Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDÁGUR' 2T. MAÍ 1988 Málþing um meðvitimd Varmahliðarskóli i Skagafirði. Morgunblaðið/Páll Dagbjartsson Varmahlíðarskóla slitið: SJÖUNDA norræna heimspekimálþingið verður sett á morgun, laug- ardaginn 28. mai, að Hótel Loftleiðum og stendur það fram til 31. mai. Viðfangsefni þessa málþings er meðvitundin. Fimmtán erindi verða flutt og eru flestir fyrirlesaranna frá Norðurlöndum. Mál- þingið fer fram á þremur stöðum: Hótel Loftleiðum, Hótel Valhöll á Þingvöllum og Norræna húsinu. Norræna heimspekimálþingið er skóli íslands og Norræna húsið haldið undir handatjaðri Samnorr- ænu heimspekistofnunarinnar. Stofnunin var sett á laggimar árið 1979 og fyrsta þing haldið í Kaup- mannahöfn það ár. Síðan hefur samnorrænt heimspekimálþing ver- ið haldið á öllum Norðurlöndunum og var fyrsta stóra þingið haldið í Reykjavík árið 1980. Þá var við- fangsefnið „Skilningur". Nú er röð- in aftur komin að íslandi. Félag áhugamanna um heimspeki, Há- Fékk 10 í sjö námsgreinum Varmahlíð. VARMAHLÍÐARSKÓLA var sUt- ið með formlegri athöfn í skólan- um hinn 14. maí sl. í skólanum í vetur voru 139 nemendur við nám í 7 bekkjardeildum. Þar af dvöldu 55 á heimavist, en Varma- hlíðarskóU er nú eini heimavist- argrunnskólinn á Norðurlandi vestra. 28 nemendur luku námi upp úr 9. bekk og afhenti skólastjóri þeim rós um leið og þau tóku við ein- kunnabókum sínum. Hefur þetta verið fastur siður um margra ára skeið og gefur vissulega útskrift 9. bekkinga svolítið hátíðlegan svip. Við skólaslitin voru afhentar við- urkenningar fyrir góðan náms- árangur, svo sem venja hefur verið. Jóhanna Siguijónsdóttir frá Geld- ingaholti fékk sérstaka viðurkenn- ingu fyrir frábæran námsárangur í 9. bekk, en hún fékk einkunnina 10 í 7 námsgreinum, sem er einsdæmi við skólann og jafnvel þótt vfðar væri leitað. Þá var úthlutað viður- kenningu úr Minningarsjóði Aðal- heiðar Erlu Gunnarsdóttur fyrir ástund og árangur i móðurmáls- fræðum. Viðurkenningu þá hlaut að þessu sinni Sólveig Olga Sigurð- ardóttir, Sjávarborg. Nýstofnaður Lionsklúbbur hér í framhéraði veitti sérstaka viðurkenningu í þijá skóla í vor á starfssvæðinu. Viðurkenn- ingin er veitt þeim nemum sem sýna sérstaka færni og næmleik í meðferð íslensks máls. Með þessu vilja Lionsmenn leggja áherslu á hve mikilvægt það er að allir sem einn leggi sig fram um varðveislu íslensk máls og þar duga skólamir ekki einir sér og óstuddir. Við Varmahlíðarskóla er nú unn- ið að byggingu búningsklefa við sundlaugina og er sú framkvæmd öll orðin meira en tímabær þar sem gömlu klefamir eru því sem næst ónýtir. Ekki kemst samt byggingin í not á þessu ári en stefnt á næsta vor. Þá er því ekki að leyna að margir eru orðnir langeygir eftir að íþróttasalur verði byggður en telja verður að slík aðstaða, sem íþróttasalur gefur, sé eitt af því bráðnauðsynlegasta sem þarf að vera fyrir hendi þar sem rekinn er heimavistarskóli. - P.D. Náttúruvernd: Vinnuferð til Krýsuvíkur Sjálfboðaliðasamtök um nátt- úruvemd hefja þriðja starfssum- ar sitt á morgun, laugardag, með vinnuferð til Krýsuvikur. Þar verður unnið að endurbótum og viðhaldi á trépöllum sem lagðir voru um hverasvæðið og lokið verður við gerð hringleiðar um svæðið. Unnið er í samvinnu við Reykjanes- fólkvang. Lagt verður upp í ferðina frá Umferðarmiðstöðinni vestanverðri klukkan 9 á laugardagsmorgun og er áætluð heimkoma um klukkan 19. Á heimleið verður farið um Svartsengi og höfð viðdvöl við Bláa lónið þar sem sjálfboðaliðunum gefst færi á að skola af sér rykið. # # SKOUTSALA Leðurbarnaskór kr. Leðurkvenskór kr. 790,- 790,- Mikið úrval af nýjum sumarvörum s.s. T-bolum, H-bolum, pilsum, peysum, barnabuxum o.fl. o.fl. á okkar landsfræga lága verði. Opiðtil kl. 16 laugardaga Laugavegi91 Hringbraut 119, Keflavík Drafnarfelli 12 Smiðjuvegi 2b, Akureyri standa að málþinginu að þessu sinni. Tveir íslendingar halda erindi á málþinginu, Eyjólfur Kjalar Emils- son ræðir um meðvitund í fomöld og Stefán Snævarr sem nefnir er- indi sitt: „Intersubjectivism and Wittgensteinian Anxiety". Þekkt- astir erlendu fyrirlesaranna eru þeir Jon Hellesnes frá Tromsö- háskóla, David Lewis, prófessor í Princeton, og Jacques Taminiaux frá Louvain í Belgíu. Eins og áður segir stendur mál- þingið í fjóra daga og er öllum heim- il þátttaka. Fyrirlestramir verða fluttir á ensku. Dagskrá málþingsins er sem hér segir: Laugardaginn 28. mai á Hótel Loftleiðum: kl. 10:00 — 10:30 Málþingið sett: Páll Skúlason, Peter Kemp, Knut Ödegard kl. 10:30 — 12:00 Jon Hellesnes (Tromsö): „On The Difficulties of Being (Fully) Conscious and the Dialectics of Irony“ kl. 13:30 — 15:00 Steen Wacker- hausen (Hróarskeldu): „Conscious- ness and Artificial Intelligence" kl. 15:00 — 16:30 John Haldane (St. Andrews): „Naturalism and the Problem of Intentionality" kl. 17:00 — 18:30 Eyjólfur Kjalar Emilsson (H.í.): „Consciousness in Antiquity" Þátttakendur skrái sig fyrir kl. 10:00 og greiði 250 kr. þátttöku- gjald. Sunnudagmn 29. maí fer dag- skráin fram S Hótel Valhöll á Þingvöllum: kl. 10:30 — 12:00 Lilli Alanen (Helsinki): „Descartes’s Notion of Consciousness" kl. 15:30 — 17:00 Gunnar Svensson (Stokkhólmi): „Matter versus Cons- ciousness: The Qualia Problem" kl. 17:00 - 18:30 James Child (Bowling Green): „The Metaphysics of Software" Þátttökugjald þennan dag er 3.200 kr. og er innifalin rútuferð, hádegis- og kvöldverður. Þátttak- endur skrái sig daginn áður á Hót- el Loftleiðum. Mánudaginn 30. maí í Norræna húsinu: kl. 9:30 — 11:00 Dick Haglund (Lundi): „Intentionality as the Ess- ence of Consciousness — The Phenomenological Approach" kl. 11:00 — 12:30 Seppo Sajama (Turku): „Consciousness and Int- entionality" kl. 14:00 — 15:30 David Lewis (Princeton): „What Experience Te- aches" kl. 15:30 — 17:00 Magne Dybvig (Þrándheimi): „Consciousness, Int- entionality and Dualist Theories of Mind“ kl. 17:30 — 18:30 Stefán Snævarr (Ósló og H.í.): „Intersubjectivism and Wittgensteinian Anxiety" Þátttakendur skrái sig fyrir kl. 9:30 og greiði 250 kr. þátttöku- gjald. Þriðjudaginn 31. mai á Hótel Loftleiðum: kl. 14:00 — 15:00 Ragnar Fjelland (Tromsö): „Can Computers Make Scientific Discoveries?" kl. 15:00 — 16:30 Jacques Taminia- ux (Louvain): „Thought and Action: Meditations on Hannah Arendt" Jarðgangagerð í Ólafsfjarðarmúla; Fengum góða reynslu við Blönduvirkjun -segir Ellert Skúlason hjá Krafttaki MIKILL munur var á lægsta til- bóði í jarðgangagerð í Ólafs- fjarðarmúla og þeirrar kostnað- aráætlunar sem Vegagerð rikis- ins gerði, eða rúmar 133 milljón- ir. EUert Skúlason hjá Krafttaki, sem átti lægsta tUboðið, sagði aðspurður um ástæður þessa, að tilboðið byggði að sjálfsögðu á öUum þeim rannsóknum og mæl- ingum sem Vegagerðin hefði gert á svæðinu, en einnig hefði fengist dýrmæt reynsla við gerð þeirra jarðganga sem fyrirtækið annaðist við Blönduvirkjun. Þá kom fram hjá Ellert að Kraft- tak mun nota að hluta til sömu tæki og notuð voru við Blöndu, en einhveiju verður bætt við og sagði hann það ótvíræðan kost að hafa stórvirkar vélar við höndina og þurfa ekki að flytja þær til lands- ins. Ellert sagði að svo virtist sem Ólafsfjarðargöngin væru mjög svip- uð að allri gerð og þau, sem gerð voru við Blönduvirkjun, bæði hvað varðar þvermál og hæð, enda aðeins um einnar akreinar veg að ræða. Ellert sagði að Vegagerðin hefði boðað þá Krafttaksmenn til fundar í næstu viku, þar sem rætt yrði frekar um tilboð þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.