Morgunblaðið - 26.02.1988, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/BAR
Stjórn Brunabótafélags Islands ásamt heiðurslaunaþegum 1988. Sitjandi eru frá vinstri Áskell Másson,
Eggert Vigfússon, Jónína Ingvadóttir, en hún tók við laununum fyrir hðnd eiginmanns síns, Jóhanns
Hjartarsonar, Hjálmtýr Hjálmtýsson sem tók við laununum fyrir hönd dóttur sinnar, Sigrúnar, Stefán
B. Sigurðsson sem tók við laununum fyrir hönd samstarfsmanns síns, dr. Jóhanns Axelssonar. I aftari
röð eru frá vinstri Grétar Jónsson, Björgvin Bjarnason, Andrés Valdimarsson, Þórður H. Jónsson, Ingi
R. Helgason forstjóri BÍ, Hilmar Pálsson, Matthías G. Pétursson og Friðjón Þórðarson formaður stjómar BI.
Fimm fengu heiðurslaun
Brunabótaf élagsins
Heiðurslaun Brunabótafélags
Islands voru afhent i gær við
hátiðlega athöfn á Holiday Inn
hótelinu i Reykjavík. Að þessu
sinni voru styrkþegar f imm tals-
ins af alls rúmlega 60 umsækj-
endum. Styrkinn hlutu Áskeli
Másson tónskáld, Eggert Vigfús-
son slökkviliðsstjóri á Selfossi,
dr. Jóhann Axelsson prófessor,
Jóhann Hjartarson stórmeistari
Einnig tjáði Iandlæknir dávaldin-
um að ekki þætti ástæða til að
amast við því að hann sýndi kúnst-
ir sínar hér á almennum samkomum
svo framarlega sem hann augiýsti
ekki að hann tæki að sér að veita
með dáleiðslu bót algengra meina
eins og reykinga, offítu og drykkju-
sýki. Palmer mun hafa auglýst og,
í nokkrum tilfellum, veitt dáleiðslu-
Þar kemur einnig fram að um 24%
dóu af völdum krabbameins, 7%
vegna lungnabólgu, 5% vegna slysa
en aðrar dánarorsakir eru 17%.
Kransæðasjúkdómar eru algeng-
ari hjá körlum en konum, en hins
i skák og Sigrún Hjálmtýsdóttir
söngkona.
Þetta er í sjöunda skiptið sem
Brunabótafélag Islands veitir heið-
urslaun. Þau voru veitt í fyrsta sinn
árið 1982, samkvæmt ákvörðun
stjómarfundar félagsins 22. janúar
það ár. Alls em styrkþegar orðnir
32 að meðtöldum þeim sem nú
hljóta styrkinn. Heiðurslaunin em
meðferð við þessum kvillum hér-
lendis og þegið gjald fyrir.
Samkvæmt heimildum frá skrif-
stofu landlæknis hafði umboðsmað-
ur Palmers samband þangað
síðdegis í gær og tilkynnti að dá-
valdurinn hygðist fara að tilmælum
landlæknis, þannig að ólíklegt er
talið að embættið aðhafíst frekar í
málinu.
vegar deyja hlutfallslega fleiri konur
en karlar úr heilablæðingu. Dauðs-
föll vegna krabbameins em heldur
algengari hjá konum en körlum, en
banaslys em helmingi tíðari meðal
karla en kvenna.
eitt stöðugildi og er upphæð þeirra
miðuð við hæstu laun yfírkennara
í menntaskóla.
Ingi R. Helgason forstjóri BÍ
gerði grein fyrir veitingu heiðurs-
launanna að þessu sinni og fyrir
hvað þau em veitt. Friðjón Þórðar-
son, formaður stjómar félagsins
afhenti styrkþegum, eða fulltrúum
þeirra, sem ekki gátu verið við-
staddir, heiðursskjal með viður-
kenningu BÍ um, að viðkomandi
geti sótt heiðurslaun sín til félags-
ins.
Áskell Másson tónskáld hlýtur
heiðurslaun f tvo mánuði í því skyni
að auðvelda honum að ljúka við að
semja ópemna „Klakahöllina", sem
hann hefur haft í smíðum að und-
anfömu. „Klakahöllin" er ópera í
þremur þáttum fyrir sjö einsöngv-
ara, átta böm, blandaðan kór og
14 ballettdansara.
Eggert Vigfússon slökkviliðs-
syóri á Selfossi hlýtur heiðurslaun
í tvo mánuði í því skyni að auðvelda
honum þá úttekt, sem hann er að
framkvæma á brunavömum á Suð-
urlandi. Sú úttekt er undirbúningur
tillögugerðar um endurskipulagn-
ingu brunavama á Suðurlandi.
Dr. Jóhann Axelsson prófessor í
Reykjavfk hlýtur heiðurslaun í þijá
mánuði f þvf skyni, að auðvelda
honum að halda áfram rannsókn-
um, er lúta að því að fínna og skil-
greina þá umhverfísþætti, sem em
orsakavaldar f hjarta- og æðasjúk-
dómum með samanburði á aðskild-
um en erfðafræðilega náskyldum
hópum Islendinga í Vesturheimi og
hér á landi.
Jóhann Hjartarson stórmeistari í
skák hlýtur heiðurslaun í þijá mán-
uði í því skyni að auðvelda honum
þátttökuna í heimsmeistarakeppn-
inni f skák og öðmm sterkum skák-
mótum erlendis.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona
hlýtur heiðurslaun í tvo mánuði í
Íiví skyni að ljúka sönglistamámi á
talíu, þar sem hún hefur dvalist
að undanfömu.
Ingi R. Helgason sagði f ávarpi
við athöfnina, að tilgangur heiðurs-
launa Brunabótafélags Islands væri
sá, að gefa einstaklingum kost á
að sinna sérstökum verkefnum, sem
til hags og heilla horfa fyrir íslenskt
samfélag, hvort sem það er á sviði
lista, vísinda, menningar, íþrótta
eða atvinnulífs. Ákvörðun um þessa
úthlutun var tekin á fundi sfjómar
BÍ þann 15. janúar sfðastliðinn.
Landlæknir gerði
athugasemd við
starf dávalds
LANDLÆKNIR kvaddi f gær á sinn fund bandaríska dávaldinn John
Ivan Palmer, sem staddur er hérlendis, og skýrði honum frá að
samkvæmt íslenskum lögum væri honum óheimilt að bjóða meðferð
við sjúkdómum og kvillum gegn gjaldi.
Hjarta- og æðasjúk-
dómar eru orsök nær
helmings dauðsfalla
HJARTA- og æðasjúkdómar eru lang algengasta dánarorsökin hér á
landi. Á árunum 1981—1985 dóu að meðaltali 1.626 Islendingar á ári.
Hvert þessara ára dóu að meðaltali 767 úr hjarta- og æðasjúkdómum,
eða rúm 47%. Þar af dóu 30,6% úr kransæðasjúkdómum og 9,6% úr
heilablæðingu og 7% úr öðrum hjarta- og æðasjúkdómum. Þetta kem-
ur fram f nýjasta hefti Heilbrigðismála, tfmariti Krabbameinsfélags
íslands.
Dómur í máli Steingríms Njálssonar:
Tvískipting dóms-
ins er einsdæmi
- segir Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur
„ÞESSI tvfskipti dómur er einsdæmi. Hæstiréttur telur manninn sak-
hæfan, en dæmir hann jafnframt til viðeigandi hælisvistar. Ef til viil er
dómurinn með þessu að þrýsta á yfirvöld að slíku hæli verði komið á
laggirnar," sagði Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur, er hann var
inntur álits á dómi Hæstaréttar yfir Steingrími Njálssyni. Steingrimur
var á miðvikudag dæmdur til 9 mánaða fangelsisvistar og að henni lok-
ínm til 15 mánaða hælisvistar.
Árið 1964 var Steingrímur Njálsson
dæmdur í 1 árs fangelsisvist fyrir
kynferðisafbrot og var þá kveðið á um
það að honum væri skylt að sæta
læknismeðferð á meðan á afplánun
stæði, vegna kynferðislegs misþroska.
Þrátt fyrir þetta ákvæði varð ekkert
af þessari meðferð.
Erlendur sagði, að þeir menn, sem
úrskurðaðir hafa verið í öryggisgæslu
þar sem þeir hafa ekki talist sak-
hæfir, hafí yfirleitt ekki fengið sér-
staka umönnun lækna. „Mér fínnst
sjálfum liggja í augum uppi að þegar
rætt er um viðeigandi hæli fyrir sjúka
menn þá hljóti að vera átt við sjúkra-
stofnun," sagði Erlendur. „Ég get
ekki séð að þessir menn séu hættu-
legri en margir þeir sem lokaðir eru
inni á Kleppi, en þeir hafa hins vegar
verið svo ógæfusamir að bijóta af sér
og þar með er þeim meinuð vist þar.
Annað hvort eru menn veikir eða ekki
og það á að meðhöndla þá í samræmi
við það. Ég hef ekki orðið var við að
áfengissjúklingur, sem framið hefur
lögbrot, fái ekki að leita sér hjálpar á
meðferðarstofnunum. Þar eru allir
jafnir og hví ekki á geðsjúkrahúsum?"
Erlendur sagði, að í Noregi væri
sá háttur oft hafður á, að menn sem
teldust sakhæfír væru dæmdir til
fangelsisvistar en jafnframt væri
kveðið á um að þeir skyldu vera ákveð-
inn tíma í „sikring", eins og Norð-
mennirnir kalla það. „Sá hluti refsing-
arinnar er alltaf afplánaður í sérstöku
fangelsi, þar sem menn fá aðstoð sér-
fræðinga," sagði Erlendur. „Ef til vill
er Hæstiréttur með þetta í huga, en
því miður er engin stofnun til hér á
landi sem getur talist viðeigandi hæli
fyrir sjúka afbrotamenn."
Dómurinn eins konar
ámimiing- til yfirvalda
- segir Jónatan Þórmundsson, prófessor
„ÞAÐ má líta á þennan dóm Hæstaréttar sem eins konar áminningu
tíl yfirvalda um að hafa lög í samræmi við veruleikann eða afnema
þau ákvæði úr lögum sem ekki samrýmast honum,“ sagði Jónatan
Þórmundsson, prófessor og forseti lagadeildar Háskólans, um dóm
Hæstaréttar í máli Steingríms Njálssonar.
Jónatan sagði að ósakhæfír
menn, sem hafa verið úrskurðaðir
í meðferð, hafí yfírleitt dvalist í
fangelsisstofnunum, enda væri eng-
in meðferðarstofnun til fyrir geð-
sjúka afbrotamenn. „Ég veit ekki
hvort sú verður raunin með
Steingrím Njálsson, en vissulega
gæti svo farið að hann sæti allan
tímann, það er 9 mánaða fangelsi
og 15 mánaða meðferð, í fangelsi.
Það má líta á dóm Hæstaréttar sem
eins konar áminningu til stjómvalda
og það er vissulega skoðun margra
að tímabært sé að taka til hendinni
og koma meðferðarstofnun fyrir
afbrotamenn á fót,“ sagði Jónatan.
„Nú hafa kynferðisafbrot verið mik-
ið í sviðsljósinu, en slík stofnun
ætti að geta sinnt öllum þeim, sem
hafa brotið lög og þurfa á meðferð
að halda, til dæmis vegna drykkju-
sýki.“
Morgunblaðið/Sverrir
Ingólfur Guðbrandsson tekur við viðurkenningu portúgölsku ríkis-
stjómarinnar úr hendi Horacios Cavaco.
Ingólfi Guðbrandssyni
veitt viðurkenning
INGÓLFI Guðbrandssyni var á
laugardag afhent viðurkenning
fyrir framlag hans til ferðamála
og kynninu á Portúgal. Horacio
Cavaco, forseti ferðamálaráðsins
I Algarve, kom í umboði sam-
gönguráðherra Portúgals tíl að
veita viðurkenninguna.
Afhendingin fór fram á Amar-
hóli að viðstöddum nokkrum gest-
um frá Portúgal, Spáni og Kýpur
auk starfsmanna Útsýnar. Ingólfí
var veitt heiðursmerki ríkisstjómar-
innar fyrir störf að ferðamálum,
auk silfurslegins reykháfs, sem er
tákn ferðaiðnaðarins í Algarve.
Útsýn hefur boðið beint leiguflug
þangað síðastliðin 5 ár.