Morgunblaðið - 21.02.1988, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
61
Lionsklúbburinn Keilir:
Kynning á
verkefninu
„ Að ná tökum
á tilverunni“
Vogum.
LIONSKLÚBBURINN Keilir í
Vogum bauð hreppsbúum að
mæta á fund klúbbsins nýlega þar
sem var verið að kynna verkefnið
„Lions-quest", sem kallast á
íslensku „Að ná tökum á tilver-
unni“, en verkefnið hefur verið
tekið til tilraunakennslu í sex
skólurn, þar á meðal Stóru-Voga-
skóla í Vogum.
Fjöldi fólks mætti á fundinn þar
sem Arthur Knut Farestveit formaður
fíkniefnavamamefndar Lions kynnti
verkefnið og Bergsveinn Auðunsson
skólastjóri ræddi um þátt skólans í
tilraunakennslunni, sem fer fram í
6. bekk, en í honum eru 22 nemend-
ur að þessu sinni. Tilraunakennslan
hófst í byijun þessa árs og henni
verður siðan haldið áfram næsta vet-
ur. Arthur sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins: „Þið hafið
áhugasaman kennara, áhugasaman
skólastjóra og áhugi foreldra er
greinilega mjög mikill, enda bíða
menn spenntir eftir árangrinum."
Engir kennarar fá að kenna þetta
námsefni nema hafa áður sótt sér-
stakt námskeið á vegum mennta-
málaráðuneytisins, en það var haldið
í nóvember síðastliðnum.
í lok fundarins afhenti Jón Bjama-
son, formaður Lionsklúbbsins Keilis,
tuttugu og tvö þúsund krónur í fíkni-
efnavamarsjóð Lions, sem er eitt
þúsund krónur á hvem nemanda' í
6. bekk í Stóru-Vogaskóla á þessu
skólaári. Arthur Farestveit veitti
gjöfínni viðtöku og sagði: „Þetta er
höfðinglegt og ég er mjög ánægður
með hve mikill áhugi er sýndur þessu
máli hér.“
. - EG
Miklaholtshreppur:
Fjölmenni
við útför
elsta íbúans
Borg i Miklahottahreppi.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var
gjörð frá Fáskrúðarbakkakirkj u
útför Sigriðar Þórðardóttur frá
Hofsstöðum f Miklaholtshreppi.
Fjölmenni fylgdi þessari heiðurs-
konu sfðasta spölinn.
Sigríður var fædd 17. september
1891, og var því 96 ára. Hún var
elsti íbúi Miklaholtshrepps. Hún var
ein af 16 bömum hjónanna Sesselju
Jónsdóttur og Þórðar Pálssonar í
Borgarholti. Ég veit ekki um að
nokkur íbúi þessarar sveitar hafi
náð þessum háa aldri. Maður Sigríð-
ar var Eggert Kjartansson, mikill
dugnaðar og drengskaparmaður.
Hann lést árið 1967. Mestan hluta
búskapar sfns bjuggu þau hjónin
að Hofsstöðum hér í sveit. Þau eign-
uðuSt 3 böm og ólu upp eina fóstur-
dóttur.
Páll
Lazer Tag er stórskemmtilegur íþróttaleikur framtíðarinnar.
Lazer Tag settið inniheldur: Geislara, sem sendir frá sér innrautt
ljós, (svipað og fjarstýringar sjónvarpstækja), geislanema, sem
skráir allt að 6 sendingar, belti og hulstur fyrir geislarann.
Vegna mjög hagstæðra samninga, getum við nú boðið nokkur
Lazer Tag sett og aukahluti á sérlega góðu verði.
^980^
1790,-
land
Húfa 2250^. Hjálmur '3v45&^ Vesti '1785,-=
1.350,- 2.070,- 1.070,-
f _
T
UOSRITUNARVELAR