Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Ennþá ósamið í Eyjum; Hefðbundið atvinnu- líf úr skorðum og óvíst hvenær úr rætist Verkalýðsfélögin tvö í Vestmannaeyjum hafa haft nokkra sérstöðu í samningamál- um undanfarnar vikur. Verkakvennafélag- ið Snót var í tíu daga verkfalli fyrrihluta marsmánaðar, eitt félaga á landinu. Snót gekk síðan út af Akureyrarviðræðunum ásamt Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja og Verkalýðsfélagi Akraness. Síðastnefnda félagið samþykkti hins vegar tilboð vinnu- veitenda um að ganga inn I Akureyrar- samningana í fyrri viku en Eyjafélögin felldu sama tilboð á sameiginlegum fundi. Það er því enn ósamið í Eyjum og yfirvinnu- bann Verkalýðsfélagsins hefur sett hefð- bundið atvinnulíf úr skorðum. Nýr fundur með vinnuveitendum hefur ekki verið boð- aður og alls óvíst hvenær úr ástandinu rætist. Blaðamaður Morgunblaðsins var á ferð í Eyjum í fyrri viku og tók þá fólk tali til að heyra hvernig fólk metur ástand- ið og framtíðarhorfur. Steinar Ágústsson Steinar Ágústsson: Sigmar Gíslason: Eftirköstin verða slæm fyrir Eyjar „ÉG HELD að það séu fáir sem gera sér grein fyrir því hvaða afleiðingar þetta ástand muni hafa þegar frá líður,“ sagði Sigmar Gíslason, stýrimaður á Katrínu VE 47, 180 tonna bát sem var að landa 25 tonnum af þorski þegar Morgunblaðsmenn bar að. „Mik- ið af þessu fólki sem hefur náð sínum tekjum með mikilli yfir- vinnu á þessum háannatíma var þegar farið að draga úr henni vegna staðgreiðslukerfis skatta. Þetta er sá tími sem allir láta sína víxia falla og þó að það sé hægt að fresta því í smástund er framtíðin ekki mjög glæsileg. Eftirköstin af þessu eiga eftir að verða ny'ög slæm fyrir Vestmannaeyjar. Yfirvinnubannið hefur þau áhrif hafa ekki mannskap í að vinna að við verðum að koma í land á morgnana og daginn til að hægt sé að landa á vinnutíma og svo geta stöðvamar ekki tekið við nema takmörkuðum afla. Það fæst miklu lægra verð en áður á fisk- markaðnum hér, því stöðvamar eru ekki að bjóða í físk sem þær nema á tímanum 8 til 5. Ég vil engu um það spá hvað þetta ástand getur varað lengi, en maður hefur heyrt í þeim í VSÍ og þetta virðist vera stál í stál. Það er spuming hvort ríkisvaldið eigi að koma inn í með skattaíviln- unum fyrir fískvinnslufólk því það Sigmar Gíslason hefur sýnt sig að fólk er að flýja þennan atvinnuveg unnvörpum. Það er rétt að taka það fram að það er engin illska hjá sjómönnum í garð verkafólks vegna ástands- ins.“ N auðungar samn- ingarnir eru ill- skárri en verkfall „MER FINNST staðan vera miklu vonminni núna eftir að þessir samningar hafa verið samþykktir víðast hvar um landið,“ sagði Stein- ar Agústsson, verkamaður hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja. „Ég var ekki ánægður með þessa norðansamninga, ég vildi reyndar kalla þá nauðungarsamninga, en þó finnst mér þeir vera skárri lausn en að fara út i óvissu og kannski v Ég vil þó taka það skýrt fram að kjör okkar sem vinna í físk- vinnslu, bæði hér og annarstaðar, eru mjög léleg og þau þarf að bæta. Þessi laun eru til skammar fyrir íslensku þjóðina. Ríkisstjómin gæti haldið höfði með því að hækka skattleysismörkin og koma á annan hátt til móts við fískvinnslufólk, því fólk er orðið þreytt og sárt yfír þessarri þróun launamála og mis- réttinu í þjóðfélaginu. Mér fínnst hafa verið illa staðið að þessum verkfallsaðgerðum hér í Eyjum og ekki hafa verið nógu mikil eining á milli forystu verka- lýðsfélaganna og fólksins. Ef það hefði verið farið rétt að þessum málum og ef það hefði verið almenn samstaða þá hefði ef til vill fengist meira út úr þessu. Verkalýðsforyst- an hér þyrfti að vera samstilltari. Fólk er mjög misjafnlega undir það búið að fara út í harðar aðgerð- ir. Mér fínnst það ekki glæsilegt að fara út í verkfall á hávertíð. Það yrði mjög mikið tjón, bæði fýrir verkafólkið, byggðarlagið og at- •vinnureksturinn."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.