Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 52
 7VLHLIÐA PRENTPJÖNUSTA 'S GuðjónÚLhf. I / 91-27233 I FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 56 KR. VMSÍ, VSÍ og VMS: Stefndi í samkomulag um nýjan kjarasamning í nótt Nokkurrar þreytu var farið að gæta meðal samningamanna, enda hafði fundur staðið sleitu- laust í 32 klukkustundir. Fulltrúar vinnuveitenda áttu fund með nokkrum ráðherrum ríkisstjómar- innar seint í gærkveldi, en aðilar vörðust allra frétta af fundinum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fela þau drög að kjara- samningum sem rætt var um með- al annars í sér 1.525 króna hækk- un launa við undirritun, sem jafn- gildir 5,1% hækkun. Þá er gert ráð fyrir að laun hækki 1. júní um 3,25%, 1. september um 2,5% og 1. febrúar um 2%. Gildistími samn- ingsins var ekki endanlega frá- genginn. Vinnuveitendur höfðu gert tillögu um gildistíma til 15. apríl 1989, en í kröfugerð VMSÍ er gert ráð fyrir samningi til 15. febrúar. Gert er ráð fyrir að launa- liðir samningsins geti verið lausir 1. júlí og 1. nóvember verði verð- lagsþróun með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í samningnum og semjist ekki um verðlagsbætur. Námskeiðsálag í fískvinnslu hækkar úr um 1.700 krónum í 2.650 krónur og starfsaldurs- hækkanir eru hæstar tæp 8%. Þá var rætt um desemberuppbót á laun, en upphæð hennar ekki frá- gengin. Áður hafði samkomulag tekist um 80% álag á alla yfír- vinnu og yfírlýsingu um hvemig staðið skuli að upptöku launa- hvetjandi kerfís í fískvinnslu, auk annarra atriða. Steingrímur Hermannsson, ut- anríkisráðherra, sagði á almenn- um stjómmálafundi í Kópavogi í gærkvöldi að einhver gengisfelling væri óhjákvæmileg í kjölfar kjara- samninga en nefndi ekki tölu. ALLT útlit var fyrir að kjarasamningar I laganna. Upp úr miðnættinu töldu menn myndu takast í nótt milli Verkamannasam- að viðræðurnar væru að komast á lokastig bands íslands, Vinnuveitendasambands ís- og ekki ólíklegt að skrifað yrði undir lands og Vinnumálasambands samvinnufé- | samninga eftir nokkrar klukkustundir. Dótturfyrirtæki SÍS í Bandaríkjunum: Forstjóra og aðstoðarfor- ‘stjóra sagt upp störfum Samstarfsörðugleikar milli mín og Eysteins Helgasonar, segir Guðjón B. Ólafsson Klukkan er komin Lundúnum, frá Valdimari Unnari Valdi- marssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Lundúnum. „Er þá íslandsklukkan loks komin í leitiraar?" varð Jóni Baldvinssyni sendiráðspresti í Lundúnum að orði i gær, er hann virti fyrir sér hina al- dagömlu kirkjuklukku úr Tröll- atungukirkju í Steingrímsfirði í höndum Ólafs Egilssonar sendiherra. Þjóðminjasafnið hefur fest kaup á klukkunni og greiddi fyrir hana um 650 þús- und krónur, aðila hér i landi sem ekki vill láta nafns síns getið. Með þeim Jóni og Ólafi á myndinni er Margrét Sigtryggs- dóttir, eiginkona Jóns. Símamynd/Morgunblaðið/Ingiborg Jónsdóttir. EYSTEINI Helgasyni, forstjóra Iceland Seafood Corporation, dóttur- fyrirtækis Sambands islenskra samvinnufélaga í Bandarikjunum, var sagt upp störfum á stjómarfundi fyrirtækisins i fyrradag. Geir Magnús- syni, aðstoðarforstjóra, var einnig sagt upp á fundinum. Uppsagnirnar hafa þegar tekið gUdi. Tillaga um uppsögn þeirra Eysteins og Geirs var borin upp af Guðjóni B. Olafssyni, stjórnarformanni Iceiand Seafo- od og forstjóra Sambandsins, og var samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Breytingartillaga frá Erlendi Einarssyni, stjórnarmanni og fyrrverandi forstjóra Sambandsins um að málinu yrði frestað pg Eysteini gefínn kostur á að koma tíl íslands tíl viðræðna við stjórnina felld, einnig með þremur atkvæðum gegn tveimur. Guðjón B. ólafsson vUdi ekki tjá sig um orsakir uppsagnanna í sam- tali við Morgunblaðið í gærdag en i viðtali við Sjónvarpið í gærkvöldi sagði bann samstarfsörðugleika miUi sín og Eysteins Helgasonar vera meginástseðuna. Eysteinn Helgason, kvaðst f gærkvöldi ekkert vUja um málið segja á þessu stigi en yfíriýsing væri væntanleg frá honum eftir fáa daga. Þeir sem greiddu atkvæði með uppsögn Eysteins og Geirs voru þeir Guðjón B. Ólafsson, Sigurður Mar- kússon, varaformaður syómar og framkvæmdastjóri sjávarafurða- deildar Sambandsins, og Marteinn Friðriksson, framkvæmdastjóri Fisk- iðju Sauðárkróks. Á móti voru Er- "^lfendur Einarsson og Gísli Jónatans- son, kaupfélagsstjóri á Fáskrúðs- firði; Sjötti maðurinn í stjóm, Banda- ríkjamaðurinn William Boswell, var ekki viðstaddur fundinn þó að hann hefði verið boðaður á hann með lög- legum fyrirvara. Eysteini barst símskeyti klukkan tvö í gærdag þar sem honum var -^kýrt frá ákvörðun stjómarinnar, en þeir Guðjón B. ólafsson og Sigurður Markússon héldu utan til Banda- ríkjanna í gær til að fylgja ákvörðun fundarins eftir. Erlendur Einarsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið t gær, að hann hefði greitt atkvæði á móti því að Eysteini yrði sagt upp, því hann teldi að ekki væm efnislegar ástæður fyr- ir upp8Ögninni, rekstrarafkoma Ice- land Seafood á síðasta ári hefði ver- ið með því besta f sögu félagsins. Érlendur kvaðst hafa borið upp breytingartillögu um að Eysteinn fengi að mæta á stjómarfund áður en tillaga um brottvikninguna kæmi til afgreiðslu og gera grein fyrir máli sínu en sú tillaga hefði verið felld með þremur atkvæðum gegn tveimur. Að öðru leyti kvaðst hann ekki vilja tjá sig meira um málið á þessu stigi. Marteinn Friðriksson sagði að nokkur aðdragandi hefði verið að uppsögnunum og nokkrir fundir hefðu verið haldnir í stjóm Iceland Seafood um þetta mál. Hann sagði að stjómarfundur í Félagi Sambands fískframleiðenda, hefði samþykkt samhljóða ótvíræða traustsyfírlýs- ingu á Guðjón B. Ólafsson, formann stjómar Iceland Seafood, sem Mar- teinn hefði síðan lesið upp á fundin- um hjá Iceland Seafood, sem haldinn var síðar þann sama dag. Ekki hefði verið minnst á mál Eysteins Helga- sonar og Geirs Magnússonar í yfír- lýsingunni, en hún hafi tengst því máli. Valur Amþórsson, stjómarfor- maður Sambandsins, vildi ekkert tjá sig um málið í gær. Samkvæmt fréttum Ríkisútvarps- ins, nefndi Steingrímur ýmsar mögulegar efíiahagsaðgerðir sem ríkisstjómin þyrfti að grípa til, svo sem takmörkun erlendrar lántöku og að auka skattlagningu á þær, tímabundinn skatt á nýjar fjárfest- ingar, hækkun vaxta af húsnæðis- Ujjium og ef til vill takmörkun húsnæðislána. Greenpeace: Fj ölmiðlaherfer ð gegn hvalveiðum íslendinga GREENPEACE ætlar í byrjun mars nk. að hefja herferð í Banda- ríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi gegn hvalveiðum íslendinga á þann hátt að fólk verður í dagblaða- og sjónvarpsauglýsingum hvatt til að kaupa ekki íslenskar fiskafurðir, að sögn Jakobs Lagerkrantz hjá Greenpeace f Gautaborg og Isabel McCray hjá Greenpeace í London. Isabel sagði í samtali við Morgunblaðið að John Gummer, aðstoðarsjávarútvegsráðherra Breta, tæki þátt í umræðum um hval- veiðar íslendinga í sjónvarpsþætti BBC 3. mars nk. „Ég veit ekki,“ sagði Isabel hann sé á móti þeim, þar sem Al- McCray, „hvað John Gummer segir þjóðahvalveiðiráðið telur þær ólög- í þessum þætti um hvalveiðar Is- legar." iendinga en ég reikna með því að Jakob Lagerkrantz sagði að í dag, föstudag, byijuðu mótmæla- aðgerðir í Lúxemborg gegn hval- veiðum f slendinga og tengdust þær áróðureherferðinni í Bretlandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi. „Við vorum með mótmælaaðgerðir í Gautaborg fyrir skömmu. Það verður hins vegar ekki hafín áróð- ursherferð í Svíþióð á næstunni gegn hvalveiðum Islendinga. Gre- enpeace harmar að þurfa að gera íslendingum þetta," sagði Jakob.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.