Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
19
Ragnar Óskarsson, forseti bæjarstjórnar:
Verkfall slæmt en að-
gerðir nauðsynlegar
„VERKFALL er alltaf slæmt fyr-
ir alla aðila, fyrir verkafólk, at-
vinnurekendur og þá auðvitað
fyrir bæinn og bæjarsjóð líka,“
sagði Ragnar Óskarson, forseti
bæjarstjómar Vestmannaeyja.
„Verkalýðsfélögin hafa hins veg-
ar verið knúin til þessarra að-
gerða og það virðast ekki hafa
verið aðrar leiðir færar.
Skýringin á þessarri hörku sem
virðist vera hlaupin í þessa deilu
er ekki síst sú að atvinnurekendur
virðast ekki vera tilbúnir að ræða
við verkalýðsfélögin hér heima í
Eyjum, þeir telja sig bundna í
tengslum við Vinnuveitendasam-
bandið, en menn verða að gera sér
grein fyrir því að sú ieið virðist
ekki vera fær.
Ragnar Óskarsson
Verkafólk á íslandi býr við ákaf-
lega slök kjör, og ekki síst físk-
verkafólk, og verkalýðsfélögin hér
eru tilbúin til þess að hætta ekki
fyrr en umtalsverðar kjarabætur
fást. Þau þora að beijast fyrir bætt-
um kjörum og gefast ekki upp fyrr
en allar leiðir hafa verið reyndar.
Það er hins vegar mín skoðun að
það þurfí að vera meiri launajöfnuð-
ur en er nú og það er mjög flókin
aðferð, ef hún er þá- á annað borð
fær, að hafa mikinn mun á launurn
á milli landshluta.
Það fer ekkí á milli mála að þjón-
usta og annað er miklu dýrara á
landsbyggðinni og það ýtir undir
það að fólk sem héfur lág laun flyst
í burtu."
Sigurður Georgsson:
Tilbúnir í
harðar aðgerðir
„ÞAÐ ER útilokað að fólk sætti sig við Akureyrarsamninginn,
hann er ekki í neinu samræmi við aðgerðir ríkisstjórnarinnar og
aðrar verðlagshækkanir,“ sagði Sigurður Georgsson, vörubílsljóri
hjá Fiskiðjunni og trúnaðarmaður þjá Verkalýðsfélagi Vestmanna-
eyja. „Við í Verkalýðsfélaginu erum tilbúnir að fara út í harðar
aðgerðir, og það má reikna með mjög hörðum aðgerðum ef ekki
koma nein viðbrögð frá vinnuveitendum."
Sigurður sagði að vinnutímamál fólki borgaðar 17-19 krónur auka-
væru eitt af þeim málum sem hvað
heitast brynnu á fólki í Vestmanna-
eyjum. Hann nefndi sem dæmi að
kona í fískvinnslu gæti tapað
70.000 krónum á ársgrundvelli við
að missa einn klukkutíma í nætur-
vinnu á morgnana. Þá hefði það
sitt að segja að menn hefðu heyrt
að í mörgum bæjum væru heima-
lega á tímann.
„Staðan í samningamálunum er
ekki góð. A meðan vinnuveitendur
hér vísa öllu til Vinnuveitendasam-
bandsins þá hvorki gengur né rek-
ur. Tekjur okkar hafa minnkað
vegna yfírvinnubannsins, en það
verður að fóma einhveiju til að fá
eitthvað fram. Ég sé fyrir mitt leyti
Sigurður Georgsson
engan tilgang í því að vera í Verka-
mannasambandinu. VMSÍ-samn-
ingurinn var ekki gerður fyrir fisk-
verkafólk úti á landi.“
Morgunblaðið/Sigurgeir
Guðrún Jóna Reynisdóttir, Helga Magnúsdóttir og Ester Óskars-
dóttir.
Þurfum sérsamninga
fyrir Vestmannaeyj ar
segja þrjár Snótarkonur
ÞÆR ESTER Óskarsdóttir, Guð-
rún Jóna Reynisdóttir og Helga
Magnúsdóttir eru allar Snótar-
konur og verkakonur lijá ísfélagi
Vestmannaeyja. Þær féllust á að
svara spurningum blaðamanns
sameiginlega og birtast hér
spurningar og svör.
Hvers vegna voru samningarn-
ir felldir og hvað þyrfti að ger-
ast til að fólk geti sætt sig þá?
Það þyrfti að koma inn 15 ára
kaup og desemberuppbót þyrfti að
hækka. Hún er nú miðuð við 1700
vinnustundir, sem er alltof hátt
mark. Þá þyrfti að koma á skattaív-
ilnunum til fiskvinnslufólks eins og
til sjómanna.
Eruð þið ekki i mjög erfiðri
aðstöðu nú þegar öll önnur félög
eru búin að samþykkja Akur-
eyrarsamningana?
Nei, það teljum við ekki, alls
ekki. Við höfum mikla sérstöðu hér
í Vestmannaeyjum, því hér er mjög
mikið af konum sem eru á 15 ára
kaupi. Það þekkist varla annars
staðar á landinu, en Akureyrar-
samningarnir gera ekki ráð fyrir
hærra þrepi en 10 ár. Það er engin
ástæða til þess að vel rekin fyrir-
tæki eigi að borga lág laun aðeins
vegna þess að þau semja með illa
reknum fyrirtækjum.
Eru þessi stóru samflot þá úrelt?
Já, það ætti alltaf að semja sér
fyrir Vestmannaeyjar. Atvinnurek-
endur virðast hins vegar ekki mega
semja sér fyrir Vinnuveitendasam-
bandinu. Það ætti svo að stofna
sérsamband fískvinnslufólks. Það
gengur ekki að innan sama félags
hækki sumir um 13%, en aðrir um
40%, eins og var hjá Dagsbrún. Því
má svo bæta við að það má skipta
alveg um gömlu forystuna hjá
verkalýðshreyfingunni.
Eruð þið tilbúnar í harðar að-
gerðir?
Við erum ekki tilbúnar í verkfall,
það hefur enginn efni á þvi, en það
er hægt að grípa til margra ann-
arra aðgerða en verkfalls. Það verð-
ur bara að koma í ljós hvað það
verður. Yfirvinnubann Verkalýðs-
félagsins hefur nú þegar mikil áhrif
á okkar störf, vinnutíminn styttist
og bónusinn minnkar. Það má alveg
koma fram að við erum mjög óán-
ægðar með að fískvinnslufólk um
allt land stóð ekki saman þegar á
. reyndi. Af hveiju var verið að fella
samningana í fyrra skiptið? Það
kom ekkert út úr Akureyrarsamn-
ingunum, þetta er ekki spuming
um krónur, heldur aura.
STÓRSÝNING UM HELGINA
Opió laugardag 10 - 17 sunnudag 13 - 17
Alvar Aalto .
• #