Morgunblaðið - 21.02.1988, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
Flest kvöld eru stræti smábæjarins Carmel svo
fáfarin og hljóð að mávamir taka þar völd. Aftur
á móti breytist þessi litli, friðsæli bær gersamlega
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar, því þá stígur
bæjarstjórinn inn í bifreið sína og ekur að
ráðhúsinu. Carmel er lítill bær 120 mílur suður
af San Francisco. Borgarstjórinn heitir Clint
Eastwood og er öllu þekktari sem
kvikmyndaleikari.
BÆ JARST J ÓRINN
CLENT
EASTWOOD
Clint skildi við konu sína sem
hann hafði veríð kvæntur í 30
ár og tók saman við leikkonuna
Söndru Locke, sem hér sést.
Það er langt síðan sá orðrómur
komst að kreik að Clint, sem er
einhver frægasti og umdeildasti
kvikmyndaleikari í Bandaríkjunum
fyrr og síðar, stefndi ótrauður að
mikilvægu, opinberu embætti.
Hann er eitilharður repúblikani og
því telja menn sig sjá hann taka
sömu sporin og annar frægur mað-
ur, Ronald Reagan. Clint er tíður
gestur hjá Reagan, bæði á býli for-
setans í Santa Barbara sem og í
Hvíta húsinu, þeir ræða gjaman
gamlar bíómyndir, og ef til vill
stjómmál. En Clint Eastwood blæs
á' allar hugmyndir um að hann
stefni hærra en hann er kominn
nú þegar.
Hann segin
„Ég skil ekki þetta tal. Ég hef
alls ekki metnað í þá átt. Ég stefndi
á bæjarstjóraembættið hér í Carmel
af þeirri einfóldu ástæðu að hér bý
ég og hef gert í mörg ár og hér
langar mig að búa áfrarn."
En það em margir sem telja að
það hljóti að vera leiðinlegt fyrir
gamla kvikmjmdastjömu, vana
glensi og gleði f Hollywood, að taka
að sér stjóm dvergríkis eins og
Carmel. Eastwood þvertekur fyrir
það. Hann segir að starfið sé at-
hyglisvert, mjög hvetjandi fyrir sig,
og vissulega tilbreyting því hann
hafi aldrei fyrr staðið í stjómmál-
um. Hann notar gjaman tækifærið
til að benda á að hann fái aðeins
200 dali (um 8000 kr.) á mánuði,
og bætir kankvíslega við að sumir
bæjarbúar telji það alltof há laun.
Clint Eastwood kann illa við að
trana sér fram í fjölmiðlum, og
hefur alltaf gert. Hann er heldur
ekki hrifinn af ýtnum blaðamönn-
um. Hann er mjög feiminn að
eðlisfari og metur ekkert meir en
einkalíf sitt, en hann segir að hann
hafi orðið að fóma því að vissu
marki eftir að hann tók við nýja
starfinu. „Ég geri mér grein fyrir
því strax og ætli ég sætti mig ekki
við það í nokkur ár,“ segir hann.
Sumir íbúar í Carmel kvarta und-
an því að bærinn hafi illu heilli
breyst úr lítilli, hljóðri paradís og
e.k. felustað hæglátra manna í há-
væra „Clintville". Rútur drekk-
hlaðnar ferðamönnum koma og fara
alla daga til að skoða þennan stað
og kaupa skyrtur og minjagripi með
áletrunum eins og „Clint bæjar-
stjóri“. Ferðamennimir, og raunar
allir sem ekki eiga þar lögheimili,
spyija fólkið hvar það geti barið
bæjarstjórann og hörkutólið frá
Hollywood augum.
Clint tekur þessu með jafnaðar-
geði, en segist þó ekki skilja í því
hvers vegna hann njóti þvílíkra vin-
sælda. Hann bjóst auðvitað við
látum þegar hann bauð sig fram
og kosningaherferðin hófst í janúar
1986, en hvem óraði fyrir því að
athyglin héldist ótrauð áfram út
lqörtímabilið? En Clint telur sig
hafa fundið ástæðuna.
Carmel er allsérstæður bær í ein-
stöku umhverfi. Hann er djásn
Montery-skagans; gamaldags smá-
þorp með laufskurðarskreyttum
húsum, fomum götuheitum, sér-
kennilegum krám, áttatíu lista-
verkasöfnum og dásamlegri
baðströnd, íbúamir eru enn ekki
5.000. Þar eru engin einkenni
nútímaborgar, svo sem umferðar-
ljós, götunúmer, neonljós, stöðu-
mælar, og engin bygging er hærri
en þijár hæðir.
Aður en Clint Eastwood kom til
sögunnar var bæjarins helsta stolt
árlegt golfmót í febrúar, tónleika-
hátíð á ströndinni í júlí, og jazzhá-
tíðir tvisvar á ári. Og þar til Clint
gerði sig breiðan vom þar engin
frægari nöfn en gömlu brýnin Paul
Anka, Joan Fontaine og Doris Day.
Því vaknar spumingin hvað það var
sem fékk leikarann til að fórna
einkalífi sínu sem hann mat svo
mikils og bjóða sig fram til bæjar-
stjóra. Hvers vegna leitaði hann
hnefafylli atkvæða heldur en doll-
ara?
■'tsm
Bæjarstjórínn Clint
Eastwood hefur ríka
ástæöu til að brosa,
enda heffur honum
vegnað vel í starfi.
Kjörtímabilið rennur
út í apríl nk.
Clint Eastwood, sem hef-
ur átt heima í Carmel
síðustu fimmtán árin,
var kosinn bæjarstjóri
til tveggja ára í apríl
1986. Yfírburðir hans yfir andstæð-
ing sinn vom miklir. Clint hefur
einbeitt sér að embættinu síðan
hann var kosinn og leikið aðeins í
einni kvikmynd (Heartbreak
Ridge).
Clint nýtur mikilla vinsælda sem
bæjarstjóri og aukast þær með
hveijum mánuði. Bæjarstjómar-
fundir em haldnir mánaðarlega og
er slegist um sætin í ráðhúsinu.
Flestir sem koma er fólk sem dáð
hefur hann sem leikara en einnig
keppast blaðamenn hvaðanæva úr
heiminum um að fylgjast með fund-
unum. Þegar þeim lýkur ijúka þeir
að borgarstjóranum og spyqa
spuminga eins og: „Ætlarðu aftur
í framboð þegar þessu kjörtímabili
lýkur? Eða stefnirðu kannski á mik-
ilvægara embætti. t.d. forsetann?"
Clint Eastwood hristir bara hausinn
eins og Harry Callaghan
gerði gjaman í bíómyndunum
forðum. En nókkmm svarar
hann þó.