Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
5
Framsokn mot-
mælir uppsögnum
- Skil ekki af hverju þessi leið var far-
in, segir Ragna Bergmann formaður
„Uppsagnirnar eru óskaplegt
reiðarslag fyrir konurnar í
Granda, því þær koma fyrst og
fremst niður á störfum kvenna,“
sagði Ragna Bergmann, formað-
ur Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar, er Morgunblaðið innti
hana eftir viðbrögðum við upp-
sögnum 50 starfsmanna Granda.
Sagði Ragna að Framsókn myndi
bera fram mótmæli við stjórn
Granda vegna þeirra.
Uppsagnarbréf hafa ekki borist
starfsfólki en Ragna sagði ljóst að
stærstur hluti þeirra yrðu félags-
konur í Framsókn. „Við munum
bera fram mótmæli að loknum aðal-
fundi félagsins sem verður í næstu
viku, en stjórn félagsins hefur þeg-
ar fjallað um uppsagnimar." Ragna
bjóst ekki við að mótmælin myndu
hafa nein áhrif.
Hún sagði að Framsókn myndi
bjóða félagskonum aðstoð við að
leita atvinnu eins og áður hefði
verið gert. Bjóst hún að það myndi
reynast örðugt þar sem leita þyrfti
út fyrir fiskvinnsluna.
„ Mér finnst það skjóta skökku
við að samningar við starfsfólk skuli
koma sér svona illa fyrir fyrirtækið,
en vissulega er staðan erfið í fisk-
vinnslunni," sagði Ragna. „Ég hélt
að svona nokkuð myndi ekki ger-
ast. Það voru heilmiklar manna-
breytingar og uppsagnir þegar
Granda var komið á laggimar og
ég átti alls ekki von á þessu. Ég
skil ekki af hveiju þessi leið var
farin.“
Selfoss:
Innbrot í fél-
agsmiðstöð
unglinga
Selfossi.
BROTIST var inn í félagsmiðstöð
unglinga í kjallara Gagnfræða-
skólans á Selfossi aðfaranótt
fimmtudags og þaðan stolið 50
þúsund krónum.
Skemmtun var í félagsmiðstöðinni
á miðvikudagskvöldið á vegum gagn-
fræðaskólans og peningamir sem
hurfu voru aðgangseyrir og afrakst-
ur af sölu í sjoppu. Hluta af þessum
peningum hugsuðu nemendur sér að
nota til tækjakaupa fyrir nemendafé-
lagið og skólablað þess.
Farið var inn um glugga á félag-
smiðstöðinni og peningamir teknir
úr sjoppunni þar sem þeir voru
geymdir. Einnig var farið inn í skóla-
eldhúsið en engu stolið þaðan. Þetta
er í þriðja sinn sem brotist er inn í
félagsmiðstöðina. Málið er í rannsókn
hjá lögreglunni á SelfossL
- Sig. Jóns.
Morgnnblaðsskeifan afhent á Hólum
Sigurvegari í skeifukeppninni 170.7 stig af 200 mögulegum. Bændaskólans á Hvanneyri
á Bændaskólanum í Hólum varð Sigríður Kristjánsdóttir úr verður haldin í dag og hefst
22 ára Héraðsbúi, Sigríkur Garðabæ hlaut ásetuverðlaun dagskrá klukkan tíu með gæð-
Jónsson, frá Gænuhlíð í Iljalta- Félags tamningamanna og Eið- ingakeppni en sjálf skeifu-
staðaþinghá. Keppti hann á faxabikarinn sem veittur er keppnin hefst klukkan hálf tvö.
hryssunni Feiju frá Flugumýri fyrir bestu hirðingu á tamn-
en hún er 5 vetra. Hlaut hann ingahrossi. Skeifukeppni
HHONDA
HONDA Á ÍSLANDI Vatnagörðum 24 s. 689900.
NY HONDA CIVIC KYNSIOÐ
13-17
Ennþá einu sinni nýr og byltingarkenndur HONDA CIVIC með breytingum,
sem gera HOIMDA CIVIC tvímælalaust fremstan I flokki minni bíla.
Allar gerðir koma nú með vél úr léttmálmi og 16-VEIMTLA, ýmist með
einum eða tveimur kambásum, sem þýðir meiri orku og minni eyðslu.
I\lý frábær fjöðrun, sem á sér enga hliðstæðu I sambærlegum bílum og
óvenju mikil lengd á milli hjóla gefur bílnum mjög góða aksturseiginleika
og aukin þægindi í akstri.
Með þessu hefur HONDA sannað enn einu sinni, að þeir framleiða „litla
bílinn“ með þægíndi og rými stóru drekanna en aðalsmerki HOIMDA i
fyrirrúmi:
SPARNEYTNI, GÆÐI OG ENDINGU.
BIIASYNING í DAG KL.