Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
7
1 \
Ögri við löndunarbryggjuna í Bremerhaven. Morgunblaðið/HG
Fiskmárkaðarnir í Þýzkalandi:
Búizt við lágn
verði í næstu viku
Ögri RE seldi
fyrir 16 milljónir
í þessari viku
FRAMBOÐ á ferskum fiski á
mörkuðunum í Þýzkalandi hefur
að undanförnu verið í hærri
kantinum. Verð fyrir fiskinn hef-
ur að sama skapi verið í lægri
kantinum. í síðustu viku féll það
niður í 30 krónur fyrir karfakíló-
ið. í þessari viku hefur það verið
i kringum 50 krónur. Stjórnend-
ur fiskmarkaðsins í Bremer-
haven telja að verð í næstu viku
verði lágt, rétt rúmlega 40 krón-
ur. Nokkur togstreyta er á milli
útflytjenda á fiski f gámum og
skipum og hefur nú verið skipuð
nefnd til að kanna með hvaða
hætti bezt sé að stjórna útflutn-
ingi á gámafiskinum.
I síðustu viku féll verðið úr rúm-
um 60 krónum í rúmar 30. ögri
RE seldi á mánudag og þriðjudag
um 320 tonn fyrir rúmar 16 milljón-
ir króna, meðalverð rétt rúmar 50
krónur. Snæbjörn Össurarson,
sskipstjóri á Ögra, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að miðað við
aðstæður væri hann sáttur við verð-
ið. Mikið magn hefði bjargað túm-
um. Hann sagðist vera á móti boð-
um og bönnum, en sæi enga aðra
leið en að taka upp einhverja stjóm
á útflutningi á fiski í gamum á
svipuðum gmnni og siglingum fiski-
skipanna væri stjómað. Hins vegar
mætti ekki gleyma^ því, að það
væm líka félagar í LÍU, sem sendu
fiskinn utan í gámum. Ennfremur
virtist ríkja einhver „gullgrafar-
stemming“ í gámaútflutningum og
vegna vanþekkingasr á markaðnum
ætluðu allir að verða ríkir á þessu.
Ludwig Janssen, ræðismaður ís-
lands í Bremerhaven og umboðs-
maður við fisksölur, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að stundum væri
erfitt að skilja gang mála. Þrátt
fyrir viðvaranir um mikið framboð,
kæmi of mikið af fiski og verðið
félli. Það yrði að koma einhverri
syóm á þessi mál.
Samúel Hreinsson, umboðsmað-
ur í Cuxhaven sagði, að undanfama
daga hefði hann verið að hringja í
menn til að vara þá við því að senda
gáma til sölu í næstu viku. Þá
væm mörg skip með mikinn afla
og 10 til 15 gámar umfram eðlilegt
framboð felldu markaðinn fyrir öll-
um. Eina leiðin til að koma í veg
fyrir slys vegna offramboðs væri
ábyggileg upplýsingamiðlum á báð-
um stöðum og að menn fæm eftir
því, sem þeim væri sagt.
Fiskurinn úr Ögra boðinn upp á þriðjudagsmorgun.
Morgunblaðið/HG
Forseti íslands:
Ávarpar þjóðina á öllum
rásum útvarps og sjónvarps
Vekur athygli á nýjum umferðarlögum og
átaki fyrir bættri umferðarmenningu
FÓRSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun flytja ávarp til
þjóðarinnar, sem sent verður
samtímis út á báðum sjónvarps-
stöðvum og öllum útvarpsrás-
um, að kvöldi næstkomandi
mánudags, 29. febrúar.
Tilefni ávarpsins er að vekja
athygli á að 1. mars taka gildi
ný umferðarlög og mun forseti
með ávarpinu vilja veita atbeina
sinn til þess að almenningur kynni
sér breytingamar og taki þátt í
þjóðarátaki fyrir bættri umferðar-
menningu.
Enn er ekki ljóst klukkan hvað
ávarpið hefst, en forsvarsmenn
stöðvanna vinna nú að því að fínna
hvaða útsendingatími hentar best.
Væntanlega verður ávarpið flutt
milli klukkan 20-21 að sögn Eiðs
Guðnasonar formanns nefndar
fyrir þjóðarátaki í umferðarmál-
um.
HINN EINI
OGSANNI
STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
FOSSHALS113-15
AÐEINS 2 DAGAR EFTIR
Utsölumarkaðurinn
FJÖLDi FYRIRTÆKJA
- gífurlegt vöruúrval
i/oruurvaf , M
Ótrúlegt vero
Sfeðnar- Hljómplötur - Kassettur
Karnabær - Bonaparte - Garbó - Tískufatnaður og efni
Gefjun - Fatnaður o.m.fl.
Axel 6 - Skófatnaður
Hummel - Sportvörur alls konar
Radíóbær - Hljómtæki o.m.fl.
Kári - Sængurfatnaður o.m.fl.
Ánar - Fatnaður
Bylgjubúðin Fatnaður
Skóglugginn - SkóT
Mæra - Skartgripir o.m.fl.
Theódóra - Tískufatnaður
"EfnT
gyáfnlausabúðiiÁ
Heildsaian Blik - Fatnaður
Madam - Sundbolir, náttkjólar, sloppar o.m.fl.f
Myndprent - Mynd af þér áprentuð á boli eða plaköt