Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 27 INK, sem hentar mjög vel við hönn- un á vélahlutum þar sem ekki er þörf fyrir þriðju víddina. Meðal þess sem hugbúnaðurinn býður uppá er svonefnd breytuhönnun. Hönnuður- inn getur búið til eina teikningu af hlut, sem framleiddur verður í mörgum stærðum. Við pöntun eru upplýsingar um stærðir slegnar inn, og tölvan sér síðan um alla útreikn- inga á stærðarbreytingum. í báðum hugbúnaðarkerfunum eru HAT- og FAT-hlutamir mjög samtengdir, sem þýðir að undirbún- ingur undir framleiðslu og gerð for- rita fyrir tölvustýrðar vélar er hluti af hönnunarkerfinu. Námskeiðin Markmið námskeiðanna er að kynna HAT/FAT-tæknina, þannig að menn geri sér grein fyrir því hvað í henni felst og möguleikum hennar. Þessi tækni á eftir að verða almenn, og íslendingar verða að fylgjast með því sem er að gerast á þessu sviði. Það er útilokað fyrir fyrirtæki að segja til um, hvort og hvaða HAT/FAT-kerfi hentar þeim, án þess að þekkja vel til tækninnar. Óll námskeiðin standa yfír í einn dag, frá klukkan átta til fjögur, og 12 manns geta setið hvert þeirra. Námskeiðin eru opin öllum þeim sem hafa áhuga á HAT/FAT- tækninni. Tímaáætlun Festivagninn kemur til Reykjavíkur 26. apríl og fer aftur til Svíþjóðar 17. maí. Tímaáætlunin er þessi: Fyrst verður vagninn í Reykjavik. 28. apríl: Námskeið fyrir vél- smiðjur og framleiðslufyrirtæki í málmiðnaði. 29. apríl: Námskeið fyrir ein- staklinga sem hafa á huga á HAT/FAT. 30. apríl og 1. maí: Námskeið fyrir nemendur og kennara í véla- verkfræði í Háskóla Islands. 2. maí: Námskeið fyrir kennara í iðnskólum og fjölbrautaskólum. Því næst hefst hringferð um landið með námskeiðum fyrir alla þá sem hafa áhuga á HAT/FAT- tækninni. 3. maí: Akranes. 5. maí: Sauðárkrókur. 6. og 7. maí: Akureyri. 9. maí: Egilsstaðir. 11. maí: Hvolsvöllur. 12. maí: Hjá fyrirtækinu Alpan á Eyrarbakka. Það fyrirtæki fram- leiðir vörur með fargsteypuaðferð, en HAT/FAT-tæknin nýtist einmitt mjög vel á sviði málmsteypu, plast- steypu og mótasmíði. Að lokum kemur vagninn aftur til Reykjavíkur. 13. maí: Námskeið fyrir fyrirtæki sem steypa úr málmi eða plasti. 14. maí: HAT/FAT-dagur á Iðn- tæknistofnun íslands í Keldnaholti. Bon Anulf deildarstjóri HAT/FAT-deildar IVF í Svíþjóð mun halda fyrirlestur um tæknina. Fyrirtæki sem selja hugbúnað og vélabúnað á þessu sviði munu kynna vörur sínar. Þetta er opið öllum sem áhuga hafa. 15. maí: Opið hús á Iðntækni- stofnun í tilefni af Norrænu tækni- ári og afmæli stofnunarinnar. Festi- vagninn verður þar til sýnis almenn- ingi. 16. maí: Námskeið fyrir nemend- ur og kennara Tækniskóla íslands. Guðni Ingimarsson og Jónas G. Jónasson, Iðntæknistofnun íslands, veita nánari upplýsingar og sjá um skráningu á námskeiðin, í síma 687000. Höfundur greinarinnar er GuðniIngimarsson, vélaverk- fræðingurá Iðntæknistofnun ts- lands. Stykkishólmur: Nýr farþegabátur keyptur Morgunblaðið/Ámi Helgason Myndin er tekin við afhendingu bátsins í höfninni í Bodö. Það er G. Einarsson sem afhendir Pétri Einarssyni bátinn. Stykkishólmi. Forráðamenn Eyjaferða sf. í Stykkishólmi fóru nýlega til Bodö í Noregi til að taka við nýjum farþegabáti sem fyrir- tækið hefur fest kaup á þar. Báturinn tekur 62 farþega í sæti og gengur yfir 20 sjómílur á klukkustund. Hann er mjög smekklega innréttaður og er í hon- um meðal annars aðstaða til minni- háttar veitinga. Stórir og góðir útsýnisgluggar eru á aðal far- þegasal og eins er mjög rúmgott útipláss fyrir þá sem vilja frekar vera úti. Auk nýja bátsins mun Brimrún, sem fyrirtækið hefur haft í ferðum sl. tvö sumur, verða áfram í ferð- um. Brimrúm tekur 20 farþega, en nú hefur báturinn verið lengdur og endurbættur á ýmsan hátt til þæginda fyrir farþega. Eyjaferðir sf. munu með þessum aukna bátakosti geta boðið ferða- fólki upp á aukna og betri þjón- ustu. Það er fyrirtæið G. Einarsson export-inport A/S í Bodö sem ann- aðist milligöngu um kaupin, en það hefur m.a. sérhæft sig í útflutningi á ýmsum sérhæfðum skipum í Noregi. Að sögn forráðamanna Eyja- ferða sf. er nú verið að ganga frá ferðaáætlunum fyrir sumarið þar sem boðið verður upp á ýmiss kon- ar ferðir að óskum hvers og eins. All mikið hefur nú þegar verið pantað af ferðum. Ferðir verða hafnar í byrjun maí en nýi bátur fyrirtækisins en vænt- anlegur um næstu mánaðamót til landsins og mun hann verða til sýnis í Reykjavík áður en hann kemur hingað vestur í Stykkis- hólm. — Arni Ljósvakinn lagður niður frá og með mánudegi: Ekki markaður fyrir stöðina - segir Páll Þorsteinsson útvarpssljóri STJORN íslenska útvarpsfélags- ins ákvað á fundi sínum á mánu- dag að hætta rekstri Ljósvakans frá og með næstkomandi mánu- degi 25. apríl. Páll Þorsteinsson, útvarpsstjóri Bylgjunnar og Ljósvakans, sagði ástæðuna fyrst og fremst þá að fullreynt þætti að ekki væri markaður fyrir stöðina. Einn dagskrárstjóri og tveir til þrír dagskrárgerðar- menn starfa við Ljósvakann. Þeir munu ekki starfa áfram hjá ís- lenska útvarpsfélaginu. Ljósvakinn hóf útsendingar þann 6. nóvember og sagði Páll að undir- tektirnar hefðu verið góðar. „Við höfum alltaf verið óhræddir við að prófa hlutina og Ljósvakinn var til- raun til að bjóða upp á öðruvísi dagskrá. Okkur þykir hafa tekist vel til en dagskráin reyndist of sér- hæfð, þjóna of litlum hópi,“ sagði Páll. Hann sagði ekki uppi áætlanir um aðra stöð hjá félaginu. Páll sagði ákvörðunina um að hætta rekstrinum hluta af þeim dagskrárbreytingum sem ættu sér stað hjá Bylgjunni. Allt kapp yrði lagt á að bæta dagskrá Bylgjunn- ar, bæði hvað varðaði tal og tónlist. Brids Arnór Ragnarsson Bridsfélag’ Kópavogs Sumardaginn fyrsta var spilaður eins kvölds tvímenningur og sigr- uðu Guðmundur Gunnlaugsson og Óli Andreasson með yfirburðum, hlutu 262 stig. Næstu pör: Guðmundur Þórðarson — Baldur Bjartmarsson 239 Ragnar Bjömsson — Sævin Bjamason 229 Sigurður Gunnlaugsson — Guðmundur Gunnlaugsson 229 Murat Serdar — Þorbergur Ólafsson 225 Ármann J. Lárusson — Helgi Viborg 224 Sextán pör mættu til keppni. Næsta fímmtudag hefst þriggja kvölda vortvímenningur og era spil- arar beðnir að mæta tímanlega til skráningar. Bridsfélag Breiðfirðinga Fimmtudaginn 21. apríl var önn- ur lota í Mitchel-keppni félagsins. Bestu skor fengu: N-S Matthías Þorvaldsson — Ragnar Hermannsson 421 Magnús Oddsson — Jón Stefánsson 402 Erla Sigvaldadóttir — LovísaJóhannsdóttir 400 Guðmundur Kr. Sigurðsson — Sigmar Jónsson 394 A—V Magnús Sverrisson — Guðlaugur Sveinsson 423 Kristófer Magnússon — Halldór Einarsson 421 Magnús Ólafsson — Páll V aldimarsson 413 Jóhann Jóhannsson — Kristj án Sigurgeirsson 410 Staðan eftir 2 lotur Magnús Ólafsson - Morgunblaðið/Amór Svipmynd frá undankeppni íslandsmótsins í tvímenningi. Páll V aldimarsson 793 Guðlaugur Karlsson — Óskar Þ. Þráinsson 780 Kristófer Magnússon — Halldór Einarsson 773 Jónas Elíasson — JónG.Jónsson 767 Matthías Þorvaldsson — Ragnar Hermannsson 756 Næsta fimmtudag lýkur keppn- inni með þvi að spiluð verður V2 lota. Strax á eftir verða verðlaun vetr- arins afhent og era verðlaunahafar hvattir til þess að mæta. Bridsdeild Skagfirðinga Spilað var í einum riðli þriðjudag- inn 19. apríl. Efstu skor fengu eftir- talin pör: Andrés Þórarinsson — Hjálmar Pálsson Hildur Helgadóttir — 130 Karólína Sveinsdóttir Ármann Lárasson — 129 Steingrímur Jónasson Þorbergur Ólafsson — 121 Murat Serdar 115 Þriðjudaginn 26. apríl verður spilaður eins kvölds tvímenningur. FLUGLEIÐIR -fyrir þig- KJWIINCAl Eru Holtakj úklingar bestir? Við höfum verið að - velta því fyrir okkur vegna þess að við seljum fieiri þúsundir í hveijum mánuði. Grillaðir á aðeins 495,- pr. stk # 1 stk. í pakka 489 kr./kg ### 3 stk. í pakka 479 kr./kg ## ### 5 stk. í pakka 469 kr./kg KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk2, s. 686511 Garðabæ, s. 656400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.