Morgunblaðið - 26.02.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
49
Vetrarólympíule-ikarnir
Calgary
19 8 8
AllMrto Tomba á fleygiferð i stórsviginu í gærkvöldi.
20 km ganga kvenna:
Þrefalt hjá sovésku
stúlkunum
Sovétmenn hafa haft mikla yfir-
burði í göngugreinunum á
Vetrarólympíuleikunum í Calgary í
Kanada og fengið 13 verðlaunapen-
inga í þeim, en áður höfðu þeir
mest fengið 10 verðlaun — árið
1976. í gærkvöldi var keppt í 20
km göngu kvenna og röðuðu
sovésku stúlkumar sér í þrjú fyrstu
sætin með Tamara Tikhonova, silf-
urhafa í fímm km göngu, í broddi
fylkingar.
Brautin var mjög góð og árangurinn
eftir því. Fyrstu 30 stúlkumar voru
allar á betri tíma en Maria-Liisa
Hamalainen-Kirvesniemi frá Finn-
landi gekk á í Sarajevo 1984, en
hún hlaut þá gullverðlaunin.
Tikhonova sigraði á 55:53,6 mínút-
um, Anfíssa Reztsova gekk á
56:12,8 og Raisa Smetanina fékk
tímann 57:22,1. Sovéska þrenning-
in fékk mikla keppni frá Christina
Gilli-Brugger frá Sviss, sem hafn-
aði I fjórða sæti, og Simone Opitz
frá Austur-Þýskalandi, sem varð
fímmta. Brugger var samhliða
bronshafanum Raisa Smetanina,
þegar fímm kflómetrar voru eftir,
en hún lauk keppni 15,3 sekúndum
á eftir þeirri sovésku. Þar með fékk
Smetanina, sem er 35 ára, sinn
níunda verðlaunapening á fjórum
Ólympíuleikum ogjafnaði met Sixt-
en Jemberg frá Svíþjóð, sem hlaut
níu ólympíuverðlaun á ferlinum.
Sænski heimsmeistarinn, Marie-
Helen Westin, hafnaði í 11. sæti
og hafa Svíar ekki staðið undir
þeim vonum, sem bundnar voru við
þá í göngugreinunum.
Nina Gavriliuk frá Sovétríkjunum
hafnaði í níunda sæti, en var dæmd
úr leik, þar sem vömmerki var á
húfunni og slíkt er ekki leyfílegt.
Firm- og félagshópa-
keppni KR1988
Hin árlega firma- og félagshópakeppni KR í innanhúss-
knattspymu hefst laugardaginn 5. mars. Skráning i sfma
27181 eða á skrifstofu knattspyrnudeildar í KR heimllinu.
Reuter
Verðlaun
Skipting verðlauna á
Vetrarólympíuleikunum í Calgary f
Kanada fyrir keppni í dag (gull
fremst, þá silfur og loks brons):
Sovétrfkin.................9 9 7
Austur-Þýskaland............7 6 4
Finnland...................4 0 2
Austurríki..................3 4 2
Svfþjóð.....................3 0 1
Sviss.......................2 5 4
Vestur-Þýskaland............2 2 1
Bandaríkin..................2 1 1
Holland.................. 1 2 2
Frakkland...................1 0 1
ítalia......................1 0 1
Noregur.....................0 3 2
Kanada......................0 1 3
Tékkoslóvakía...............0 1 2
Júgóslavia..................0 1 1
Japan.......................0 0 I
Tomba -
besturí
stórsviginu
Daníel Hilmarsson í 42. sæti
ALBERTO Tomba var öryggið
uppmálað f stórsviginu í gœr-
kvöldi, var rúmri sekúndu á
undan Hubert Strolz í fyrri
umferð og þó Austurríkis-
manninum tœklst að saxa ör-
lítið á muninn í seinni umferð,
var sigur ítalans aldrei í hœttu
— fyrstu gullverðlaun hans á
Ólympíuleikum voru í höfn.
Daníel Hilmarsson hafnaði í 42.
sæti á 2.22,74 mínútum, en 70
keppendur komust í mark. 19
fóllu úr f fyrri umferð, sjö í
þeirri seinni, þrfr hættu eftir
fyrri umferð og 18 keppendur
voru dæmdir úr leik.
Tomba fór fyrri ferðina á
1.03,91 mínútu og þá seinni á
1.02,46 eða 2.06,37 samanlagt.
Tími Strolz var 2.07,41 og Pirmin
Zurbriggen frá Sviss varð þriðji á
2.08,39.
Andreas Wenzel frá Liechtenstein,
sem er 30 ára silfurhafí frá leikun-
um í Lake Placid 1980 og hlaut
brons í Sarajevo 1984, var fíórði
eftir fyrri umferðina, en féll niður
í 6. sæti. Ingemar Stenmark frá
Sviþjóð sýndi að hann er á niður-
leið, var í 30. sæti eftir fyrri um-
ferð og fór ekki upp aftur.
18 keppendur voru dæmdir úr leik
eftir fyrri umferð, margir ef ekki.
allir vegna þess að alþjóða skíða-
sambandið samþykkti ekki búninga
þeirra.
Vonbrígði
PIRMIN Zurbrigg-
en frá Svlss var
allt annað en án-
ægður með tfma
sinn í fyrri ferð-
inni. Hann var í
þriðja sæti tæp-
um þremur sek-
úndum á eftir
Tomba og Ijóst að
gullverðlaunin
voru úr augsýn.
SPÁÐU í L/ÐIN OG
SP/LAÐU MED
Þrefaldur
pottur
Hægt erað spá í leikina símleiðis og
greiða fyrirmeð kreditkorti.
Þessi þjónusta er veitt alla föstudaga frá kl. 9:00
til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30.
Síminn er 688 322
ISLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturinn þar sem þekking
margfaidar vinningslíkur.
LEIKVIKA 26
Leikir 27. febrúar 1988
1 Derby - West Ham
2 Newcastle - Chelsea
3 Portsmouth - Liverpool
4 Q.P.R.- Wimbledon
5 Sheffield Wed. -Tottenham
6 Watford - Coventry
7 Barnsley - Ipswich
8 Huddersfield - Birmingham
9 Leeds-Blackburn
10 Leicester - Manchester City
11 Middlesbro - Bradford
12 Swindon - Millwall
Smetanina hætt
Raisa Smetanina, sem verður 36 ára á mánudaginn, tilkynnti eftir
20 km skíðagönguna að þar með væri þátttöku hennar í alþjóðleg-
um mótum lokið. „það er langt í næstu ólympíuleika og ég get með
góðri samvisku hætt núna, þvf hinar sovésku stúlkumar eru mjög
góðar og líklegar til afreka," sagði Smetanina í gærkvöldi.
Hún hefúr 16 sinnum orðið sovéskur meistari, þrisvar fengið gullverð-
laun á Ólympfuleikum, fímm sinnum silfur og einu sinni brons. Hún
hefur verið f sovéska landBliðinu síðan 1972.