Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 25 Gunnar S. Jónsson hjá Hollustuvernd ríkisins: Spjöll af völdum þörunga möguleg Útilokað að norsku þörungana reki hingað VÍSINDAMENN telja engin llkindi til þess að þörungarnir sem nú valda spjöllum f norskum fiskeldisstöðvum berist að íslandsströndum með hafstraumum. Á hinn bóginn megi alltaf eiga von á staðbundnum blóma þörunga hér við land ef rétt skilyrði myndast. Um það eru mörg dæmi, hið þekktasta frá liðnu sumri þegar 40% fiskjar í haf- beitarstöð í Hvalfirði dó af völdum þörunga. Heimildir frá fyrri öldum greina frá „blóðsjó", sem dregur nafn sitt af þeim lit er mikill þörunga- blómi í vatni veldur. í ferðabók Eggerts og Bjarna er greint frá blóðsjó á Seyðisfírði og Álftafirði vestra sem bjarmaði af að næturþeli, en afbrigði skoruþörunga geta gefið frá sér ljós. Vart varð við rauðan sjó við Keflavík árið 1966 og árið 1971 við Surtsey. Svend Áge Malmberg haffræðing- ur hjá Hafrannsóknarstofnun Is- lands sagði útilokað að hafstraumar bæru þörunga frá vesturströnd Nor- egs inn á íslenskt hafssvæði. „Straumamir liggja norður með Noregi að Svalbarða og í fshafíð og þessi sjór berst ekki hingað til lands fyrr en eftir mörg ár frá Grænl- andi. Lífsskilyrði þörunga í þessum straumi eru engin. Auk þess bland- ast sjórinn alltaf á leiðinni. Það væru frekar íslenskir þörungar sem gætu valdið usla. Það má alltaf bú- ast við svæðisbundinni offramleiðslu þeirra á heimaslóðum og þarf engan innflutning til,“ sagði Svend. „Þeir sem stunda fiskeldi þekkja áhættuna. Það má alltaf búast við spjöllum af völdum þörunga," sagði Gunnar Steinn Jónsson vatna- líffræðingur hjá Hollustuvemd ríkis- ins. „Það er hinsvegar spuming hversu mikið tillit við eigum að taka til þessarar hættu við staðarval vegna þess að talið er að sveiflur i vexti þörunganna séu ófyrirsjáan- legar eins og annað í náttúrunni. Eftir því sem næringarefnamagn eykst verða líkumar vissulega meiri, en blóminn er þá jafnan bundinn við afmarkað svæði.“ Þömngablóminn við Noregs- strendur hefur verið rakinn til hlý- inda í sjónum og aðstreymis næring- arefna. Þegar þetta tvennt fer sam- an ná þörungamir að blómstra. Köfnunarefni er eitt þeirra næring- arefna sem örvar vöxt þörunganna. Magn þess í sjónum hefur farið vax- andi vegna áburðamotkunar í land- búnaði, en úrgangur frá fiskeldi vejdur einnig aukinni mengun. . Að sögn Gunnar Steins er áætlað að um 9.500 lestir af köfnunarefni renni til sjávar á íslandi ár hvert, 57% þess af völdum áburðar. Sam- bærileg tala fyrir Eystrasaltið og Kattegat er 1.000.0000 lestir köfn- unarefnis. Hann sagði enga ástæðu til að óttast þörungablóma vegna aukinnar mengunar hér við land. „Fiskeldið hefur ekki haft teljandi áhrif á magn úrgangsefna í sjónum. Við skilum raunar minna köfnunar- efni til sjávar en við öflum með fisk- veiðum. Fiskaflinn inniheldur um fjórfalt meira köfnunarefni en það sem við látum frá okkur," sagði Gunnar Steinn Jónsson. Morgunbladið/Emilía Pétur B. Lúthersson og Birgitte Lúthersson við verðlaunatillögu sina að ruslaíláti. Herferð borgaryfirvalda gegn sóðaskap: „Láttu ekki þitt eftir liggja“ Borgaryfirvöld i Reykjavík hafa skorið upp herör gegn sóðaskap og vilja fá allan almenning til liðs við sig. Helstu vopn í barát- tunni gegn illri umgengni eru breytt hugarfar, fleiri heppileg rusl- aílát og kjörorð sem vekja fólk til umhugsunar um hreina borg og fögur torg. Verðlaun í hugmyndasamkeppni borgarráðs um kjörorð og ruslastampa voru veitt á fimmtudag. Efnt var til hugmyndasam- keppninnar á síðasta ári en skila- frestur rann út i febrúar. Keppnin var öllum opin, atvinnuhönnuðum og áhugafólki um bætta um- gengni. Formaður dómnefndar segir þetta fyrsta skrefíð í tiltekt- inni, borgarráð ákveði framhaldið á næstunni. Annars vegar var keppt um besta kjörorðið, hins vegar besta uppdráttinn að ruslaíláti. Tæplega 400 tillögur bárust um gerð ruslaíl- áta og 39 tillögur um kjörorð. Heildarverðlaunafé nam 400 þús- und krónum sem úthlutað var til níu aðila. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi var formaður dóm- nefndar, en auk hans áttu sæti í nefndinni þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi og Pétur Hannesson deildarstjóri. Trúnað- armaður dómnefndar var Ólafur Jensson framkvæmdastjóri. „Láttu ekki þitt eftir liggja!" þótti besta kjörorðið en höfundur- inn er Jón Þorvaldsson. Í umsögn dómnefndar segir að styrkur þess felist í tvöfaldri merkingu; að taka til hendinni við fegrun borgarinnar og að skilja ekki eftir sig rusl. Jón hlaut einnig þriðju verðlaun fyrir kjörorðið „Hrein borg, betri borg!“ Lárus Jón Guðmundsson fékk önnur verðlaun fyrir kjörorð sitt „Góðan daginn, hreinsum bæinn" og keypt voru kjörorðin „Vertu ekki sóði, góði“ eftir Birgi H. Sig- urðsson og „Götur eru ekki rusla- fötur" sem 6. bekkur Heiðarskóla á Akranesi sendi. Jafnframt voru fest kaup á hugmjmd Sigríðar Kristjánsdóttur að hreinsunará- taki. Pétur B. Lúthersson húsgagna- arkitekt hlaut fyrstu verðlaun, 100 þúsund krónur, fyrir tillögu sína að ruslaíláti, en við gerð hennar naut hann aðstoðar Birgitte Lút- hersson. Önnur verðlaun hlaut Stefán Snæbjömsson og keyptar voru tillögur Hrannar Vilhelms- dóttur og Hörpu Karlsdóttur. Víglundur Þorsteinsson á ársþingi FÍI: Gengið hlýtur að lækka meir á árinu Hefði átt að semja um launalækkun VÍGLUNDUR Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, sagði i ræðu á framhaldsársþingi félagsins að raungengi krónunnar hlyti að lækka meir en orði væri. Hinar tvær gengisfellingar, 6% og 10%, sem hefðu orðið það sem af er árinu myndu aðeins leiða til um 4-5% raungengislækkunar fram til ársloka. Víglundur sagði að bankakerfið á íslandi væri dýrt, og vinnubrögð þar að mörgu leyti úrelt, og ef til vill væri nauðsynlegt að fá erlenda samkeppni til að knýja fram lækkun raunvaxta, en islenskt atvinnulíf þyldi hina háa raunvexti ekki til lengdar. Þá sagði hann að skynsamlegast hefði verið að semja um beina launalækkun í vetur, því það hefði leitt til minni verðbólgu og minni kaupmáttarskerðingar en „gömlu hefð- lyundnu úrræðin“, sem nú væri gripið til. Raunvaxtastef nan féll í fyrra Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon Óiafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, og Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍI, við upphaf framhaldsaðalfundar iðnrfekenda í gær. Víglundur sagði að á undanföm- um 18 mánuðum hefði kaupmáttur aukist meir en dæmi væru um áður og hann hefði verið kominn 15% upp fyrir það sem hann var árið 1982, þegar hann var hæstur áður. Þrátt fyrir þennan háa kaupmátt hefði ekki verið hægt að semja á „raunsæisnótum" á tíma minnkandi þjóðartekna. Raunvaxtastefnan hefði þegar verið fallin í október 1987, þegar 7,23% hækkun á öll laun kom til framkvæmda, en ekki krónutöluhækkun að upphæð 1.600 krónur á mánuði, eins og vjnnuveit- endur hefðu lagt til en ASÍ hafnað. Það hefði hins vegar tekið þjóðina nokkra mánuði og óraunhæfa kjarasamninga að gera sér grein fyrir þessarri staðreynd. Fastgengisstefnan hefði aðeins staðist ef engin launabreyting hefði orðið á árinu 1988, eða að samið hefði verið um beina launalækkun. Orðrétt sagði Víglundur: „Launa- lækkun var skynsamlegasti samn- ingskosturinn í kjarasamningum vetrarins. Sá kostur hefði tryggt lágmarksverðbólgu á þessu ári og jafnvel leitt til minni kaupmáttarr- ýmunar en gömlu hefðbundnu úr- ræðin.“ Víglundur sagði að laun hér á landi væru 70% af þjóðartekj- um og hefði það hlutfall farið hækk- andi undanfarin ár og væri nú far- ið að bera á því að íslensk fyrir- tæki væru farin að fækka starfs- fólki til að vinna gegn þessarri þró- un. Eyðslan í góðærinu veldur óróanum nú Ólgan og óróleikin í þjóðfélaginu sl. vetur yrði ekki skýrður með lág- um launum, en fólk væri nú að slig- ast undan afborgunum og vöxtum af eyðslulánum síðustu tveggja ára. íslendingar eyddu miklu meira en íbúar nágrannalandanna; meðan aðrar þjóðir spöruðu fyrir orlofs- ferðinni færu íslendingar af stað með bankavíxil á bakinu og kredit- kortin að vopni. „íslendingar virðast ekki þola það að tilraun sé gerð til að breyta launahlutföllunum í þjóðfélaginu," sagði Víglundur. „Það er einfald- lega svo að verstu óvinir íslenska láglaunamannsins eru þeir stóru hópar launþega sem betur eru sett- ir. Þeir hópar koma einfaldlega í veg fyrir það að þeir lægst launuðu fái sérstakar leiðréttingar á sínum kjörum." Samdrátturinn nú verður sársaukafullur Víglundur sagði að háir raun- vextir væru mikið áhyggjuefni og það væri beinlínis stórhættulegt að taka lán til eyðslu og óvaranlegra íjárfestinga í dag. En þrátt fyrir mjög háa raunvexti hefði ekkert dregið úr eftirspum eftir lánsfé, þvert á móti hefði hún aukist. Raun- vaxtastefnan hefði skilað árangri í aukningu innlána, en hefði verið algjörlega árangurslaus hvað útl- ánahliðina varðaði. Víglundur sagði að skýringin á þessu gæti verið sú að raunvextir á skuldabréfalánum hefðu aðeins verið jákvæðir á ámn- um 1984 og 1986-’87, sem hefði verið hagvaxtar- og þenslutímabil. Væri þetta rétt ættu háir raun- vextir að fara að draga úr eftir- spum eftir lánsfé núna næstu mán- uði, þegar samdrátturinn færi að gera vart við sig. Víglundur benti á að íslendingar hefðu ekki farið í gegnum efna- hagssamdrátt með jákvæðuni raun- vöxtum síðan í kreppunni miklu. Þess væri því að vænta að núver- andi samdráttartími gæti orðið mun sársaukafyllri en fyrri samdráttar- skeið. Dýrt bankakerf i - úrelt vinnubrögð Víglundur sagði að íslenska bankakerfið væri þungt og dýrt í rekstri og þyrfti mikinn vaxtamun inn- og útlána til að standa undir kostnaði. Þessi vaxtamunur væri með því hæsta sem þekktist í heim- inum. Víglundur nefndi nokkur dæmi um það sem hann kallaði „úrelt vinnubrögð" hjá bönkunum og hvemig þau ykju á fjármagns- kostnað fyrirtækja, m.a. með því að afgreiða langtímalán sem marg- framlengd skammtímalán með til- heyrandi stimpilkostnaði og þókn- unum. Það væri áleitin spuming hvort ekki væri tímabært að opna landið meira, þannig að íslendingar gætu sparað og tekið lán í útlöndum og útlendingar tekið lán og sparað á Islandi. Jafnhliða slíkum aðgerðum þyrfti að leyfa erlendum aðilum að eiga og reka banka hér á landi. Þetta væri ef til vill eina ráðið til að færa raunvaxtastigið niður, en íslenskt atvinnulíf þyldi ekki til lengdar að raunvextir hér væru miklu hærri en í nágrannalöndun- um. Starfsfólki fækkað, fjárfestingiim frestað Víglundur sagði að hinar tvær gengisfellingar á þessu ári, 6% og 10%, gætu í besta falli leitt til raun- gengislækkunar upp á 4-5% í árs- lok, þegar upp væri staðið. Sú lækk- un dygði ekki til að rétta af sam- keppnisstöðu íslenskra útflutnings- greina. „Það má því öllum vera ljóst, sérstaklega nú eftir síðustu verðlækkanir á afurðum okkar, að aðlögun raungengis að breyttum aðstæðum er ekki lokið. Raungeng- ið hlýtur að lækka meir en orðið er.“ En þó að raungengið ætti eftir að lækka enn á þessu ári, yrði það samt mjög hátt miðað við meðaltal áranna 1984 og 1985. Víglundur varaði við nýrri kaup- æðisöldu vegna hugsanlegrar geng- isfellingar, slíkt væri „gamaldags rugl“, þar sem háir raunvextir kæmu í veg fyrir að nokkur gróði fengist af því að taka lán til kaupa á t.d. bíl rétt fyrir gengisfellingu. Víglundur sagði að fyrirtækin yrðu að bregðast við þeim vanda- málum sem steðjuðu að þeim vegna hárra launa, hárra raunvaxta og hás raungengis með því að fresta fjárfestingum, fækka starfsfólki og hagræða rekstrinum eins og frekast væri unnt. Með réttum viðbrögðum mætti koma í veg fyrir að það sam- dráttarskeið sem framundan væri yrði langvinnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.