Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Minning: Hallur Garibalda- son - Siglufirði Fæddur 24. júní 1893 Dáinn 15. apríl 1988 Það er nú ætíð svo þegar dauðs- fall dynur yfir að okkur setur hljóð og látum hugann reika til liðinna samverustunda. Hugsum um það helst og fremst, „höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg“. Og nú er horfinn yfir móðuna miklu einn af þessum einstæðu öðlingum aldamótakynslóðarinnar, saddur lífdaga, næstum því 95 ára gamall. Svo sannarlega hefur hann gengið til góðs götuna fram eftir veg. Hallur var föðurbróðir minn og nánast afi minn líka, eins og mer fínnst og man fyrst eftir mér. Ég fæddist í hans húsi, Hallshúsi, eða „suðrí húsi“ og naut þess að alast upp hið næsta honum öll mín bemskuár og var heldur ekki sá eini sem fann fyrir þeirri nálægð sem ljúfmennska hans, kyrrláta hógværð og einstaka mannelska lýsti, hvar sem hann fór. Og ekki spillti hin einlæga trú hans og hvatning hans til okkar hinna yngri að hugleiða kirkjunnar mál og ófáar ferðimar leiddi hann okkur þangað. Hallur var fæddur á Mannskaða- hóli 24. júní árið 1893 og var þriðji sonur hjónanna Garibalda Einars- sonar og Margrétar Petrínu Péturs- dóttur en þau hjón eignuðust alls 9 böm: Einar Kristbjöm f. 1888, Pét- ur f. 1891, Hall f. 1893, Guðmund Jóhann f. 1895, Sigríði Pálínu f. 1897, Málfríði Önnu f. 1899, Ásgrím f. 1901, Guðbjörgu Indíönu f. 1904 og Óskar f. 1908. Öll eru þau nú látin og Hallur þeirra síðast- ur af þessari stóru fjölskyldu. Á liðinni ævi hefur hann mikið reynt og áföll hafa dunið yfir. Þá fyist er faðir hans Garibaldi deyr aðeins 54 ára gamall og svo ári síðar er móðir hans og 3 systkini þau Pétur, Sigríður Pálína og Málfríður Anna farast öll í snjóflóð- inu mikla á Engidal við Siglufjörð vorið 1919. Þetta hafa verið dimm- ir dagar og áreiðanlega aldrei fymst úr minni hans. Árið 1918 giftist Hallur Sigríði Jónsdóttur, Þorsteinssonar, fyrr- verandi hreppstjóra í Haganesvík og konu hans Guðnýjar_ Jóhanns- dóttur ættaðri frá Úlfsdölum. Sigríður lést í hárri elli árið 1983. Þau Sigríður og Hallur hófu búskap á Siglufirði og byggðu sér glæsi- heimili á þeirra tíma mælikvarða að Hvanneyrarbraut 23. Alla sína ævi bjuggu þau á Siglufirði og tóku ástfóstri við þá byggð. Böm þeirra urðu 8, tveir drengir sem báðir voru skírðir Garibaldi fæddust 1918 og 1921 en dóu ungir að árum úr bamaveiki sem þá hetjaði, annar tæpra þriggja ára en hinn nokkurra mánaða gamall. Eftirlifandi böm Halls og Siggu eru: Pétur, fæddur 1920, skipstjóri og nú búsettur í Danmörku, Margrét, fædd 1922, kennari, búsett í Reykjavík, Magda- lena, fædd 1928, símavarðstjóri á Siglufírði, Helgi, fæddur 1931, byggingameistari og býr á Akur- eyri, Jón, fæddur 1932, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík og Guð- jón Hallur, fæddur 1939, húsgagn- asmíðameistari í Reykjavík. Auk þess ól Hallur upp yngsta bróður sinn, Óskar, frá 10 ára aldri en hann dvaldi hjá þeim haustið 1918 og veturinn 1919 þegar hinir voveif- legu atburðir áttu sér stað í Engi- dal og varð því hjá þeim Siggu og Halli eftir það allt fram á fullorðins- ár. Ekki er þó öll sagan sögð því nokkru síðar sest upp hjá þeim Halli aldraður maður sem hét Jós- ep, blindur og nánast kominn í kör. Þennan gamla mann tóku þau að sér og önnuðust hann allt þar til hann lést. Einnig ala þau önn fyrir syni hans, Jóhannesi, þá 10 ára gömlum dreng og fóstra upp. Og enn má bæta því við að síðar taka þau svo að sér dóttur Jóhannesar, Lillu, síðar skírð Magdalena, og ala upp. Og margan munnbitann eiga þau þessi elskulegu hjón í mínum maga og systkina minna allt frá fyrstu tíð. Það hefur því oft verið mannmargt á heimilinu því og lang- ur vinnudagur bæði hjá húsfreyju og bónda hennar, Halli. Alltaf virt- ist vera pláss fyrir einn í viðbót, þó fullt útúr dyrum sýndist vera. Það er því ekki ofsögum sagt, að þó alt léki ekki alltaf í lyndi, þá var það hjálpsemin og manngæskan sem var sett ofar öllu og samheldn- in leyndi sér heldur aldrei. Á sínum yngri árum stundaði Hallur eins og aðrir ungir menn á þessum slóðum sjóinn, við oft óblíð kjör. Fyrst á hákarlaskipum gerðum út frá Siglunesi, hjá Oddi Jóhannes- syni á Nesi, og þegar hákarlinn gaf sig ekki þá á trilum og stærri bát- um. Þá var heldur ekki vflað fyrir sér að sækja föng suður á land. Nokkrar vertíðir voru famar bæði til Vestmannaeyja og Njarðvíkur og þangað fóru með Halli fóstur- bræðumir Óskar, bróðir hans, og Jóhannes Jósefsson, fóstursonur hans, en þeir vom á sama aldri. Ekki var þá spurt um tíma né erf- iði við að sækja björg í bú og leiðin til ástvina býsna löng, til þeirra er heima biðu eftir fyrirvinnu, föður og bræðmm. En árið 1935 réðst Hallur til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglu- fírði og þar starfar hann allan sinn aldur meðan heilsan endist eða fram undir nírætt. Bara það segir meir en nokkur orð um þá samvisku- semi, elju og dugnað sem hann sýndi með sínu lífi. Enda var það svo að á efri ámm hans í ríkinu, þegar verksmiðjumar vom nefndar á nafn, þá kom alltaf nafn Halls upp í hugann svo nátengdur var hann orðinn Sfldarverksmiðjum ríkisins eftir nærri 50 ára samfelld- an starfsaldur. Er ég nú læt hugann reika til fyrri ára, mér liggur við að segja sæludaga á Sigló, því við krakkam- ir fundum lítið fyrir því basli og þeirri vinnuþrælkun sem viðgekkst á þeim ámm til að afla matar og klæðis, minnist ég þess þegar þeir fósturbræður og Hallur komu eitt sinn af sjónum með hlaðinn bát af fiski. Þá var róið á litlum árabáti. Þetta var að vetri til og snjór yfir öllu. Aflinn var borinn heim í pokum og gert að honum á freðinni mjöll- inni. Þar var hann slægður, spyrt- ur, gellur hirtar og sumt lagt í salt. Allt var þetta unnið við luktarljós og olíutýmr því rafmagn var óvíða t Eiginmaöur minn, ANDRÉS MAGNÚSSON bóndi, Vatnsdal, Fljótshlíö, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 20. apríl. Þorgerður Guðrún Sveinsdóttir. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, FRIÐRIK GUÐMUNDSSON fyrrum bifreiðarstjóri, Nesvegi 64, Reykjavfk, lést af slysförum þann 20. apríl. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, VILHJÁLMUR KR. INGIBERGSSON, lést í Borgarspítalanum 20. april. Ragnheiður Þ. Jónsdóttir. Eiginmaöur minn, t LEIFUR INGÓLFSSON, forstjóri, Skildinganesi 62, lést á heimili sínu þann 20. þ.m. Anna Dam. t Móðir okkar, SOFFfA ÁSGEIRSDÓTTIR frá Fróðá, lést í hjúkrunardeild Vífilsstaöaspítala miövikudaginn 20. apríl. Börn hinnar látnu. t Bróðir okkar, ARNÞÓRINGVARSSON, Bjalla, Landsveit, lést í Vífilsstaöaspítala 20. apríl. Systur hins látna. t ARNÞÓRJAKOBSSON, Droplaugarstöðum, Snorrabraut, er lést mánudaginn 18. apríl verður jarösunginn frá Fossvogskap- ellu miðvikudaginn 27. april kl. 10.30. Fyrir hönd vina og vandamanna, Óskar Jónsson. t Faöir okkar og fóstri, HALLUR GARIBALDASON, Hvanneyrarbraut 23, Síglufirði, verður jarösunginn frá Siglufjarðarkirkju í dag, laugardaginn 23. apríl, kl. 14.00. Pótur Hallsson, Magðalena Hallsdóttir, Jón Hallsson, Jóhannes Jósefsson, Margrét Hallsdóttir, Helgi Hallsson, Guðjón Hallsson, Magdalena Jóhannesdóttir. t Móöir mín og tengdamóöir, GUNNHILDUR ODDSDÓTTIR frá Neskaupstað, til heimilis Vallartúni 1, Kefiavfk, veröur jarösungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 23. april kl. 14.00. Guðrún Ármannsdóttir, Ásgeir Sigurðsson. komið í heimahús þá. Tunglsljós var yfír öllu og afar rómantískt að mér fannst. Þá sagði Hallur: „Jæja strákar, í háttinn með ykkur, það er vinnudagur á morgun, ég læt krakkana hjálpa mér með restina." Krakkamir voru þá ég, Jonni Halls, Helgi, Madda, Magga og Pétur. Að afla sjávarfang í matinn var víst ekki vinna í þá daga, aðeins nauðsynjastörf, frekar en í dag að það er ekki talin vinna að vaska upp og skúra gólf í heimahúsum, það eru bara skyldustörf. Hallur flíkaði ekki skoðunum sínum, en hafði þó fastmótað álit á heimsmálunum og studdi af ein- drægni lítilmagnann í þjóðfélaginu. Þegar svo yngsti bróðir hans, Óskar, hellti sér út í verkalýðs- baráttuna, með öllu sem því fylgdi á þeim árum, ávítaði hann drenginn góðlátlega en var þó stoltur undir niðri yfír því að sjá hvemig hann barðist ódeigur fyrir þeim málstað sem hann trúði á. Oll mín upp- vaxtarár heyrði ég þá aldrei deila um nokkum hlut, en deildar mein- ingar um baráttuaðferðir vom greinilegar. Hallur var þessi einlægi friðsemdar- og sáttamaður, en það blundaði að vísu í Óskari líka, en honum fannst lítið ganga með slíku hjali og vildi láta verkin tala. Nú em þeir báðir gengnir og á efri ámm urðu þeir óumræðilega tengdir. Óskar unni Halli eins og föður sínum og á sama hátt unni Hallur honum og kallaði hann yfir- leitt aldrei annað en „blessaðan drenginn“, þó hann væri kominn yfir sjötugt drengurinn. Og þegar Óskar féll frá var sem slokknað hafði á Halli og eitthvað slitnaði burt um tíma, en hann hafði lifað föður- og móðurmissi löngu fyrir tímann, séð á bak allra systkina sinna og sona sinna tveggja rétt nýfæddra og horft á eftir sinni elskulegu konu, Sigríði Jóns, hann þraukaði og fól þeim sem öllu ræð- ur, að líkna sér í sorg og þraut. Gleði og ánægju átti hann líka eftir að upplifa þegar hann hitti næstum því alla ættingja sína, yfir 140 talsins, á ættarmóti á Siglu- firði árið 1986 og vom það ógleym- anlegar stundir bæði fyrir okkur sem viðstödd vomm og það að sjá andlitið á þessum fallega öldungi, sagði meir en nokkur orð, hvemig honum var innanbrjósts þegar hann leit yfír þennan föngulega hóp Gari- balda. Hann var svo sannarlega ættarhöfðinginn, þá 93 ára gamall. Nú þegar við systkinin „úti í húsi“, Erla, Hlynur, Hallvarður, Hólmgeir og undirritaður, kveðjum Hall Garibalda, þennan dásamlega frænda okkar og afa, eins og yngri bræður mínir segja alltaf, þá biðjum við fyrir alúðarkveðjur til nánustu ástvina hans og þökkum þeim þeirra ógleymanlegu viðbrögð, sem þau sýndu þegar við gengum í gegnum það sama á sínum tíma. Sérstaklega fæmm við kveðjur til Möddu sem á ómetanlegan hátt er alltaf nálæg, þrátt fyrir veikindi sín, og hjúkraði föður sínum af sér- stakri natni öll þessi seinustu ár og er alls staðar nærri þegar ein- hver þarf liðsinnis við. Svo sannar- lega hefur eplið það ekki fallið langt frá eikinni. Það fínna engir betur en við, að við emm, verðum og munum alltaf verða ein fjölskylda. Guð blessi minningu Halls Gari- balda og allra þeirra sem á undan honum hafa gengið. Hörður S. Óskarsson Blóma- og w skreytingaþjónusía f/ ™ hvert sem tilefnió er. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Állheimum 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.