Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 48

Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Nýsköpunartil- raunir á 18. öld eftirBjörnS. Stefánsson I Rit Gísla Gunnarssonar um verzl- unarskipulag hér á landi á 17. og 18. öld, sem gefið var út á ensku í Lundi árið 1983, vakti þegar nokkra forvitni og umtal, og höfðu þó fáir lesið. Eins og flestum leizt mér ekki á að lesa rit um málefni Dana og íslendinga samið á ensku undir leiðsögn Svía í Lundi. Tvennt þótti mér merkilegast af því, sem ég heyrði og sá (m.a. í viðskipta- kálfí Morgunblaðsins 28. janúar sl.). Annað var það, að skökk verð- hlutföll, sem stjómvöld ákváðu, hefðu bætt hlut landbúnaðar á kostnað sjávarútvegs. Þótti mér ekki ótrúlegt, að svo hefði getað farið í óþjálu verðlagskerfí, hvort sem að því hefði verið stefnt eða ekki. Hitt var það, sem mér þótti ekki trúlegt, að íslenzkir ráðamenn þjóðarinnar hefðu vitandi vits hald- ið sjávarútvegi niðri. Þegar rit Gísla kom út á íslenzku í vetur (Upp er boðið ísaland. Einokunarverzlunin og islenskt samfélag 1602—1787), gátum við, sem ekki felldum okkur við enskan búning ritsins, svalað forvitni okk- ar. Var það spennandi lestur. Ég greini hér í stuttu máli frá því, hvemig það stóðst, sem mér hafði verið sagt og að framan segir. Ritdómari einn orðaði túlkun Gísla á afstöðu ráðamanna svo, að „... íhaldssöm innlend valdastétt hafí af ótta við röskun á valdastöðu sinni sett þróun sjávarútvegsins þröngar skorður, ..." og má taka undir þau orð. Skúli Magnússon landfógeti stóð einn í hópi ráða- manna með tillögur sínar um ný- sköpun atvinnuhátta og myndun kaupstaða. Gleymd ritgerð Að dómi Gísla var fyrirliði hinnar íslenzku va(dastéttar á síðari hluta 18. aldar, Ólafur Stefánsson amt- maður, síðar stiftamtmaður. Ég var ekki mikið lesinn í sögu 18. aldar og sagði við kunningja minn, sagn- fræðing, að loknum lestri, að mér hefði komið það á óvart, að maður, sem sat góðar jarðir hér við Faxa- flóa, eins og ég hélt, að Ólafur hefði gert, hefði ekki viljað hafa sem mestan arð af sjávarútvegi. Sagnfræðingurinn sagðist raunar halda annað, því Ólafur hefði verið fyrsti Islendingurinn, sem stofnaði útgerðarfélag, og minnti hann, að Ólafur Oddsson, nú menntaskóla- kennari, hefði samið ritgerð um það í Háskólanum. í Háskólabókasafni fannst kandidatsritgerð frá 1970 eftir Ólaf Oddsson með heitinu: „Ólafur Stefánsson og tilraunir hans með iðnað og útgerð að erlend- um hætti." Fyrst er frá því að segja, að Ólaf- ur Stefánsson gerðist árið 1754 bókhaldari iðnaðarstofnananna, ný- kominn frá námi í Höfn. Þetta var fyrirtækið, sem m.a. reisti húsin við Aðalstræti og lagði þar með hom- stein að Reykjavíkurborg. í stjóm fyrirtækisins voru þá Skúli Magn- ússon landfógeti, Magnús Gíslason amtmaður, síðar tengdafaðir Ólafs, og Bjami Halldórsson sýslumaður, sem hafði kostað Ólaf til náms að foreldrum hans látnum, auk fjórða manns. Ólafur varð amtmaður 1766 og stiftamtmaður 1790. Hann stundaði búskap, m.a. á Innra- Hólmi á Akranesi, og átti útræði á Skipaskaga. Með leyfí Ólafs Oddssonar rek ég hér tilraunir Ólafs Stefánssonar og viðhorf (beinar tilvitnanir inn- dregnar) til samanburðar við kynn- ingu Gísla Gunnarssonar á honum sem foringja þeirrar íhaldssömu valdastéttar, sem beitti sér gegn þróun sjávarútvegs og myndun kaupstaða. 1. Iðnrekstur Ritgerð Ólafs Oddssonar fjallar einkum um „... ullarverksmiðju Ólafs, sút- unar- og skósmíðaverkstæði hans og þilskip það, er hann og Thodal stiftamtmaður gerðu út um nokkra hríð ... Framlag Ólafs Stefánssonar í þessum efnum var viðleitni til þess að koma á fót nokkrum iðnrekstri, færa þær iðngreinar inn í landið og láta reka slíkar stofnanir sem einkafyrirtæki, en þó með vel- vilja. stjómvalda og verzlunar." 2. Nytsemi kaupstaða Nefnd, sem tók út mál landsins 1770—71, svokölluð íandsnefnd, átti fund með helztu embættis- mönnum landsins, þeirra á meðal Ólafi Stefánssyni, og var hann meðmæltur hugmyndum nefndar- innar um að koma á fót iðnfýrir- tækjum, en ullarverksmiðja hans hafði þá þegar starfað í nokkur ár. Nefndin taldi, að kaupstaðir væru „. . . raunveruleg forsenda þess, að iðngreinar þær, er menn töldu nauðsynlegt að færa inn í landið, gætu þrifízt. Menn í þessum efnum gætu ekki unnið fyrir sér annars staðar.“ Síðar lét Ólafur í eigin riti í ljós það álit, að æskilegt væri, að kaup- menn hæfu í kaupstöðunum marg- víslegan iðnrekstur í samstarfí við landsmenn. 3. Fyrsti útgerðarstjóri eig- in þilskips Árið 1773 keyptu þeir Thodal stiftamtmaður og Ólafur Stefáns- son, þá búsettur í Sviðholti á Álfta- nesi, þilskip til útgerðar. Hafði Ólaf- ur „... meiri afskipti af rekstrin- um, er til kastanna kom, enda hafði Ólafur um margt miklu betri aðstöðu til þeirra hluta. Hann hafði verið bókhaldari Innréttinganna mestan hluta þess tíma, er þilskipaútgerð var rekin á þeirra vegum. Hann rak og sjálfur umfangsmikia bátaút- gerð og fískverkun, en Thodal var ekki við slík mál riðinn." Þeir félagar töpuðu stórfé á út- gerðinni, og var ýmsu kennt um. Þótt svo hefði farið, missti Ólafur ekki trú á þilskipaútgerð. Laust upp úr aldamótunum 1800 hóf Bjami Sivertsen kaupmaður í Hafnarfirði þilskipaútgerð og skipasmíðar. Kveður Ólafur Oddsson Olaf stift- amtmann hafa stutt mjög Bjama í kaupmennsku og öðmm fram- kvæmdum. Tveir menn með sama nafni í frásögn Gísla Gunnarssonar af foiystu Ólafs Stefánssonar í andófí innlendrar valdastéttar gegn ný- sköpunarstefnu stjómvalda undir forystu Skúla Magnússonar er hvergi sagt frá nýsköpunartilraun- um Olafs né skoðun hans á nytsemi kaupstaða. Mætti ætla, að hér væri um tvo menn að ræða með sama nafni. Sviðsetning Gísla á hinni íhaldssömu valdastétt með Ólaf Stefánsson í aðalhlutverki styðst ekki við heimildir sögunnar. í áðumefndum viðskiptakálfí Morgunblaðsins segir frá því, að Verzlunarráðið hyggi á útgáfu Verslunarsögu Islands 1774— 1807 eftir Sigfús H. Andrésson. Verzlunarráð styrkti einnig að sögn Gísla útgáfu á riti hans. Er stuðn- ingur ráðsins við sagnfræði lofs- verður, og birting rits Gísla var gerð að ráði viðurkenndra sagn- fræðinga. Ritgerð Ólafs Oddssonar var ekki frekar en aðrar kandidats- ritgerðir samin til birtingar. Úr því sem komið er ætti birting á henni að ganga fyrir öðm á þessu sviði, til samanburðar við sviðsetningu Gísla. Upphafið í Víðidalstungu Á 17. og 18. öld vom flestir bændur leiguliðar og greiddu land- eigendum landskuld. Em af því miklir útreikningar í riti Gísla. Þar sakna ég skilnings á því, að það hlaut að vera landeigendum í hag, að leiguliðar þeirra hefðu góða af- komu, m.a. af sjósókn og háu físk- verði, til að þeir mættu standa í skilum með landskuldina. Bóndi einn í Víðidal í Húnaþingi setti fyrstur fram tillögu með rökstuðn- ingi um þilskipaútgerð íslendinga. Vildi hann, að stofnaður yrði kaup- staður og gerð út þaðan a.m.k. fímm þilskip. Þetta var Páll Vídalín í Víðidalstungu í ritinu Guði, kon- unginum, föðurlandinu árið 1699, en tengdasonur hans, Bjami Hall- dórsson sýslumaður Húnvetninga, kostaði Ólaf Stefánsson til náms, eins og áður sagði. Ekki held ég því samt fram, að þangað hafi Ólaf- ur sótt áhuga sinn á nýsköpun í sjávarútvegi. Enn er þess að geta um upphaf þilskipaútgerðar, að ungur maður að nafni Guðmundur Scheving var um tíma á skrifstofu Ólafs stiftamt- manns. Guðmundur eignaðist síðar hlut í þilskipi, sem bóndinn í Breið- holti gerði út frá 1801, þar til út- gerðinni lauk árið 1813, þegar skip- ið fórst og Breiðholtsbóndinn með því. Þetta var fyrsta útgerð bónda á þilskipi við Faxaflóa. Guðmundur Scheving settist síðar að í Flatey á Breiðafírði og gerði þar út þilskip af myndarskap. Er skemmtilegt til þess að vita, hvemig upphaf þil- skipaútgerðar í rúma öld tengist Ólafí Stefánssyni, þótt honum sé ekki eignað það allt. Þetta gerðist á þeim tímum, þeg- ar lög skylduðu til ársráðningar á vinnufólki. Var það kallað vistar- band. Einhvemveginn hefur sá mis- skilningur orðið til, að ráðningar- ákvæði þetta hafí bannað öðmm en bændum uppi í sveit að ráða fólk til vinnu. Verður Gísli sízt til að leiðrétta þann misskilning. Þegar á tímum algjörs vistarbands komst þilskipaútgerð á traustan grundvöll á Vesturlandi og Vestfjörðum í eigu efnabænda og kaupmanna. Hér er ekki staður til að gagn- rýna túlkun Gísla í einstökum atrið- um, en það einkennir málflutning hans, að ýmist hagnýtir hann ekki eigin athuganir til ályktana eða hann ályktar án heimilda. Þykir mér leitt að standa góðkunningja minn að því, en ekki verður komizt hjá því að taka slíkt til umræðu. II Það, sem kallað hefur verið ein- okunarverzlun Dana á íslandi, var það skipulag verzlunar, að ríkis- valdið úthlutaði sérleyfí til verzlun- ar með ákveðnum skilmálum um Björn S. Stefánsson „Ráðamenn landsins á 17. og 18. öld létu sér ýmislegt detta í hug til umbóta í sjávarháttum og reyndu sumt. Þeir voru ekki á móti arð- bærari sjávarháttum. Hagkerf ið var hins veg- ar svo vanþróað, að fáir gátu spreytt sig á til- raunum til nýsköpun- ar.“ framboð á erlendum nauðsynjum og um verðlag á þeim og afurðum landsmanna. Eins og tekið var fram í upphafi, þótti mér ekki ótrúleg sú niðurstaða Gísla Gunnarssonar, að verðlagsákvæðin hefðu, borið sam- an við verðhlutföll erlendis, verið hagstæð landbúnaði og óhagstæð sjávarútvegi. Þetta hafði Jón Aðils bent á í riti sínu um verzlunarstjóm Dana, og Lúðvík Kristjánsson hafði dregið það betur fram í Sögu 1971. Verðlagsákvæði löguðust ekki jafn- óðum að verðþróun viðskiptaland- anna, heldur stóðu óbreytt um ára- tugi. Þríhymingsviðskipti Gísli sýnir, að málið var ekki svona einfalt. Á 18. öld áskildi ríkis- stjómin sér nefnilega við úthlutun verzlunarleyfa sauðakjöt frá kaup- mönnum á verði talsvert undir því, sem kaupmenn fengu á ftjálsum markaði í Kaupmannahöfn, og var kjötið ætlað hemum og lækkaði það vígbúnaðarkostnað Dana, en tak- markaði auðvitaði tækifæri kaup- manna til að græða á lcjötsölunni. — Af einhveijum ástæðum var físk- ur (skreið og síðar saltfískur) ekki tekinn af kaupmönnum handa hem- um. Sérleyfisverzluninni var því á þessum árum hagað þannig, að verðlagi á erlendri nauðsynjavöru var haldið niðri, en kaupmenn gátu grætt á sjávarafurðum. Sauðalqötið var að hluta tekið af kaupmönnum við lágu verði. Af þessu leiddi, að verzlunarleyfí á fískihöfnum voru eftirsóknarverðust. Dæmið sem ekki var sett upp Sérleyfískaupmenn þóttust einn- ig bera skarðan hlut frá borði í pijónlesverzlun, vegna þess að verð á pijónlesi til framleiðenda væri of hátt. Þótt sérleyfískaupmenn mætu pijónlesið lítils, sáu aðrir sér hag í því að kaupa hér pijónles. Dæmi nefndi Gísli um, að Skagfirðingar fengu tvöfalt verð fyrir sokka, sem þeir seldu ólöglega í hollenzkar skútur, miðað við það verð, sem sérleyfiskaupmenn greiddu sam- kvæmt verðlagsákvæðum. Annars staðar kemur fram, að hollenzkt skip vopnað sex fallbyssum var tek- ið hér við land (það mun hafa strandað) nærri fullhlaðið pijónlesi frá íslandi og Færeyjum. Hér var því eki um það eitt að ræða, að hollenzkir skútusjómenn keyptu á sig föt, sem þá vanhagaði um í bráð. Má geta sér til, hvemig það hefur bitnað á fjárræktarhéruðun- um, að bændur og húsfreyjur þeirra höfðu ekki rétt til að koma afurðum sauðfjárins og tóvinnu heimilanna MICROSOFT HUGBÚNAÐUR í verð eins og það fékkst bezt. Kaupmenn vanræktu að koma á traustum samböndum við sölu af- urða, enda voru verzlunarleyfín tímabundin. Þegar Gísli Gunnarsson slær því föstu, að verðlagsákvæði sérleyfís- verzlunarinnar hafí fært arð frá sjávarútvegi til landbúnaðar, tekur hann þetta tvennt ekki til greina, upptöku kjöts í þágu hersins og bann við sölu á pijónlesi beint til Hollands. Gjaldeyristekjur af líftryggingu Rit Gísla er að stofni til um verzl- un og viðskiptaleiðir, en hann teng- ir verzlunarmálin gerð þjóðfélagsins og viðhorfum til nýsköpunar. Þar sér hann fyrir sér rammasta íhald eða afturhald í valdastéttinni, sem óttaðist nýjungar, sem gætu raskað valdastöðu hennar. Dæmið um Ólaf Stefánsson sýnir, að túlkun Gísla er æði fijálsleg. Ekki verður séð, að menn hafí óttazt arðsaman sjáv- arútveg, heldur vildu menn vissu- lega reyna nýja sjávarhætti. Menn óttuðust bjargarskort í fískileysi hjá þeim, sem settust að við sjóinn á eigin vegum án búskapar, en út- vegsbændur máttu ráða til sín eins margt fólk og þeim þóknaðist. Ráðamenn óttuðust mest af öllu hungursneyð með þjóðinni. Land- eigendur hefðu ekki fengið mikinn arð í landskuldum af hungruðum landsetum á jörðum sínum, og ekki er óhugsandi, að sumir hafí þá óttazt „röskun á valdastöðu" sinni vegna byrði af þurfalingum og hungruðu fólki á flakki. Til að trygga líf þjóðarinnar lögðu þeir áherslu á landbúnað sem undir- stöðu, en ekki til útflutnings. Gísli Gunnarsson bendir á, að Skúli Magnússon hafí talið aukningu kjötútflutningsins þjóðinni til óþurftar. Það kemur ekki fram hjá Gísla af hveiju, en málið var það, að Skúli taldi mat úr sveitinni holl- ari en innflutt kom, einkum til að efla líkamskrafta sjómanna, og vildi því, að þjóðin neytti eiginn matar í stað þess að flytja hann út og kaupa útlendan mat. Kjötið, sem um var að ræða til útflutnings, hlýtur að hafa verið sauðakjöt. Lömb voru færð frá og urðu því rýr til frálags. Sauðir voru harðgerðir og björguðu sér oftast á vetrarbeit. Afurðir þeirra voru auk gærunnar kjöt og mör, nokkum veginn jafnverðmætt. Sauðimir bættu lengi við sig með aldrinum, svo að menn þurftu ekki að tapa á því að láta þá lifa vetrinum lengur. Bændur gátu ekki eignazt innstæðu í verzlunum og peningaviðskipti vildu kaupmenn ekki. Ef mikill físk- ur kom í hlut og var lagður inn hjá verzluninni, urðu menn að taka út jafnmikið. Sauðaeign hafði í því efni þann kost, að menn gátu geng- ið á hana eftir þörfum heimilisins; sauðimir voru því eins og innstæða, sem menn gátu tekið út af eftir ástæðum. Ærstofninn með afurð- um, mjólk, skyri, smjöri, ull og gæmm, var líftryggingin, sauða- eignin var gjaldeyrisreikningur þeirra tíma. ★ í dagblaðsgrein er ekki tækifæri til að fjalla um allan rökstuðning Gísla Gunnarssonar fyrir þeirri skoðun, að íhaldssöm innlend valda- stétt hafí af ótta við röskun á valda- stöðu sinni sett þróun sjávarútvegs- ins þröngar skorður. Ráðamenn landsins á 17. og 18. öld létu sér ýmislegt detta í hug til umbóta í sjávarháttum og reyndu sumt. Þeir voru ekki á móti arðbærari sjávar- háttum. Hagkerfíð var hins vegar svo vanþróað, að fáir gátu spreytt sig á tilraunum til nýsköpunar. Peninga vantaði til að greiða fyrir viðskiptum. Með sölu jarða biskups- stóla og konungs við lok sérleyfís- verzlunarinnar fjölgaði þeim, sem gátu spreytt sig á nýmælum, m.a. fyrir það að menn gátu lagt fram veð í fasteign við kaup á skipi. Með almennri eign á jörðum í byijun 19. aldar fór fyrst að muna um framtak einstaklinga til nýsköpunar. Höfundur er búnaðor- hagfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.