Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
Bandaríkin:
Aukinn hagröxtur
og minni verðbólga
Washington, London, Reuter.
Bandaríkjadollar hækkaði í
verði í gær eftir að í ljós kom
Suður-Líbanon
Herinn leiter
skæruliða
Isrælar gera loftár-
ásir á líbönsk þorp
Maijayoun, Reuter.
BANDAMENN ísraela leituðu í
gær skæruliða í suður-líbönskum
þorpum í annað sinn á tveimur
dögum. ísraelskar orrustuþotur
studdu við bakið á þeim og gerðu
loftárásir á víghreiður Hizbollah,
Flokks Guðs, í þorpinu Louw-
aizeh, sem er tveimur kílómetrum
frá öryggissvæðinu við norður-
Iandamæri ísraels.
Hermenn í Suður-Líbanonsher
leituðu í þrjá tíma í Louwaizeh, sem
er helsta víghreiður hermanna sem
studdir eru af írönum. Loftárás ísra-
ela á þorpið var sú þriðja á tveimur
dögum, en þeir hafa tólf sinnum
gert loftárás á Líbanon á þessu ári.
Landher ísraela er einnig sagður
hafa stutt við bakið á Suður-Líban-
onsher í gær.
Talsmaður Hizbollah í Beirút
sagði að ísraelskar þotur hefðu varp-
að sprengjum á stöðvar flokksins í
Louwaizeh meðan liðsmenn Hiz-
bollah hefðu barist við ísraelska og
suður-líbanska hermenn og valdið
miklu mannfalli.
að hagvöxtur var meiri í Banda-
ríkjunum á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs en reiknað hafði verið
með og verðbólga minni.
Bandaríska viðskiptaráðuneytið
segir að hagvöxtur í Bandaríkjun-
um hafi numið 3,9% á ársgrund-
velli fyrstu þijá mánuði þessa árs
en spáð hafði verið 2,3% hagvexti
á tímabilinu.
I Lundúnum hækkaði Banda-
ríkjadalur um 0,25 pfennig í kjölfar
tíðindanna og nálgaðist 1,71 vest-
ur-þýskt mark. Dollarinn hækkaði
einnig gagnvart pundinu og fengust
1,86 dalir fyrir pundið, fjórðungi
úr senti minna en daginn áður.
Fréttin um aukinn hagvöxt og
minnkandi verðbólgu í Banda-
ríkjunum er túlkuð sem ávinningur
fyrir George Bush, sem stefnir að
forsetaembættinu, því gengi hans í
kosningabaráttunni er háð því
hvemig stjóm Reagans gengur að
leysa efnahagsvandræði landsins.
Hagfræðingar segja nú að fyrri spá
um 2,4% hagvöxt á þessu ári kunni
að hafa verið of svartsýn.
Frakkar lækkuðu vexti í gær um
fjórðung úr prósentu og segir Pi-
erre Beregovoy, fjármálaráðherra,
að þetta sé merki um batnandi hag
landsins og aukið traust á frankan-
um. Tilkynning þar að lútandi kom
frá Seðlabanka Frakklands sama
daginn og kynntar vom niðurstöður
skoðanakönnunar sem spáir Sósíali-
staflokknum meirihluta í þingkosn-
ingum í næsta mánuði.
Námabruni á Svalbarða:
Óttast að eldarnir
muni loga árum saman
Panama:
Ósló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORSVARSMENN fyrirtækisins ríkinu. Tapið
Store Norske Spitsbergen Kull-
kompani, sem staðið hefur fyrir
námagreftri á Svalbarða í mörg
ár, óttast að eldur sem kviknaði
á þriðjudag í einni af námum
fyrirtækisins á Svalbarða muni
loga árum saman.
Slökkvistarfi var hætt á miðviku-
dag í námunni vegna sprengihættu.
Ekki er ljóst með hvaða hætti hægt
er að slökkva eldinn. í athugun er
að kalla til vestur-þýska sérfræð-
inga um slökkvistarf í náma-
göngum. Einnig hefur komið til
tals að flytja ís frá skriðjöklunum
á Svalbarða og fylla námuna af
vatni.
Náma númer 7 þar sem eldurinn
geisar hefði í ár gefíð af sér 60%
af öllum kolum sem unnin eru úr
jörð á Svalbarða. Bruninn í nám-
unni veldur því gífurlegu fjárhags-
legu tjóni hjá Store Norske-fyrir-
tækinu, sem er rekið af norska
er talið nema um
300.000 norskum krónum (um 2
millj. ísl. kr.) á dag. Ef eldurinn
logar lengi er hugsanlegt að tækja-
búnaður eyðileggist með öllu en
hann er metinn á 2 milljónir nor-
skra króna ( 14 millj. ísl. kr.).
Bretland:
Ný aðferð til að meta
stofnstærð hvala
Gerir vísindaveiðar ónauðsynlegar
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VÍSINDAMENN við háskólann gæti haft áhrif á þær veiðar.
í Cambridge segjast hafa fund-
ið upp nýja aðferð til að meta
stofnstærð hvala, að því er seg-
ir í The Times í gær. Aðferðin
gerir hvalveiðar í vísindaskyni
ónauðsynlegar.
Vísindamennimir, A. Rus Ho-
elzel og William Amos, sem starfa
við háskólann í Cambridge, segja
frá því í vísindaritinu Nature, sem
út kom í gær, að með erfðagrein-
ingu á fáeinum milligrömmum af
skinni hvala sé unnt að afla sömu
upplýsinga og með vísindaveiðun-
um. Á grundvelli hennar sé hægt
að átta sig á aldurssamsetningu
og stofnstærð ólíkra tegunda.
Japanir og íslendingar hafa
veitt hvali í vísindaskyni í sam-
ræmi við samþykktir Alþjóða
hvalveiðiráðsins. Þessi uppgötvun
Þessi nýja aðferð, sem nefnd
er erfðafarsaðferð (genetic fínger-
printing), er í rauninni ekki ný.
Það, sem er nýtt við hana, er að
beita henni við hvali. Aðferðin
hefur valdið byltingu við lögreg-
lurannsóknir síðustu þijú árin og
gerir mögulegt að úrskurða með
fullri vissu í faðemismálum.
Aðferð þessi felst í því að greina
hin smávægilegu frávik, sem eru
í samsetningu sameindar erfða-
efnisins DNA í hveijum einstakl-
ingi. Með henni fæst mynstur,
sem enginn annar einstaklingur
getur haft. Þar sem sérkenni
erfðaefnis einstaklinganna erfast
frá foreldrum til bama, er unnt
að segja til um, hve skyldir tveir
einstaklingar eru.
Hoelzel og Amos telja, að með
því að átta sig á skyldleika ein-
staklinganna sé mögulegt að átta
sig á samsetningu stofnsins. Einn-
ig megi þannig sjá erfðafræðileg-
an breytileika stofnsins. Hann
segir til um, hve lítill stofninn
megi vera til að tegundin lifí.
Vísindamennimir lögðu fram
gögn úr rannsóknum sínum á út-
selum á fundi vísindanefndar AI-
þjóða hvalveiðiráðsins í San Diego
í Kalifomíu í síðastliðinni viku. í
þeim kemur fram, að hægt er að
að átta sig á þróun stofnsins með
því að tengja mæður við afkvæmi.
Erfðagreining á höfrungum
bendir til að erfðafræðilegur
breytileiki þeirra sé minni en ann-
arra tegunda. Þótt það sé venju-
lega til marks um að of fáir ein-
staklingar æxlist saman þá er
einnig mögulegt, að erfðasam-
setning höfrunga sé öðmvísi en
annarra hvala.
Yiðræður Noriega og Banda-
ríkjastjórnar í strand
„Við stefnum ekki að frekari samningaumleitunumu segir Shultz
Washington, Panama City, Reuter.
VIÐRÆÐUM fulltrúa Banda-
ríkjastjórnar og Noriega, yfir-
manns herafla Panama en hann
er jafnframt valdamesti maður
Finnland:
Verðbréfabrask veldur upp-
námi hjá kommúnistum
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins í Finnlandi.
NÝR kommúnistaflokkur var
stofnaður í Finnlandi um síðustu
helgi og eru þá þrír kommúnista-
flokkar starfandi hér í landi. Á
sama tíma og flokkum kommún-
ista fjölgar fer fylgi þeirra
dvínandi, samkvæmt skoðana-
könnunum.
Gömlu kommamir eiga við fleira
að stríð en að rótttækir menn segi
skilið við þá og stofni nýja flokka.
Nú síðast hafa misheppnuð verð-
bréfaviðskipti valdið kreppu í
stærsta kommúnistaflokknum. Al-
var Aalto, flokksformaður, hefur til-
kynnt afsögn sína vegna níu milljóna
marka, eða 90 milljóna íslenzkra
króna, taps á rekstri flokksins í
fyrra.
Hefur það mælst illa fyrir hjá hin-
um almenna flokksmanni að fjár-
málastjóri flokksins skyldi reyna að
laga fjármál hans með verðbréfa-
braski. Voru verðbréfakaupin m.a.
fjármögnuð með sölu fasteignar í
miðborg Helsinki fyrir hlægilega
lágt verð.
Fyrir hönd flokksins keypti fjár-
málastjórinn m.a. hlutabréf í tízku-
verzlun í Helsinki. Þótti það
skemmtileg tilviljun að búðin skyldi
heita Kuusinen því einn af kunnustu
kommúnistum fyrri tíma hét O.W.
Kuusinen. Var hann náinn sam-
starfsmaður Stalíns eftir að hann
varð landflótta frá Finnlandi árið
1918.
Fjármálastjóranum var sagt upp
starfí og nú vilja flokksmenn losna
við verðbréfin líka. Gömlum komm-
únistum fínnst það óviðeigandi að
byltingarsinnaður flokkur reyni að
græða á fjármálamarkaði auðvalds-
ins. Flokkurinn verður höfuðlaus um
helgina þegar Aalto hættir for-
mennsku því stjómmálanefnd
flokksins sagði öll af sér þegar hin
slæma fjárstaða flokksins og verð-
bréfaviðskiptin voru kunngerð.
Talið er að kreppan í Finnska
kommúnistaflokknum geti á endan-
um Ieitt til þess að fínnskir kommún-
istar sameinist.
landsins í reynd, lauk á miðviku-
dag án nokkurs árangurs. Til-
boði Bandaríkjastjórnar um að
hún félli frá ákærum um meint
fíkniefnabrask Noriega að því
tilskildu að hann legði niður
völd og yfirgæfi Panama var
hafnað að sögn bandariskra
talsmanna. Fulltrúi Noriega
segir að samkomulag hafi aldr-
ei verið í augsýn. Dagblað í
Panama staðhæfir að heryfir-
völd landsins hafi krafist trygg-
ingar fyrir því að núverandi
forseti, Solis Palma, héldi völd-
um. Bandaríkjastjórn styður
enn þá Eric Arturo Delvalle,
sem sneri baki við Noriega og
var þá settur af.
„Við erum friðsöm þjóð. Við
stofnum ekki til byltinga þar sem
fjöldi fólks liggur í valnum" sagði
Juan Sosa, sendiherra Panama í
Washington, í gær. Panamastjóm
vék honum á sínum tíma úr starfí
en Reaganstjómin viðurkennir
hann eftir sem áður. Sosa sagði
fréttamönnum að fólk yrði að skilja
að það tæki tíma að velta einræðis-
herra en Panamabúar væru stað-
ráðnir í að losna við Noriega. Hann
ráðlagði Bandaríkjastjóm að draga
sig nú í hlé og styðja þess í stað
tilraunir andófsmanna í Panama
og ríkisstjóma í rómönsku
Ameríku til að leysa málið.
Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem hafði frestað
för sinni á leiðtogafundinn í
Moskvu í von um að lausn væri í
sjónmáli í Panamadeilunni, mót-
mælti ásökunum um að Reagan-
stjómin hefði slitið viðræðunum til
að þóknast George Bush, varafor-
seta, væntanlegum frambjóðanda
repúblikana í forsetakosningunum
í haust. Bush hefur lýst því yfír
að hann telji rangt að semja við
fíkniefnalögbijóta eins og Noriega
og er það mjög óvenjuiegt að hann
lýsi andstöðu við aðgerðir stjómar-
innar.
Reagan forseti sagði á miðviku-
dagskvöld að hann teldi stjóm sína
ekki hafa veikst vegna niðurstöðu
viðræðnanna við Noriega.