaferð 1.-5. apríl. Gist á 5 stjörnu hóteli, sem er með glæsilegum herbergjum og gullfallegum veitingasölum þar sem boðið er upp á stórglæsilegar veislumáltíðir. Auk þess er í hótelinu m.a.: Sundlaug, líkamsrækt, sauna og Ijós o.m.fl. Brottfön l.apríl 1. dagur • KomiðtilAmsterdamkl. 12.05. • Farið í verslunarferð • Kvöldið frjálst 2. dagur • Frjálsdagur 3. dagur • Síkjasigling með íslenskum farar- stjóra • Þriréttaður kvöldverður á hinum fraega veitingastað „Sea Palace“ 4. dagur • Frjáls 6. dagur • Brottförfrá Amsterdam kl. 13.00. Komið til Keftavikur kl. 14.15. Næturiífið í Amsterdam á sér enga hliðstæðu. Frábær- ar kabarettsýningar og hollensku matsölustaðimir sem heilla alla. P.S. Fólk utan að landi færsérstök vildarkjör. Alltþotta fyrir aðeins kr. 28.900,- Takmarkaður sætafjöldi. VERTU HRESS OG HAFÐU SAMBAND m rm - m w&'1 M i- fé ;’í -t *-t w j/i' FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 16S:621490 Umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.