Morgunblaðið - 21.02.1988, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 21.02.1988, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 Morgunblaðið/Sverrir Þjóðmiiyavörður í myndasafninu. Fremst er myndasafn Lofts Guð- mundssonar, ljósmyndara, sem Þjóðminjasafninu áskotnaðist. n Morgunblaðið/Sverrir Margrét Gisladóttir sem vinnur við varðveislu textíla (vefta) í Þjóðminjasafninu. Ljósmyndarinn rakst á hana í þessari geymslu gamalla nytjahluta og smellti af henni mynd. I § I Eins og mörgum er kunnugt hefur Sig- urður Guðmunds- son málari löngum verið talinn frum- kvöðull stofnunar íslenska þjóðminjasafnsins. Hann kynntist slíkum söfnum á námsá- rum sínum í Kaupmannahöfn þar sem hann lagði stund á listnám. Þar fékk hann ódrepandi áhuga á menningarsögu þjóðarinnar, enda fór svo að hann lagði listnámið á hilluna og helgaði sig einvörðungu varðveislu þjóðminja og menningar- arfs í breiðasta skilningi. Fyrstu hugmyndir um stofnun þjóðminjasafns eru hins vegar tald- ar eiga rætur að rekja til þess að fommannsgröf fannst við bæinn á Baldursheimi í Mývatnssveit árið 1860—61. Þá komu á daginn marg- ir merkilegir gripir og í framhaldi af þeim fundi skrifaði Sigurður hugvekju til íslendinga í Þjóðólf árið 1862 um þjóðminjar. Sú grein varð síðan til þess að sr. Helgi Sigurðsson, prestur á Melum í Melasveit, sendi stiftsyfir- völdum bréf og bauðst til að gefa 15 fommuni sem vom í hans eigu til þjóðminjasafnsins ef af stofnun yrði. Yfirvöld svömðu þessu bréfi jákvætt með öðm bréfí sem dag- sett er 24. febrúar 1863 og sá dag- ur er síðan talinn stofndagur. Fyrstu gripir safnsins em því 'úr fommannakumlinu í Baldursheimi og munir sr. Helga. Tijtekið var í fyrmefndu bréfi að Jón Ámason bókavörður skyldi taka við safninu og veita því forstöðu. Hann hafði hins vegar nóg á sinni könnu við bókasafnið og fékk því Sigurð Guðmundsson til liðs við sig. Sigurður vann síðan við safnið af eindæma elju og áhuga, enda safna- maður og safnari út í fíngurgóma," sagði Þór. „Safninu var fyrst komið fyrir á Dómkirkjuloftinu með bókasafninu. Sfðan var það flutt á ýmsa staði í bænum. Um tíma var það í Hegn- ingarhúsinu við Skólavörðustíg, annað tímabil í Alþingishúsinu. Árið 1908 var það flutt í safnahús- ið við Hverfísgötu ásamt öðmm söfnum landsins og í núverandi byggingu árið 1950, en þetta hús gaf þjóðin sér í tilefni lýðveldis- stofnunarinnar. Nú er efst á dagskrá að endur- bæta aðstöðuna og skipuleggja upp á nýtt, eftir að listasafnið flutti út. Hjörleifur Stefánsson arkitekt hef- ur verið ráðinn til að hafa forsögn um breytingar á húsinu. Nú þegar hafa verið lagðar fram tillögur um viðgerð að utan og innan og ný- byggingu í kring, geymsluhúsi, við- bót við sýningarsali og bættri sýn- ingaraðstöðu. Einnig er gert ráð fyrir lítilli veitingastofu, bættri snyrtiaðstöðu, inngangi á jarðhæð og lyftu upp á efri hæðir og neyðar- útgangi á suðurgafli. Þessar endurbætur em gróflega áætlaðar að muni kosta um 308 milljónir. Þegar þetta hús var byggt fyrir 40 ámm höfðu menn ekki skýra hugmynd um hvemgi slíkt safn ætti að vera. Margt hefur breyst síðan. Þá þótti t.d. sjálfsagt að ganga upp virðulegar tröppur til að komast inn í húsið, en þær em okkur núna þymir í augum af ýmsum sökum. Þá var aðeins gert ráð fyrir einni lítilli skrifstofu og sýningarsalir vom með mörgum gluggum, sem þykja ósækilegir nú. Það er ókostur að fá sólarljós inn á slíkum söfnum og erfítt að halda réttu hita- og rakastigi í sýningarsölunum. Þess utan er húsið byggt af vanefnum eins og reyndar fleiri opinberar byggingar frá þessum ámm og það hefur alla tíð þurft mikið viðhald." Þór var beðinn að víkja örlítið að innra starfí og hvemig því væri skipt í deildir inan stofnunarinnar. „Ifyrst var stofnuð sérstök þjóð- háttadeild árið 1963 á 100 ára af- mæli safnsins. Þar er unnið að söfn- un heimilda um atvinnu- og lifnað- arhætti þjóðarinnar. Síðan komu til fleiri sérdeildir. Fomleifadeild ann- ast fomleifarannsóknir. Húsvemd- ardeild annast viðhald og viðgerð gamalla bygginga sem em friðarðar á fomleifaskrá. í myndadeild er mikið safn af gömlum myndaplötum og ijósmynd- um — bæði mannamyndum og myndum af sérstökum atburðum. Safninu berast oft myndir og myndasöfn að gjöf. Mest em þetta gamlar myndir, en þær em líka frá síðari tímum og er þá einkum um að ræða myndir sem hafa eitthvert heimildargildi. Þetta safn stækkar ört. Textíl-deild sér um meðferð, skráningu og umönnun vefta (textíla). í forvörsludeild er gert við muni og gengið frá þeim svo að þeir varðveitist til frambúðar. Þar er gert við ýmsa muni úr safninu, til dæmis kirkjumuni, og það er gífurleg þörf fyrir slíka viðgerðar- vinnu. Fomleifadeild annast fomleifa- rannsóknir og fomleifaskráningu. Síðan má nefna safn- og sýningar- deild, tækniminjasafn og sjóminja- safn. Þar er lítil sýning á sjóminjum en í ráði er að koma upp veglegu sjómir\jasafni I Hafnarfirði í sam- vinnu við sveitarfélagið þar, en þar er nú þegar vísir að sjóminjasafni. Þess utan er svo almenn skrifstofa. Þá má geta þess að á vegum safnsins em oft unnin sérverkefni sem kostuð em að hluta eða öllu leyti af öðmm, t.d. fomleifarann- sóknir á Bessastöðum nýverið og á Þingvöllum. Við safnið starfa 10 sérfræðingar t ýmsum greinum þjóðfræða, en í allt em hér 14 stöðugildi, ein styrk- þegastaða, nokkuð um lausráðning- ar og sumarstarfsfólk. Okkur sár- vantar hins vegar bókavörð, vegna þess að við eigum allgott bókasafn MorgunblaðiS/Sverrir Krístin Sigurðardóttir, sérfræðingur í viðgerðtun fomgripa, við vinnu sína. Hún er að gera við styttu úr altaristöflu úr Hóladóm- kirkju sem er frá því um 1540. í ferhymdu öskjunum á borðinu em vaxtöfluraar sem nýlega fund- ust í Viðey. Þær’ liggja i sérstökum vökva og biða þess að lesið verði af þeim. Morgunblaðið/Sverrir Útskorinn skápur, íslensk list- asmið frá því um 1670. á sviði fomleifa-, menningar- og safnfræða og sérstakan ljósmynd- ara vantar líka til að vinna ljós- myndavinnu. Safnið á samstarf við ýmsa aðila, bæði laust og bundið, t.d. við byggðasöfnin. Mikið er leitað hing- að varðandi ýmis mál sem tengjast þjóðminjum. Hlutverk safnsins er því fólgið í ýmsu öðm en því sem snertir beint varðveislu og umönnun á fomminjum í eigu rfkisins." Okkur er spum hvar húsfriðunar- sjóður komi við sögu. „Með málefni hans fer sérstök nefnd,“ segir Þór, „og til hans fer Morgunblaðið/Sverrir Merkur gripur: Stóll úr Grundar- kirkju í Eyjafirði sem Þórunn Jónsdóttir Arasonar biskups af- henti kirkjunni. Stólamir vom upphaflega þrír — annar er á fornminjasafni ( Kaupmanna- höfn en ekki er vitað um afdrif hins þriðja. Stólana gerði Bene- dikt Narfason, einn snjallasti tré- skeri hérlendis fyrr og síðar, segir Kristján El^járn í „Hundr- að ár í Þjóðminjasafni". sérstök fjárveiting. Þessi nefnd íjallar um friðlýsingar og viðgerðir gamalla húsa og nefndin úthlutar styrkjum úr sjóðnum. Nefndin ann- ast líka faglega ráðgjöf um viðhald og viðgerð gamalla bygginga. 1 ár fær sjóðurinn til ráðstöfunar 2,8 milljónir og er þá reiknað með samsvarandi upphæð úr jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. Umsóknir á síðasta ári vom um 490 og um 40 styrkir vom veittir, sem er bara hungurlús. Meðalupphæð styrkja var um 100 þúsund krónur. Slíkt dugir auðvitað skammt en með þessu er verið að reyna að einhveija úrlausn. Utan þessa em svo veittir styrk- ir til viðhalds einstakra býgginga upp á 6,2 milljónir, þar af 4,8 millj- ónir til húsa á fomleifaskrá, torf- bæja og kirkna, og 1,4 milljónir til annarra viðfangsefna. Þetta dugar allt skammt eins og sést þegar tekn- ar em til viðmiðunar kostnaðartölur við endurbyggingu Viðeyjarstofu. Og torfbæir þurfa, eins og menn vita, næstum árlegt viðhald." Þjóðminjavörður, Þór Magnús^. son, er formaður húsafriðunarsjoðS*- Aðrir í nefndinni em Hörður Ágústsson, Þorsteinn Gunnarsson, Sturla Böðvarsson og Guðmundur Gunnarsson. En víkjum talinu aftur að Þjóð- minjasafninu — hver er framtíðar- sýnin? „Við þessar breyttu aðstæður hyggjumst við setja safnið upp á ný,“ segir Þór, og rekja þá betur sögulegt samhengi. Nú em sýning- amar að mestu óbreyttar frá því upphaflega var flutt inn í húsið, en nú bjóðast nýir möguleikar með auknu rými. Á miðhæð verður kom- ið fyrir gripum frá fomöld og mið- öldum og fram yfír siðaskiptin. Á efri hæð verða safngripir frá síðari öldum, þá 17., 18., 19. og fram á þá 20. Við verðum lfka að gera síðari tímum sæmileg skil þótt erf- iðara verði þá að velja og hafna. Hér á að sýna allt sem tilheyrir íslenskri menningarsögu. Þjóð- mipjasafn á að gefa gott yfirlit. Minni sérsöfn geta aftur á móti gert betri skil einstökum þáttum. Áður var aðaláhersla lögð á að varðveita muni fram til loka torf- bæjarins. Menn höfðu minni áhuga á ýngri tímum. Ef gripir voru gerð- ir erlendis þá þóttu þeir heldur ekki nógu áhugaverðir. Nú er þetta við- horf breytt. Nú finnst okkur full ástæða til varðveislu ef þessir ir voru notaðir hér, þeir léttu mönn- um lífsbaráttuna og eiga þvi sinn ákveðna sess. Kirkjugripir frá fyrri öldum eru líka flestir útlend smíð og fomald- arsverðin sömuleiðis. En þessir munir em hluti af fslenskri menn- ingarsögu. Sama gildir um áhöld nými tíma. Á jarðhæð er svo gert ráð fyrir skrifstofum, vinnustofum, bóka- safni, myndasafni, forvörslu o.fl." „Hvemig er tengslum safnsins háttað út á við? Hingað hafa verið skipulagðar ” heimsóknir skólafólks og hér starf- ar sérstakur safnkennari á vegum menntamálaráðuneytisins. Skóla- fólki er fylgt um safnið og útbúin eru fyrir það verkefni sem sett eru f sögulegt samhengi. Reyndar fínnst mér þessi fræðsla eiga að koma betur inn í skólakerfið. Eins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.