Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 Rímfræði. hagvaxtarins eftir Harald Blöndal „Því við getum jólahaldi frestað fram í mars, bar1 ef oss svo býður við að horfa." Jónas Ámason. Það er löngu vitað, að þeir, sem mæla allt á stokk hagkvæmni og arðs, hafa mestu skömm á öllu helgihaldi og fríum. Fyrirmynd þessara manna er gamli onkel Jóa- kim, sem ævinlega fyllist vandlæt- ingu um jól vegna þess annars veg- ar, hvað fólk eyðir miklu og hins vegar vegna allra þessara frídaga. Þeir bræður Jónas og Jón Múli Ámasynir sömdu söngleik fyrir 30 árum byggðan á þeirri hugmynd að fresta jólunum. Þessi söngleikur er enn sýndur við miklar vinsældir og þykir alltaf jafnfyndin ádeila á þá, sem telja sig í krafti ímyndaðs valds stjóma öllu milli himins og jarðar. Miklu seinna bámst um það fréttir og birtust í Morgunblaðinu, að Fidel Kastró hefði ætlað að fresta jólunum, þannig að helgihald félli betur að vinnuvikunni. Þá kom í Staksteinum athugasemd um það, að þeir bræður væru komnir á bekk með klassískum kennismiðum í marx-lenínisma og brandaramir í Deleríum Búbónis væru orðnir að fúlustu alvöru fyrir austan tjald. Nú standa yfir kjarasamningar. Lítið hefur heyrst um þá. Þó borist af því fréttir, að búið sé að ná samn- ingum um að breyta dagatali og helgihaldi íslendinga. Annars vegar mun eiga að færa sumarið til en hins vegar fresta uppstigningunni. Og hver er ástæðan? Stokkameist- arar og talnaspekúlantar, sem raunar em að verða búnir að koma hálfri þjóðinni í gjaldþrotameðferð með vaxtabrjálæði, sjá ofsjónum yfír því, að frí á fímmtudegi valdi því, að föstudagurinn þar á eftir verði arðminni en venjulega. Og til þess að koma arðseminni í lag dug- ir ekki minna en færa til sumardag- inn fyrsta og uppstigningardag. Það verður að gera ráð fyrir að flestir þeirra, sem standa að kjara- samningum á íslandi, séu kristnir. Og sem kristnir menn eiga þeir að vita, að uppstigningardagurinn er einn af helstu hátíðisdögum krist- inna manna. Páskar, jól og upp- stigningardagur em helgustu dagar kirkjunnar, og hafa verið frá upp- hafí — í kristinna laga þætti Grá- gásar segin „Hinn fímmta dag í gagndögum er uppstigningardagur. Hann skul- um vér halda sem páskadag." Uppstigningardagur nýtur vemdar skv. helgidagalöggjöfínni og er ekki heimilt að vinna þá aðra vinnu en þá, sem nauðsynlega kann að teljast. Það em því hrein laga- brot, ef vinnuveitendur og verka- lýðsfélög ætla að gera uppstigning;- ardag að venjulegum verkadegi, sem sé ekki merkilegri en svo, að flytja megi hann til næsta mánu- dags. Mér þykir skrítið, að allir prestar landsins þegja yfír þessari ósvinnu. Þá má benda á það líka, að skv. stjómarskránni ber ríkisvaldinu að efla þjóðkirkjuna og þar með standa vörð um helgidaga hennar. Verður því ekki trúað að óreyndu, að al- þingismenn fari að hrófla við ævagömlu helgihaldi í landinu. Sumardagurinn fyrsti er líklega hvergi haldinn hátíðlegur nema hér á landi. Hann var lengi messudagur til 1744, en hefur alltaf verið há- tíðisdagur, einkum bamanna, sem sjá loksins á enda vetrinum og öllu myrkrinu. Þegar ég var bam var margt gert til þess að gera þennan dag hátíðlegan og miklar skrúð- göngur fóm um götumar og vetur og sumar mættust. Það mátti hlakka til þessara miklu atburða allt árið. Einhvem veginn fínnst mér, að minna fari fyrir sumardeg- inum fyrsta hin síðari ár. Ef til villx er það vegna þess, að skrúðgöng- Haraldur Blöndal umar stóm em horfnar og hátíða- höldin orðin innandyra. Samt sem áður er þessi dagur mikils virði fyrir íslendinga og ekki er sá siður af lagður að gefa sumargjöf. Mér fínnst það skondin sumargjöf hjá „aðilum vinnumarkaðarins" að sameinast um að leggja þennan foma dag af og nauðsynlegt að menn snúist gegn því. Ef vinnuveitendur og verkalýðs- menn vilja taka upp trú á stokkinn má benda þeim á nokkra daga, sem færa mætti til. Upplagt er t.d. að hafa 1. maí alltaf á laugardögum, 17. júní mætti hafa á sunnudegi, jólin mætti ævinlega halda þannig, að aðfangadagur væri á föstudegi, og jafnframt stilla svo til að gaml- ársdagur verði á laugardegi. Það getur að vísu orðið svolítið vesen með tímatalið, en það skiptir vitan- lega engu máli, ef hægt er að tryggja meiri arð og samhangandi „Það verður að gera ráð fyrir að flestir þeirra, sem standa að kjarasamningnm á ís- landi, séu kristnir. Og sem kristnir menn eiga þeir að vita, að upp- stigningardagurinn er einn af helstu hátíðis- dögum kristinna manna. Páskar, jól og uppstigningardagur eru helgustu dagar kirkjunnar, og hafa verið frá upphafi — í kristinna laga þætti Grágásar segir: „Hinn fimmta dag í gagndög- um er uppstigningar- dagur. Hann skulum vér halda sem páska- dag.““ vinnudag. Svo má reyna að færa frídag versluharmanna á sunnudag eða laugardag, en þá hafa verslun- armenn frí hvort sem er. Hugsan- legt væri jafnvel að gefa mönnum kost á því að bæta öllum helgidög- unum við sumarfríið sitt eða vetrar- fríið enda næðist þá einna mest skipulag og mestur hagnaður fyrir landið. Höfundurer hæstaréttarlögmað- ur. A EIGIN ABYRGÐ „Nú, nema ég kem heim úr vinnunni fimmtu- daginn 4. febrúar síðastliðinn kl. 10 að eftír Guðrúnu S. Gísladóttur Fyrir utan svefnherbergis- gluggann minn stóðu tré, reyndar bak við grindverk ríkisins og þykir það nú engin frágangssök um tré á íslandi, hafí maður á annað borð yndi af tijám, og ég var víst ekki ein um að hafa yndi af þessum. Ég hafði nú samt ekki virt þau fyrir mér lengur en í ein fímm ár, en tré eru lengi að vaxa, vitum við öll sem vaxin enim úr grasi. Þessi tré aftur á móti voru á aldrinum 8 til 38 ára, kannski eldri (fullyrði ekkert um það) um hæð þeirra full- yrði ég þá ekki heldur, því ég mældi þau aldrei, nema með augun- um, og hér er ekkert mark tekið á augum. Þessi tré voru í eigu ríkisins og stóðu fyrir utan fyrrverandi ferða- skrifstofu þessa sama ríkis f Gimli. Þetta svæði er nú til umráða fyrir vemdunarsamtök hér í bæ sem heita Torfusamtökin. Ég er íbúi sem bý við bakhliðina eða við skulum segja að tjaldabaki Torfusamtak- anna. Þar liggur ein minnsta gatan í bænum og telur afskaplega fá atkvæði. Nú, nema ég kem heim úr vinnunni fimmtudaginn 4. febrú- ar síðastliðinn kl. 10 að kvöldi og þá er búið að taka rafmagnið af götuljósinu og mikill hávaði, stórar vélar að skófía tijánum upp á vöru- bílspall, konnumar héngu úti í glugga með krakka sem ekki var hægt að svæfa. Ég spurði hvert þeir ætluðu með trén, þeir sögðu að mér kæmi það ekkert við. Ég spurði hvort þetta væri lög- iegt, þeir sögðust ekki vita það en það gæti svo sem vel verið að ein- hveijum „rauðsokkakellingum fyndist það ólöglegt“, við svo búið brunuðu þeir úr hlaði, og við fórum að lcveða niður krakkana. Ég hafði áður átt í leiðindum við Torfusamtökin og er þá víst svona langrækin að égtek upp þráðinn nú. Fyrir alveg nógu mörgum árum stóð nefnilega stórt og myndarlegt kort af íslandi, fyrir utan Gimli, kvöldi og þá er búið að taka rafmagnið af g’ötuljósinu og mikill hávaði, stórar vélar að skófla tijánum upp á vörubílspali, konurnar héngu úti í glugga með krakka sem ekki var * hægt að svæfa. Eg spurði hvert þeir ætl- uðu með trén, þeir sögðu að mér kæmi það ekkert við.“ Undan grænni torfu. það var upphleypt, málað og úr steinsteypu. Það var farið með okk- ur krakkana úr skólunum að skoða það, okkur þótti svo gaman að geta strokið yfír Vatnajökul, Háubungu, eða potað puttanum inn allt ísa- fjarðardjúp, það var örugglega ein- hvem veginn eins og guði líður, héldum við. En þá komu líka Torfu- samtökin og vemduðu íslandskortið mélinu smærra og skófluðu því upp á vörubflspall. Hvert þeir fara með þetta, og undir hvaða torfu þeir grafa, það væri gaman að vita? Ég spurði náttúrlega af hveiju, þeir sögðu að íslandskortið væri ekki nógu gamalt. Nú hef ég ekki í höndunum nein- ar stefnuskrár frá samtökunum, en gaman væri að fá svör. Er það ein- hver stefna sem ég hef misst af, að kasta beri öllu sem ekki er nógu gamalt, hvað er nógu gamalt? Gildir það sama um kvenfólk? Vilja Torfusamtökin 200 ára kven- fólk, engin böm og tóma afleggjara í garðana héma, hvflíkt himnaríki. Lfka, hvaða framkvæmdir eru það Morgunblaðia/Sverrir sem em að sprengja sig hér ofan í Bakarabrekkuna? Hvað á að vera héma? Hvar er það á skipulagi og hvers vegna? Vonandi ekki til þess eins' að hægt sé að skrifa upp eftirá fyrir borgina, hvað var hér áður. Á kannski að planta héma tijám? Ég biðst velvirðingar fyrirfram á að nota þessa langsóttu leið gegn- um dagblöðin við að spuija, en það er eitthvað bogið við símana i göt- unni, svo ég verð bara svona hálf- partinn að morsa þetta, vil heldur ekki láta hrópa á eftir mér í þriðja sinn misvel íhuguð svör. Höfundurersvseðissljóri 1 lýá íbúasamtökum Þingholtanna. Skálavík- nýtt skip til Ólafsvíkur NÝTT skip, Skálavík, hefur bæst í flota Ólafsvíkinga. Skálavík er 70 tonna skip, smíðað í Wisla- skipasmíðastöðvunum í Gdansk í Póllandi fyrir Þorgrím og Rúnar Beqjamínssyni í Ólafsvík. Skálavfk er 21,7 metrar að lengd, 6 metrar á breidd og 3 metrar á dýpt. Hún er með 600 hestafla Cat- erpillar aðalvél og er búin til alhliða veiða; á net, snurvoð og togveiðar. Skálavík kostar 32 milljónir íslenskra króna komin í höfn. Skálavík er systurskip Auðbjarg- ar, sem er nýlega komin til Ólafsvík- ur, en tvö önnur skip sömu gerðar em nú í smíðum í Póllandi, og fer annað þeirra til Ólafsvíkur en hitt til Hafnarfjarðar. Skálavík, nýkomin til landsins, i Reykjavíkurhöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.