Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C 11 trcfemilpffifr íí 5ö» STOFNAÐ 1913 47. tbl. 76. árg. FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Óeirðir við komu Shultz til Israels Jerúsalem, Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði við komuna til ísraels í gær að at- burðir undanfarið hefðu leitt í Ijós að óbreytt ástand þar væri hvorki ísraelsstjórn né Palestínu- Ræðu Wald- heims af lýst Vinarborg, Reuter. Á FUNDI æðstu valdamanna í Austurríki var i gær ákveðið að Kurt Waldheim, forseti landsins, myndi ekki halda ræðu þann 11. mars er þess verður minnst að 50 ár eru liðin síðan Hitler inn- limaði Austurrfki í þýska ríkið. í tilkynningu frá skrifstofu for- setans segir að Waldheim muni þess í stað flytja sjónvarpsræðu við þetta tækifæri. Áform um að Waldheim, sem sakaður er um að tengjast stríðsglæpum nasista og segja ósatt um fortíð sína, héldi ræðu við minningarathöfn- ina höfðu vakið almenna reiði í Austurríki. Franz Vranitsky, kanslari Aust- urríkis, gefur í skyn í viðtali við vestur-þýska dagblaðið Die Welt að Waldheim eigi að segja af sér. Waldheim-málið skyggi svo á öyiur biýn málefni sem stjómin þurfí að fást við að vinnuaðstæður séu óþol- andi. í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi var Waldheim spurður hvort hann hefði einhvem tíma hugleitt afsögn. „Auðvitað velti ég þeim möguleika fyrir mér. Ella væri ég ekki mann- legur. En ég er sannfærður um að ástandið í Austurríki myndi einung- is versna ef ég segði af mér,“ svar- aði forsetinn. Waldheim reiddist mjög er fréttamaður spurði hann hvort ekki væri svo að hann hefði misst öll tök á stjómmálamönnum landsins að kanslaranum meðtöld- um. „Þvættingur! Ég hafna þessu alfarið," sagði Waldheim og hótaði að slíta samtalinu. mönnum í hag. Hann sagðist sann- færður um að tillaga sfn um bein- ar friðarviðræður araba og ísra- ela og sjálfstjórn Palestínumanna á hemumdu svæðunum væri raunhæf. Palestínumenn efndu til allsheijarverkfalls í gær f tilefni heimsóknar Shultz og mikil mót- mæii áttu sér stað á heraumdu svæðunum og f Vestur-Beirút í Líbanon. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, hefur snúist öndverður gegn tillögum Shultz og sagði hann í út- varpsviðtali í gær að hann væri ekki reiðubúinn að láta hemumdu svæðin af hendi í skiptum fyrir frið við Palestínumenn. Shamir gagnrýndi einnig tímasetningu fímm daga heimsóknar Shultz til Mið-Austur- landa og sagði samningaumleitanir ógerlegar við núverandi aðstæður. Shimon Peres, utanríkisráðherra, hefur á hinn bóginn lýst yfír stuðn- ingi við tillögur Shultz. Shultz segist vonast til að geta hitt leiðtoga Palestínumanna þrátt fyrir að Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafí hvatt til þess að heim- sókn Shultz verði hundsuð líkt og í október síðastliðnum. Leiðtogar PLO segja að fram hjá þeim sé gengið í tillögum bandaríska utanríkisráð- herrans. ísraelskir hermenn skutu til bana tvo Palestínumenn á hemumdu svæðunum í gær. Að minnsta kosti 68 Palestínumenn hafa fallið síðan óeirðir hófust þann 9. desember. Hermenn handtóku einnig 100 Pal- estínumenn í þorpinu Khabatiyeh á vesturbakka Jórdanár. Þeir eru grunaðir um að hafa hengt Pal- estínumann í fyrrakvöld sem þeir sökuðu um að hafa njósnað fyrir ísraela. Maðurinn sem tekinn var af lífi hét Mohammed al-Ayad og þegar múgurinn réðst að húsi hans hleypti hann af skotum í mannfjöld- ann með þeim afleiðingum að fjög- urra ára gamalt bam lést og 13 manns særðust. Sjá „Öryggi ísraels . . .“ á bls. 22. ■■. r*>» * v*».. -Æv f*4 1 Ué tV iís þfSTROyf P yö^ K HS 4uar Tf-et Reuter Shítar hliðhollir írönum efndu til mótmæla f Vestur-Beirút í gær vegna heimsóknar Georges Shultz utanrfkisráðherra Bandaríkjanna til Miðausturlanda. Þeir hrópuðu vfgorð fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og brenndu brúður sem líktust Shultz, Reagan for- seta Bandaríkjanna og Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísraels. Englands- drottning efst á lista London, Reuter. NÝVERIÐ birti breska tímaritið Money lista yfir 200 helstu auðkýfinga Bretlands. Eins og vera ber trónir þar efst Elísabet Englandsdrottning en fasteignir hennar, hlutabréf, skartgripir, veðhlaupahestar og listaverk eru metin á 3,34 miljjarða punda eða 219 miUjarða fsl. króna. Breskir milljónamæringar eru nú taldir vera tuttugu þúsund talsins. Athyglisvert þykir að mikill meiri- hluti þeirra ber ekki aðalstitil eins og vænta mátti fyrr á tímum heldur eru flestir nýríkir athafnamenn. Næstríkasti maður Bretlands er John Moores sem helst hefur unnið sér til frægðar að finna upp get- raunakerfíð í fótbolta. Hann hefur þó einkum hagnast á póstverslun og eru eignir hans metnar á 111 milljarða ísl. króna. Yngsti milljónamæringurinn á listanum er Sophie Mirman 31 árs gömul sem grætt hefur tvo millj- arða ísl. króna á verslun með sokka. Tímaritið getur þess að drottn- ingin komist ekki í hálfkvisti við ríkasta mann heims sem er soldán- inn af Brunei. Eigur hans eru metn- ar á hvorki meira né minna en 917 milljarða fsl. króna.. Mótmæli í höfuðborg Armeníu: Ein þjóð - eitt lýðveldi, hrópaði mannfjöldinn Moskvu, París, Reuter. GEYSILEGUR mannfjöldi safn- aðist saman á götum úti f Jere- van, höfuðborg Armeníu, í gær og krafðist þess að landamæri Armenfu og Azerbajdzhan yrðu Dræm þátttaka í trúarhátíð Reuter Munkar í Tíbet mynda röd fyrir framan Jokhang musterið f Lhasa, höfuðborg landsins. Nú stend- ur yfir hin mikla Mon Lam trúarhátíð en þátttaka er dræm. Margir munkar hafa sniðgengið hana til að mótmæla kúgunum kfnverskra stjórnvalda. Einnig hafa yfirvöld bannað pílagrímum að koma til höfuðborgarinnar til að taka þátt f bænahátfðinni. endurskoðuð. „Miðborgin er troð- fuU af fólki, ég hef aldrei séð , nokkuð þessu líkt,“ sagði heima- maður í viðtali við fréttamann Reuters f Moskvu. Hann bætti þvf við að tilraunir lögreglu til að dreifa mannfjöldanum hefðu ekki borið árangur. Armenar búsettir í Frakklandi vitnuðu í heimildamenn í Jerevan og sögðu að allt að ein milljón manna hefði verið saman komin í borginni. Fjöldi fólks hefði komið til höfuð- borgarinnar víðs vegar að úr lýðveld- inu til að taka þátt í mótmælunum. Að sögn veifuðu menn borðum og hrópuðu: „Ein þjóð, eitt lýðveldi!" Sovésk yfírvöld lokuðu í gær fyrir allan fréttaflutning frá Armeníu og Azerbajdzhan. Tugþúsundir manna þar hafa krafist þess að Nagomo- Karabakh-héraðið í Azerbajdzhan sameinist aftur Armeníu. Héraðið tilhejrrði Armeníu fram til ársins 1923 og flestir íbúanna þar eru Arm- enar. Mótmælin nú éru þau mestu í Sovétríkjunum síðan stúdentar í Alma Ata efndu til uppþota í des- ember árið 1986. Fjórir háttsettir embættismenn í Moskvu hafa verið sendir til Jerevan og Nagomo- Karabakh til að koma reglu á ástandið. Sjá forystugrein á miðopnu. Noriega rekinn Panamaborg, Reuter. ERIC Arturo Delvalle forseti Panama kom fram í sjónvarpi sfðdegis f gær og tilkynnti að hann hefði sett Manuel Noriega hershöfðingja af sem yfirmann herafla landsins. Að sögn þeyttu bílstjórar í höfuðborginni horn og vegfarendur veifuðu vasklút- um þegar fréttin barst. Noriega sem hefur verið hinn raunvemlegi stjómandi í Panama var fyrir skemmstu ákærður fyrir fíkniefnasmygl í Bandaríkjunum. Gabriel Lewis, fyrrum sendiherra Panama í Bandaríkjunum, sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna að ólíklegt væri að Noriega hlýddi skipun Delvalles. Hann sagðist dást að hugrekki forsetans og bætti því við að öll lýðræðisríki álfunnar myndu styðja hann ef Noriega þrá- aðist við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.