Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 Mm FOLX ■ SAMÚEL Öm Erlingsson, íþróttafréttamaður hjá ríkisútvarp- inu, var í gær kosinn formaður Samtaka íþróttafréttamanna, á aðalfundi félagsins. Samúel Örn, tekur við af Skúla U. Sveinssyni, sem kjörinn var formaður samtak- anna í fyrra. Skúli hefur tekið sér hvíld frá blaðamannsku og mun starfa sem fararstjóri á vegum Samvinnuferða/Landsýn á Rho- dos í sumar. í stjóm samtakanna voru kosnir Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu, Hjördís Árna- dóttir, Tímanum, Steinþór Guð- bjartsson, Morgunblaðinu og Þorgrímur Þráinsson, íþrótta- blaðinu. ■ FLEMMING Povlsen, knatt- spymukappi hjá Köbi, þarf að vera í gipsi í flórar vikur. Hann handar- brotnaði í leik gegn Bochum, um sl. helgi. ■ FRAMARAR eru þessa dag- ana að taka í notkun nýja félags- heimilið sitt við Safamýri. Þeir hafa fengið ný símanúmer, sem em: 68 03 42 og 68 03 J3. ■ HELSINGÖR varð danskur bikarmeistari í handknattleik um helgina. Félagið lagði Kolding, sem lék gegn Víkingi í Evrópukeppn- inni á dögunum, að velli, 25:22, í úrslitaleik um sl. helgi. ■ HELGI Bentsson, knatt- spymumaður frá Kópavogi, hefur gengið til liðs við Víking. Helgi hefur áður verið leikmaður með Breiðablik, Þór, Keflavík og Víði, í 1. deild, auk þess að hafa leikið k'nattspymu í V-Þýskalandi ■ ÓSKAR lngim undarson, þjálfari nýliða Leifurs frá Olafs- firði í 1. deild, hefur að undanfömu dvalist í V-Þýskalandi. Hann hefur kynnt sér æfíngar hjá Bayer Uerd- ingen. Leikmenn félagsins hafa gefíð Óskari góð ráð og sögðu við hann, að hann ætti ekki að taka allar æfíngar félagsins til fyrir- myndar. Uerdingen er í fallbar- áttu. „Ef þú gerir það, þá ferð þú strax aftur niður í 2. deild með fé- lag þitt,“ sögðu þeir. „MORTEN Oisen er hjarta Kölnarliðsins. Það ætti að borga honum kr. 11 milljónir (ísl. króna), en ekki 7.7 milljónir fyrir nýjan "samning," sagði Pierre Littbarski, v-þýski landsliðsmaðurinn hjá Köln. ■ FEYENOORD seldi í gær hollenska landsliðsmanninn Mario Been til Pisa á Ítalíu fyrir kr. 18.5 milljónir ísl. Been, sem er 24 ára, hefur oft lent í útistöðum við Rinus Israel, þjálfara Feyenoord að undanfömu. Hann skrífaði undir þriggja ára samning við Pisa og fer til félagsins I júlí. ■ HOLLENSKI landsliðsmað- urinn Frank Rijkaard, sem Sport- ing Lissabon keypti frá Ajax á kr. 95 milljónir á dögunum, fær ekki að leika með félaginu á þessu . keppnistímabili. Portugalska knattspyrnusambandið sagði f gær að kaupin hafí átt sér stað eftir þann tíma sem félög í Portugal máttu kaupa nýja leik- menn. Sporting hefur hug á að lána Rijkaard til Zaragossa á Spáni út þetta keppnsitímabil. ■ HANS van Breukelen, lands- liðsmarkvörður Hollands, skrifaði f gær undir nýjan þriggja ára samn- ing við Eindhoven. Aður höfðu þeir Ronald Koeman og belgíski landsliðsmaðurinn Eric Gerets endumýjað samninga sína við fé- Lgið. ■ ÞRÍR leikmenn voru reknir af leikvelli þegar Racing Club frá Argentínu vann sigur, 2:0, yfír Santos frá Brasiliu í fyrri leik lið- anna í S-Ameríkumeistarakeppn- inni, sem fór fram í Buenos Aires í Argentínu í gærkvöldi. Tveir vamarleikmenn Santos og sóknar- leikmaður Racing fengu að sjá rauða spjaldið. KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND Ásgeir för í sprautumeð- ferð í Freiburg Ásgelr Slgurvlnsson Eg reikna með að leika gegn Frankfurt hér f Stuttgart á laugardaginn, ef leikurinn fer fram. Það er byijað að snjóa og er útlitið ekki bjart," sagði Ásgeir Sigurvins- son, fyrirliði Stuttgart, sem hefur átt við meiðsli í öxl að stríða. Ásgeir sagðist hafa farið til Frei- burg í fjóra daga - í sprautumeð- ferð hjá hinum umdeilda dr. Klum- per. „Meðferðin heppnaðist vel. Ég er allur að braggast og bíð bara eftir því að byija að leika á fullu," sagði Ásgeir. KNATTSPYRNA „Vantaði aðeins þjóðsönginn“ - segirAtli Eðvaldsson Atli Eðvaldsson er fyrsti útlendingurinn sem hefur leikið í landsliðsbúningi V-Þýskalands í knatt- spymu. „Það vantaði aðeins þjóðsöng V-Þýskalands fyrir leikinn - gegn Frankfurt," sagði Atli Eðvaldsson. Hér á myndinni sést Atli (t.v.), í landsliðsbúningin V-Þýska- landi um sl. helgi í Frankfurt, þar sem hann er að Ieika á Körbel, fyrirliða Frankfurt. Eins og komið hefur fram lék Uerdingen í v-þýska Iandsliðsbúninginum í leiknum. „Ég skal skora ef ég fær fyrirgjafír fyrir mark Frank- furt,“ sagði Atli við þjálfara Uerdingen fyrir leikinn, en Atli lék stöðu miðhetja. Ekki tókst honum að skora - þar sem Uerdingen lék vamarleik, þannig að Atli fékk engar fyrirgjafír. JÚDÓ Bjami keppir í Riisselsheim Bjami Ásgeir Friðriksson, sem varð sigurveg- ari á opna skoska meistaramótinu í júdó í Edinborg um sl. helgi, er á fömm til V-Þýska- lands. Bjami mun taka þátt í opna v-þýska meist- aramótinu, sem fer fram í Russelheim um helgina. Þetta er byggt ámis- skilningi - segirformaður KSÍ um opið bréf formanns dóm- arasambandsins Málið er þess eðlis að það á að mínu mati ekki er- indi í opin bréf. Þetta er byggt á misskilningi hjá honum," sagði Ellert B. Schram, formaður Knattspymusambands íslands, í samtali við Morgunblaðið, vegna opins bréfs til hans frá Heimi Bergmann, formanni Knattspymudómarasambands íslands, sem birtist í Morgun- blaðinu á þriðjudaginn, vegna skipunar í dómaranefnd KSI. „Nefndin er starfandi. Formað- ur dómarasambandsins hefur fengið boðunarbréf á fundi hennar, en það er hans mál hvort hann mætir eða ekki. Það er ekkert því til fyrirstöðu að þeir takiþátt í starfsemi nefndarinn- ar. Eg er til viðræðu um hvaða vandamál sem er en þeir hafa ekki haft samband við mig út af því vandamáli sem hann er þama að búa til. Ég er tilbúinn að ræða þetta án þess að skiptast á skoðunum í fjölmiðl- um,“ sagði Ellert. Dómgæsla og dómaramál eftir Viggó Sigurðsson Ég hef lengi haft í huga, að setja á biað nokkra punkta um dómgæslu og dómaramál í hand- knattleik. Eftir að hafa lesið grein í Morgunblaðinu um, að íslenskir dómarar fái ekki að dæma á ólympíuleikunum f Seoul læt ég verða af því. Ég er á sama máli og Erik Elfas, formaður dómaranefndar IHF, að íslenskir handknattleiks- dómarar séu ekki nægilega góðir og spumingin er eftir lestur grein- arinnar, hvort stefna Kjartans Steinbach (eða HSÍ) hafí ekki beðið alvarlegt skipbrot? Það má kannski spyrja hvaða stefna? Því það virðist nokkuð handahófs- kennt að málum staðið í sam- bandi við dómara. Ég held að fyrsti misskilningurinn hjá Kjartani Steinbach og þeim sem dæma f 1. deildinni sé, að þeir haida að dómgæslan og dómara- málin séu þeirra einkamál. Það virðist t.d. engu máli skipta, að sömu dómaramir skuli dæma leik eftir leik af slíkri van- kunnáttu og getuleysi, að menn standa agndofa, blöskrar vitleys- an, en ekkert breytist tíl batnað- ar. Þeir halda bara áfram að dæma (eða dæma ekki). Eru sett- ir á næsta leik eins og ekkert.hafi í skorist. Hvaða kröfur þurfa menn að uppfyila til að fá að dæma í 1. deild? Er það t.d. æskilegt, að þeir hafi einhvem tímann spilað handbolta? Nei. Ef litið er yfír hópinn sem dæmir þá sést strax að flestir þeirra hafa aldrei spilað handbolta og það eru einmitt þeir dómarar sem eru verstir, sem byija að dæma án þess að hafa spilað handbolta. Þeir fá aldrei fullan skilning á leiknum, þó til séu undantekningar á öllu. Nú var það svo eftir íslands- mótið í fyrra að leikmenn og þjálf- arar völdu besta dómaraparið eft- ir veturinn. Þeir Stefán Amalds- son og Ólafur Haraldsson voru kosnir besta dómaraparið með miklum yfírburðum, en svo virðist sem Kjartan Steinbach forðist að láta þá dæma í vetur. Hvað veld- ur? Það er helst að þeir dæmi fyrir norðan. Nú er ég ekki að gera lítið úr Gunnari Kjartanssyni og Rögnvaldi Erlingssyni, þvert á móti eru þeir meðal okkar bestu dómara, en þeir eru bara þokka- legir dómarar. Þó Kjartan Stein- bach haldi að þeir séu meðal bestu í heimi, þar sem fslenskur hand- knattleikur sé það. Hér er spiluð deildarkeppni og tvö lélegustu liðin f 1. deild falla í 2. deild, og tvö bestu liðin í ann- arri deild ganga upp í 1. deild. En hvemig er þetta hjá dómurun- um? Það skiptir engu hversu lélég- ir þeir em, þeir dæma bara næsta leik eins og ekkert hafí í skorist, hversu mörg mistök sem þeir hafa gert í leiknum á undan. Hvemig væri að deildarskipta dómurum, þannig að þeir lélegustu dyttu einfaldlega út úr 1. deildinni? Þá dettur mér það í hug, hvað á það að þýða að víxla dómurum inn- byrðis? T.d. ef Gunnar Kjartans- son forfallast þá er bara „ein- hver“ laus fenginn til að dæma með Rögnvaldi. Þetta er móðgun við ieikmenn og þjálfara liðanna. Þeir eiga heimtingu á að fá samþjálfað dómarapar, menn sem vanir eru að vinna saman. Þeir eiga kröfu Vlggó Slgurðsson. á að fá dómara sem hafa áhuga á og metnað til að dæma vel og hlutiaust, en ekki dómara sem mæta 5 mínútum fyrir leik, nenna ekki að hita upp, og halda, að þeir séu orðnir alvitrir af því einu, að þeir klæðast svörtu bnúningun- um. Hafandi kannski aldrei á ævi sinni spilað handbolta, en með einhver skriflegt dómarapróf frá H.S.Í., próf sem hvaða páfagauk- ur sem er getur náð. Hvar er sam- ræmingin í dómgæslunni: T.d. varðandi ruðning o.fl. o.fl., hann er ekki til, hver dæmir eftir eigin höfði. Nei, dómgæsla og dómarastörf eru ekki einkamál dómara eða dómaranefndar HSÍ, hveijir svo sem hana skipa. Það mætti kannski fækka þessum 46 nefnd- um sem skráðar eru í mótabók HSÍ og efla þessa í staðinn. Leikmenn í 1. deild æfa að meðaltali 5—6 sinnum í viku, 2—3 klst. í senn, og þeir hljóta að eiga kröfu á að dómarar sem dæma í deildinni séu undir það búnir að dæma af kunnáttu og hafi einnig aðhald einhvers staðar frá. I Morgunblaðinu minnist Kjartan á dómaramafíu IHF Nú er það svo að ég hef heyrt hjá fleiri en einum og fleiri en tveim dómurum, sem eru að dæma, að þeir tala um dómaramafíu HSÍ, sem sitji ein að kökunni, þ.e. velji sér leiki, en hinir fái leifamar. Ljótt er ef satt er. í fyrravetur svo og í vetur hef- ur verið mikil uppsveifla í hand- boltanum. Það sama verður ekki sagt um dómgæsluna, enda kem- ur skýrar í ljós eftir þv( sem hand- boltinn batnar hversu sum dóm- arapörin eru léleg. Það er svo sem eðlilegt, því það er ekkert gert til að bæta dómara. Það er hvorki unnið fagmannlega, né skipulega að málum. Það er með dómara, eins og handknattleiksmenn, þeir ná ekki árangri nema með mikilii vinnu, skipulögðum æfíngum og þrot- lausri þjálfun. Bestu kveðjur ■ Höfundur er þjálfarl 1. delld- arllðs FH f hand- knattlelk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.