Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 BREYTINGAK Á UMFERÐARLÖGUM Hveijar eru regiur um aidur barna á reiðhjólum { nýju um- ferðarlögunum? Svan 40. gr. nýju umferðarlag- anna Qallar, ásamt 39. gr., um reiðhjól. Þar segin „Bam yngra en 7 ára má eigi hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri. Eigi má reiða farþega á reið- þjóli. Þó má vanur hjólreiðamað- ur, sem náð hefur 15 ára aldri, reiða bam yngra en 7 ára, enda sé barainu ætlað sérstakt sæti og þannig um búið að þvi stafi eigi hætta af hjólteinunum. Eigi má flytja á reiðhjóli þyngri hluti eða fyrirferðarmeiri en svo að ökumaður geti haft fullkomna stjóm á reiðhjólinu og gefið við- eigandi merki. Eigi má heldur flytja á reiðhjóli hluti, sem valdið geta öðrum vegfarendum óþæg- indum.“ Mér stendur stuggur af þessu nýja tjónstilkynningaeyðublaði tryggingafélaganna. Hvað gerist er einhver neitar að skrifa undir framhlið eyðublaðsins, eins og ætlast er til? Svar; Ijónstilkynningin lýtur að þeim aðilum, sem lenda í um- ferðaróhöppum. Ef einhver neitar að gefa upp nafn sitt eða heimilis- fang á vettvangi kallar hann að sjálfsögðu eftir aðstoð lögreglu, eins og kveðið er á um í 10. gr. nýju umferðarlaganna. Fylli við- komandi hins vegar sína hlið á framhlið eyðublaðsins, en neiti sfðan að rita nafn sitt þvf til stað- festingar að skráðar upplýsingar séu réttar, sem á ekki að þurfa að koma til vegna þess að einung- is er um staðreyndaupptalningu að ræða, er um tvennt að velja; óska aðstoðar lögreglu eða taka eyðublaðið og afhenda sínu trygg- ingarfélagi til ákvörðunar bóta- þáttarins. Teíji tryggingarfélagið ástæðu til með hliðsjón af eðli málsins að leita eftir frekari upp- lýsingum frá mótaðilanum eða frá vitnum, sem hugsanlega eru til- greind, sinnir það því. Að öðrum kosti getur það metið að fram- lagðar upplýsingar séu fullnægj- andi og greiðir hlutaðeigandi bæt- ur. Fullvíst má telja að tjónþoli leiti eftir bótum til tryggingaifé- lags síns, en jaftiframt geti sú staða komið upp að tjónvaldur verði ekki eins áfjáður í að koma sínum hluta til skila. Það ætti ekki að þurfa að hafa áhrif á ákvörðun tryggingarfélagsins varðandi bótaþáttinn, nema eitt- hvað sérstakt komi til. Ég hef verið að velta fyrir mér orðunum afrein og aðrein og finnst þau hljóma alltof líkt í töluðu máli. Mér var að detta f hug hvort orðin innrein og útrein gætu ekki komið að sömu notum? Svan Það er rétt, orðin afrein og aðrein hljóma líkt. Þessari ábendingu er hér með komið á framfæri. Hvað á ég að gera ef ég kem að bilnum mínum skemmdum eft- ir að ekið hafí verið á hann og enginn er á staðnum? Svan Ef bfllinn þinn er enn á þeim stað, sem þú telur að ekið hafi verið á hann, skaltu kalla lögreglu á vettvang. Hún mun síðan liðsinna þér eftir því sem kostur er. Það er möguleiki á að lögreglan geti fundið einhveija vísbendingu á staðnum, sem bent gæti til tjónvalds. Einnig er mögu- leiki á að einhver gefi sig fram við lögreglu, annað hvort tjón- valdur sjálfur eða einhver, sem getur gefið upplýsingar í málinu. Lögreglan reynir í þeim tilfellum að rannsaka málið og upplýsa um málavexti. Ef þú hefur hins vegar ekið af þeim stað, sem ekið hafði verið á bílinn, eða veist ekki hvar atvikið átti sér stað, skaltu fara á næstu lögreglustöð og tilkynna um tjónið. Þar eru sérstök tilkynn- ingaeyðublöð, sem þú myndir fylla út. AÚtaf er möguleiki á að tjón- valdur, eða vitni, hafi haft sam- band við lögreglu og hægt verði að vinna málið út frá fyrirliggj- andi upplýsingum. Þegar nýju umferðarlögin hafa tekið gildi 1. mars nk. áttu jafnframt að fylla út tjónstilkynningaeyðublað tryggingarfélagsins og koma því á réttan stað, þ.e. til tryggingarfé- lags þíns. Getur verið að leyfilegur öku- hraði á vinstri akreininni, á tveggja akreina akbrautum, verði meiri en á þeirri hægri þegar nýju umferðariögin taka gildi? Svar Nei. Sömu leyfíleg há- markshraðamörk gilda á báðum akreinum sömu akbrautar. Ein- hver misskilningur virðist vera meðal sumra varðandi akstur á akreinum. Þeir virðast álfta ein- hverra hluta vegna að aka megi hraðar á vinstri akreininni en þeirri hægri og jafnvel að leyfileg hámarkshraðamörk gildi ekki á vinstri akreininni. Á henni megi menn aka eins hratt og þeir vilja. Þetta er mikill misskilningur. í þéttbýli má ökuhraði ekki vera meiri en 50 km/klsL ef tekið er mið af 37. gr. nýju umferðarlag- anna. Þá segir í 1. mgr. 36. grein- ar laganna: „Ökuhraða skal jafri- an miða við aðstæður með sér- stöku tilliti til öryggis annarra. Ökumaður skal þannig miða hrað- ann við gerð og ástand vegar, veður, birtu, ástand ökutækis og hleðslu, svo og umferðaraðstæður að öðru leyti. Hraðinn má aldrei verða meiri en svo að ökumaður hafi fullt vald á ökutækinu og geti stöðvað það á þeim hluta vegar fram undan, sem hann sér yfir og áður en kemur að hindr- un, sem gera má ráð fyrir." Þetta ákvæði segir okkur að hámarks- hraðinn þurfi ekki endilega að vera allt að 50 km/klst. heldur þurfum við að meta það hveiju sinni með tilvísun í framangreind atriði hvenær ökuhraðinn hann skuli vera minni. Þetta er eitt af þýðingarmeiri ákvæðum umferð- arlaganna og kallar á ákveðna umhugsun. Hver verður gildistími ökuskfr- teina þeirra, sem hafa meirapróf? Svan Reglugerðin um ökuskfr- teini, kennslu og próf ökumanna hefur okkur vitandi ekki verið endumýjuð þannig að ákvæði gildandi reglugerðar heldur. í nágrannalöndum okkar hefur gildistími ökuskírteina þeirra manna, og kvenna, sem hafa meirapróf, verið 10 ár, svo fram- arlega að engin sérstök skilyrði takmarki gildistímann að öðru leyti. Rétt er að auglýsa símanúme- rið, 623635, upplýsingasfma lög- reglunnar varðandi nýju umferð- arlögin. Svarað á milli 14 og 16 virka daga fram að mánaðamót- um. Barn yngra en 7 ára má eigi hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri. Morgunblaðið/Ámi Helgason Frá tónleikum Kirkjukórsins í félagsheimilinu. Ingveldur Hjaltested söng þar einsöng með kórnum. Kirkjukór Stykkis- hólms með tónleika 4 Stykkishólmi. TÓNLEIKAR Kirkjukórs Stykk- ishólms voru haldnir laugardag- inn 20. febrúar sl., en undanfarið hafa vcrið strangar æfingar, enda bar dagskráin þess glöggt vitni. Tónleikarnir voru haldnir í félagsheimilinu. Kórstjóri er Jóhanna Guðmundsdóttir og sýndi það enn einu sinni að hún er réttur maður á réttum stað. öll stjóm hennar er markviss og örugg. I kómum sungu að þessu sinni 30 kórfélagar og vakti sérstaka eftirtekt hversu samtaka allir voru. Einsöngvarar voru þeir-Bjami Lár- entsinusson og Njáll Þorgeirsson sem hér hafa lengi sungið saman tvfsöng fólki til ánægju og hafa einnig gefið út hljómplötu. Stóðu þeir vel fyrir sfnu. Undirleikari var Erlendur Jónsson, en hann hefir áður leikið með kóraum og setti leikur hans góðan blæ á sönginn. Kynnir var Daði Þór Einarsson og gerði hann það bæði smekklega og skemmtilega. Þá lék hljómsveit Jóns Svans Péturssonar undir í nokkrum lögum, en með honum voru Hafsteinn Sigurðsson tónlist- arkennari, Lárus Pétursson, bróðir Jóns Svans, en hann kennir á gftar við Tónlistarskólann, og svo lék einnig með Daði Þór á básúnu. Þessi hljómsveit stóð sig með af- brigðum vel. Þá söng Ingveldur Hjaltested óperusöngkona nokkur lög við und- irleik Kay Ludvigsson og var henni óspart klappað lof í lófa, enda var söngur hennar Ijómandi. Hún söng bæði íslensk og erlend lög. Ingveld- ur hefir áður komið við sögu Kirkju- kórsins þegar hún leiðbeindi „Jökla- kómum" sem kirkjukóramir á Nes- inu stofnuðu á sínum tíma. Var þessum tónleikum fagnað með inni- legu lófataki og blómvendir streymdu inn á sviðið. — Ami Krýsuvíkursamtökin: 100 áheit frá Héraðssjóði Kjalamesprófastsdæmis Moryunblaöid/Þorkell Þorkelsson Helgi K. Hjálmsson, gjaldkeri Héraðssjóðs Kjalamesprófastsdæmis, afhendir Ástu Lárusdóttur, varaformanni Krýsuvíkursamtakanna, 100 áheit. NÝLEGA voru Krýsuvíkursam- tökunum afhent 100 áheit að upphæð kr. 70.000 frá Héraðs- sjóði Kjalarnesprófastsdæmis. Gjaldkeri sjóðsins, Helgi K. Hjálmarsson, afhenti Ástu Lár- usdóttur, varaformanni Krýsuvikursamtakanna, áheitin f skrifstofu samtakanna f Þver- holti 20. Áheitin verða notuð til að fjármagna áframhaldandi framkvæmdir við kapelluna i skólahúsinu í Krýsuvík. Framkvæmdir við miðstöðvar- lögn og uppsetningu ofna í skólan- um eru komnar vel á veg og lokið í þeim hluta hússins, em fyrst á að taka f notkun. Starfsmaður Krýsuvíkursamtakanna er búsettur á staðnum og hefur eftirlit með skólahúsi og sér um upphitun húss- ins jafnframt því að starfa við hin- ar ýmsu framkvæmdir á staðnum. Eitt brýnasta verkefni samtakanna er að hefla framkvæmdir við hita- veitu, en samtökin mega nýta án endurgjalds gufuorku úr borholu, sem er eign Hafnarfjarðarbæjar. Sótt var um Qárveitingu til fjár- veitinganefndar Alþingis, að upp- hæð kr. 2,2 milljónir, en engin Qár- veiting fékkst. Viðræður um áætl- anir og starfsemi samtakanna hafa átt sér stað við nefnd á vegum ráðu- neytanna, en ekki hefur ennþá orð- ið vart við nein viðbrögð stjómvalda um leyfi til starfrækslu heimavist- arskóla f Krýsuvfk með sérstöku tilliti til þarfa þeirra sem ánetjast hafa ffniefnum. Áheitasöfnun Krýsuvíkursam- takanna hefur gengið vel og hafa borist áheit hvaðanæva af landinu fyrir um kr. 3.6 milljónir frá ára- mótum. (Fréttatilkyiming)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.