Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
25
Veitingabúðin er lítil, en ákaflega
geðþekk og við bætist hið fagra
útsýni yfír Hljómskálagarðinn og
'Ijamarendann sitji maður við
glugga. Trúa mín er, að hér geti
orðið nafntogaður stefnumótastað-
ur líkt og á MoMA í New York, sem
ratað hefur í bækur og kvikmyndir!
Að öðm leyti vil ég fara varlega í
það að dæma húsið og bygginguna
og láta tímann skera úr því, hvem-
ig hún venst. Það hefur og komið
fyrir, að það sem hafa virst gallar
við söfn í upphafí, vandist vel, en
hins vegar sumt það, sem dregið
var fram sem vel heppnað, illa.
Það mikilvægasta er hér, að
byggingin er komin upp og safnið
tekið til starfa. og nú er að sjá,
hvemig tekst til með reksturinn,
og sé ég ekki ástæðu til annars en
að vera bjartsýnn. Og hér vil ég
enn einu sinni árétta og ítreka mik-
ilvægi þess, að safnið fái fastan
tekjustofn til rekstursins og kaupa
listaverka eins og t.d. listaverka-
sjóður Kópavogs og listasafn Há-
skólans. Safnið má ekki vera komið
undir náð misviturra einstaklinga á
Alþingi, svo sem sjálf reynslan er
gleggsta dæmið um.
Það hefur vakið athygli, að
kostnaður hefur farið fram úr áætl-
un og hér hafa menn verið ótrúlega,
snöggir við að skipa nefiid til rann-
sóknar þeirri „ósvinnu" að bmðla
með fé til menningar. Væri ekki
rétt að rannsaka það um leið, hve
mikið af gjafafé, en safnið væri
órisið án þess, hefur rýmað við taf-
ir og seinkanir framkvæmda. Einn-
ig það hve mikill kostnaðarauki það
hefur verið, að flárframlög vom
skorin niður af Qárveitingavaldinu
og menntamálaráðherrar tímabils-
ins urðu að beijast fyrir flárveiting-
um til safnsins. Allar tafír em dýr-
ar í verðbólguþjóðfélagi.
Ég vil vísa til þess hér, að það
tók 3 ár að reisa hið mikla þjóðlista-
safn í Berlín, sem er allt að 20 sinn-
um stærra, en það tók okkur 8 ár
að innrétta þessa smáútgáfu af
listasafni. Hér er auðvitað ólíku
saman að jafna, því að Sambands-
lýðveldið er rík þjóð. En hitt er einn-
ig staðreynd, að Þjóðveijar moka
peningum til menningar og lista —
söfii þeirra hafa fastan tekjustofn
auk lögbundinna framlaga frá get-
raunum hvers konar á íþróttasviði
og lotto. Þannig fá þeir fótmenning-
una til að stíga upp til höfuðsins.
— Ýmsir hafa fárast út af því,
að ekki séu næg bílastæði við safn-
ið og hér er eins og menn haldi,
að þeir geti nálgast listasafnið með
sama hugarfari og stórmarkaði eða
íþróttakeppni. Ég tel að enginn sé
of góður til að nálgast safnið á
tveim jafnfljótum, enda er staðsetn-
ingin sú hugsanlega besta í borg-
inni og umhverfið yndislegt. Til að
auðvelda fólki aðkomuna mætti
kannski láta strætisvagna stoppa
nær því eða við það á opnunartíma
þess. En meginmáli skiptir, að safn-
ið er komið upp og tekið til starfa
og menn búast við miklu um öfluga
og lifandi starfsemi innan þess og-
utan í framtíðinni. Eitt ber að hafa
í huga frá upphafi og það er, að
þetta er þjóðlistasafn yfír myndlist-
ir með þeim kvöðum og skyldum
sem slík hafa, en ekki sérsafn —
hér þarf einnig að koma til sérsafn
fyrir listiðnað og annað fyrir nýlist-
ir.
Verði innan þess jafnan til sýnis
brotabrot af öllu mögulegu innan
sjónlista, nær það ekki tilgangi
sínum vegna smæðar sinnar. Mögu-
legt væri einnig og jafnvel æski-
legt, að sérsöfnin yrðu sérstakar
deildir innan safnsins, er litu sér-
stakri stjóm — væru sjálfstæðar
einingar.
Safnið sjálft yrði þá miðstöð
íslenzkra sjónlista og fari svo, getur
það á engan hátt talist skraut —
né monthús yfír íslenzka myndlist
heldur vegleg og rismikil umgjörð
um íslenzkar sjónlistir.
— íslenzkri myndlist og mynd-
listarmönnum ber að óska til ham-
ingju með þetta safn, — forstöðu-
manni og starfsfólki velgengni í
rekstri þess.
í annarri grein vík ég svo sér-
staklega að sýningunni Aldarspeg-
ill.
Borgarnes:
Skautasvell
á íþrótta-
vellinum
UNGIR skautaiðkendur í
Borgarnesi hafa að und-
anförnu fengið gott tæki-
færi til að leika listir sínar
á góðu svelli á íþróttavell-
inum.
Það voru starfsmenn
Borgamesbæjar sem gerðu
svellið og hafa þeir haldið því
rennisléttu. Á myndinni sjást
ungir Borgnesingar í fímleg-
um æfíngum og í bakgrunni
ber Hafnarfjallið við himin.
Morgunbladið/Theodór
:eu’™So°í
la íerðir . 0g
rstJórar . £eí
mta strax