Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
NORRÆNT TÆKNIÁR1988
Umsjón: Sigurður H. Richter
HAT/FAT á íslandi
námskeið og kynningar á
HAT/FAT-tækninni í hringferð um
landið.
Festivagninn
Festivagninn er rúmlega 13
metra langur og 2,5 metrar á
breidd, eða um 33 fermetrar, sem
er jjokkalega stór skólastofa.
I lokuðu herbergi fremst í vagn-
inum er tölva af gerðinni Computer-
vision, ásamt diskadrifi og segul-
bandstöð. í miðjum vagninum eru
tvær vinnustöðvar sem vísa hvor
frá annarri, þannig að sex manns
geta auðveldlega fylgst með hvorri
þeirra. Með vinnustöð er átt við
skjá, lyklaborð og hnitaborð. Aftast
í vagninum er tölvustýrð þriggja
ása fræsivél af gerðinni Modig
50p0.
í vagninum er loftkæling, loft-
ræsting og diselrafstöð.
HAT/FAT (CAD/CAM)-
tæknin
Flestir þekkja hefðbundnar að-
ferðir við framleiðslu. Hönnuður
sest við teikniborð og frá honum
koma síðan teikningar. Því næst
er það hönnuðurinn eða iðnaðar-
menn sem ákveða vinnsluaðferðir
og að lokum eru það iðnaðarmenn
sem framleiða hlutinn. Þannig má
skipta ferlinu upp í þijá hluta; hönn-
un, tæknilegan undirbúning og
framleiðslu.
Þegar farið var að nota tölvur
til að flýta fyrir og létta undir við
hönnunina, var það kallað á ensku
„Computer Aided Design", skamm-
stafað CAD, og framleiðsla með
aðstoð tölvu var kölluð „Computer
Aided Manufacturing“, skammstaf-
að á CAM. Oft er þessu tvennu sleg-
ið saman undir nafninu CAD/CAM.
Enn hefur ekki verið fundið
íslenskt nafn á þessa tækni sem
samsvarar CAD/CAM-skammstöf-
uninni. Til greina kemur að nota
skammstöfunina HAT/FAT sem
stendur fýrir „hönnun með aðstoð
tölvu" og „framleiðsla með aðstoð
tölvu". Með HAT/FAT er þá átt
við nútíma hönnunar- og fram-
leiðslutækni, þar sem tölvur, hug-
búnaður og tölvustýrðar vélar eru
í aðalhlutverkum.
HAT/FAT-tæknin er ekki mikið
þekkt hér á landi, þrátt fyrir að
nokkur fyrirtæki hafa tekið hana í
notkun. Mörg fyrirtæki nota tölvur
við teikningu, og nokkur fyrirtæki
hafa tekið í notkun tölvustýrðar
framleiðsluvélar. Samtenging milli
hönnunar og framleiðslu er enn sem
komið er ekki til hér á landi, þó svo
að nokkur fyrirtæki séu farin að
leiða hugann að þeim möguleika.
Ennfremur er tölvuhönnun lítið
nýtt, nema til teikninga, en ekki til
burðarþolsreikninga eða annarra
reikninga, sem möguleiki er á með
góðu HAT-kerfí.
Hönnuður notar skjá, lyklaborð og hnitaborð við vinnu sína. Platan
fyrir framan hönnuðinn er hnitaborðið. Á hnitaborðið eru skrifaðar
skipanir sem nægir að benda á með sérstökum penna í stað þess að
slá þær inn með lyklaborðinu. í baksýn sést f tölvuna fremst f vagnin-
um.
Vinnustöðvamar eru f miðjum vagninum og visa hvor frá annarri.
Sex menn geta auðveldlega fylgst með hverri vinnustöð á námskeið-
unum.
Hönnun og framleiðsla
með aðstoð tölvu
Hinn 26. april kemur hingað
til lands festivagn, hlaðinn
tækjabúnaði til að kynna svo-
nefnda HAT/FAT-tækni, en
HAT/FAT er skammstöfun er
þýðir „hönnun og framleiðsla
með aðstoð tölvu“. Iðntækni-
stofnun íslands fær þennan
vagn hingað, meðal annars í til-
efni af Norrænu tækniári 1988.
Stofnkostnaður við HAT/FAT-
kerfí er töluverður. Hingað til hafa
aðeins stærstu fyrirtæki getað nýtt
sér alla möguleika þessarar tækni.
Nú hefur verð á vélbúnaði lækkað
mikið og þá sérstaklega verð á
tölvustýrðum framleiðsluvélum.
Verð á grunnhugbúnaði eins og
teiknikerfum hefur einnig lækkað,
og þau eru orðin mun þægilegri í
notkun en áður.
HAT/FAT og Norrænt
tækníár
Iðntæknistofnun íslands hefur
nú hafíð mjög umfangsmikla kynn-
ingu á HAT/FAT-tækninni, og
meðal annars í tilefni af Norrænu
tækniári var leitað til hinna Norður-
landanna eftir aðstoð. Noregur,
Svíþjóð og Danmörk eru mjög fram-
arlega í þróun og notkun
HAT/FAT-tækni, og þangað getum
við sótt mjög mikið.
Sænska framleiðslutæknistofn-
unin (Institutet för Verkstands-
teknis Forskning, skammstafað
IVF), hefur látið smíða 13 metra
langan festivagn, með fúllkomnu
HAT/FAT-kerfi innanborðs. í til-
efni af Norrænu tækniári hefur IVF
notað tækifærið og unnið að því
að stuðla að aukinni þekkingu
manna á HAT/FAT.
Iðntæknistofnun íslands hefur
nú samið við IVF um að fá
HAT/FAT-festivagninn til íslands
í þijár vikur í vor, til þess að halda
Hugbúnaður í vagninum
Aðalhugbúnaður vagnsins er frá
fyrirtækinu Computervision. Hann
er fullkominn þrívíddarhugbúnaður
sem vinnur með grindarlíkön og
yfírborðslíkön (wireframe og
surface modeling).
Með þrívíddarhugbúnaði er átt
við að hægt er að byggja upp líkan
í tölvunni með ákveðinni hæð,
breidd ogdýpt. Mynd af þessu líkani
kemur fram á skjánum, og hönnuð-
urinn getur snúið henni á alla kanta
og framkvæmt þrívíða reikninga.
Mynd af háspennumastri er dæmi
um grindarlíkan, en ef mastrið er
klætt með plötum, væri komið yfír-
borðslíkan.
Þessi hugbúnaður er mjög öflug-
ur þegar verið er að vinna með flók-
in yfirborð, eins og algengt er í
mótasmíði og við smíði á steyptum
hlutum. Einnig er auðvelt að teikna
vélahlutateikningar, samsetninga-
myndir og vinna stykkjaiista.
Auk þess er í vagninum tvívíður
hugbúnaður frá fyrirtækinu CIML-
Unnið við fræsivélina. Fræsivélin hefur sína eigin tölvu, sem tekur
við forriti frá hönnunarkerfinu.
HAT/FAT-festívagninn. Dráttarbíllinn mun ekki koma til landsins en í hans stað mun bíli frá Gunnari Inni i vagninum. Mennimir eru að vinna við aðra vinnustöðina en
Guðmundssyni hf. sjá um flutninga á vagninum innanlands. Verðmæti vagnsins er um 30 milljónir, aftar sést i fræsivélina.
þannig að það skiptír miklu máli að hafa góðan bilstjóra og vanan islenskum vegum.