Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
Jafnréttisráð:
Ráðstefna um kon-
ur og atvinnulíf
RÁÐSTEFNA um konur og
atvinnulíf var haldin á vegum
Jafnréttisráðs í Reykjavík um
helgina. Ráðstefnan var vel sótt
og hvert sæti skipað. Meðal
þeirra er fluttu erindi var Frið-
rik Sóphusson, iðnaðarráðherra
og fjallaði hann um hagsmuni
kvenna og atvinnulífsins og
hvort þeir liagsmunir færu sam-
an.
Konur voru í miklum meirihluta
þeirrá er sóttu ráðstefnuna og svo
var einnig um þá er fluttu erindi.
Ráðstefnuna setti Ásdís Rafnar
formaður Jafnréttisráðs, en fyrst á
mælendaskrá var Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, mannfræðingur.
Sigríður Dúna flutti yfírlitserindi
um verkaskiptingu kynjanna í ýms-
um þjóðfélögum, en á eftir henni
talaði Stefanía Traustadóttir, fé-
lagsfræðingur, um konur og vinnu.
Dr. Guðný Guðbjömsdóttir, dósent
fjallaði menntun kvenna og starfs-
val og hvort þörf væri á breyttri
menntastefnu, Gerður Óskarsdóttir,
kennslustjóri í uppeldis- og kennslu-
fræðum við Háskóla íslands, setti
fram þá spumingu hvort náms- og
starfsfræðsla og ráðgjöf gæti bætt
stöðu kvenna á vinnumarkaði og
Dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðla-
færðingur flutti erindi er hún nefni
Ekkert er helst að frétta af konum
í atvinnulífínu.
Valgerður H. Bjarnadótir, fé-
lagsráðgjafí talaði um konur í
tækni- og iðngreinum og Vilborg
Harðardóttir, útgáfustjóri ræddi um
3. gr. jafnréttislaganna og þá
möguleika sem hún gefur. Friðrik
Sóphusson, iðnaðrraáðherra, fjall-
aði um hagsmuni kvenna og hags-
muni atvinnulífsins og hvort þeir
geti farið saman og Gunnar Hans-
son, forstjóri IBM fjallaði um hvað
fyrirtæki geti gert til að fjölga kon-
um í ábyrgðarstöðum.
Þegar allir á mælendskrá höfðu
lokið máli sínu var fluttur leikþáttur
með stuttum senum úr Sölku Völku
eftir Halldór Laxness og Sauma-
stofunni eftir Kjartan Ragnarsson
um samskipti kynjanna. Ragnheið-
ur Tryggvadóttir stjómaði upp-
færlsunni en leikarar voru Jón
Hjartarson og Ólöf Sverrisdóttir.
Síðan vom almennar umræður um
efni fyrirlestranna og stigu alls
sautján í pontu.
Morgunblaðið/Júlíus
Gert er ráð fyrir bifreiðastæðum á tveimur hæðum á horni Garðastrætis og Vesturgötu.
Reykjavík:
Bifreiðastæðum fjölg-
að norðan við miðbæinn
Norrænt tækniár:
Vel sótt ráðstefna
um konur og tækni
RAÐSTEFNA um konur og tækni var haldin í Norræna húsinu á veg-
um kvenna í Verkfræðingafélagi íslands síðastliðinn föstudag. Hún
var haldin í tilefni „Norræns tækniárs" og var mjög vel sótt að sögn
aðstandenda. Hana sóttu um 70 manns, að stærstum hluta verkf ræðing-
ar og nemar í verk- og tæknifræði. Störf kvenna á sviði tækni voru
kynnt og erindi fluttu konur með þekkingu og starfsreynslu í ýmsum
tæknigreinum. Þá var greint frá niðurstöðum könnunar meðal kvenna
í verkfræðingastétt sem leiddi í ljós að flestar þeirra eru ánægðar í
starfi.
í undirbúnmgsnefnd áttu sæti
Guðrún Zoéga, byggingaverkfræð-
ingur, Sigríður Á. Ásgeirsdóttir, raf-
magnsverkfræðingur og Inga Her-
steinsdóttir byggingaverkfræðingur
og setti Sigríður ráðstefnuna.
Fyrsti fyrirlesturinn var gestafyr-
irlestur Sinju Sveinsdóttur, aðstoð-
arritstjóra Ingenieren í Danmörku.
Hún ræddi m.a. um stöðu kvenna í
verkfræði í Danmörku og bar saman
fjölda þeirra og starfsferil. Þá fluttu
byggingarverkfræðingamir Ingunn
Sæmundsdóttir og Brynja Guð-
mundsdóttir erindið „Af hveiju velja
konur tækninám?" og Guðrún
Hallgrímsdóttir, matvælaverkfræð-
ingur, Ríkismati sjávarafurða, ræddi
um tæknistörf innan sjávarútvegs
og matvælaiðnaðar. Dagný Hall-
dórsdóttir, rafmagnsverkfræðingur
hjá IBM, flutti erindi um tölvunotkun
og þróun í upplýsingatækni og María
Gunnarsdóttir byggingartæknifræð-
ingur og Ragna Karlsdóttir bygging-
arverkfræðingur, Orkustofnun
fluttu erindið „Orkumál á fslandi".
Eftir kaffíhlé störfuðu vinnuhópar
um „Menntun og starfsval"- Hvað
ræður starfsvali kvenna nú og í
framtíðinni og munu konur sækja i
tæknistörf í auknum mæli?, „Starfs-
frami kvenna í tæknistörfum"-
Starfskjör, laun og frami, „Áhrif
kvenna á tækni"- Munu konur móta
tækniþróun í framtíðinni og „Tækni-
samfélag 21. aldar"- Atvinnuvegir,
samgöngur, heimili og fjölskylda í
framtíðinni.
Að sögn Ingu Hersteinsdóttur var
það samdóma álit ráðstefnugesta að
kennslu í raungreinum; eðlis- og
efnafræði þyrfti að færa í auknum
mæli niður í grunnskólana, því þar
væru stúlkur móttækilegastar. Þá
hefði nám í Háskólanum til þessa
verið lítt sveigjanlegt og krafíst mik-
illar tímasóknar. Þetta hefði oft orð-
ið til þess að stúlkur veldu annað
fag, sem hentaði þeim betur, t.d.
með tilliti til bameigna. Æskilegt
væri að sem flestar kvenkyns fyrir-
myndir væru fyrir hendi þegar stúlk-
ur væru að velja sér framhaldsnáms-
greinar. Mikilvægt væri að benda
stúlkum á þessi fög og efla starf-
skynningar. En viðhorf til starfs
kvenna við tæknistörf væri að breyt-
ast, ekki þætti lengur tiltökumál þó
stúlkur færu í tækninám og þeim
fjölgaði ört. Ljúki til dæmis allar þær
stúlkur sem skráðar eru í verk-
fræði, námi á næstu 4 árum, fjölgar
konum í stéttinni um 50%.
STJÓRN Félags íslenskra stór-
kaupmanna mun reyna að fá
jöfnunargjald á kartöflur og
kartöfluafurðir afnumið, þar
sem hún telur gjaldið stangast á
við reglur alþjóðasamninga
GATT um tollamál. Eins og
kunnugt er lagði landbúnaðar-
ráðherra á 190% jöfnunargjald á
franskar kartöflur fyrir
skömmu, eftir að fjármálaráðu-
neytið aflétti tímabundnu banni
á innflutning þeirra. Árni Reyn-
isson, framkvæmdastjóri FÍS,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að félagið hefði afhent málið lög-
fræðingi og væri álitsgerð vænt-
anleg frá honum innan viku.
í fréttatilkynningu frá stjóm FÍS
segir að í reglum GATT sé skilyrt
hvenær beita megi slíkum aðgerð-
um og að sönnunarbyrði fyrir beit-
ingu jöfnunartolla hvfli alfarið á því
landi sem höftunum beitir. Síðan
„VIÐ eigum mikla möguleika á
bifreiðastæðum norðan við mið-
bæinn,“ sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri, en ákveðið hefur
verið að bifreiðastæðum undir
væntanlegu ráðhúsi við Tjörnina
verði fækkað verulega. 1 upphaf-
legri áætlun var gert ráð fyrir
bifreiðastæðum á tveimur til
þremur hæðum undir ráðhúsinu
og átti sú ráðstöfun að leysa bif-
reiðastæða vandan í miðbænum
að hluta.
Á homi Garðastrætis og Vestur-
götu, eru framkvæmdir hafnar við
byggingu íbúða fyrir aldraða en þar
verður einnig heilsugæslustöð fyrir
vesturbæinn. í kjallara hússins sem
er á tveimur hæðum er gert ráð
fyrir bifreiðageymslu, sem væntan-
lega verður tekin í notkun um ára-
mótin 1988 til 1989.
Davíð sagði, gert hafí verið ráð
fyrir bifreiðastæðum norðan við
miðbæinn nær höfninni, áður en
hugmynd um bifreiðastæði í kjall-
ara ráðhússins varð til. Verður reist
nokurra hæða bifreiðageymsla við
Tryggvagötu og verður væntanlega
hafíst handa við þá framkvæmd
árið 1989.
segir: „Þar sem þessar forsendur
em ekki fyrir hendi er engin stoð
fyrir beitingu heimildarákvæðis
búvömlaga. Félagið telur að geð-
þóttaákvörðun sem þessi geti stór-
lega skaðað hagsmuni íslendinga í
utanríkisviðskiptum og flokkist
jafnvel undir trúnaðarbrot við Al-
þingi og ríkisstjóm."
Ámi Reynisson sagði að stjórn
FIS teldi franskar kartöflur vera
iðnaðarvöm en ekki landbúnaðar-
vöm, enda væm þær flokkaðar
undir 20. kafla tollalaganna, þ.e.
unnar vömr, en ekki 7. kafla, þar
sem em ferskar vömr. Þá væm
kartöfluverksmiðjur hér á landi
hrein iðnfyrirtæki og greiddu t.d.
iðnlánasjóðsgjöld. Ámi sagði að það
væri fylgst mjög vel með aðgerðum
okkar í tollamálum í viðskiptalönd-
um okkar og viðskiptabandalögun-
um, og því gæti mál sem þetta
komið okkur illa síðarmeir í við-
skiptasamningum.
Félag íslenskra stórkaupmanna:
Reynir að fá jöfnun-
argjald á franskar
kartöflur afnumið
Morgunblaðið/Sverrir
Við Tryggvagötu er fyrirhugað að reisa nokkurra hæða bifreiða-
geymslu, þar sem nú eru bifreiðastæði Akraborgar.
Hótel Island:
Gríniðjan sýn-
ir gamanleik
GRÍNIÐJAN hefur nú á næstu
dögum æfingar á leikritinu
„The Nerd“, sem hefur verið
sýnt við miklar vinsældir á Bro-
adway í New York á annað ár.
Leikritið verður frumsýnt á
Hótel íslandi 19. apríl næst-
komandi og sýnt um takmarkan
tíma. Er stefnt að kvöldsýning-
um frá sunnudegi til fimmtu-
dags. Einnig eru fyrirhugaðar
miðnætursýningar og sýningar
á eftirmiðdögum.
„Leikritið „The Nerd“ á ekkert
skylt við kvikmyndina „Nerds“
sem hefur verið sýnd hér. Því
hefur reyndar ekki enn verið fund-
ið nafn en uppástungumar nálg-
ast hundraðið," sagði leikstjórinn
Gísli Rúnar Jónsson í stuttu spjalli
við Morgunblaðið.
Leikritið er eftir bandaríska
leikritahöfundinn Larry Shue sem
lést fyrir tveimur árum. Það ger-
ist heima hjá ungum arkitekt,
unnustu hans og vini þeirra sem
er leiklistargagnrýnandi. Lífíð
gengur sinn vanagang þar til að
í heimsókn kemur maður sem
fímmtán árum fyrr bjargaði lífí
arkitektsins. Hann hefur áður
heitið lífgjafa sínum allri sinni lið-
veislu. En lífgjafínn reynist jafn-
leiðinlegasta, heimskasta og mest
uppáþrengjandi mannkerti sem
hægt er að ímynda sér. Hann
sest upp hjá þeim og leggur líf
þeirra nærri í rúst.
Með hlutverkin fara; Þórhallur
Sigurðsson (Laddi) sem leikur
lífgjafann leiðinlega, Randver
Þorláksson og Edda Björgvins-
dóttir leika arkitektinn og unn-
ustu hans og Júlíus Brjánsson
leikur leiklistargagnrýnandann.
Með önnur hlutverk fara Pálmi
Gestsson, Kristbjörg Kjeld og
Björgvin Franz Gíslason. Leik-
mynd gerir Karl Aspenlund en
Snjólaug Bragadóttir þýddi verk-
ið.
„Hugmyndin er að í framtíðinni
verði leikhús á Hótel Islandi af
öllu tagi; sýningar af gamansömu
tagi, söngleikir og alvarlegri
verk,“ sagði Gísli. „Boðið verður
upp á smárétti fyrir sýningu en
matur er ekki innifalinn í leik-
húsmiðanum. Leikhúsgestir geta
valið um að sitja við borð eða eins
og á hefbundnum leiksýningum.
Öðrum þræði er þetta eins og leik-
hús en að hinu leytinu er þetta
með kabarettformi."