Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
COSPER
©pi» •
COSPER
— Þetta er svo sem eftir öðru hjá mannmum mínum,hann hefur
aldrei gert vélina hreina.
UNGLINGALEIKHÚS
Reyniði að hreyfa varirnar
Sumir sungu ekki með í síðasta
laginu... Varimar á þér voru
eins og strik...Reyniði að hreyfa var-
imar og vera ekki eins og dauðyfli."
Leikendur Unglingaleikhússins í
Kópavogi höfðu margt að segja hver
við annan eftir æfingu í félagsheimil-
inu á miðvikudaginn. Benóný Ægis-
son leikstjóri kom þó ýmsum ábend-
ingum að. Sjónleikur hans, Vaxtar-
verkir, vérður frumsýndur í kvöldr
26. febrúar, klukkan níu og að lok-
inni sýningu verður slegið upp balli
í félagsheimili Kópavogs.
Sýningin er liður í Kópavogsvöku,
flölbreyttri menningardagskrá á veg-
um lista- og menningarráðs Kópa-
vogs, sem staðið hefur þessa viku í
félagsheimilinu að Fannborg 2 og
lýkur um helgina. Önnur sýning á
Vaxtarverkjum verður á morgun
klukkan §ögur og þegar er búið
ákveða flórar sýningar eftir að Kópa-
vogsvöku lýkur. Þær verða 7., 9.,
11. og 14. mars. Frumsýningin er
aðeins ætluð unglingum og uppselt
er á laugardagssýninguna.
í Vaxtarverkjum er ekki sögð saga
í algeru samhengi, heldur dregnar
upp myndir úr lífi nútíma unglinga
í borg. Áhorfendur fylgjast með
krakkahóp í skólanum, úti á lífinu
og heima. í verkinu er fjallað um
ýmislegt sem er unglingum mikil-
vægt; afstöðu fullorðinna til þeirra
og stöðu þeirra í þjóðfélaginu. „Ann-
ars eru unglingar homrekur í leik-
bókmenntum. Sé á annað borð skrif-
að um krakka á þessum aldri eru
þau annað hvort höfð algerir vand-
ræðagemlingar eða sakleysið upp-
málað. En auðvitað eru fæstir ungl-
ingar svona, þeir eru þama mitt á
milli," segir Benóný Ægisson leik-
stjóri.
Leikendur era sautján talsins og
koma úr flórum grannskólum í Kópa-
vogi. Þeir elstu era byrjaðir í mennta-
skóla, en sýningin hefur verið í mót-
un f tæpt ár. „Fyrstu æfingamar
fóra í að tala við krakkana og fiska
eftir afstöðu þeirra til lífsins og til-
verannar," segir Benóný. „Við rædd-
um líka oft saman áður en byrjað
var að vinna atriði. Ég valdi sem
sagt þá leið að skrifa út frá sjónar-
hóli krakkanna sjálfra, sem er tals-
vert frábrugðinn viðhorfum eldra
fólks. Stundum eru dregnar upp
skrípamyndir af fullorðnum og mál-
farið í verkinu er óhefðbundið."
„Vaxtarverkir era klæðskera-
sniðnir fyrir einmitt þessa krakka,
ég hafði þau alltaf í huga þegar ég
skrifaði verkið. Af því að við spjölluð-
um um atriðin jafti óðum gafst gott
tóm til alls kyns lagfæringa og oft
höfðu krakkamir betri hugmyndir
en ég. Nú hef ég unnið í félagssmið-.
stöð í ijögur ár og er orðinn nokkurs
konar húsgagn þar. Þess vegna heyri
ég og upplifi hluti sem aðrir fullorðn-
ir verða kannski ekki varir við. Þetta
auðveldar mér vissulega að skrifa
unglingaleikrit."
Benóný kveðst frekar vera verk-
syóri en leikstjóri, þar sem hann
hefur haft umsjón með hönnun og
gerð búninga, leiktjalda og fleiri
fylgihluta auk eiginlegrar leikstjóm-
ar. „Hópurinn sá um alla þessa
vinnu," segir Benóný, „tónlistin í
verkinu er samin og flutt af fímm
strákum úr leikhópnum og þeir leika
fyrir dansi eftir framsýninguna."
Hljómsveitin Tríó Jóns Leifssonar
var að sögn strákanna fimm sem
hana skipa stofnuð fyrir tveimur
áram. Síðan hafa þeir töluvert spilað
í skólum og héldu reyndar til Dan-
merkur í síðasta mánuði og tóku
þátt í tónlistarhátíð norrænna ungl-
ingahljómsveita. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar þvemeita að gefa skýr-
ingu á nafni sveitarinnar. Þeir segja
lögin í Vaxtarverkjum vera rokkuð
og era ófúsir að skilgreina tónlistina
nánar.
Meðfylgjandi myndir vora teknar
á æfingu hjá Unglingaleikhúsinu í
Kópavogi fyrr í. vikunni. Miðar á
Vaxtarverki era seldir í félagsheimil-
inu frá klukkan fimm á sýningardög-
um, en í símá 41985 era veittar
upplýsingar og tekið á móti pöntun-
um.
Morgunblaðið/Þorkell
Benóný Ægisson er leik- eða verkstjóri sýning-
ar Unglingaleikhúss Kópavogs.
fclk f
fréttum
Reuter
Adrian Lyne, fyrrum auglýsinga-
maður er leikstjóri „Fatal Attrac-
tion“, sem sýnd er í Háskólabíói.
Lasse Hailström leikstýrir mynd-
inni „My Life as a Dos“.
Norman Jewison er leikstjóri
„Moonstruck", en hann leikstýrði
einnig Agnesi barni Guðs, sem
ýmsir muna eftir.
Bemardo Bertolucci er leikstjóri
Síðasta keisarans, sem sjá má í
Regnboganum.
John Boorman heitir leikstjóri
myndarinnar „Hope and Glory“.
BESTI LEIKSTJÓRINN
E inn þessara heiðursmanna hlýtur Óskarsverðlaun í vor fyrir bestu
kvikmyndaleikstjómina. íslenskir bíógestir hafa einungis barið augum
tvær myndir af þeim þeim fímm, sem útnefninganefnd Óskarsverð-
launa þótti svo ljómandi vel leikstýrt. Mjmdimar „My Life as a Dos“,
„Moonstruck" og „Hope and Gloiy“ eru enn ókomnar í kvikmynda-
hús hérlendis.