Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
37
Að baki tölum um fjölda eyðnisjúklinga
eru einstaklingar með tilfinningar
- segir Richard Rector sem er staddur hérlendis til að fræða almenning
um vanda eyðnisjúklinga - flytur fyrirlestur í dag Tsi'ÍSkk.. heim.b„re mc
SÁ raunveruleiki sem Richard
Rector kynnir okkur er nokkuð
frábrugðinn þeim sem flest okk-
ar þekkja. Richard hefur verið
með eyðni í 6 ár og veit að hann
á ekki langt eftir. Hann er talinn
búa yfir mestri reynslu í heimin-
um í dag í umönnun eyðnisjúkl-
inga, hann þekkir um 3000
manns sem eru með alnæmi og
nærri 300 þeirra hafa látist í
höndunum á honum. En hann
gefst ekki upp og er hingað kom-
inn á vegum Rauða kross íslands
og heldur fyrirlestur fyrir al-
menning um vanda eyðnisjúkl-
inga í dag laugardag í ráðstefnu-
sal Hótels Loftleiða kl. 14.
Eyðni hefur sett sitt mark á Ric-
hard, hann er nú um 25 kílóum
0
INNLENT
léttari en áður en hann veiktist og
þreytist auðveldlega. Richard
greindist með eyðni á aðfangadags-
kvöld 1982. Hann var yfirkokkur á
matsölustað en lét af þeim störfum
að eigin ósk. Þá tók við atvinnu-
leysi, peningaleysi og húsnæðiss-
kortur í kjölfar þess, því enginn
vildi selja eða leigja eyðnisjúklingi.
Árið 1985 var honum tjáð að veiran
væri komin upp í heilann og reyndi
Richard þá að fremja sjálfsmorð,
sem mistókst. Er hann hafði náð
sér upp úr þunglyndi því er fylgdi
kjölfarið, leitaði Richard, sem er
félagsfræðingur að mennt, eftir
vinnu við ráðgjöf við eyðnisjúklinga
en gekk afar erfiðlega að sannfæra
yfírvöld um að hann væri fær um
að sinna starfinu. Hann segist enda
ekki hafa trú á stjórnvöldum, held-
ur einstaklingnum.
Richard starfar víðs vegar um
heim, m.a. fyrir norska Rauða
krossinn.Hann hefur unnið með
þúsundum manna sem eru sýktir
og hefur horft á eftir fjölda þeirra
í gröfina. Sjálfur hefur hann orðið
fyrir fordómum og skilningsleysi
sem fæstir vilja trúa að óreyndu.
„Eg get nefnt umönnun á sjúkra-
húsum. Þegar ég var fyrst greindur
með eyðni, lá ég á deild fyrir eyðni-
sjúklinga þar sem allt starfsfólkið
var nánast brynvarið. Það var í
galla sem huldi allan líkamann og
snerti mig sem sjaldnast og aldrei
með berum höndum. Gæslukona frá
Suður-Ameríku var fyrsta mann-
eskjan sem snerti mig eftir að ég
greindist. Enda leið mér eins og
utangarðsmanni. Umönnunin hefur
vissulega batnað sums staðar en
það er innan við mánuður síðan ég
varð fyrir sömu reynslu í Noregi.
Það má ekki gleymast að baki tölum
um eyðnitilfelli eru einstaklingar
með tilfinningar rétt eins og aðrir.“
Richard segir eyðni nú orðna
pólitískt þrætuepli. „Nú eru inn-
flytjendur t.d. frá Afríku mótefna-
mældir áður en þeir fá að flytjast
til Bandaríkjannna. Stjómvöld virð-
ast gleyma því að við getum flutt
mun fleiri eyðnitilfelli út en við
getum nokkm sinni flutt inn. Það
þýðir samt ekki að eyðni sé ein-
göngu bandarískur sjúkdómur eins
og svo margir halda. Aukingin hér
á íslandi er til dæmis gífurleg, á 3
fýrstu mánuðum ársins hafa greinst
5 með eyðni, jafnmargir og á öllu
hards, greinast 4 eyðnitilfelli á dag.
Sjálfur segist Richard vera með
samviskubit yfír því að vera enn á
lífi. Hann segist reiðubúinn að
mæta dauða sínum en segist aldrei
munu sætta sig við að deyja úr
kynsjúkdómi. Nú þegar hafa fleiri
dáið úr eyðni en létust í Víetnamst-
ríðinu. „Margir hafa spurt mig
hvers vegna ég líki eyðni við Víet-
namstríðið. Ástæðan er sú að hvor-
ugur hópurinn er velkominn. Her-
mönnunum var ekki fagnað við
heimkomuna, reiði fólks vegna
stríðsrekstursins bitnaði á þeim.
Richard er inntur eftir því hvern-
ig skuli haga eyðnifræðslunni. „Ég
held að almenningur hafi fýrst og
fremst áhuga á að vita hvemig
hægt sé að koma í veg fyrir smit,
ekki af hvaða tegund veiran er. Við
þurfum fyrst og fremst að hafa
áhrif á almenningsálitið, fá fólk til
að sýna eyðnisjúklingum skilning.
Hér, í þessu litla þjóðfélagi, er von-
andi auðveldara fyrir þá sem sýkj-
ast að ræða við vini sína og vanda-
menn um vandamál sín en í stór-
borgum erlendis.
Aðspurður segir Richard að vinna
sín hafi hjálpað sér að gera sér
grein fyrir eðli sjúkdómsins og
Morgunblaðið/Sverrir
Richard Rector heldur fund um
vanda eyðnisjúklinga á Hótel
Loftleiðum í dag. Hann er sjálfur
eyðnisjúklingur og segist ekki
eiga langt eftir.
þeirri staðreynd að hann sé á lífí
og hafi fengið tækifæri að miðla
af reynslu sinni. „Ég hef opinberað
einkalíf mitt ef það má vera öðrum
til hjálpar. En það er hreint ekki
auðvelt og sumir segja að ég hugsi
ekki um neitt annað en eyðni.
Tíminn er mér mikilvægur og hver
dagur getur verið minn síðasti. Mín
leið er auðveld, ég á stutt ólifað en
þið sem eftir lifið verðið að glíma
við sjúkdóminn og vinna bug á hon-
um. Ég legg mitt af mörkum á
meðan ég get.“
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sklpveijar á Fönix KE létu hendur standa fram úr ermum í
gær við að landa og síðan að koma aflanum i gáma. Þeir höfðu
stuttan stans og héldu aftur á veiðar í gærkvöldi.
Fengu 25 tonn af
ýsu á 2 dögum
Keflavík.
FÖNIX KE sem er á trolli landaði
um 30 tonnum í Njarðvík á mið-
vikudag eftir tveggja daga veiði-
ferð. Af þessum 30 tonnum voru
25 tonn af fallegri ýsu sem sett
var í gáma og er hún nú væntan-
lega á leið til Englands. Að sögn
Gísla Guðjónssonar skipstjóra á
Fönix KE, þá fékkst aflinn vestur
af Stafnesi og á Eldeyjarbanka.
- BB
Sjóður þanka um
frið starfar hér
NÆSTU mánuði starfar hér á
landi útibú „Alheims samstarfs-
sjóðsins" sem stofnaður er af
Brahnta Kumaris World Spir-
itual University. Félagsskapur
þessi hefur farið þess á leit við
almenning að hann riti framtí-
ðarsýn sina um betri heim á
sérstök eyðublöð og leggji inn
í sjóðinn. Er þetta verkefni
helgað Sameinuðu Þjóðunum,
segir f fréttatilkynningu sem
blaðinu hefur borist.
Marcela Perez de Cuellar, eigin-
kona framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, hrinti verkefninu
af stað með ræðu í Lávarðadeild
breska þingsins 21. apríl síðastlið-
inn. Hún sagði þar að þetta verk-
efni væri eitt hið frumlegasta til
stoðar heimsfriði sem um gæti.
Aðstandendur „Alheims sam-
starfs um betri heim“ færðu Sam-
einuðu þjóðunum í lok friðarársins
1986 „milljón mínútur friðar“ eða
jafn margar hugsanir fólks sem
hafði tekið áskorun um að veija
mínútu til að festa þær á blað.
Leikfélag Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja:
Sýnir leikritið Selur-
inn hefur mannsaugu
Verkið fékk góðar viðtökur á frumsýningu
Keflavík.
NEMENDUR í leikfélagi Nem-
endafélags Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, Vox Arena, frumsýndu
leikritið Selurinn hefur manns-
augu eftir Birgi Sigurðsson í
Félagsbíói í Keflavík síðasta
vetrardag. Grétar Skúlason leik-
stýrði verkinu sem fékk góðar
móttökur hjá frumsýningargest-
um.
Leikritið Selurinn hefur manns-
augu var samið árið 1974 og frum-
sýnt sama ár hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Leikritið fjallar um
alþýðufólk í lífsgæðakapphlaupi,
peningabasl, tilfinningaátök elsk-
enda, framhjáhald, og togstreitu
milli sveitar og borgar. Leikendur
eru 11 og fara þau Guðmundur
Brynjólfsson og Kristín Gerður
Guðmundsdóttir með aðalhlutverk-
in, en alls eru leikendur 11 talsins
auk 6 aðstoðarmanna.
Leikritið Selurinn hefur manns-
augu er fjórða verkið sem leikfélag
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Vox
Arena, sýnir. Árið 1981 sýndi leik-
félagið Gildruna eftir Frakkann
Robert Thomas undir leikstjórn
Höskuldar Skagfjörð. Árið eftir var
sýnt leikritið Lokaðar dyr eftir
Wolfgang Borchet og var Hjalti
Rögnvaldsson leikstjóri. Skógar-
konan dæmalausa eftir Federico
Garcia Lorca sem sýnd var undir
stjóm Emils Gunnars Gunnarssonar
árið 1986 var síðan síðasta upp-
færsla leikfélagsins.
Kristín Gerður Guðmundsdóttir
formaður Vox Arena segir m.a. í
sýningarskrá um starfsemi leik-
félagsins í vetur: „Nú í ár höfum
við með þreki, svita, þolinmæði og
ódrepandi áhuga sett upp eitt verk-
ið í viðbót, Selurinn hefur manns-
augu. Við höfum fengist við eitt-
hvað lítilsháttar fram að þessu.
Meðal annars settum við upp
frumsamið gamanleikrit, Tinna,
fyrir áramót sem var sýnt í skólan-
um og fékk góðar viðtökur.
Grétar Skúlason leikstjóri hefur
stýrt þessu verki af mikilli leikni,
og þökkum við honum innilega fyr-
ir skemmtilegan tíma og einstaka
þolinmæði, hann á heilmikinn heið-
ur skilinn."
Þriðja sýning á Selurinn hefur
mannsaugu verður í kvöld kl. 21:00
í Félagsbíói í Keflavík.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Leikarar í Selurinn hefur mannsaugu að lokinni frumsýningu. Þeim var klappað lof í iófa að sýningu
lokinni sem tókst ákaflega vel. Þeir sína verkið í þriðja sinn í Félagsbíói í Keflavík í kvöld.