Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 VERKFALL VERSLUNARMANNA OG AFLEIÐINGAR ÞESS: VerkfaUsverðir höfðu afskipti af vinnu í nær 100 tilfellum Verkfallsverðir VR fara þess á leit við tvo matreiðslumcnn hjá Síld og Fisk í Kringlunni að þeir loki þar sem þeir gengju inn i störf VR-félaga. Mennirnir tveir töldu sig hins vegar vera í rétti til þess að vinna við afgreiðsl- una. Ekki fékkst endanleg niður- staða úr þessum samræðum, en þær fóru vinsamlega fram. Eitt f ingurbrot, en yfirleitt friðsamlegt MIKLAR annir voru hjá verk- fallsvörðum VR og annarra fé- laga verslunarmanna í gær. Milli 100 og 200 manns á vegum VR voru í stöðugum eftirlitsferðum um félagssvæðið eða sinntu út- köllum um meint verkfallsbrot. Anna Sveinsdóttir, sem sæti á í verkfallsstjórn VR, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að á sjötta tímanum í gær hefðu verkfalls- verðir haft afskipti af verkfalls- brotum í nær 100 tilfellum. Hún sagði að einn verkfallsvörður hefði fingurbrotnað í ryskingum við Kjötmiðstöðina i Garðabæ, en í flestum tilfellum hefði allt farið friðsamlega fram og verkfalls- bijótar hætt störfum án illinda. Fjórtán 5-15 manna hópar sinntu afmörkuðum svæðum innan félags- svæðis VR og skráðu hjá sér hvort verið væri að vinna í verslunum og fyrirtækjum og þá hverjir. Verk- fallsverðir höfðu með sér fyrirtækja- skrá, þar sem upplýsingar um eig- endur fyrirtælq'a er að finna, auk starfsmannaskrár VR. Þá voru hóp-. ar til taks á skrifstofu VR í Húsi Verslunarinnar sem sinntu útköllum um meint verkfallsbrot. Deilt um hverjir megi vinna Að sögn Péturs A. Maack, form- anns verkfallsstjómar VR, var nokkuð um það að eigendur fyrir- tækja hefðu.boðað fólk til vinnu þrátt fyrir verkfallið, en þá hefðu einstakir starfsmenn eða skyld- menni þeirra tilkynnt brotið til verk- fallsstjómar og verkfallsverðir stöðvað vinnu á viðkomandi stöðum. Deilt hefur verið um túlkun laga á því hveijir mega vinna i verkfallinu. VSÍ gaf út yfirlýsingu með leið- beiningum til félagsmanna sinna, þar sem segir að starfsfólk fyrir- tækja sem ekki sé í félögum verslun- armanna megi vinna, auk eigenda fyrirtækja og fjölskyldna þeirra og stjómenda, svo sem verslunarstjóra og skrifstofustjóra. Verkfallsstjóm VR er hins vegar ekki fyllilega sam- mála túlkunum vinnuveitenda. „Yfirlýsing VSÍ er þeirra innan- hússplagg og stangast á við við- teknar venjur. Þeir segja að það megi nánast allir vinna sem ekki em í VR. Við vísum þessarri yfirlýs- ingu nánast á bug,“ sagði Pétur A. Maack. Deila kom upp í Kjötmiðstöðinni í Garðakaupum í Garðabæ í gær- morgun, en Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar taldi að þar gengju menn inn í störf verslunarmanna sem ekki hefðu heimild til þess. Fjöl- mennur hópur verkfallsvarða stóð í dymnum og vamaði fólki inngöngu og fékk VH liðsauka frá VR við verkfallsvörsluna. Um kl. 2 tókst samkomulag um að tveir eigendur Kjötmiðstöðvarinnar og eiginkonur þeirra fengju að afgreiða í verslun- inni, en aðrir sem verið höfðu við störf fæm burt. Verkfallsverðir og öryggisverðir deila Hópar verkfallsvarða fóm nokkr- um sinnum í Kringluna þar sem um það bil helmingur verslana var op- inn. Verkfallsverðir höfðu gmn um að öryggisverðir hefðu samband við eigendur verslana í gegnum labb- rabb-tæki til að vara þá við þannig að verkfallsbijótar gætu farið fram á gang eða inn í bakherbergi í tæka tíð. Öryggisverðir sem Morgunblað- ið ræddi við sögðu þetta ekki rétt; þeir sinntu einungis hefðbundinni gæslu, en hefðu sérstakan vara á í sambandi við hugsanlega þjófnaði vegna þess hve fáliðað var í verslun- unum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Vöruflutningar út á land lamast að mestu Það var annasamt í gær hjá Pétri A. Maack, formanni verkfalls- stjórnar VR, en hann sagði að skipulagning og framkvæmd verkfallsvörslu hefði tekist mjög vel. Þórarinn Ragnarsson hafði sam- band við Morgunblaðið og kvartaði yfir framkomu verkfallsvarða VR er þeir lokuðu sölutumi hans, Staldrinu í Breiðholti, í nokkum tíma í gær. Hann sagði að einungis hann, eiginkona hans og sonur hefðu verið við vinnu þar, eins og leyfilegt væri, og verkfallsverðir hefðu gengið úr skugga um það fyrr um daginn. Engu að síður hefði 20 manna hópur verkfallsvarða komið aftur og lagt bílum sínum fyrir sölulúgur án þess að kynna sér hveijir væru að vinna og tilkynnt að þeir væru að loka sölutuminum vegna verkfallsbrota. Þórarinn sagðist þá hafa rætt við fólkið og eftir um 10 mínútna þref hefðu verkfallsverðimir farið á braut. Anna Sveinsdóttir, sem er í verk- fallsstjóm VR, sagði að borist hefði kvörtun um verkfallsbrot í Staldrinu og að hún vissi ekki annað en að þar hefði allt farið friðsamlega fram, þó hún vissi ekki nákvæmlega um gang mála. Verkfallsstjóm VR er tilbúin til að veita undanþágur frá verkfallinu í neyðartilvikum nær allan sólar- hringinn, að sögn Péturs A. Maack. Hann sagði að 85-90 umsóknir um undanþágur hefðu borist félaginu í hádeginu í gær og af þeim hefðu um 30 verið samþykktar, aðallega á sviði heilsugæslu, öryggisgæslu og flölmiðlunar. Ríkisskip sigla áfram og Amarflug heldur opnu áætlunarflugi LJÓST að vöruflutningar út á land munu lamast að verulegu leyti í kjölfar verkfalls verslunar- manna. Starfsemi allra helstu vöruflutningamiðstöðva, sem annast flutninga landleiðina, ligg- ur niðri í verkfallinu, innanlands- flug á vegum Flugleiða hefur stöðvast og sömuleiðis sjóflutn- ingar, nema hjá Ríkisskip. Arnar- flug mun freista þess að halda opnu áætlunarflugi, bæði í innan- lands- og utanlandsflugi, en að sögn Kristins Sigtryggssonar, framkvæmdastjóra Arnarflugs, er þó ekki gert ráð fyrir miklum vöruflutningum vegna keðjuverk- andi áhrifa verkfallsins, sem með- al annars koma fram í þvi að skrifstofur margra fyrirtækja i framleiðslu og innflutningi verða lokaðar. Því má búast við að vör- uskortur fari fljótlega að gera vart við sig á landsbyggðinni ef verkfallið dregst á langinn. Verið var að ferma síðustu flutn- ingabilana hjá Landflutningum hf. skömmu eftir hádegi { gær og sam- kvæmt upplýsingum þar voru það vörur sem tekið var á móti á mið- vikudag, en vörumóttaka liggur nú niðri hjá Landflutningum hf., sem og öðrum vöruflutningamiðstöðvum vegna verkfallsins. Hjá Bifreiðastöð fslands í Umferðamiðstöðinni feng- ust þær upplýsingar í símsvara að þar yrði opið í verkfallinu og allar rútur gengju samkvæmt áætlun. Hins vegar var pakkaafgreiðslan þar '/kuð í gær. Karl Oskar Hjaltason, markaðs- stjóri hjá Skipaútgerð ríkisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að öll starfsemi útgerðarinnar yrði með eðlilegum hætti enda væri skrif- stofu- og afgreiðslufólk fyrirtækis- ins ekki meðlimir { verslunarmanna- félögum heldur ríkisstarfsmenn. Karl Óskar sagði að hins vegar gæti orðið einhver röskun á af- greiðslu úti á landi, einkum á stærri stöðunum, þar sem afgreiðsla í höfn- um leggst niður vegna verkfallsins. Ekki liggur enn ljóst fyrir hvernig Póstur og sími munu bregðst við þeirri röskun á póstfluningum, sem fyrirsjáanleg er vegna verkfallsins. Að sögn Jóhanns Hjálmarssonar, blaðafulltrúa Pósts og síma, hafa póstflutningar að hluta til verið á vegum stofnunarinnar sjálfrar, auk þess sem notast hefur verið við áætlunarflug vegna póstflutniga innanlands. Jóhann kvaðst reikna með að lausn þessa máls myndi liggja fyrir á mánudag. Arnarflug heldur uppi áætlunarflugi „Að svo miklu leyti sem við höfum farþega munum við halda uppi áætl- unarflugi í millilandafluginu," sagði Kristinn Sigtryggsson, forstjóri Am- arflugs, er hann var spurður um afleiðingar verkfallsins á starfsemi fyrirtækisins. Amarflug flýgur til Amsterdam alla daga og tvisvar í viku til Hamborgar. Kristinn sagði að farseðiar yrðu seldir hjá ferða- skrifstofum, sem opnar verða, t.d. Ferðaskrifstofu rikisins, og ferða- skrifstofunum Sögu, Atlantik og fleiri, þar sem eigendur annast af- greiðslu farseðla. Stöðvarstjóri Am- arflugs i Keflavík myndi sfðan ann- ast afgreiðslu farþega þar. „Við reiknum hins vegar ekki með miklum vöruflutningum þar sem vöruafgreiðslur margra fyrirtækja verða að líkindum að mestu lokaðar eða lamaðar," sagði Kristinn enn- fremur. Hann sagði að Amarflug Innanlands hf. myndi halda uppi áætlunarflugi innanlands og myndi framkvæmdastjórinn þar ganga í þau störf, sem lúta að afgreiðslu farþega. Eins væri gert ráð fyrir að félagið myndi annast leiguflug. „Við sjáum ekki að við þurfum að stoppa vegna þessa verkfalls, en hins vegar er ljóst að það verður erfíðara að halda þessu gangandi en undir venjulegum kringumstæðum," sagði Kristinn. Síðasta flug Flugleiða að utan á mánudag Innanlandsflug Flugleiða lagðist niður í gær en stðustu flug héðan til útlanda verða á sunnudag og síðasta flug til landsins_ verður á mánudag. Að sögn Boga Agústsson- ar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, er áætlað að síðasta vél héðan til Lon- don fari klukkan 17.30 á sunnudag og aukavél á Osló-Kaupmannahöfn er á áætlun klukkan 17.40. Sú vél kemur aftur á mánudag, en hún fer frá Kaupmannahöfn klukkan 9.30 til London, þar sem hún tekur far- þega og er áætlað að hún lendi í Keflavík um klukkan 17.00 á mánu- dag. Þijár DC 8 þotur Flugleiða verða í ferðum á milli Luxemborgar og Bandaríkjanna og sagði Bogi að 10 til 12 áhafnir yrðu ytra vegna Ameríkuflugsins og Grænlands- flugsins, en ein Boing 727-200 þota verður staðsett í Kaupmannahöfn vegna þess. Grænlandsflugið ér tvi- svar í viku og jafnframt er ætlunin að Boingvélin haldi uppi áætlunar- flugi Flugleiða milli Kaupmanna- hafnar og Glasgow í tengslum við Grænlandsflugið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.