Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 45 Minningarorð: Aðalheiður S. Sigurðardóttir Fædd 3. ágúst 1903 Dáin 16. maí 1988 að bróðir minn og hún væru aldrei sérstaklega fátæk, eins og sumt fólk var á Islandi, sem hóf búskap á kreppuárunum fyrir síðustu heimsstyrjöld. Vissulega voru þau ekki rík af veraldar gæðum, en þeim mun ríkari af þeirri hjarta- hlýju, sem þarf til að laða að sér ungviði og aðra þá, sem hennar þurfa að njóta. En árin líða og kynslóðir koma og fara, fólkinu í Löndum hefur fækkað eins og svo víða á lands- byggðinni. Nú eru ekki lengur bát- ar í fjöru í Löndum eins og var í tíð Kristjáns og föður míns og afa. Þau Aðalheiður og Kristján fluttu frá Löndum haustið 1958 og fóru til Reykjavíkur. Þau eignuðust hlý- legt og notalegt heimili, fyrst í Njörvasundi og síðar á Kleppsveg- inum. Þau aðlöguðust fljótt nýjum og breyttum staðháttum, en oft leit- aði hugur þeirra austur á bóginn, þar sem þau höfðu tekist á við öðruvísi lífsbaráttu en höfuðborg- arlífið er. Sitthvað var sem minnti á gamlar slóðir undir klettunum við hið ysta haf. Á vegg í íbúðinni var málverk af Löndum og á skrifborði var mynd af gamla bátnum Fram- fara á Landabótinni, þar sem Krist- ján stóð sjógallaður við stýri. Þetta yfirbragð og alúð þeirra hjóna lað- aði að. Oft átti ég og fjölskylda mín leið til þeirra á Kleppsveginn og nú síðustu árin til Aðalheiðar. Alltaf var okkur vel tekið eins og í gamla daga, þá er ég hljóp yfir túnið út í Hús. Ávallt var Aðal- heiður veitandinn, jákvæð og bjart- sýn. í hennar fari sannaðist að sælla er að gefa en þiggja. Góð- mennskan geislaði af henni. Fyrir þetta allt þökkum við kærri mágkonu nú við þessi leiðarlok. Það er trúa mín, að Kristján sé viðbúinn með gamla bátinn sinn, svo að þau geti siglt saman á eilífðarsænum. Eg bið Drottin að beina fari hjón- anna fram hjá röstunum inn á ör- uggan sjó hinnar miklu sköpunar og eilífa lífsins, þar sem Drottinn sjálfur stendur við stjómvölinn á lífsfarinu mikla frá upphafi til loka- takmarksins. Einar Þ. Þorsteinsson í dag fylgjum við tengdamóður minni, Aðalheiði Sigríði Sigurðar- dóttur, til hinstu hvíldar. Margt kemur í hugann á slíkum stundum. Efst er þakklætið fyrir að fá að eiga hana að. Hún fæddist á Urðarteigi í Beru- firði 3. ágúst 1903. Bærinn stendur í einu hrikalegasta bæjarstæði sem sést. I fljótu bragði virðist þar að- eins vera stórgrýtisurð. En hann stendur undir einu tignarlegasta fjalli landsins, Búlandstindi. Trú- lega hefur Aðalheiður lært að meta fegurð landsins þar. 29. maí 1926 giftist hún Krist- jáni Þorsteinssyni og bjuggu þau í Löndum, Stöðvarfírði, til ársins 1957, er þau fluttu til Reykjavíkur. Þau eignuðust 4 böm, sem öll em á lífí. Afkomendur þeirra em nú 32. Kristján lést árið 1977. Aðalheiður hafði unun af að ferð- ast um landið og mátti þá helst ekki missa af neinu. Að öllu varð að dást. A.m.k. tvisvar fór hún sjó- leiðina kringum landið með manni sínum. Mér fínnst ég enn heyra hana segja: „Oh, fjöllin vom svo falleg.“ Gengi maður með henni úti í náttúmnni, varð hvert blóm og gras að aðdáunarefni og hún vissi nöfn á flestu. Að ég nú ekki tali um áhuga hennar á fallegum stein- um, Hún átti talsvert safn, sem prýddi heimili hennar. Hún las mikið og þá helst eitt- hvað fróðlegt, enda vel heima um menn og málefni. Þó hún nyti ekki mikillar menntunar, miðað við það sem nú gerist, var hún menntaðri bæði í háttum og tali en margur langskólagenginn. Aldrei varð henni t.d. á stafsetningarvilla. Slík var tilfínning hennar fyrir málinu. Yfír heimili hennar hvíldi friður og gleði og öll bamabömin löðuð- ust að henni. Hún var þeim ómetan- leg amma. Hennar ánægja var að gleðja þau og aðra. Sárlasin útbjó hún að vanda handa þeim og okkur öllum jólapakka sl. jól. Mest var það mjög smekkleg handavinna hennar sjálfrar. Hún var falleg kona og vakti athygli uppábúin í íslenska bún- ingnum sínum og möttlinum. Að leikslokum stendur eftir í hugum okkar yndisleg kona, sem stóð á bak við fjölskyldu sína alltaf Kristín Hjartar- dóttir — Minning Fyrir hálfum öðrum áratug kynntist ég ágætum hjónum hér í borg, nánast af tilviljun. Bjuggu þau á Kleppsvegi 118, bæði Aust- firðingar, fædd þar og uppalin. Nú er hann látinn fyrir ellefu árum, en hún skildi við hinn 16. þessa mánað- ar, tæplega hálfníræð að aldri. Aðalheiður Sigríður var hún nefnd í skírninni. Foreldrar hennar bjuggu allan sinn búskap að Urðar- teigi í Berufírði, skammt frá Djúpa- vogi, en þau voru Sigurður Berg- sveinsson og Sigríður Helgadóttir. Sigurður var annáluð skytta og öndvegis sjómaður. Faðir hans hafði sömu eigindir til að bera. Þá voru synir Sigurðar, bræður Aðalheiðar, góðir sjósóknarar og skyttur. Á Urðarteigi er gróðurlendi mjög af skomum skammti. Varð því að reiða sig á sjóinn sér til lífsbjargar. Aðalheiður var þriðja bam for- eldra sinna, en alls fæddust þeim níu böm. Eru nú aðeins tvö á lífi, eftir að Aðalheiður er öll, en þau em Hansína og Gunnar. Þau sem látin eru, auk Aðal- heiðar, vom: Helgi, bóndi á Krossi á Bemfjarðarströnd; Ragnar, verkamaður í Keflavík; Skúli, bóndi á Urðarteigi; Guðrún, dó ung; Guð- laug, húsfreyja á Djúpavogi, og Unnur, húsfreyja á Litla-Hólmi í Leiru. Og lífið heldur áfram. Hinn 29. maí 1926 giftist Aðalheiður, þá rúmlega tvítug, Kristjáni Þorsteins- syni frá Löndum í Stöðvarfirði. Var hann sonur bóndans þar á einu býlinu (þríbýli er á Löndum), Þor- steins Kristjánssonar og Guðlaugar Guttormsdóttur prests í Stöð Vig- fússonar konu hans. Hófu þau þeg- ar búskap á Löndum. Kristján stundaði raunar sjó svo til ein- göngu. Var hann duglegur og afla- sæll sjósóknari. Aflann verkaði hann með aðstoð íjölskyldu sinnar. Þá var saltfiskurinn þurrkaður, áð- ur en hann gat talist söluhæf vara. Góð skilyrði vom til fiskþurrkunar á Löndum, þar sem grófgerð möl er rétt við flæðarmálið. Eftir að frystihús var reist á Stöðvarfirði lagði Kristján inn físk sinn þar. Tveir synir Kristjáns rém með föð- ur sínum strax og aldur leyfði. En mikið erfiði þola menn ekki þegar aldur fer að færast yfír. Upp úr fímmtugu vom kraftar Kristjáns teknir að bila, og Aðalheiður ekki heilsusterk þá. Varð þá að ráði að flytjast burt af jörðinni og setjast að í höfuðstaðnum. Kristján fékk vinnu hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Vann hann þar þar til sjö- tugsaldri var náð. Ekki lifði hann lengi eftir það, tók banvænan sjúk- dóm og leið miklar þjáningar áður en dauðinn batt enda á þær. Hann andaðist 19. apríl 1977, en fæddur var hann 19. febrúar 1905. Átti þetta ekki að vera minning- argrein helguð henni Aðalheiði? Jú, vissulega, en þar sem Kristján var lífsfömnautur hennar um hálfa öld, gat ekki hjá því farið að hans væri einnig getið í þessum minningarorð- um. Heimili þeirra á Kleppsvegi 118 var hlýlegt. Kristján var bókamaður og las mikið. Hún var iðin við handavinnu, pijónaði á alla fjöl- skyldumeðlimina til hins síðasta eða meðan heilsa og þróttur leyfði. Sem betur fór, var Aðalheiður ekki las- burða lengi, áður en dauðinn barði að dymm. Um ársbil. Við hjón litum inn til Aðalheiðar einstöku sinnum eftir að hún var orðin ein í snotm íbúðinni sinni. Hún var svo glöð og hress, að öllum hlaut að líða vel í návist hennar. Hún naut þess að lifa. Og hún var ánægð með hið liðna. Hún eignaðist ágætan eigin- mann og efnileg böm, sem reynd- ust henni vel. Þegar Kristján var allur skrifaði ég stutta minningar- grein um hann í blöðin. Þá var Aðalheiður enn hin hressasta til heilsu. Og alltaf var hún lagleg kona. Aldurinn breytti henni undra lítið. Og ég held, að hin létta lund hennar hafi átt þar ríkan þátt. Böm Aðalheiðar og Kristjáns em öll búsett á Reykjavíkursvæðinu. Þau em Þorsteinn, Guðrún, Sigurð- ur og Brynhildur. í huga mínum geymi ég bjarta mynd af henni Aðalheiði frá Urðar- teigi, eða á kannski að telja hana frá Löndum? Það skiptir ekki miklu máli. Nú er hún komin heim eftir langa og farsæla ferð. Lífið var henni gjöfult, hún skilur eftir sig mæta niðja, og það sem mest er um vert: þakklæti í hugum þeirra sem henni kynntust. Við hjónin sendum aðstandend- um hinnar látnu sómakonu innileg- ar samúðarkveðjur. Fari hún í friði, friður Guðs hana blessi. Auðunn Bragi Sveinsson Einn af minnstu Austfjörðunum er Stöðvarfjörður. Yst við fjörðinn að austan til em bæimir í Löndum. Þeir standa undir allháum kletta- brúnum, sem liggja í sveig fyrir ofan bæina. í brekkunum neðan við klettana vaxa á summm margar fallegar blómjurtir eins og blá- klukka og blágresi. Landatangi skerst út í fjörðinn til suðurs. Þar út og suður af em rastir, en í hléi við tangann inni á Landabótinni er mjög gott bátalægi og uppsátur í fjöm. Þaðan vom oft margir bátar gerðir út fyrr á áram. Þegar ég var strákur að alast upp í þessu áhrifamikla umhverfí bjuggu bróðir minn Kristján, Aðal- heiður kona hans og böm þeirra, Þorsteinn, Guðrún, Sigurður og Brynhildur í Mið-Löndum. Sam- skipti mín við þau vom dagleg. Ég átti margar ferðimar yfír túnið út í Hús ýmissa erinda, svo sem til að spjalla saman, fá lánaðar bæk- ur, hlusta á útvarp, eða jafnvel til að leika leikrit með frændsystkinum mínum, sem við settum á svið í stofunni hjá þeim bróður mínum og mágkonu. Ég man svo vel að Aðalheiður hvatti okkur þetta varð- andi og sagði að lokinni sýningu: „Þið stóðuð ykkur vel, krakkar rnínir." Þannig var Áðalheiður skilningsrík við alla og ekki síst við unglingana, sem í návist hennar vom. Nú er hún lögð upp í ferðina miklu, á Drottins fund. Þar siglir hún sæinn með manni sínum Krist- jáni í gamla bátnum hans, Fram- fara, eins og hún gerði stundum er þau bjuggu í Löndum. Reyndar var það fremur hennar mikilvæga hlutverk, eins og svo margra annarra íslenskra kvenna, að sjá um hlutina í landi, þegar eiginmaðurinn var á sjó. I því efni var Aðalheiður eins og klettur úr hafínu. Hún bjó fólki sínu mjög svo notalegt heimili, eiginmanni, börn- um og sjómönnum, sem vom á bátnum með Kristjáni. Aðalheiður hafði frá bamæsku kynnst lífinu við sjóinn, því hún var fædd og uppalin í Urðarteigi við Berafjörð. Hún féll því vel inn í það hlutverk, sem hún hafði á hendi í Löndum. Það var notalegt fyrir sjómennina ■A Landabátnum Framfara, sem oft s.tigu krappan dans við öldur ægis við hin austustu nes, að eiga í vænd- um hlýjar móttökur húsfreyjunnar í Mið-Löndum. En slíkt var Aðal- heiði eðlilegt, því að hún var mynd- arhúsmóðir í matseld og sauma- skap, og prýddi heimilið með blóm- um, sumum úr Landabrekkunum. Hún vildi að allir hlutir væm í sem bestu lagi, eftir því sem efni og aðstæður leyfðu. Mér er óhætt að segja, að hún kunni þá list að gera mikið úr stundum litlum efnum. Þó í dag kveðjum við með söknuði mömmu, ömmu og langömmu okk- ar elskulegu. Það er erfítt að trúa því að hún sé horfin okkur. Huggun okkar er sú, að hún er komin til Guðs og fylgist með okkur, því það mun hún gera. Hennar líf var að hugsa um og hlynna að mér og bamabömunum, sem hún elskaði og var svo góð við. Alltaf var hún komin til okkar ef eitthvað amaði að. Þegar barnabörnin fæddust var hún alltaf tilbúin að taka að sér heimilið og hjálpa til. Móðir mín fæddist að Kjarlaks- völlum í Saurbæ, Dalasýslu og var elst af níu systkinum. Foreldrar hennar vom Sigurlín Benedikts- dóttir og Hjörtur Jensson. Nú em fímm systkinanna eftirlifandi. Þann 15. nóvember 1952 giftist mamma Víglundi Gíslasyni, hinum ágætasta manni, og reyndist hann mér sem besti faðir. Víglundur starfaði sem bólstrari í Trésmiðj- unni Víði þar til hann varð að hætta vegna veikinda sem ágerðust og drógu hann til dauða 28. mars 1977. Það vom erfið ár hjá mömmu, en hún tók því mótlæti með sinni alkunnu ró. Bein í baki og æðmlaus annaðist hún hann þar til yfir lauk. Hún var fædd til að fórna sér og fannst hún aldrei gera nóg fyrir aðra. Til okkar kom hún vestur á fírði til að hjálpa, þegar fjórða barn- ið mitt fæddist, þótt um hávetur væri, og stóð brosandi í dyranum og umfaðmaði mig og börnin. Við munum alla tíð minnast hlýju henn- ar og huggunarríkra orða og mjúku handanna. Sárt er að sjá á bak henni. Þó að árin væm orðin tæp áttatíu og tvö var hugsunin óskert og fylgdist hún með öllu sem gerð- ist í kringum sig. Það er yndislegt að muna hana eins og hún var þeg- ar við komum til hennar í heimsókn síðasta daginn og hún veifaði okkur brosandi. Við kveðjum elsku mömmu, glaðleg, blíð og full af umhyggju fyrir okkur öllum. Fyrir það þökkum við í dag. Hvíli hún í friði. Jonína Eiríksdóttir Árið 1954 varð mikil breyting hjá okkur hjónum, en þá fluttumst við frá Selfossi austur á Stöðvar- fjörð. Þetta vom mikil umskipti en fólkið tók okkur vel og eftir þau ár sem við áttum heima á Stöðvar- firði eignuðumst við marga góða vini. Meðal þeirra vom hjónin Aðal- heiður og Kristján í Löndum. Ég minnist þess að fljótlega eftir að við komum austur, buðu þau okkur heim einn sunnudag að Löndum, fræddu okkur um byggðarlagið og sýndu okkur vitann. Þau hjón höfðu það sameiginlegt að segja mjög skemmtilega frá og framkoma þeirra öll hafði þau áhrif að maður hlakkaði alltaf til að hitta þau. Ég minnist þess líka hvað ég saknaði þeirra hjóna er þau fluttu frá Stöðv- arfírði til Reykjavíkur, en þó þau bæm mikla tryggð til byggðarlags- ins var þráin til að vera með bömum sínum yfirsterkari, en þau vom öll flutt til Reykjavíkur. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur endumýjuð- um við kunningsskap okkar og var það meðal annars vegna þess að þá kynntumst við Guðrúnu dóttur þeirra og tengdasyni, Bent Jörgen- sen, sem em okkar bestu heimili- svinir. Aðalheiður var sú persóna sem ekki gleymist þeim er hana þekktu. Hún hafði sínar ákveðnu skoðanir á mönnum og málefnum og var ekkert að dylja þær, en var jafn laus við að troða þeim á aðra sem sýndist annað. Aldurinn bar Aðal- heiður sérstaklega vel og þó hún næði háum aldri varð hún aldrei gömul. Ég sagði oft við Aðalheiði að hún væri aðal stofuprýðin á heimilinu, og hún tók þessu alltaf vel eins og öðm spjalli okkar. Hjónaband þeirra Aðalheiðar og Kristjáns var allt til mikillar fyrir- myndar og hafði alla tíð mikil áhrif á þá sem umgengust þau. Þau unnu bömum sínum og öllum afkomend- um og með hlýju sinni og um- hyggju fengu þau það margfalt endurgoldið frá þeim. Kristján, maður Aðalheiðar, lést 1977 og var það henni mikill missir, en bömin gerðu allt það sem þau gátu til að bæta henni söknuðinn. Og í veikind- um hennar undir það síðasta dvaldi hún oft hjá Guðrúnu og Bent og var til mikillar fyriryndar hvað þau lögðu sig fram um að létta henni síðasta lífsspölinn. Við hjónin þökkum Aðalheiði samfylgdina og vottum aðstandend- um hennar innilega samúð. Sigurður G. Guðjónsson ömmu og langömmu. Megi Guð veita henni hvíld. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans, heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (Vald. Briem.) Ellý, Stína, Villi, Olga, Kiddi, Sigga og Ellý litla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.