Morgunblaðið - 21.02.1988, Page 22
22
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
\&S&
-rrS-4*
N'-'fSToC" .
Wr>..
Ekkí er allt gull sem glóir
Ungur nemur . . . Douglaa að kenna Sheen á svikamyllu verðbréfamangs.
KvBkmygidir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN:
WALL STREET
Leikstjóri: Oliver Stone. Hand-
rit: Stone og Stanley Wiser. Tón-
list: Stewart Copeland. Kvik-
myndatökustjóri: Robert Ric-
hardson. Framleiðandi: Edward
R. Pressman. Aðalleikendur:
Michael Douglas, CharUe Sheen,
Daryl Hannah, Martin Sheen, Hal
Holbrook, Terence Stamp.
Bandarisk. 20th Century Fox
1987. U.þ.b. 120 mín.
Wall Street flallar um kaupmang
sem íslendingar þekkja vart nema
af afspum, (mun að líkindum breyt-
ast á sumri komanda) kauphallar-
viðskifti, verðbréfabrask, verð-
bréfasalana. Þeirra hlutverk er að
fínna út hvaða hlutabréf er hag-
stæðast að kaupa eða selja, hveiju
sinni. { rauninni æsilegt happa-
drætti sem fært hefur slyngum
mönnum ógn §ár. Eftir lýsingum
Stones að dæma eru það lítt geð-
þekkir menn sem stunda braskið
heldur fyrst og fremst einstakling-
ar, sem reknir eru áfram af blindri
gróðavon og áfergju í öll hugsanleg
lífsins gæði. Menn selja Mámmon
sálu sína með glöðu geði, allt er
metið til peninga, hér stjómar
1 GOTUKORT:
Nákvæm fjórlita götukortyfir
höfuðborgarsvæðið, þéttbýl-
issvæði á Suðurnesjum, Sel-
fossi, Hveragerði, Akranesi
ogAkureyri.
4 FYRIRTÆKJASKRÁ:
Fyrirtækjaskráin hefurað
geyma hagnýtar upplýsingar
um fyrirtæki og stofnanir
(m.a. kennitölu, sölu-
skattsnr., starfssvið og margt
fieira).
5 ÞJONUSTUSKRA:
íþjónustuskránnierað finna
yfir 1200 vöru- og þjónustu-
flokka. Hvort sem þú leitar
að afleysingaþjónustu eða
vantar öryggisbúnað þá hef-
urþjónustuskrá Gulu bókar-
innar svarið.
\*>
ca
ca
\'A
,,.u
M»
2 GOTUSKRA:
ítarleg götuskrá með tilvísun
ikortin. Bráðnauðsynleg i
sífellt stækkandi byggðarlög
um.
6 FYRIRTÆKJA-
SÍMASKRÁ:
Gula bókin er viðskiptahand-
• bók allra landsmanna. Þar
finnur þú símanúmer allra
söluskattsskyldra aðila. Gula
bókin erþvi tæmandi fyrir-
tækjasímaskrá.
3 ÝMISLEGT:
Ýmis þjónustukort auk neyð-
arhjálpar, umboðaskrár o.fl.
Allt i þágu neytandans.
7 SÍMAÞJONUSTA:
Neytendaþjónusta sem gagn
erað.
GUIA BÓKIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3 • 101 RVÍK • SÍMI 624242
græðgi og aftur græðgi.
Einn af vonbiðlum peninga-
fíkninnar er Charlie Sheen. Sökum
óstjómlegrar frama- og auragræðgi
fær hann starf hjá einum aaðsta-
presti verðbréfabraskaranna,
Michael Douglas. Hann kennir hon-
um brögðin og Sheen reynist hinn
besti nemandi. Smásaman tapar
hann öllum mannlegum eiginleikum
enda lærimeistarinn óspar á heil-
ræði kauphallarmangara, „græðgi
er góð“, „ást er þjóðsaga", o.s.frv.,
jafnframt því sem hann kennir hon-
um gróðabrallið sem oftar en ekki
þolir illa dagsljósið. En Sheen kemst
að því undir lokin að ekki er allt
gull sem glóir, hann lendir í braski
sem snertir flölskyldu hans og
mannkostimir verða ofaná j)ó að
það kosti miklar fómir.
Wall Street gerist mikið til í fjar-
rænu og ógeðfelldu umhverfí pen-
ingamustera New York og kaldr-
analegum lúxus auðmanna þar sem
allt er metið til fjár. Ramminn í
kringum persónumar er skarpur og
undirstrikar listilega tilbeiðslu
þeirra á dollaramerkinu. Fleðu-
gangur Sheen og hin kalda, yfír-
borðslega en föðurlega umhyggja
Douglas er svo sannarlega tragi-
kómísk, lífíð er jú aðeins peningar
og fyrir þá er öllu fómað ef útí það
fer.
Sem í Platoon fjallar Wall Street
um reynslu Stone af myndefninu,
en faðir hans var verðbréfasali í
kauphöll New York-borgar og hon-
um er myndin tileinkuð. Hann virð-
ist líka kunna góð skil í völundar-
húsi spákaupmennskunnar, það
svo, að þeir peningavitgrönnu eru
stundum skildir eftir! Efnið er svo
sannarlega inni í dag, eftir verð-
bréfahrunadansinn vestan hafs og
peningahneyksli Ivan Boesky —
sem hæglega gæti verið’fyrirmynd
Gekkos (Douglas). Og hann hefur
virkjað Douglas, sem hér á geysi-
sterkan skapgerðarleik og minnir
meira en lítið á karl föður sinn er
hann var uppá sitt besta. Sheen er
hinsvegar ekki eins trúverðugur f
hlutverki „nemans“, vantar hörk-
una. Aukahlutverkin em flest í góð-
um höndum leikara einsog Hal
Holbrook, Terence Stamp (sem nú
er farinn að skjóta upp kollinum í
hverri myndinni á fætur annarri
eftir langar Qarvistir), Sean Young
(No Way Out), þá bregður fyrir
hinni kyndugu Sylviu Miles í hlut-
verki fasteignasala. Myndin er á
allan hátt vandvirknislega unnin,
metnaðargjöm skemmtun, þó svo
að innantómt peningahljóðið láti
stundum full hátt í eyrum.
Fríkirkjan í Reykjavík:
Föstumessur
og bænastundír
Þijár föstumessur verða
sungnar f Fríkirkjunni í
Reykjavík á þessari föstu. Hin
fyrsta miðvikudaginn 24. febrú-
ar, önnur miðvikudaginn 9. mars
og sú þriðja og síðasta miðviku-
daginn 23. mars. Þær hefjast
allar kl. 20.30.
Safnaðarprestur flytur stutta
hugleiðingu, sungið verður úr
Passíusálmum síra Hallgríms Pét-
urssonar og Litanfa síra Bjama
Þoreteinssonar í Siglufirði verður
flutt af Fríkirkjukómum. Söngstjóri
og organisti er Pavel Smíd.
Þá verða og stuttar bænastundir
í kirkjunni þriðjudaga, miðviku-
daga, fímmtudaga og föstudaga kl.
18.00, eins og verið hefur undanfar-
in ár. Hin fyrsta þeirra verður
þriðjudaginn 23. febrúar, en hin
síðasta miðvikudaginn 30. mare.
(FréttatUkynning)