Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 Sjötugur: Jóhann G. Möller í kvöld gefst margfalt tilefni til mannfagnaðar og vinafunda hjá okkur jafnaðarmönnum. Jóhann G. Möller og kona hans, Helena Sig- tryggsdóttir, halda upp á sjötugs- aftnæli Jóhanns á heimili Jónu, dóttur þeirra, Hraunteigi 24, Reykjavík. Dóttir þeirra Jóhanns og Helenu, dr. Alda Möller, mat- vælaverkfræðingur, heldur upp á 40 ára afmæli sitt sama daginn. Dótturdóttir Jóhanns og Helenu og nafna hennar fagnar brautskrán- ingu sem nýstúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík. Fáeinum dögum síðar mun yngsta dóttir Jó- hanns og Helenu verða brautskráð frá læknadeild Háskóla íslands. Það er því margfalt tilefni til mannfagn- aðar og vinafunda með ættgarði Jóhanns og Helenu og vinum þeirra og vandamönnum. Hver er Jóhann G. Möller? Það vita allir Siglfirðingar sem komnir eru til vits og ára, allir jafnaðar- menn sem einhvem tíma hafa verið virkir í starfí Alþýðuflokksins; og allir þeir sem einhvem tíma hafa gengið til liðs við verkalýðshreyf- inguna á íslandi og lagt liðsinni baráttumálum hennar fyrir bættum kjörum og betra mannlífi í okkar landi. Við erum því mörg sem í dag minnumst Jóhanns G. Möllers þakklátum huga og samfögnum honum og íjölskyldu hans í þessum áfangastað. Hver er Jóhann G. Möller? Ef ég ætti að nefna einhvem ein- stakling sem öðmm fremur mætti vera öðmm til eftirbreytni sem sannur jafnaðarmaður í orði og verki, þá væri það hann. Hann á fáa sína líka. Að gera meiri kröfur til sjálfs sín en annarra er í mínum huga einföld, látlaus en um leið kröfuhörð og eftirsóknarverð dyggð. Jóhann G. Möller er þess konar maður. Þess vegna þykir okkur vænt um hann. Oft hef ég heyrt Jóhann Möller flytja mál sitt á mannfundum okkar jaftiaðarmanna. Reyndar em óvíða haldnir eftirminnilegri fundir en á Siglufirði, þar sem andi hans svífur jrfír vötnunum. Oft hefur honum sollið móður af ákefð og einlægni fölskvalausrar réttlætiskenndar. Oft hafa ræður hans því hrært dýpri strengi í hjörtum okkar en ræður annarra manna, sem sléttmálli þykja. En hjá Jóhanni em það ekki bara orðin sem hrífa. Maðurinn sem þau mælir hefur reynst svo trúr sinni hugsjón í öllu sínu lífi og starfi að það gefur orðum hans sérstakt gildi og ljær þeim þungan sannfæringarkraft. Hugsjónin, sem hreif Jóhann ungan til dáða, er heillandi draum- sýn. Margir hafa játað henni ást sína af heitu blóði æskufuna. Hinir em fáir sem reynst hafa æskuhug- sjón sinni svo trúir að líf þeirra sjálft er eins og staðfesting á göfg- andi krafti hennar og mannbætandi yi- Þess konar maður er Jóhann G. Möller. Ef við jafnaðarmenn tryðum á mannasetningar í mynd hinnar heilögu katólsku kirkju hefðum við fyrir löngu tekið hann í dýrlinga- tölu. Þess vegna er hann ekki kaþólikki. Þess vegna m.a. emm við jafnaðarmenn. Ætli ég hafí ekki fyrst heyrt Jóhanns G. Möllers getið í heima- húsum við pólitískt kaffíbollaorða- skak ísafjarðarkrata í bemsku minni? Og fannst þess vegna eins og ég hefði þekkt hann alla tíð þegar ég komst 17 ára gamall til Sigló á síld og reifst við Jóhann um pólitík í kaffítímanum í síldar- bræðslunni. Þá var ég bolsi en hann vinstrikrati. Seinna þegr ég fór að koma til funda á Siglufirði fannst honum ég vera orðinn hægrikrati. Hann var alltaf sami óforbetranlegi vinstri kratinn. Var, er og verður. Ég afneita hins vegar harðlega og staðfastlega naftigift hægri kratans. Auk þess verð ég æ vinstri sinnaðri sem ég hitti og heyri Jó- hann oftar — og líka eftir því sem ég sit lengur í þessari ríkisstjóm, svona innan sviga. Vonandi verð ég orðinn eins „vinstrisinnaður" og Jóhann þegar ég verð sjötugur. Nafn Jóhanns G. Möllers er ekki bara tengt nöfnum Alþýðuflokksins og verkalýðshreyfíngarinnar. Þá kemur mér hann í hug þegar ég minnist SigluQarðar þar sem mér hefur alltaf fundist andi Jóhanns svífa yfir vötnunum. Þar er hann fæddur og fóstraður frá blautu bamsbeini og þar liggja öll hans spor. Hann er maðurinn sem talaði ekki um nauðsyn þess að útbreiða Alþýðublaðið. Hann gerði það, í eig- in persónu; það þýðir að hann fór sjálfur fótgangandi eða á hjólinu sínu til að safna áskrifendum, koma blaðinu til þeirra og rukka fyrir það. Þetta stalst hann til að gera þegar aðrir hvfldust eftir erfíði dagsins. Að loknu gagnfræðaprófí frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1934 gekk Jóhann í þjónustu Síldar- verksmiðja ríkisins á Siglufírði þar sem hann hefur unnið í meira en hálfa öld. Hann sat í stjóm SR í 12 ár, þ.a. sem varaformaður stjómar 1961—1971. Jóhann var bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á Siglufírði frá 1958—1982 og for- seti bæjarstjómar seinustu 4 árin. Nú hefur Kristján, sonur hans, leyst föður sinn af hólmi sem oddviti okkar jafnaðarmanna í bæjarstjóm Siglufjarðar. Jóhann Möller hefur gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir Alþýðuflokkinn og verkalýðs- hreyfínguna. Hann var í stjóm Verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði 1957—1963 og ritari Verkalýðsfélagsins Vöku frá 1976 tii þessa dags. Hann átti lengi sæti í flokksstjóm Alþýðuflokksins og í verkalýðsmálanefnd hans. Hann hefur verið umboðsmaður og frétta- ritari Alþýðublaðsins á Siglufirði frá ómuna tíð. Allt er þetta ævistarf en þó er hvergi nærri allt tíundað. Kristján vinur minn Möller, sonur Jóhanns og Helenu, á ekki langt að sækja íþróttaáhugann né heldur synir hans, bamungir. Jóhann Möll- er var einn af stofnendum Knatt- spymufélags Siglufjarðar og einnig lengi í stjóm Skfðafélags Siglfírð- inga. Þar að auki er Jóhann ófor- betranlegur bindindismaður. Og mesta furða hvað hann getur um- borið breyskleika okkar hinna í þeim efnum. Jóhann G. Möller á nú þegar að baki langt og farsælt ævistarf í þágu bemskuhugsjónar sinnar og heimabyggðar, sem hann ann heitu hjarta. Forsjónin hefur líka kunnað að meta hann að verðleikum því að hún hefur fært honum þá ham- ingju í einkalífi sem er óforgengi- leg. Hamingja Jóhanns heitir Hel- ena Sigtryggsdóttir frá Árskógs- strönd, væn kona og eiguleg. Hún hefur alið bónda sínum sex böm sem eru hvert öðru mannvænlegra. Þau em því umvafin bamaláni sem heitir öðrum orðum Guðsblessun. Meðan sá ættbogi er uppi er óþarfí að örvænta um aldingarð jafnaðar- stefnu í okkar hijóstuga landi — þótt hann rigni eldi og brennisteini. Fyrir hönd okkar íslenskra jafn- aðarmanna flyt ég Jóhanni G. Möll- er og konu hans, Helenu, alúðar- þökk fyrir ómetanlegt starf í þágu hugsjónar, málstaðar og hreyfíngar í meira en hálfa öld. Það starf var ekki til einskis unnið og mun þó bera ríkulegan ávöxt í framtíðinni. Þannig munum við eða niðjar okkar að lokum uppskera eins og til var sáð. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. Það er mikið um að vera hjá Sigl- fírðingum þessa dagana. Fyrst verður kaupstaðurinn sjötíu ára og síðan, réttri viku seinna, einn af hans mætustu og litríkustu borgur- um, Jóhann Georg Möller. Þeir hafa því fylgst að, kaupstaðurinn og Jóhann. Saga þeirra er samofín í sterkum vef, en Jóhann fæddist á Siglufírði þ. 27. maí 1918 sem flórði af átta systkinum. Foreldrar hans voru hjónin Christian Ludwig Möll- er, lögregluþjónn, og frænka mín, Jóna Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir. Jóhann er einn af hinum sönnu Siglfírðingum, sem tekur þátt í mannlífínu af lífí og sál. Og þegar dugnaður og samviskusemi fara saman með eldmóði og áhuga, þá fer ekki hjá því að mikið liggi eft- ir, þótt áhugamálin hafí verið mörg. Jóhann tók virkan þátt í íþróttum á sínum yngri árum. Hann var einn af stofnendum Knattspymufélags Siglufjarðar og sat lengi í stjóm skíðafélagsins. Það var á þessum vettvangi, sem ég kynntist Jóhanni fyrst. Nokkur deyfð hafði ríkt í málefnum K.S. seinni hluta sjötta áratugarins, þrátt fyrir mikinn fjölda áhuga- samra unglinga. Er við unglingam- ir leituðum eftir reyndari mönnum til að leiða félagið var Jóhann boð- inn og búinn. Undir forystu Jóhanns var lagður gmndvöllurinn að þróttmiklu unglingastarfi sem leiddi fyrst í stað til sigurs á Norðurlanda- móti 1961, sem kveikti þann neista sem félagið hefur æ síðan búið að. En Jóhann á sér fleiri áhugamál á sviði íþróttanna, því hann er í hópi liðtækari bridge-spilara Sigl- fírðinga, en þaðan hafa komið margir snjallir kappar í þeirri grein. Það hæfír í þessu sambandi að geta þess, að Jóhann hefur alla tíð verið stakur bindindismaður á áfengi og tekið virkan þátt í barátt- Suður-Afríka: Ringnlreið og múlbundin þjóð Reuter Fjöldagöngur eru nú bannaðar í Suður-Afríku og hafa því svertingj- ar gripið til þess ráðs að mála slagorð á veggi. eftirAnthony H. Heard SUÐUR-Afríka er orðin að landi múlbundinna manna og mikillar ringulreiðar. Þaggað hefur verið niður í fjölmiðlum, sem áður höfðu látið mikið að sér kveða, og stjómarandstæðingar utan þingsins hafa einnig verið mýldir. Margt það sem gerist á svæðum blökkumanna er aðeins á vitorði þeirra sem þar búa. Neyðarlög stjómarinnar hafa náð tilgangi sínum, óháð upplýsingamiðlun milli Suður-Afríkumanna og ann- arra þjóða heimsins hefur verið stöðvuð. Opinberar tölur fela það sem er að gerast. Fréttir berast af mannfalli hér og þar, en lítið er um að málin séu kmfin til mergjar. Æ minni upplýsingar eru gefnar um viðskiptasambönd Suður-Afríku við önnur ríki, því leynd er nauðsyn- leg þegar sneitt er hjá refsiaðgerð- um. Stjómin er meira að segja hætt að gefa upp helstu tölur um við- skipti sem tengd eru ferðamönnum. Sýna dómsvaldinu óvirðingu Hengingardómar hafa aldrei verið eins margir og nú, og sumir þeirra eru fyrir glæpi tengda stjómmálum. Langvinn og ijárfrek réttarhöld í landráða- og hryðjuverkamálum hafa staðið allt á þriðja ár, og þau eru kostuð af almannafé. Ekki er óalgengt að sjá á vegum úthverf- anna lögreglubfla ásamt miklu fylgdarliði að flytja fanga sem ákærðir hafa verið fyrir hryðjuverk úr fangelsi í dómsal, sem minnir okkur óneitanlega á hvemig Suður- Afríka er í raun og veru orðin á mesta umferðartímanum á morgn- ana. Menn sem hafa verið ákærðir af stjómmálaástæðum sýna dóms- valdinu óvirðingu og trufla réttar- höld með því að syngja slagorð — og nokkrir hafa verið dæmdir fyrir að óvirða dóminn. Litríkt penslastríð Álíka viðnám má sjá í slagorðum sem máluð hafa verið á veggi. Þar er þess meðal annars krafíst að dóm- ar yfír Sharpeville-föngunum sex, sem dæmdir voru til dauða fyrir morð af stjómmálaástæðum, verði mildaðir. Svör við slíkum slagorðum eru einnig máluð á veggi. Eftirfar- andi var til að mynda málað með rauðu á vegg skammt frá heimili mínu nýlega: „Albie Sachs, einhenti glæpamaðurinn hjá Afríska þjóðar- ráðinu." Hér er átt við fyrrum Iög- fræðing í Höfðaborg og hugmynda- fræðing Afríska þjóðarráðsins sem missti aðra höndina í bílsprengingu í Maputo, höfuðborg Mósambíks. Lögreglan nær sumum vinstrisinn- uðu veggjamálurunum (og fangelsar þá ) en yfírvöldunum virðist lítt umhugað að ná þeim hægrisinnuðu. Á meðan hafa aðrir málarar nægan starfa: borgarstarfsmenn eru fengn- ir til að mála yfír slagorðin með hvítu eða bleiku í þessu litríka pensl- astríði. Fréttir um ólgu meðal lands- manna eru fátíðar. Til að mynda er almenningi fátt annað sagt en að litir nemendur mæti ekki í skólann á Höfðaskaga, og að lögreglan hafí haft afskipti af málinu. Enn vita landsmenn lítið um ástandið í Nat- al-héraði, þar sem hvítir menn eyða frídögunum í heitu loftslagi, en þar deyr að meðaltali einn svertingi á degi hverjum í bardögum andstæðra pólitískra fylkinga. Verkalýðsfélögin skipuleggja enn verkföll, halda upp á 1. maí, beita vinnuveitendur og hvítu stjómvöldin þrýstingi — en ríkisstjómin heftir látið handtaka leiðtoga þeirra og er að undirbúa lög sem draga eiga úr áhrifum þeirra í atvinnulífínu. I raun er útséð um að hægt sé að efna til fjöldafunda, því fjöldasamkomur úti við eru bannaðar með lögum. Hryðjuverkum fjölgar Fjöldaóeirðirnar sem áttu sér stað um allt landið í þijú ár frá 1984 eru í rénun að því er virðist, en samt hafa neyðarlög stjómarinnar ekki verið afnumin. Gremja suður-afrí- skra svertingja er söm og starfsemi hryðjuverkamanna heldur áfram. Æ fleiri borgarar og andófsmenn sær- ast í sprengingum, jafnt í Suður- Afríku sem í nágrannaríkjunum og ber það vitni um að hvítir og svartir takist enn á um völdin. Þar sem löglegt andóf hefur verið takmarkað og ftöldaaðgerðir bann- aðar, fjölgar liklega tilgangslausum hryðjuverkum þegar hinar stríðandi fylkingar hafa jafnað sig og safnað liði. Bílsprengingin í Maputo, þar sem Albie Sachs særðist, er aðeins fyrirboði og vekur ugg um að suður- afrískar dauðasveitir eigi eftir að valda usla langt fyrir utan landa- mæri Suður-Afríku. Þegar ég er á ferð um Höfðaborg blasa við mér ummerki eftir bílsprengingar eða önnur hryðju- verk. Nýlega sá ég slík ummerki við lögregluskála nálægt Malan-flug- velli. Slíkt vekur menn til umhugsun- ar. Aform stjórnarinnar í kynþáttamálum Ekki hefur enn verið hafist handa við það mikla verkefni að koma á sáttum milli kynþáttanna, sem væru samkvæmar stjómarskránni. Stjóm- in þreifar sig áfram af varkámi í endalausum viðræðum um nýja stjómskipan. Nú ber svo við að svert- ingjar, sem áður var neitað um pólitísk völd, fá að vissu marki að deila framkvæmdavaldinu með hvítum, en þeir geta ekki beitt sam- anlögðum atkvæðum sínum til að koma á veigamiklum breytingum. Helstu leiðtogar blökkumanna em efins um eða andsnúnir áformum stjómarinnar. Desmond Tutu erki- biskup segir að með þeim sé ætlunin „að blekkja aðrar þjóðir, fá þær til að halda að ástandið sé að breyt- ast“. Botha forseti kennir þrýstingi erlendis frá um hversu ósamvinnu- þýðir suður-afrískir svertingjar em, frekar en að leita skýringa í eigin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.