Morgunblaðið - 21.02.1988, Page 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Sverrir
Fræg altaristafla úr Ögurkirkju frá 16. öld - flæmsk að þjóðerni - sannarlegt augnayndi vestfirskum útgerðarbændum og fólki þeirra.
ÞJÓÐMINJASAFN
ÁTÍMAMÓTUM
Þarf að samræma kröfum tímans
Morgunblaðið/Sverrir
Altaristafla frá Berufjarðar-
kirkju — prédikunarstóll frá
Saurbæ á Barðaströnd.
í bókinni „100 ár í Þjóðminja safni11 kemst
Kristján Eldjárn, þáverandi þjóðminjavörður
og síðar forseti Islands, svo að orði meðal
annars:
„Segja má að á vorum dögum séu söfnin
stórveldi í menningarlífi flestra þjóða. Allt
er gert til að uppræta hinn gamla hugsunar-
hátt að safni sé líkjandi við dauðs manns
gröf. Nútímasöfn eru full af lífi og birtu.
Þjóðminjasafn íslands verður að fylgjast
með þessari þróun og verka vakandi fulltrúi
íslands á sfnu sviði... Þjóðminjasafnið á
að vera alþýðleg menntastofnun og rann-
sóknarstofnun í íslenskri menningarsögu
og hlýtur í framtíðinni að reyna að styrkja
aðstöðu sína til að gegna þessu tvíþætta
hlutverki...“
Þegar þessi orð voru skrifuð stóð Þjóð-
minjasafnið á vissum tímamótum vegna ald-
arafmælisins. Nú eru komin ný tímamót.
Safnið á 125 ára afmæli um þessar mundir
og mun á næstunni ganga í endurnýjun
lífdaga með auknu húsrými sem varð þegar
Listasafn íslands flutti úr húsakynnum
sfnsins í eigið hús. Nú opnast möguleikar
á því að endurbæta og efla starfsemina og
færa hana í nýjan búning svo hún megi
samræmast kröfum tímans.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður, var
beðinn að segja lesendum Morgunblaðsins
örlftið frá safninu — upphafi stofnunarinn-
ar, stöðunni nú og framtíðardraumum.
Honum fórust svo orð:
Morgunblaðið/Sverrir
Þór Magnússon, þjóðminjavörður. Fyrir framan hann eru gripir frá
10. öld úr kumlinu við Baldursheim í Mývatnssveit. Þetta eru fyrstu
gripir sem safnið eignaðist ásamt munum sr. Helga á Meluin í Mela-
sveit. Á myndinni má sjá taflmenn, spjótsodd, heimbrýni, járnnál,
gjarðahringju og slitur af sverði.
Morgunblaðið/Sverrir
Fyrir nokkrum árum var endurbyggð gömul baðstofa í Þjóðminjasafninu sem gefur góða mynd af
slíkum húsakynnum fyrr á öldum. Baðstofan er frá Skörðum í Dalasýslu. f