Morgunblaðið - 27.05.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
33
Leiðakort sem aðstandendur hjólreiðadagsins hafa látið gera.
Hjólað í þágu fatlaðra
KVENNADEILD styrktarfé-
lags lamaðra og fatlaðra,
íþróttafélag fatlaðra ásamt
fyrirtækjun í Kringlunni
standa fyrir hjólreiðadegi
sunnudaginn 29. mai undir
kjörorðunum „Hjólað í þágu
fatlaðra". Hjólað verður frá 7
stöðum í Reykjavík og úr Kópa-
vogi að Kringlunni. Útvarps-
stöðin Bylgjan sér um að ræsa
þátttakendur.
Fyrirtæki í Kringlunni heita 76
krónum á hvern þátttakenda og
rennur fé sem safnast til bygging-
ar sundlaugar í Reykjadal í Mos-
fellssveit. Þátttaka er hjólreiða-
mönnum að kostnaðarlausu og
verður boðið upp á hressingu að
leiðarlokum. Þátttakendum verð-
ur veitt. viðurkenning sem jafn-
framt gildir sem happdrættismiði.
Dregið verður um 10 vinninga á
efra bílastæði Kringlunnar, sem
eru vöruúttektir í Kringlunni. Að
hjólreiðunum loknum heldur Bind-
indisfélag ökumanna keppni í
ökuleikni á bflum og reiðhjólum á
efra bflastæði Kringlunnar. Út-
varpsstöðin Bylgjan mun lýsa
þessum atburðum af þaki Húss
verslunarinnar.
Þeir sem treysta sér ekki til
að hjóla til baka, geta tekið sér
far með „Kringlurútum" sem aka
fólki til þeirra staða sem það lagði
upp frá.
Lagt verður upp frá eftirtöldum
stöðum: Árbæjarskóla, Austur-
bæjarskóla, Breiðagerðisskóla,
Hólabrekkuskóla, Langholtsskóla,
Melaskóla og Seljaskóla í
Reykjavík. Einnig verður lagt upp
frá versluninni Byko í Kópavogi.
Að sögn Ómars Smára Ar-
mannssonar lögregluvarðstjóra
má búast við mikilli þátttöku ef
veður leyfir. Hann beinir þeim til-
mælum til þátttakenda að þeir
nýti gangstéttir og göngustíga.
Lögreglan mun liðsinna hjólreiða-
fólkinu eftir getu. Þess má geta
að lögreglan verður með hjólreiða-
skoðun að eftir keppni.
IBM PS/2 tölvur og RAÐ/2
hugbúnaður á kynningu
NÚ STENDUR yfir kynning fyr-
irtækjanna Magnus sf og Víkur-
hugbúnaður sf á IBM PS/2 tölv-
um og RÁÐ/2 viðskiptahug-
búnaði.
Kynntar verða IBM PS/2 tölv-
umar, sem eru ný kynslóð tölva frá
IBM. Ennfremur verður kynnt við-
skiptaforritið RÁÐ/2, sem Víkur-
hugbúnaður sf hefur þróað. Forritið
er sérhæft fyrir fjárhagsbókhald og
er mikið endurbætt útgáfa af RÁÐ
forritinu, sem sömu aðilar gerðu.
RÁÐ/2 fjárhagsbókhaldið notast
við svipaðar vinnsluaðferðir og not-
aðar eru í GEM og MACINTOSH
stýrikerfum. Bókhaldskerfið var
hannað frá grunni hér á landi og
miðað við íslenskar aðstæður. Við
endurbætur þess var haft samráð
við Endurskoðunarmiðstöðina N.
Manscher.
Kynningin á IBM PS/2 tölvunum
og RAÐ/2 viðskiptahugbúnaðinum
fer fram í húsnæði Magnuss sf að
Bolholti 6 í Reykjavík og lýkur á
morgun, laugardag.
Laugarásbíó sýn-
ir „ Aftur til LA“
Laugarásbíó hefur tekið til
sýninga gamanmyndina „Aftur
til LA.“ sem skrifuð er og leik-
stýrt af Cheech Marin, sem einn-
ig leikur aðalhlutverkið.
„Aftur til LA“ fjallar um ungan
Mexíkana sem býr í Los Angeles.
Fyrir misskilning er hann sendur
sem ólöglegur innflytjandi yfir til
Mexíkó. Þó Cheech tali ekki
spænsku halda samt allir að hann
sé frá Mexíkó og á hann í miklum
erfiðleikum með að komast úr vand-
ræðum sínum. Myndin lýsir þessum
erfiðleikum hans og hvernig hann
kemst að lokum aftur til LA.
(Úr fréttatilkynningu.)
Atriði úr kvikmyndinni „Aftur til L.A.“ sem sýnd er í Laugarásbíói.
P" 'h'
Sýningá tölvubúnaði
ÖRTÖLVUTÆKNI - Tölvu- dag.
kaup hf. gengst fyrir sýningu Sýningin er opin á venjulegum
á ýmsum tölvubúnaði i húsa- verslunartíma, þ.e. frá kl. 9 til 18.
kynnum sínum að Armúla 38 í
Morgunblaðið/Emilía
Frá blómasölu Systrafélags Víðistaðasóknar við Viðistaðakirkju í
blíðviðrinu í gær.
Blómasala í
Systrafélag V íðistaðasóknar
gengst fyrir blómasölu við Víði-
staðakirkju í dag, á morgun og
á sunnudag frá klukkan 11 fyrir
hádegi til klukkan 9 alla dagana.
Til sölu eru allar gerðir sumar-
plantna, skrautjurtir og Qölærar
Hafnarfirði
plöntur. AUur ágóði af sölunni renn-
ur til kaupa á innanstokksmunum
og búsáhöldum í eldhús safnaðar-
heimilis Víðistaðasóknar.
Hafnfírðingar og aðrir eru hvatt-
ir til að styrkja þetta málefni.
(Fréttatilkynning)
Broadway breytir um svip:
Gestir virkir þátttakendur
Morgunblaðið/Júlíus
Nýju skemmtanastjóramir í Broadway, f.v.: Jóhannes Bachmann,
Ingólfur Stefánsson og Arnór Diego.
MIKLAR breytingar eru fyrir-
hugaðar á rekstri veitingahúss-
ins Broadway í sumar og sam-
fara þeim hefur að undanförnu
verið unnið að útlitsbreytingum
í salarkynnum hússins. „Það má
segja að gerð verði uppstokkun
á öllu hér innanhúss, sem aðal-
lega felst i því að í stað hinna
hefðbundnu borða og stóla koma
sófar og sófaborð,“ sagði Sigþór
Siguijónsson, framkvæmdastjóri
Broadway, í samtali við Morgun-
blaðið. Sigþór sagði að ennfrem-
ur yrði salurinn hægra megin við
sviðið hólfaður af til hálfs og
skilrúm sett á milli fatahengis
og salarins auk þess sem skipt
yrði um veggskreytingar.
Þrír nýir skemmtanastjórar hafa
verið ráðnir við húsið, þeir Amór
Diego, Ingólfur Stefánsson og Jó-
hannes Bachmann. Þeir sögðu að
tónlistinni yrði aðallega stjómað úr
diskótekinu, en lögðu áherslu á að
ekki yrði um að ræða hina stöðluðu
„diskótónlist" heldur væri ætlunin
að bjóða upp á hressilega rokktón-
list í bland við þá danstónlist sem
vinsæiust er hveiju sinni. „Ætlunin
er að fólkið fái sjálft að ráða tónlist-
inni að verulegu leyti og eins verð-
ur lögð áhersla á að virkja gestina
sjálfa til þáttöku í skemmtiatriðum
og uppákomum af ýmsu tagi,“
sögðu þeir. Sigþór bætti við að ekki
væri ætlunin að leggja lifandi tón-
list alveg af heldur myndu ýmsir
gestir koma og leika af fingmm
fram. Þá verður boðið upp á
skemmtiatriði á hverju kvöldi, sem
ekki verða auglýst fyrirfram, enda
verður í mörgum tilfellum um að
ræða uppákomur með þáttöku
gesta. „Við ætlum að reyna að
skapa hér eins konar partýstemmn-
ingu, þannig að fólk þurfi ekki endi-
lega að setja sig í ballstellingar til
að koma hingað. Það verður sumar-
stemmning hér í sumar og starfs-
fólkið verður í nýjum sumarlegum
einkennisfötum," sagði Sigþór.
Eitt helsta trompið í innrétting-
unum verður „Hatturinn" svokall-
aði, en það er 20 manna sófi sem
staðsettur verður vinstra megin við
sviðið, undir risastórum hatti. Hægt
verður að panta „Hattinn" sérstak-
lega fyrirfram, til dæmis ef einhver
vill halda upp á afmælið sitt eða
að hópar óska eftir að vera dálítið
út af fyrir sig. Verið er að smíða
„Hattinn" og verður hann væntan-
lega kominn í gagnið í byijun júní.
Annað sérkennilegt sem nefna
má er að komið verður fyrir sér-
stöku glerbúri í loftinu með dans-
andi fólki, en slík fyrirbrigði hafa
stundum verið kölluð „go go búr“
erlendis. Hér er ekki um að ræða
sérstakt skemmtiatriði heldur virk-
ar þetta fremur eins og „augna-
yndi" fyrir aðra gesti á sama hátt
og sjónvarpsskermar í sumum veit-
ingahúsum og gefst gestum kostur
á að dansa í búrinu ef svo ber undir.
Boðið verður upp á létta rétti á
sérstökum „samloku og sallatbar“
auk þess sem þjónað verður til borðs
í húsinu með veitingar. Skemmt-
anastjóramir sögðu að lögð yrði
áhersla á sérstaklega góða þjónustu
við gesti, ekki aðeins innanhúss
heldur einnig fyrir utan, ef langar
biðraðir myndast þar. Þeir sögðu
að ætlunin væri að höfða til yngra
fólks en áður, en þó ekki allra
yngsta hópsins. „Við reiknum við
að meðalaldurinn verði á bilinu 20
ára til 32 ára.“
Aðspurður um hvers vegna þess-
ar breytingar væru gerðar á rekstri
Broadway nú sagði Sigþór að þörf-
in fyrir nýjungum í skemmtana-
lífinu væri fyrir hendi einmitt nú.
„Þessi staður verður öðruvísi en
allir hinir. Þetta verður skemmti-
staður í „toppklassa“ og með „topp-
þjónustu", en þó fijálslegur, þægi-
legur og aðlaðandi. Aðalatriðið er
þó að í stað þess að gestir komi
og láti mata sig á skemmtiatriðum
af sviðinu verða þeir sjálfir virkir
þáttakendur í því sem fram fer,
eins og í stóru og góðu samkvæmi.“ •