Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 35 har-Broil verksmiðjurnar sem fundu upp útigasgrillið kynna í dag mestu framför í 30 ár, þ.e. Char-Broil gasgrillkolin. ■ í stað þess að nota hraunmola, eru notuð sérstök viðarkol, sem gefa “ekta viðarkolabragð“ í allt að 10 klst. þ.e. 10 - 20 grillskipti. Eftir það nýtast þau eins og steinar eða hraun, en einnig má skipta þeim út fyrir ný. Char-Broil Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 -©91-691600 Til sölu 18feta skúta Ingi Garðar Sigurðsson tilraunastjóri: Lítið vantar upp á að Reykhólabúið beri sig Almenn óánægja heimamanna með áætlanir RALA um að hætta tilraunum í sauðfjárrækt á Reykhólum Mótmæli hreppsnefnd ar Reykhólahrepps Samkvæmt ' upplýsingum frá Reyni Reinhard Reynissyni, sveitar- stjóra á Reykhólum', hélt sveitar- stjómin fund á uppstigningardag og var þá samþykkt um Tilrauna- stöðina gerð og hún send RALA. Þar segir meðal annars að stefna RALA í byggða- og ræktunarmál- um sé röng. Bent var á að svæðið hér væri ósýkt og hægt væri þess vegna að flytja lömb hvert á land sem væri. I Tilraunastöðinni væri verið að gera mikilvægar tilraunir til þess að auka ullarmagn og ullar- gæði og ef til vill væri hægt með tíð og tíma að losa ullarinnflytjend- ur við ullarinnflutning á hreinhvitri ull. Til skýringar vill fréttaritari taka það fram að gula illhæru ullin er kölluð manna á milli hvít ull og því er orðið hreinhvít ull notað til að- greiningar. Hreppsnefnd Reykhólahrepps hefur trú á því að ullariðnaður rísi fljótlega úr öskustó. Eru gærurnar auðuppspretta? Að lokum hafði fréttaritari sam- band við Jón H. Sveinsson, en hann hefur stundað nám í markaðsfræði í Bandaríkjunum, og bað hann að segja frá sínum viðhorfum: Lambskinn er vinsælt hráefni í tískuflíkur nútímans sem best sést á því að hönnuður sem Yves St. Laurent gerir dragtir úr því, sem hann selur á jafnvirði 200 þúsunda- íslenskra króna. Loðkápur úr sérlituðu lambskinni seljast á 10 til 40 þúsund krónur. Þetta verð er reiknað eftir verði sem gefið er upp í auglýsingum í The New York Times. Flekkóttar gærur eru jafnvel notaðar líka. Þá helst í jakka og stígvél. Ferðatöskur og skjalatösk- ur úr skinni eru ætíð vinsælar. ítalir eru leiðandi í hönnun fatn- aðar og fylgihluta úr skinni, en Suður-Kóreumenn hafa náð mark- aðshlutdeild og eru þekktir fyrir dýran og vandaðan vaming og kröftuga sölumennsku. Oflun sérþekkingar, rannsóknir og vöruþróun ásamt góðri hönnun og markaðssetningu gætu skapað íslenskum skinnavörum framtíð á sömu mörkuðum og Kóreumenn nýta með milljarða hagnaði, sagði Jón. Sveinn Guðmundsson EINA GASGRILLIÐ MEÐ GAMLA GÓÐA GRILLBRAGÐINU .Vönduð og vel með farin. Trausturog góður siglari. - Lyftikjölur. Mótorog vagnfylgja. Verðkr. 550.000,- S. 91 -656401. Miðhúsum, Reykhólasveit. í Morgunblaðinu kom nýlega fram að RALA (Rannsóknastofn- un landbúnaðarins) ætlaði nú að spara og ríkið hætti að reka til- raunabúið í sauðfjárrækt á Reyk- hólum, en þar hefur verið ræktað hreinhvítt fé í meira en aldar- fjórðung. í samtali við tilraunastjórann, Inga Garðar Sigurðsson, kom fram meðal annars að meðalvigt á dilkum er um 16 kg, sem er heldur meira en þyngd sú sem talið er hæfa best markaðinum í dag. Ullarmagn er af hverri kind að meðaltali yfir þijú kg og það af hreinhvítri úrvals ull og það er langt yfir meðaltali. Heildartekjur af tilraunabúinu 1978 voru um 1.600 þúsund og því þarf ekki miklu fjármagni við að bæta svo búið beri sig fjárhagslega. Þar sem RALA hefur ákveðið að láta reka áfram tilraunir í grasrækt að minnsta kosti þetta árið þá spurði fréttaritari hvort grasrækt og tilraunabú i sauðfjárrækt færi ekki saman. Ingi sagði að vinnuafl nýttist oft mjög vel þegar hægt væri að fara á milli tilraunagreina og nær ógemingur væri að skera úr um það hver gjöldin væm á hvorri grein fyrir sig. Fréttaritari hefur einnig kannað hag nokkurra manna til málsins og kom fram almenn óánægja með fyrirætlanir um að leggja niður til- raunir í sauðfjárrækt á Reykhólum. Samþykkt Búnaðarsambands Vestfjarða Valdimar Gíslason, Mýrum í Dýrafirði, formaður Búnaðarsam- bandsins, sagði að ekki væri búið að halda aðalfund sambandsins í ár og ynni stjómin eftir samþykkt frá aðalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða sem haldinn var á Reyk- hólum 2. og 3. júlí 1978. Sam- þykktin var á þessa leið: Fundurinn beinir því til stjórn- valda að tryggja framtíðarrekstur Tilraunarstöðvarinnar á Reykhól- um. Fundurinn bendir á að „Stöð- inni“ er haldið í fjársvelti miðað við aðrar hliðstæðar stofnanir í landinu. Vestfirskar byggðir mega þó síst við því að lögð sé niður starfsemi sem búið er að byggja þar upp. Fundurinn telur að Tilraunastöðin á Reykhólum geti framvegis sem hingað til gegnt þýðingarmiklu hlutverki fyrir vestfirskan land- búnað og átelur þá þróun að rann- sóknarstarfsemi sem í gangi er í landbúnaði sé lögð niður út á landi, en efld að sama skapi á Reykjavíkursvæðinu. Valdimar sagði að þetta mál yrði tekið upp á aðalfundi Búnaðarsam- bands Vestfjarða sem haldinn verð- ur að Núpi í Dýrafirði í sumar. Öllum grillunum fylgir: * Emaljeruð grillgrind. * Gler á loki * Vinnuborð til hliðar og að framan * Hitamælir í gleri (dýrari gerðir) * Upphækkuð grillgrind fyrir kartöflur og grænmeti * Gaskútur * Góðar leiðbeiningar Verð á CHAR-BROIL frá: 12.900.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.