Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 + Leikfélag Öngulsstaðahrepps frumsýnir í kvöld leikritið „Mýs og menn“ eftir John Steinbeck í Freyvangi. Þetta er saga um landbúnaðarverkamenn í Kali- forníu á fjórða áratuginum sem búa við afar kröpp kjör. Þetta er átakasaga, en jafnframt falleg saga um samband tveggja vina, sem dreymir um sjálfstæði á eig- _ m jörð. Þeir eru farandverka- menn og vinna fyrir sultarlaun- um. Þvi er draumur þeirra mjög fjarlægur. Ég held að allir ald- urshópar geti haft gaman af verkinu," sagði Skúli Gautason í samtali við Morgunblaðið. Skúli sagði að leikaramir, sem allir væru í þessu af áhuganum ein- um saman, væru geysilega metnað- arfullir og væri búið að leggja mik- ið í sölumar svo verkið mætti kom- ast upp. „Þetta er allt fólk með mikla reynslu í sviðsleik. Við höfum þó tekið okkur mjög góðan tíma í verkið og æft af kappi síðan í nóv- ember." Tíu leikarar taka þátt í sýning- j^inni, níu karlar og ein stúlka, Sveina Björk Jóhannesdóttir 18 ára frá Öngulsstöðum. Hún hefur einu sinni áður tekið þátt í uppfærslu leikfélagsins, í „Aldrei er friður" eftir Andrés Indriðason. „Ég ætla þó ekki að leggja leiklistina fyrir mig. Það eru bústörfin sem heilla mig. Ég ætla að sækja um skóla- vist á bændaskólanum að Hólum," sagði Sveina Björk. Aðalhlutverkin em í höndum Leifs Guðmundssonar og Hannesar Amar Blandon, sem leika þá félaga Georg og Lenna, en Lenni er vanviti í umsjá Georgs. Aðrir leikendur em auk Sveinu Reynir Schiöth, Ólafur Theodórs- son, Ingólfur Jóhannsson, Stefán Guðlaugsson, Finnlaugur Helgason, Vífíll Valgeirsson og Ólafur Jens- son. „Mýs og menn var fmmsýnt í New York þann 27. nóvember árið 1937 og kom á prent um svipað leyti einungis sem skáldsaga. Þetta er 26. starfsár leikfélags- ins, en það var stofnað 9. apríl 1962. Saga leiklistar í hreppnum er þó miklu eldri. Á stofnfundinum gengu í félagið 36 manns og fyrsta uppfærsla félagsins var gamanleik- urinn „Pétur kemur heim“. Fyrstu sex ár félagsins var sýnt eitt leik- rit á ári, en síðan varð tíu ára hlé á starfseminni. Veturinn 1976-77 var síðan sett upp leikrit á vegum ungmennafélagsins Árroðans og fljótlega upp úr þvi hófst samstarf með Arroðanum og Leikfélagi Öng- ulsstaðahrepps sem enn er í miklum blóma, segir í leikskrá. Á síðasta leikári sýndi leikfélagið verkið „Láttu ekki deigan síga Guð- mundur" sem fékk metaðsókn. Alls vom sýningar tuttugu og sáu yfír 2.000 manns uppfærsluna. Á meðal áhorfenda vom nemendur leiklist- arskólans, sem þótti sveitamenn- ingin afar skemmtileg og hafa þeir boðað komu sína nú aftur á „Mýs og menn“, að sögn Önnu Ringsted, sem sæti á í stjóm félagsins. Anna sagði að áhugi fyrir leiklistinni væri mjög mikill í sveitinni. „Hér mæta menn klukkan átta á kvöldin nær alla daga vikunnar og em á æfíngum fram yfír miðnætti. Öll veikindi em bönnuð og tossamir em látnir sitja eftir eða mæta fyrr en aðrir. Þeir, sem taka þátt í starf- inu, em annaðhvort búsettir í hreppnum eða tengjast honum á einhvem hátt. Sumir starfa á Akur- eyri, aðrir í sveitinni. Hér er þrest- urinn okkar, bændur, afgreiðslu- fólk, véla- og vinnumenn þannig að af nógu er að taka. Að þessu sinni tekur meira að segja þátt í sýningunni hundur sem gegnir nafninu „Prins". Hann er 13 ára og eigandi hans er Öm Grant.“ Anna sagði að leikstjómin væri eina aðkeypta vinnan, aðrir borg- uðu með sér. Leikfélagið fékk 124.000 króna styrk í fyrra frá ríkinu og samkvæmt lögum ber sveitarfélaginu að greiða sömu upp- hæð á móti. Þá hefur félagið einu sinni notið styrks frá menningar- málanefnd vegna ferðar til Reykjavíkur. Kostnaðurinn við upp- færsluna í fyrra hljóðaði upp á 900.000 krónur, þar af vom auglýs- ingar stærsti liðurinn. Anna sagði að Leikfélag Öngulsstaðahrepps hefði ágæt tengsl við önnur áhuga- mannaleikfélög í nágrenninu, sér- staklega við Leikfélag Húsavíkur. Urvalsferðir til Mývatns: Vélsleða- o g dorgveiðikeppni Morgunblaðið/Guðmundur Svansaon Mývetningar fyrirhuga að skipuleggja vélsleðaferðir um helgar í vetur og bjóða upp á vélsleðaleigu í tengslum við þær. Leikfélag Öngulsstaðahrepps og Árroðinn: „Mýs o g menn“ sýnt í Freyvangs leíkhúsinu Mývatn og umhverfi þess hefur löngum verið einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Náttúrufegurð við Mývatn er ekki síðri að vetrarlagi en á góð- um sumardögum. Ferðamálafé- lag Mývatnssveitar hefur ákveð- ið að gera átak í að opna þessa vetrarparadís fyrir ferðamenn og ráðið til sin starfsmann til að sinna þvi verkefni. „Mývatn 88“, hin árlega vélsleða- keppni verður haldin dagana 3.-6. mars, en segja má að keppnin sé orðin að íslandsmóti í vélsleða- akstri. Mývetningar em líka búnir að skapa vissa hefð í dorgveiði og árleg landsdorgveiðikeppni verður haldin á Mývatni 16. apríl næst- komandi. Með tilkomu starfs- mannsins er í undirbúningi að gera báðar keppnimar enn umfangsmeiri og áhugaverðari en áður. Mývetningar em líka að fítja upp á fleiri nýjungum í vetraríþróttum. Til dæmis má nefna skíðatrimm- göngu sem verður haldin 26. mars og væntanlegt héraðsmót í skíða- Blessað barna- lán á Melum Leikklúbbur Ungmennafé- lags Skriðuhrepps frumsýnir leikverk Kjartans Ragnarsson- ar „Blessað barnalán" í kvöld kl. 21.00 að Melum vestur í Hörgárdal. Tólf manns taka þátt í leiknum. Pétur Eggerz, leikari hjá Leikfélagi Akur- eyrar, leikstýrir. Leikklúbburinn hefur verið starfandi í allmörg ár á vegum ungmennafélagins. Æfð hafa ver- ið leikrit og sýnd á Melum annað- hvert ár nær óslitið síðan árið 1970. Önnur sýning verður á sunnudagskvöld kl. 21.00 og stefnt er að því að hafa tvær til þijár sýningar á viku. Leifur Guðmundsson og Hannes Öm Blandon fara með aðalhlutverkin. Morgunblaðið/GSV Vörður heldur kynning- arfund VÖRÐUR, félag ungra sjálf- stæðismanna á Akureyri, heldur kynningarfund um fé- lagið og og sjálfstæðisstefn- una á morgun, Iaugardag. Fundurinn verður haldinn í Kaupangi, í norðurenda á 2. hæð, og hefst klukkan 15.30. Gestur fundarins verður Ámi Sigfússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Allt áhugafólk er velkomið. í fyrstu verður starfsemi félagsins kynnt og hvað sé framundan í félags- starfinu, þá verður sjálfstæðis- stefnan kynnt og því næst les- hringir og starfshópar SUS. göngu í tengslum við hana. Fyrir- hugað er að skipuleggja vélsleða- ferðir um helgar í vetur og bjóða upp á vélsleðaleigu í tengslum við þær. Vaxandi áhugi er á dorgveið- um í gegnum ís og ferðamenn sem koma til Mývatnssveitar að vetrar- lagi fá leiðsögn staðarmanna til þess að stunda slíkar veiðar. Mjög góð aðstaða er fyrir gönguskíðafólk á merktri og troðinni braut, einnig er togbraut í upplýstri brekku. Ferðaskrifstofan Úrval hefur í samvinnu við Flugleiðir selt helgar- pakka til að auðvelda ferðamönnum að komast í vetrarparadís Mývatns- sveitar. Innifalið í helgarpakkanum eru allar ferðir og gisting í Hótel Reynihlíð. Flogið er til Húsavíkur. Einnig er boðið upp á helgarferðir fiá Akureyri í samvinnu við sérleyf- isbíla Akureyrar, með gistingu i Hótel Reynihlíð. Dansleikur laugardagskvöld Hljómsveitin Kvartett leikur fyrir dansi. HótelKEA. Horft af brúnni Frumsýning4. mars. Forsala aðgöngumiða hafin. M Æ MIÐASALA laKFÉLAG AKUREYRAR NÝOG BETRISÓSA kórónu j. sósa C • • • HAMB0RGARAS0SA Dreifingaraðili: Heildverslun Valdimars Baldvinssonar h/f, Akureyri. Sími 96-21344. Fæst íöllurn betri matvöruverslunum. ALLTAF AUPPLEIÐ Landsins bestu PIZZUR Opnunartími opíð um helgar fró kl 11.30 - 03.00 Virka daga fró kl. 11.30 - 01 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.