Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
29
i
Hveragerði:
Verkfallsverð-
ir lokuðu Vöru-
markaði OLÍS
Selfossi.
Verkfallsverðir Verslunarmannafélags Árnessýslu lokuðu Vöru-
markaði OLÍS um tvöleytið í gær, en eiginkona og dóttir Óla Kr. Sig-
urðssonar, forstjóra, opnuðu verslunina éftir hádegið og hugðust halda
henni opinni. Verkfallsverðir voru við verslunina fram til kl. 16.30
þegar samkomulag varð milli verslunarmannafélagsins og eigenda
fyrirtækisins um að verslunin yrði lokuð.
Hjá Vörumarkaði OLÍS starfa 15
starfsmenn við verslunina og þar er
einnig bensínafgreiðsla. Starfsmenn
hennar eru ekki í verslunarmannafé-
laginu og hún var því opin. Aðgerð-
ir verkfallsvarða beindust gegn opn-
un verslunarinnar en innangengt er
úr bensínafgreiðslunni í verslunina.
Valsflug
sirniir Ejg-
um í verk-
fallinu
Valsflug í Vestmannaeyjum
sem er í eigu Vals Andersen
stundar leiguflug með farmiða-
verði milli lands og Eyja meðan
verkfall verslunarmanna stendur
yfir. Valur hefur tvær vélar á
sínum snærum, .tveggja hreyfla
vél og eins hreyfils vél sem hefur
verið talsvert í ferðum milli Eyja
og Selfoss, Hellu og Hvolsvallar
auk annarra staða á Suðurlandi.
Það er Vesturflug h.f. á
Reykjavíkurflugvelli sem annast
afgreiðslu fyrir Valsflug.
Flug milli lands og Eyja með
tveggja hreyfla flugvél Vals tekur
álíka langan tíma og með Fokker
Flugleiða ,eða um 20 mínútur. Val-
ur hefur haft flugrekstrarleyfi und-
anfarin ár.
Gunnar K. Gunnarsson, aðstoðar-
forstjóri OLÍS, sagði að eiginkona
og dóttir forstjórans væru í fullum
rétti til að vinna. Þetta álit byggðist
á túlkun lögfræðings vinnuveitenda-
sambandsins. „Við höfum engan
áhuga á að standa í deilum eða van-
virða þann rétt sem fólkið hefur.
Það er ljóst að það vantar afdráttar-
lausa túlkun á því hveijir mega vinna
í verkfalli og hveijir ekki. Það þarf
að skera úr um það hver sé réttur
eigenda og barna þeirra og verslun-
arstjóra í verkföllum," sagði Gunnar
K. Gunnarsson.
„Við opnuðum klukkan 13.30 á
þeirri forsendu að við værum í fullum
rétti sem eigendur og ætluðum að
veita þjónustu og halda versluninni
gangandi," sagði Gunnþóra Jóns-
dóttir, eiginkona Óla Kr. Jónssonar,
forstjóra OLÍS.
„Við teljum að þarna hafi verið
framið verkfallsbrot," sagði Hansína
Stefánsdóttir, starfsmaður Verslun-
armannafélags Árnessýslu. „Sam-
kvæmt okkar skilgreiningu á verk-
fallsrétti þá má eigandi vinna og
eiginkona hans hafi hún unnið þar
að staðaldri og böm undir 16 ára
aldri. Við teljum óviðeigandi að fólk
komi austur fyrir fjall og gangi í
störf láglaunafólks. Þessi opnun
þeirra virðist byggð á yfirlýsingu
vinnuveitendasambandsins sem birt-
ist í Morgunblaðinu."
Hansína skrifaði undir yfirlýsingu
um að verkfallsverðir hefðu lokað
versluninni og samkomulag náðist
um að verslunin yrði lokuð og að
aðilar hefðu samband sín á milli ef
eitthvað kæmi upp svo ekki yrðu
árekstrar.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Verkfallsverðir við dyr Vörumarkaðar OLIS í Hveragerði. I dyrunum eru Gunnþórunn Jónsdóttir, eigin-
kona Óla Kr. Jónssonar, forstjóra OLÍS, og dóttir hans, Gabríela.
62 af 74 verslunum
Kringlunnar opnar
KRINGLAN bar þess ekki mikil merki í gær að verkfall væri hjá
verslunarmönnum. 62 verslanir af 74 voru opnar og fjöldi viðskipta-
vina átti þar leið um. Eigendur ásamt fjölskyldum sínum héldu versl-
unum opnum og hópur verkfallsvarða frá VR fylgdist með því að
allt færi rétt fram. Verkfallsverðir héldu því fram að öryggisverðir
fylgdust með ferðum þeirra og gerðu verslunareigendum viðvart.
Þessum ásökunum höfnuðu öryggisverðir.
Garðar Siggeirsson, eigandi
Herragarðsins var ásamt konu
sinni, Erlu Ólafsdóttur við af-
greiðslu í búð sinni í Kringlunni.
Bróðir hans hélt hins vegar opinni
versluninni í Aðalstræti. „Venjulega
eru hér starfandi fimm manns og
er umferð viðskiptavina svipuð og
venjulega. Það eru ekki tiltakanleg
vandræði við það að halda verslun-
inni opinni, enda erum við vön af-
greiðslustörfum," sagði Garðar, en
hins vegar væri mun meira að gera
í versluninni í Aðalstræti og þyrfti
Gunnar Snorrason í Hólagarði:
Fjölskyldan heldur
versluninni gangandi
„ÞAÐ kemur mér nokkuð á
óvart hvað það er mikið að gera,
miðað við hin miklu innkaup í
gær,“ sagði Gunnar Snorrason,
kaupmaður í Hólagarði í Breið-
holti i samtali við Morgunblaðið,
en hann og fjölskylda hans
ásamt kjötiðnaðarmönnum
halda versluninni gangandi.
Að jafnaði vinna um 20 manns
í senn í versluninni, en samtais
40-50 manns eru á launaskrá. I
gær voru hins vegar vinnandi um
7 manns með kjötiðnaðarmönnum.
„Þetta gengur bara ágætlega,“
sagði Gunnar, þar sem hann af-
greiddi á kassa, „ég er óðum að
komast í þjálfun á kassann.“
Gunnar gat þess að verkfalls-
verðir hefðu komið þá um morgun-
inn og fett fingur út i það að versl-
unarstjóri og skrifstofstjóri væru
við vinnu í versluninni. „Það eru
mismunandi skoðanir uppi með
deiluaðilum um það hversu mikið
af störfum í versluninni verslunar-
Gunnar Snorrason, kaupmaður
stjóri megi taka að sér. VSÍ telur
að verslunarstjóri megi ganga í öll
störf undirmanna sinna, en VR er
ekki sammála. En hvað svo sem
um það er að segja er óþolandi að
menn skuli setja það niður fyrir
Morgunblaðið/Júllus
í Hólagarði við kassann.
sig áður en verkfalls kemur hveij-
ir megj vinna og hveijir ekki,“
sagði Gunnar Snorrason, kaup-
maður í Hólagarði og fyrrverandi
formaður Kaupmannasamtak-
að hleypa þar viðskiptavinum inn í
fjögurra manna hópum.
Garðar sagði starfsmenn sína
vera verulega óánægða með það
að vera í verkfalli, enda væru þeir
hátt yfirborgaðir. „Mér finnst kröf-
ur VR um 42.000 króna lágmarks-
laun fyllilega réttmætar; menn sem
reka fyrirtæki með jafnlágum laun-
um og taxtar eru núna eiga einfald-
lega ekki rétt á sér.“
Pólitík á bak við deiluna
Steinar Waage skókaupmaður í
Kringlunni og víðar sagði að sér
gengi ágætlega að halda verslun
sinni opinni; venjulega væru starf-
andi 6 manns, en nú væru þeir 4;
fjölskyldan og verslunarstjóri. „Það
er alveg á mörkunum að við fáum
að vera í friði. Það kom hér hópur
verkfallsvarða í morgun og þeir
koma aftur á eftir.“
Steinar kvaðst óttast langt verk-
fall, enda væri mikil pólitík að baki
þessari deilu. „Ef farið verður að
kröfum VR væri verið að egna til
nýrra vinnudeilna hjá öðrum félög-
um. Eg sé ekki að ríkisstjórnin
gæti þá setið áfram.“ Steinari
fannst kröfur verlunarmanría ekki
óeðlilegar sem slíkar, þó væru þær
nokkuð hraðstígar.
Kurteisir
verslunareigendur
Helgi Guðbrandsson var í fyrir-
svari fyrir hóp verkfallsvarða í
Kringlunni. „Þetta gengur prýði-
lega og í raun betur en við bjugg-
umst við, enda eru verslunareigend-
ur almennt mjög kurteisir við okk-
ur.“ Helgi sagði ágreining vera um
það hvort verslunarstjórar mættu
afgreiða. Kvað Helgi ekki nokkurn
vafa vera um það að væru þeir fé-
lagar í VR mættu þeir það ekki.
Til '.eilna kom við eigendur verslun-
arinna Centrum, en dóttir eigan-
dans var þar við störf, eldri en 18
ára og ekki í VR. „Þessari verslun
verður líklega lokað,“ sagði Helgi
en tók fram að fyrst yrði haft sam-
ráð við verkfallsstjórn.
Njósnandi öryggisverðir
Verkfallsverðir í Kringlunni
héldu því fram að öryggisverðir á
vegum Öryggismiðstöðvarinnar
fylgdust með sér og gerðu verslun-
areigendum viðvart um hvar þeir
væru hveiju sinni.
„Þetta er að sjálfsögðu tóm vit-
leysa,“ sögðu þær Anna Grétars-
dóttir vaktstjóri og Linda Þórhalls-
dóttir öryggisvörður í samtali við
Morgunblaðið. „Við erum augu og
eyru þessa húss, en gætum ekki
hagsmuna einstakra verslunareig-
enda,“ sögðu þær og gátu þess að
þær hefðu heyrt að verkfallsverðir
hefðu kvartað í Dagsbrún yfir þeim.
„Þeir vildu fá að hafa einn mann í
stjórnstöðinni, en að sjálfsögðu kom
það ekki til rnála."
Verkfallsverðir í Alba Mode:
-------------------•----
Lokuðu og sendu versl-
unarstj órann heim
„ÞETTA gengur bara vel eins
og er, en fyrr í dag var versl-
unni lokað og verslunarstjórinn
sendur heim,“ sagði Svava Gísla-
dóttir hjá versluninni Alba Mode
á Laugaveginum.
„Venjulega erum við tvær í búð-
inni, en ég verð að vera hér ein og
má segja að þetta gangi bara ágæt-
lega, þó að umferðin sé meiri en
við var að búast."
Svava sagði að um morguninn
hefði komið herskár hópur verk-
fallsvarða sem lokað hefðu verslun-
inni og við hefði legið að viðskipta-
vinur hefði verið rekinn út. „Versl-
unarstjórinn minn sem nýlega er
tekin við og hefur enn ekki skráð
sig í VR var send heim og var versl-
unin lokuð í einn og hálfan tíma,
þar til ég kom.“
Svava kvaðst eiga von á því að
verkfallið leystist fljótt, það gæti í
mesta lagi varað í nokkra daga.