Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 Rúmenía: Engar leysingar í mannlíf- inu þrátt fyrir mildan vetur Beðið í rúmenskri biðröð Myndin var tekin í Búkarest í fyrravetur en þá var mikið fann- fergi og frosthörkur. Nú hefur veðrið hins vegar leikið við Rúmena og lítið verið um siýómokstur. Búkarest VETURINN hefur farið einstak- lega mildum höndum um Rúm- ena að þessu sinni. Febrúar- himinninn hvolfist ekki yfir þá blýgrár eins og veqjulega held- ur yljar sólin landið og það er ekki laust við, að sumum finnist ástandið bara hafa skánað. Það er þó mikil blekking. „Er eitthvað að rofa til?“ spurði gestkomandi maður rúmenska vin- konu sína. „Nei, áttirðu von á því?“ svaraði hún og hló hæðnislega. í nýlegri skýrslu bandaríska ut- anríkisráðuneytisins um ástand mannréttindamála segir, að hvergi í Evrópu séu lqörin verri og kúgun- in meiri en í Rúmeníu og góða veðrið hefur aðeins orðið til hlífa landsmönnum við enn meiri þreng- ingum af völdum vetrarins. Raflýsing I einu herbergi í Búkarest hafa flest heimili litla sem enga kyndingu en sem betur fer hefur hitastigið í vetur verið lengst af fyrir ofan frostmark. Lýsingin er svo lítil, að venjulegur lestur er óþægilegur, og í verslun- um er erfitt að finna stærri ljósa- perur en 30 watta. Opinberlega er heldur ekki gert ráð fyrir, að fleiri en eitt herbergi sé raflýst á hveiju heimili. Fyrir skömmu, þegar hlýindin höfðu staðið I rúma viku, lejrfði stjómin aftur notkun einkabifreiða en síðustu vetur hefur hún verið bönnuð strax í fyrstu snjóum. Er því borið við, að einkabflamir séu fyrir í umferðinni en í raun er ver- ið að spara bensfnið. Rúmenar flylja út milljónir tonna af olíu og olíuvörum og nota gjaldeyristekj- umar í það forgangsmál Nicolaes Ceausescus forseta að greiða upp erlendu skuldimar. Rúmenar flytja einnig út geysi- mikið af kjöti, mjólkurafurðum og komi og hafa með þessum útflutn- ingi lækkað erlendu skuldimar á átta árum úr 10 milljörðum dollara í fimm. Kjötið selt „bakdyramegin" Önnur afleiðing þessa útflutn- ings er, að almenningur verður að standa klukkustundum saman í biðröðum og orkan og ímyndunar- aflið fara aðallega f að hugsa upp einhverjar leiðir til að ná í mat, „bakdyramegin eða undir borðið". „Ég fer í veitingahúsið," sagði leigubflstjóri þegar hann var spurður hvemig hann færi að því að ná í kjöt fyrir fjölskylduna. „Ég kaupi kjötið þar og konan mín matbýr það.“ Mestallt kjöt og annað, sem veitingahúsin fá, er aldrei borið á borð fyrir gesti. Starfsfólkið fer með þáð út um bakdymar og selur það sjálft. Fyrir utan allar verslanir eru biðraðir og það er einhver samsær- isblagr yfir þeim. Varan er seld f dyragættinni og þegar allt er búið er hurðinni skellt aftur og fólkið verður að fara og finna sér aðra biðröð. Sjónvarpað fyrir Ceausescu í afgreiðslu Balkan-flugfélags- íns búlgarska er engin biðröð, hún er skammt frá við auglýsinga- og sýningarkassa félagsins. Þar safn- ast menn saman með blað og blý- ant og bíða þess þolinmóðir að komast að. Erindið er að skrifa upp dagskrá búlgarska ríkissjón- varpsins næsta hálfa mánuðinn. Ef loftnetið er sæmilegt er hægt að ná útsendingum þess og það þykir mjög eftirsóknarvert þótt fáir skilji búlgörskuna. Vegna orkuspamaðarins sendir rúmenska ríkissjónvarpið ’aðeins út í tvær klukkustundir á kvöldi og stór hluti tímans er helgaður Ceausescu for- seta. Þótt Rúmenum líki búlgarska dagskráin finnst mörgum Búlgör- um lítið til hennar koma og vilja miklu heldur horfa á útsendingtu- sovéskrar stöðvar, sem þeir geta náð. Þeir segjast kunna vel við nýja „fijálslyndið" f Moskvu en það hefur ekki enn náð til Sofiu, höfuð- borgar Búlgaríu, og hvað þá til Búkarest. Það er raunar þannig með sjón- varpsmálin í Austur-Evrópu, að þar reynir hver að horfa yfir ann- ars öxl. f Ungveijalandi og Póll- andi taaa margir vestrænt gervi- hnattasjónvarp fram yfir ríkis- framleiðsluna og móttökuskermar ganga kaupum og sölum án mik- illa afskipta hins opinbera. Aust- ur-Þjóðveijar horfa á vestur-þýsku stöðvamar og Tékkóslóvakar og margir Ungveijar einnig fylgjast með því austurríska. Myndir frá öðrum heimi A gangstéttinni skammt frá skrifstofum Balkan-flugfélagsins stendur jafnan nokkur hópur fólks og horfír á útstillingarkassa hinum megin götunnar. Þeir eru á girð- ingunni fyrir utan bandarísku upp- lýsingaþjónustuna og þar eins og við aðsetur hennar um allan heim em sýndar myndir af daglega lífinu í Bandaríkjunum. Er óvíða meiri munur á þeim heimi, sem myndimar sýna, og lífínu í Búkar- est. Að fólkið skuli ekki fara yfir götuna til að skoða myndimar betur stafar af þvf, að gangstéttin fyrir framan öll sendiráð er bann- svæði, sem lögreglan gætir eins og sjáaldurs auga síns. Rúmenar gera sér vel grein fyr- ir því, að staða þeirra meðal Balk- anþjóðanna hefiir breyst til hins verra. Áður fyrr var Búlgaría af einhveijum ástæðum vanþróuðust af Balkanríkjunum fimm en nú fer ekki á milli mála, að lífið þar er miklu skárra en í Rúmeníu. Sjötta Balkanlandið, Albanía, er svo ein- angrað, að það er ekki einu sinni talið með. „Fátæktarbrúin“ Ekki er mikið um, að Rúmenar fari til útlanda en þó fá þeir stund- um að fara til Búlgaríu eftir „Vin- áttubrúnni" á Dóná til að kaupa grænmeti í bænum Ruse. Vegna þessara innkaupaferða hafa Búlg- arar fundið annað nafn á brúna og kalla hana „Fátæktarbrúna" í háðungarskyni. Raunar er Búlg- aría eina landið, sem jafnvel for- réttindastéttin í Rúmeníu fær að fara til. Rúmeni, sem fór nýlega með ferðahópi í helgarferð yfir til Búlg- aríu, segir, að nákaldir og nötrandi farþegamir hafi rekið upp fagnað- aróp þegar hitinn var settur á í lestinni Búlgaríumegin. „Þama sjáið þið hvað Búlgarar eru langt á eftir okkur,“ sagði einn ferðafélaginn. „Við vorum með upphitaðar lestar í Rúmeníu fyrir 20 árum.“ (Heimild: New York Times) Ronald Reagan Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi: Öryggi Israels og réttindi Palestínnmanna verði tryggð Reuter Ronald Reagan Bandaríkjaforseti ásamt George Shultz utanrfkisráð- herra þegar sá sfðarnefndi skýrði forsetanum frá viðræðum sínum við ráðamenn í Moskvu. Wanhington. Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti sagði f gær á blaðamanna- fundi, að næðust samningar um frið f Miðausturlöndum fyrir til- stilli Bandaríkjastjómar, yrði það kórónan á valdaferli hans. Sjónvarpað var frá fundinum og kom Reagan víða, ræddi meðal annars um skæruliða í Nicaragua og sandinistastjómina, um við- ræður George Shultz utanrfkis- ráðherra við ráðamenn í Moskvu og um Noriega, ráðamann f Pan- ama, en mesta athygli vöktu ummæli ban« um Miðausturlönd. „Það er kominn tími til, að deilu- aðilar losi sig við gamlar og gagns- lausar hugmjmdir og heýi alvarleg- ar viðræður og sáttaumleitanir," sagði Reagan og lagði áherslu á, að með friðarsamningum yrði að taka tillit til „öryggishagsmuna ísraela og lögiegs réttar Palestínu- manna". Sagði hann, að það yrði mesta afrek stjómar hans ef henni tækist að stuðla að samningum um frið í Miðausturlöndum og for- dæmdi jafnframt ofbeldið á her- numdu svæðunum f ísrael þar sem meira en 60 Palestínumenn hafa látið lífíð. George Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kom til ísraels í gær til viðræðna við ráða- menn þar um friðartillögur Banda- ríkjastjómar og mun síðan ræða við leiðtoga ýmissa arabarílqanna. Tillaga demókrata betri en engin Reagan kvaðst ekki hafa mikla trú á, að sandinistastjómin í Nic- aragua mjmdi beita sér fyrir þeim umbótum, sem hún hefði heitið í samræmi við áætlunina um frið í Mið-Ameríku. Kvaðst hann harma, að þingið skyldi hafa fellt tillögu hans um aðstoð við skæruliða en tók fram, að tilíaga demókrata um 30,5 milljón dollara aðstoð við skæruliða, aðra en hemaðarlega, væri betri en engin. Reagan sagði, að hin ríkin, sem aðild ættu að frið- aráætluninni, E1 Salvador, Guate- mala, Costa Rica og Honduras, hefðu gert ýmislegt til að fylgja henni í framkvæmd en það ætti ekki við um Niearaguastjóm. Sem dæmi um það nefndi hann, að hún hefði hafnað bráðabirgðatillögum um óskert prentfrelsi f landinu. „Sovéska ógnin“ minni Á fundinum komu ekki fram neinar spumingar um viðræður Shultz í Moskvu og horfur á samn- ingum um langdræg kjamorkuvopn en Reagan sagði, að árangurinn af þeim hefði verið framar vonum og lofaði góðu um framhaldið. Mátti á honum skilja, að „sovéska ógnin" væri nú minni en áður, fyrst og fremst vegna samninganna um meðaldrægu flaugamar og vegna þess, að vel horfði með samninga um langdrægu vopnin. Belfast, Reuter. TVEIR norður-frskir hermenn fórust og þrir menn særðust þeg- ar sprengja sprakk I Belfast á miðvikudagskvöld. írski lýðveld- isherinn, IRA, hefur lýst yfir ábyrgð á sprengingunni. Þá hefur ungur breskur hermaður, sem sakaður er um að hafa skotið ungan kaþólikka, verið leystur úr haldi gegn tryggingu og færður í vörslu hersins. Sprengjan var falin í timburþili á Reagan var spurður að því hvort Bandaríkjastjóm myndi falla frá ákærunum á hendur Manuel Nori- ega, ráðamanni í Panama, ef hann segði af sér. Vildi hann ekki svara byggingarlóð og sprakk þegar her- menn úr vamarsveit Ulsters (UDR) lokuðu öryggishliði við eina helstu verslunargötu borgarinnar. Einn •hermannanna lést samstundis og annar dó á sjúkrahúsi. Tveir her- menn og einn vegfarandi særðust lítilsháttar. Nokkrum klukkustundum - síðar bárust fréttir um að breski hermað- urinn, sem er sakaður um að hafa skotið ungan kaþólskan mann við því en sagði: „Við vildum gjama, að í Panama væri lýðræðislegt stjómarfar og borgaraleg ríkis- stjóm en ekki einræði þessa her- stjóra.“ landamæri ' írlands og Norður- írlands á sunnudag, hefði verið færður í gæslu hersins. Veijandi hermannsins heldur því fram að hermaðurinn hafi hleypt af vélbyssu af slysni. Kaþólikkar í Norður-frlandi lýstu vanþóknun á atburðinum og írsk stjómvöld fordæmdu hann harðlega. írska stjómin ákvað meira að segja að koma á eigin rannsókn á málinu, en þá ákvörðun hefur Margaret Thatcher gagnrýnt. Norður-írland: Tveir farast í sprenginffu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.