Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
Nýsköpunartil-
raunir á 18. öld
eftirBjörnS.
Stefánsson
I
Rit Gísla Gunnarssonar um verzl-
unarskipulag hér á landi á 17. og
18. öld, sem gefið var út á ensku
í Lundi árið 1983, vakti þegar
nokkra forvitni og umtal, og höfðu
þó fáir lesið. Eins og flestum leizt
mér ekki á að lesa rit um málefni
Dana og íslendinga samið á ensku
undir leiðsögn Svía í Lundi. Tvennt
þótti mér merkilegast af því, sem
ég heyrði og sá (m.a. í viðskipta-
kálfí Morgunblaðsins 28. janúar
sl.). Annað var það, að skökk verð-
hlutföll, sem stjómvöld ákváðu,
hefðu bætt hlut landbúnaðar á
kostnað sjávarútvegs. Þótti mér
ekki ótrúlegt, að svo hefði getað
farið í óþjálu verðlagskerfí, hvort
sem að því hefði verið stefnt eða
ekki. Hitt var það, sem mér þótti
ekki trúlegt, að íslenzkir ráðamenn
þjóðarinnar hefðu vitandi vits hald-
ið sjávarútvegi niðri.
Þegar rit Gísla kom út á íslenzku
í vetur (Upp er boðið ísaland.
Einokunarverzlunin og islenskt
samfélag 1602—1787), gátum við,
sem ekki felldum okkur við enskan
búning ritsins, svalað forvitni okk-
ar. Var það spennandi lestur. Ég
greini hér í stuttu máli frá því,
hvemig það stóðst, sem mér hafði
verið sagt og að framan segir.
Ritdómari einn orðaði túlkun
Gísla á afstöðu ráðamanna svo, að
„... íhaldssöm innlend valdastétt
hafí af ótta við röskun á valdastöðu
sinni sett þróun sjávarútvegsins
þröngar skorður, ..." og má taka
undir þau orð. Skúli Magnússon
landfógeti stóð einn í hópi ráða-
manna með tillögur sínar um ný-
sköpun atvinnuhátta og myndun
kaupstaða.
Gleymd ritgerð
Að dómi Gísla var fyrirliði hinnar
íslenzku va(dastéttar á síðari hluta
18. aldar, Ólafur Stefánsson amt-
maður, síðar stiftamtmaður. Ég var
ekki mikið lesinn í sögu 18. aldar
og sagði við kunningja minn, sagn-
fræðing, að loknum lestri, að mér
hefði komið það á óvart, að maður,
sem sat góðar jarðir hér við Faxa-
flóa, eins og ég hélt, að Ólafur
hefði gert, hefði ekki viljað hafa
sem mestan arð af sjávarútvegi.
Sagnfræðingurinn sagðist raunar
halda annað, því Ólafur hefði verið
fyrsti Islendingurinn, sem stofnaði
útgerðarfélag, og minnti hann, að
Ólafur Oddsson, nú menntaskóla-
kennari, hefði samið ritgerð um það
í Háskólanum. í Háskólabókasafni
fannst kandidatsritgerð frá 1970
eftir Ólaf Oddsson með heitinu:
„Ólafur Stefánsson og tilraunir
hans með iðnað og útgerð að erlend-
um hætti."
Fyrst er frá því að segja, að Ólaf-
ur Stefánsson gerðist árið 1754
bókhaldari iðnaðarstofnananna, ný-
kominn frá námi í Höfn. Þetta var
fyrirtækið, sem m.a. reisti húsin við
Aðalstræti og lagði þar með hom-
stein að Reykjavíkurborg. í stjóm
fyrirtækisins voru þá Skúli Magn-
ússon landfógeti, Magnús Gíslason
amtmaður, síðar tengdafaðir Ólafs,
og Bjami Halldórsson sýslumaður,
sem hafði kostað Ólaf til náms að
foreldrum hans látnum, auk fjórða
manns. Ólafur varð amtmaður 1766
og stiftamtmaður 1790. Hann
stundaði búskap, m.a. á Innra-
Hólmi á Akranesi, og átti útræði á
Skipaskaga.
Með leyfí Ólafs Oddssonar rek
ég hér tilraunir Ólafs Stefánssonar
og viðhorf (beinar tilvitnanir inn-
dregnar) til samanburðar við kynn-
ingu Gísla Gunnarssonar á honum
sem foringja þeirrar íhaldssömu
valdastéttar, sem beitti sér gegn
þróun sjávarútvegs og myndun
kaupstaða.
1. Iðnrekstur
Ritgerð Ólafs Oddssonar fjallar
einkum um
„... ullarverksmiðju Ólafs, sút-
unar- og skósmíðaverkstæði
hans og þilskip það, er hann og
Thodal stiftamtmaður gerðu út
um nokkra hríð ... Framlag
Ólafs Stefánssonar í þessum
efnum var viðleitni til þess að
koma á fót nokkrum iðnrekstri,
færa þær iðngreinar inn í landið
og láta reka slíkar stofnanir sem
einkafyrirtæki, en þó með vel-
vilja. stjómvalda og verzlunar."
2. Nytsemi kaupstaða
Nefnd, sem tók út mál landsins
1770—71, svokölluð íandsnefnd,
átti fund með helztu embættis-
mönnum landsins, þeirra á meðal
Ólafi Stefánssyni, og var hann
meðmæltur hugmyndum nefndar-
innar um að koma á fót iðnfýrir-
tækjum, en ullarverksmiðja hans
hafði þá þegar starfað í nokkur ár.
Nefndin taldi, að kaupstaðir væru
„. . . raunveruleg forsenda þess,
að iðngreinar þær, er menn
töldu nauðsynlegt að færa inn
í landið, gætu þrifízt. Menn í
þessum efnum gætu ekki unnið
fyrir sér annars staðar.“
Síðar lét Ólafur í eigin riti í ljós
það álit, að æskilegt væri, að kaup-
menn hæfu í kaupstöðunum marg-
víslegan iðnrekstur í samstarfí við
landsmenn.
3. Fyrsti útgerðarstjóri eig-
in þilskips
Árið 1773 keyptu þeir Thodal
stiftamtmaður og Ólafur Stefáns-
son, þá búsettur í Sviðholti á Álfta-
nesi, þilskip til útgerðar. Hafði Ólaf-
ur
„... meiri afskipti af rekstrin-
um, er til kastanna kom, enda
hafði Ólafur um margt miklu
betri aðstöðu til þeirra hluta.
Hann hafði verið bókhaldari
Innréttinganna mestan hluta
þess tíma, er þilskipaútgerð var
rekin á þeirra vegum. Hann rak
og sjálfur umfangsmikia bátaút-
gerð og fískverkun, en Thodal
var ekki við slík mál riðinn."
Þeir félagar töpuðu stórfé á út-
gerðinni, og var ýmsu kennt um.
Þótt svo hefði farið, missti Ólafur
ekki trú á þilskipaútgerð. Laust upp
úr aldamótunum 1800 hóf Bjami
Sivertsen kaupmaður í Hafnarfirði
þilskipaútgerð og skipasmíðar.
Kveður Ólafur Oddsson Olaf stift-
amtmann hafa stutt mjög Bjama í
kaupmennsku og öðmm fram-
kvæmdum.
Tveir menn með sama nafni
í frásögn Gísla Gunnarssonar af
foiystu Ólafs Stefánssonar í andófí
innlendrar valdastéttar gegn ný-
sköpunarstefnu stjómvalda undir
forystu Skúla Magnússonar er
hvergi sagt frá nýsköpunartilraun-
um Olafs né skoðun hans á nytsemi
kaupstaða. Mætti ætla, að hér væri
um tvo menn að ræða með sama
nafni. Sviðsetning Gísla á hinni
íhaldssömu valdastétt með Ólaf
Stefánsson í aðalhlutverki styðst
ekki við heimildir sögunnar.
í áðumefndum viðskiptakálfí
Morgunblaðsins segir frá því, að
Verzlunarráðið hyggi á útgáfu
Verslunarsögu Islands 1774—
1807 eftir Sigfús H. Andrésson.
Verzlunarráð styrkti einnig að sögn
Gísla útgáfu á riti hans. Er stuðn-
ingur ráðsins við sagnfræði lofs-
verður, og birting rits Gísla var
gerð að ráði viðurkenndra sagn-
fræðinga. Ritgerð Ólafs Oddssonar
var ekki frekar en aðrar kandidats-
ritgerðir samin til birtingar. Úr því
sem komið er ætti birting á henni
að ganga fyrir öðm á þessu sviði,
til samanburðar við sviðsetningu
Gísla.
Upphafið í Víðidalstungu
Á 17. og 18. öld vom flestir
bændur leiguliðar og greiddu land-
eigendum landskuld. Em af því
miklir útreikningar í riti Gísla. Þar
sakna ég skilnings á því, að það
hlaut að vera landeigendum í hag,
að leiguliðar þeirra hefðu góða af-
komu, m.a. af sjósókn og háu físk-
verði, til að þeir mættu standa í
skilum með landskuldina. Bóndi
einn í Víðidal í Húnaþingi setti
fyrstur fram tillögu með rökstuðn-
ingi um þilskipaútgerð íslendinga.
Vildi hann, að stofnaður yrði kaup-
staður og gerð út þaðan a.m.k.
fímm þilskip. Þetta var Páll Vídalín
í Víðidalstungu í ritinu Guði, kon-
unginum, föðurlandinu árið 1699,
en tengdasonur hans, Bjami Hall-
dórsson sýslumaður Húnvetninga,
kostaði Ólaf Stefánsson til náms,
eins og áður sagði. Ekki held ég
því samt fram, að þangað hafi Ólaf-
ur sótt áhuga sinn á nýsköpun í
sjávarútvegi.
Enn er þess að geta um upphaf
þilskipaútgerðar, að ungur maður
að nafni Guðmundur Scheving var
um tíma á skrifstofu Ólafs stiftamt-
manns. Guðmundur eignaðist síðar
hlut í þilskipi, sem bóndinn í Breið-
holti gerði út frá 1801, þar til út-
gerðinni lauk árið 1813, þegar skip-
ið fórst og Breiðholtsbóndinn með
því. Þetta var fyrsta útgerð bónda
á þilskipi við Faxaflóa. Guðmundur
Scheving settist síðar að í Flatey á
Breiðafírði og gerði þar út þilskip
af myndarskap. Er skemmtilegt til
þess að vita, hvemig upphaf þil-
skipaútgerðar í rúma öld tengist
Ólafí Stefánssyni, þótt honum sé
ekki eignað það allt.
Þetta gerðist á þeim tímum, þeg-
ar lög skylduðu til ársráðningar á
vinnufólki. Var það kallað vistar-
band. Einhvemveginn hefur sá mis-
skilningur orðið til, að ráðningar-
ákvæði þetta hafí bannað öðmm
en bændum uppi í sveit að ráða
fólk til vinnu. Verður Gísli sízt til
að leiðrétta þann misskilning. Þegar
á tímum algjörs vistarbands komst
þilskipaútgerð á traustan grundvöll
á Vesturlandi og Vestfjörðum í eigu
efnabænda og kaupmanna.
Hér er ekki staður til að gagn-
rýna túlkun Gísla í einstökum atrið-
um, en það einkennir málflutning
hans, að ýmist hagnýtir hann ekki
eigin athuganir til ályktana eða
hann ályktar án heimilda. Þykir
mér leitt að standa góðkunningja
minn að því, en ekki verður komizt
hjá því að taka slíkt til umræðu.
II
Það, sem kallað hefur verið ein-
okunarverzlun Dana á íslandi, var
það skipulag verzlunar, að ríkis-
valdið úthlutaði sérleyfí til verzlun-
ar með ákveðnum skilmálum um
Björn S. Stefánsson
„Ráðamenn landsins á
17. og 18. öld létu sér
ýmislegt detta í hug til
umbóta í sjávarháttum
og reyndu sumt. Þeir
voru ekki á móti arð-
bærari sjávarháttum.
Hagkerf ið var hins veg-
ar svo vanþróað, að fáir
gátu spreytt sig á til-
raunum til nýsköpun-
ar.“
framboð á erlendum nauðsynjum
og um verðlag á þeim og afurðum
landsmanna. Eins og tekið var fram
í upphafi, þótti mér ekki ótrúleg sú
niðurstaða Gísla Gunnarssonar, að
verðlagsákvæðin hefðu, borið sam-
an við verðhlutföll erlendis, verið
hagstæð landbúnaði og óhagstæð
sjávarútvegi. Þetta hafði Jón Aðils
bent á í riti sínu um verzlunarstjóm
Dana, og Lúðvík Kristjánsson hafði
dregið það betur fram í Sögu 1971.
Verðlagsákvæði löguðust ekki jafn-
óðum að verðþróun viðskiptaland-
anna, heldur stóðu óbreytt um ára-
tugi.
Þríhymingsviðskipti
Gísli sýnir, að málið var ekki
svona einfalt. Á 18. öld áskildi ríkis-
stjómin sér nefnilega við úthlutun
verzlunarleyfa sauðakjöt frá kaup-
mönnum á verði talsvert undir því,
sem kaupmenn fengu á ftjálsum
markaði í Kaupmannahöfn, og var
kjötið ætlað hemum og lækkaði það
vígbúnaðarkostnað Dana, en tak-
markaði auðvitaði tækifæri kaup-
manna til að græða á lcjötsölunni.
— Af einhveijum ástæðum var físk-
ur (skreið og síðar saltfískur) ekki
tekinn af kaupmönnum handa hem-
um.
Sérleyfisverzluninni var því á
þessum árum hagað þannig, að
verðlagi á erlendri nauðsynjavöru
var haldið niðri, en kaupmenn gátu
grætt á sjávarafurðum. Sauðalqötið
var að hluta tekið af kaupmönnum
við lágu verði. Af þessu leiddi, að
verzlunarleyfí á fískihöfnum voru
eftirsóknarverðust.
Dæmið sem ekki
var sett upp
Sérleyfískaupmenn þóttust einn-
ig bera skarðan hlut frá borði í
pijónlesverzlun, vegna þess að verð
á pijónlesi til framleiðenda væri of
hátt. Þótt sérleyfískaupmenn mætu
pijónlesið lítils, sáu aðrir sér hag í
því að kaupa hér pijónles. Dæmi
nefndi Gísli um, að Skagfirðingar
fengu tvöfalt verð fyrir sokka, sem
þeir seldu ólöglega í hollenzkar
skútur, miðað við það verð, sem
sérleyfiskaupmenn greiddu sam-
kvæmt verðlagsákvæðum. Annars
staðar kemur fram, að hollenzkt
skip vopnað sex fallbyssum var tek-
ið hér við land (það mun hafa
strandað) nærri fullhlaðið pijónlesi
frá íslandi og Færeyjum. Hér var
því eki um það eitt að ræða, að
hollenzkir skútusjómenn keyptu á
sig föt, sem þá vanhagaði um í
bráð. Má geta sér til, hvemig það
hefur bitnað á fjárræktarhéruðun-
um, að bændur og húsfreyjur þeirra
höfðu ekki rétt til að koma afurðum
sauðfjárins og tóvinnu heimilanna
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR
í verð eins og það fékkst bezt.
Kaupmenn vanræktu að koma á
traustum samböndum við sölu af-
urða, enda voru verzlunarleyfín
tímabundin.
Þegar Gísli Gunnarsson slær því
föstu, að verðlagsákvæði sérleyfís-
verzlunarinnar hafí fært arð frá
sjávarútvegi til landbúnaðar, tekur
hann þetta tvennt ekki til greina,
upptöku kjöts í þágu hersins og
bann við sölu á pijónlesi beint til
Hollands.
Gjaldeyristekjur af
líftryggingu
Rit Gísla er að stofni til um verzl-
un og viðskiptaleiðir, en hann teng-
ir verzlunarmálin gerð þjóðfélagsins
og viðhorfum til nýsköpunar. Þar
sér hann fyrir sér rammasta íhald
eða afturhald í valdastéttinni, sem
óttaðist nýjungar, sem gætu raskað
valdastöðu hennar. Dæmið um Ólaf
Stefánsson sýnir, að túlkun Gísla
er æði fijálsleg. Ekki verður séð,
að menn hafí óttazt arðsaman sjáv-
arútveg, heldur vildu menn vissu-
lega reyna nýja sjávarhætti. Menn
óttuðust bjargarskort í fískileysi hjá
þeim, sem settust að við sjóinn á
eigin vegum án búskapar, en út-
vegsbændur máttu ráða til sín eins
margt fólk og þeim þóknaðist.
Ráðamenn óttuðust mest af öllu
hungursneyð með þjóðinni. Land-
eigendur hefðu ekki fengið mikinn
arð í landskuldum af hungruðum
landsetum á jörðum sínum, og ekki
er óhugsandi, að sumir hafí þá
óttazt „röskun á valdastöðu" sinni
vegna byrði af þurfalingum og
hungruðu fólki á flakki. Til að
trygga líf þjóðarinnar lögðu þeir
áherslu á landbúnað sem undir-
stöðu, en ekki til útflutnings. Gísli
Gunnarsson bendir á, að Skúli
Magnússon hafí talið aukningu
kjötútflutningsins þjóðinni til
óþurftar. Það kemur ekki fram hjá
Gísla af hveiju, en málið var það,
að Skúli taldi mat úr sveitinni holl-
ari en innflutt kom, einkum til að
efla líkamskrafta sjómanna, og vildi
því, að þjóðin neytti eiginn matar
í stað þess að flytja hann út og
kaupa útlendan mat.
Kjötið, sem um var að ræða til
útflutnings, hlýtur að hafa verið
sauðakjöt. Lömb voru færð frá og
urðu því rýr til frálags. Sauðir voru
harðgerðir og björguðu sér oftast á
vetrarbeit. Afurðir þeirra voru auk
gærunnar kjöt og mör, nokkum
veginn jafnverðmætt. Sauðimir
bættu lengi við sig með aldrinum,
svo að menn þurftu ekki að tapa á
því að láta þá lifa vetrinum lengur.
Bændur gátu ekki eignazt innstæðu
í verzlunum og peningaviðskipti
vildu kaupmenn ekki. Ef mikill físk-
ur kom í hlut og var lagður inn hjá
verzluninni, urðu menn að taka út
jafnmikið. Sauðaeign hafði í því
efni þann kost, að menn gátu geng-
ið á hana eftir þörfum heimilisins;
sauðimir voru því eins og innstæða,
sem menn gátu tekið út af eftir
ástæðum. Ærstofninn með afurð-
um, mjólk, skyri, smjöri, ull og
gæmm, var líftryggingin, sauða-
eignin var gjaldeyrisreikningur
þeirra tíma.
★
í dagblaðsgrein er ekki tækifæri
til að fjalla um allan rökstuðning
Gísla Gunnarssonar fyrir þeirri
skoðun, að íhaldssöm innlend valda-
stétt hafí af ótta við röskun á valda-
stöðu sinni sett þróun sjávarútvegs-
ins þröngar skorður. Ráðamenn
landsins á 17. og 18. öld létu sér
ýmislegt detta í hug til umbóta í
sjávarháttum og reyndu sumt. Þeir
voru ekki á móti arðbærari sjávar-
háttum. Hagkerfíð var hins vegar
svo vanþróað, að fáir gátu spreytt
sig á tilraunum til nýsköpunar.
Peninga vantaði til að greiða fyrir
viðskiptum. Með sölu jarða biskups-
stóla og konungs við lok sérleyfís-
verzlunarinnar fjölgaði þeim, sem
gátu spreytt sig á nýmælum, m.a.
fyrir það að menn gátu lagt fram
veð í fasteign við kaup á skipi. Með
almennri eign á jörðum í byijun 19.
aldar fór fyrst að muna um framtak
einstaklinga til nýsköpunar.
Höfundur er búnaðor-
hagfræðingur.