Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 57
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
57
Isiah Thomas
ístuði
gegn Boston
Fyrsti sigur Detroit í Boston frá 19.
desember 1982
LIÐ Detroit Pistons sigraði
Boston Celtics í Boston í fyrri-
nótt með 104 stigum gegn 96
í fyrsta leik þessara liða í úrslit-
um Austurdeildar. Þá vann Los
Angeles lið Dallas öðru sinni í
úrslitum Vesturdeildar nokkuð
örugglega 123:101.
Lið Detroit hafði fengið tíu daga
hvíld eftir að hafa slegið
Chicago út og virtist þessi hvíld
hafa góð áhrif á leikmenn liðsins
fyrir leikinn gegn
Gunnar Boston. Leikmenn
Valgeirsson Boston óska þess
skrifar eflaust þó að ein-
hver hefði tekið raf-
magnið af Boston Garden í leikn-
um, en á þriðjudagskvöld varð að
hætta leik í úslitum NHL ísknatt-
leiksdeildarinnar í Boston Garden
þegar rafmagnið fór af höllinni.
Það var rafmagnslaust svo lengi
að hætta varð leiknum. En það var
nóg rafmagn fyrir Detroit í leiknum
á miðvikudag.
Detroit hafði ekki unnið í Boston
síðan 19. desember, 1982! Leik-
menn liðsins létu þessa staðreynd
lítil áhrif hafa á sig í leiknum.
Þessi leikur var mjög jafn allan
tímann. Eftir fyrsta leikhluta var
staðan 30:28 fyrir Detroit, en Bos-
ton leiddi 53:52 í hálfleik. Detroit
leiddi síðan 75:73 eftir þrjá leik-
hluta, þrátt fyrir að aðal hörkutó-
lið, Bill Laimbeer, þyrfti að fara
meiddur af leikvelli stax í upphafi
síðari hálfleiks. Það var John Salley
sem kom inn á fyrir hann og stóð
sig mjög vel. Leikurinn hélst mjög
jafn þar til þijár mínútur voru eft-
ir. Þá var staðan 92:89 fyrir Detro-
it, en þá tók Isiah Thomas leikinn
í sínar hendur og breytti stöðinni
í 100:91 þegar hálf mínúta var eft-
ir. Þar með voru úrslitin ráðin og
lokatölur urðu 104:96 fyrir Detroit.
Maður leiksins var Isiah Thomas
hjá Detroit sem skoraði 35 stig og
átti 12 stoðsendingar. Hann tók
leikinn í sínar hendur þegar mest
á reyndi. „Ég varð að taka til minna
ráða eftir að Laimbeer fór útaf.
Það varð einhver að taka að sér
að skora. En það er annar leikur á
morgun og við verðum að koma
með réttu hugarfari í hann“, sagði
Thomas eftir leikinn.
Hjá Boston var Kevin McHale best-
ur með 30 stig, Bird gerði 22 og
Ainge var með 17. Mikil harka var
í leiknum, eins og í keppni þessara
liða í fyrra. Það voru einkum þeir
McHale hjá Boston og Rick Mahom
hjá Detroit sem lentu í hörðustu
átökunum.
Lakers sigraðl Dallas
Los Angeles eru nú komið með
gott forskot á Dallas Mavericks
eftir sigur í gær, 123:101. Lakers
hefur þar með náð 2:0 forystu í
viðureign liðanna.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik,
en strax í upphafi þess síðari tóku
stórstjömur Lakers leikinn í sínar
hendur og náðu fljotlega 20 stiga
forystu. Eftir það sigurinn í höfn,
123:101.
Það var Byron Scott, sem staðið
hefur sig mjög vel í úrslitakeppn-
inni, sem var stigahæstur með 30
stig, en Kareem Abdul Jabbar skor-
aði 19 stig. Hjá Dallas var Mark
Aguirre stigahæstur með 28 stig.
Þjálfari Lakers, Pat Riley, sagði
eftir leikinn: „Lið Dallas verður
erfítt heim að sækja, en þessir tveir
sigrar verða okkur mjög gott vega-
nesti."
John Salley, kom inn á og lék mjög vel fyrir Detroit Pistons.
Jordan
kosinn
leik-
maður
ársins
MICHAEL Jordan var kosinn
„Leikmaður ársins í NBA-
deildinni" af íþróttafrétta-
mönnum í Bandaríkjunum.
Þetta kemur ekki á óvart þvi
Jordan hefur leikið ótrúlega
vel í vetur með liði sínu,
Chicago Bulls.
Jordan hlaut rúmlega heiming
atkvæða og hafði mikla yfir-
burði. Larry Bird frá Boston,
sem hlaut þennan titil í þrjú ár
■■■■■■ í röð, 1984-
Gunnar 1986, hafnaði í
Valgeirsson 2. sæti og
skhfar „Magic“ Johnson
leikmaður Los
Angeles Lakers, sem sigraði í
þessari kosningu í fyrra, hafnaði
í 3. sæti.
Doug Moe, sem þjálfar Denver
Nuggets, var kosinn þjálfari árs-
ins og Mark Jackson, leikmaður
New York, var kosinn nýliði
ársins. Einnig var kosið um
besta varamanninn og það var
Ray Tartley sem hlaut þann titil.
Þá þykir mjög líklegt að Danny
Manning, sem leiddi Kansas til
sigurs í háskóladeildinni, muni
leika með Los Angeles Clippers
næsta vetur, en hann hefur mik-
inn áhuga á að leika á vestur-
ströndinni.
OLYMPIULEIKARNIR I SEOUL
Ellefu þúsund íþróttamenn
verða í sviðsljósinu í Seoul
112 dagar þartil mesta íþróttahátíð sögunnar verður sett í Seoul
KARFA
Jón Arnar Ingvarsson
Haukarfá
liðsstyrk
Íslandsmeistarar Hauka hafa
fengið liðsstyrk fyrir titilvörnina
næsta keppnistímabil. Bróðir fyrir-
liðans, Hennings Henningssonar,
Þorvaldur, er á heimleið frá Banda-
ríkjunum og mun leika með liðinu
næsta vetur.
Þorvaldur er aðeins 17 ára og lék
með menntaskólaliði Atlanta í fyrra
og stóð sig vel. Hann er örlítið
stærri en bróðir sinn og mjög efni-
legur leikmaður.
Þá mun Jón Amar Ingvarsson leika
með liðinu næsta vetur. Hann er
aðeins 16 ára og kom úr 4. flokki
í vor. Hann hefur þó verið lykilmað-
ur í liði 2. og 3. flokks. Þess má
geta að hann er sonur Ingvars Jóns-
sonar, körfuknattleiksþjálfara í
Hafnarfírði.
ÓLYMPÍULEIKARNIR í Seoul,
sem hefjast eftir 112 daga,
verða mesta íþróttahátíð sög-
unnar. Nú þegar hafa Suður-
Kóreumenn gengið frá öllum
mannvirkjum, sem keppt verð-
ur í. Aðeins er eftir að ganga
frá nokkrum smáatriðum. Ell-
efu þús. íþróttamenn frá 161
landi mæta til leiks, en það er
mesti fjöldi sem hefurtekið
þátt í Ólympíuleikum. Gamla
metið er 7.830 - í Miinchen
1972.
að eru nú sextán ár síðan allir
bestu íþróttamenn heims
mættu á einum stað til að etja
keppni — í Munchen. Það gerðist
ekki í Montreal í Kanada, Moskvu
og Los Angeles. 1976, í Montreal,
mættu ekki margar þjóðir frá
Afríku til leiks. 1980, í Moskvu,
mættu ekki íþróttamenn frá Banda-
rílgunum og öðrum vestrænum
þjóðum til leiks og 1984, í Los
Angeles, mættu íþróttamenn frá
Austurjámtjaldslöndunum ekki til
leiks.
Það eru ekki margar þjóðir sem
mæta ekki til leiks í Seoul. N-
Kóreumenn mæta ekki. Þá mæta
ekki íþróttamenn frá Kúbu,
Ólympíu-
svædið
í Seoul
Fremst á mynd-
inni t.v. er
körfuknatt-
leikshöllin, þá
kemur aðalleik-
vangurinn og í
horninu hægra
megin er upp-
hitunarsvæði.
Fyrir ofan má
sjá sundhöllina,
hnefaleika-
höllina og þá
hornaboltavöll-
inn, en horna-
bolti verður
sýningagrein í
Seoul.
Eþíópíu, Albaníu, Nikaragúa og
Seychelleyjum. Aðeins sex af 167
þjóðum mæta ekki til Surður-
Kóreu.
Alls mæta 10.626 íþróttamcnn til
Seoul og 4.266 þjálfarar og farar-
stjórar.
Flestir frá Bandarfkjunum
Flestir íþróttamenn koma frá
Bandaríkjunum, eða 639. V-Þjóð-
vetjar senda 536 og Kína, sem tók
ekki þátt í ÓL í Los Angeles, send-
ir 322.
Sovétríkin senda 625 keppendur,
A-Þýskaland 370, Ungveijaland
278, Bulgaría 271, Pólland 270 og
Tékkóslóvakía 171, en allar þessar
þjóðir vom ekki með í Los Angeles.
Keppt um 237 peninga
10.626 íþróttamenn keppa um 23£~
verðlaunapeninga í 23 íþróttagrein-
um. Tvær nýjar greinar bætast nú
við - borðtennis og tennis. Keppnin
um verðlaunapeninga verður geysi-
lega hörð, því að nú eru allir bestu
íþróttamenn heims sem keppa um
þá - í mestu íþróttakeppni sögunn-
ar. Ólympíuleikarnir verða settir
laugardaginn 17. september. t—