Morgunblaðið - 14.08.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988
Morgunblaðið/PPJ
Corsair-flugvélin í lendingu á Reykj avíkurflugvelli.
— " 1 *~T71 ■
. " —
Hið sérkennilega útlit F4U Corsair vekur óneitanlega nokkra athygli.
Sigursæll stríðsfákur í ferjuflugi
Föstudaginn 12. ágúst lenti á Reykjavíkur-
flugvelli gömul orrustuflugvél af gerðinni
Chance Vought F4U-5 Corsair sem var á leið-
inni til Bandarfkjanna til Bretlands.
Corsair vélin var upphaflega hönnuð fyrir
bandaríska flotann til notkunar af flugvélamóð-
urskipum, en flotanum þótti lendingarhraði
hennar helst til mikill og hafnaði henni þvf í
skiptum fyrir Grumman F6F Hellcat. Því var
það að Corsair hóf herþjónustu sína hjá land-
gönguliði flotans (U.S.Marines), sem notaði
hana frá flugvöllum f landi.
Frumraun F4U Corsair var f Kyrrahaflnu,
en þar var þessi flugvélartegund mest notuð
með góðum árangri. Eftir að Corsair-vélamar
komu til sögunnar hurfu brátt yfirburðir Japan
í lofti og náði Corsair hæsta hlutfall sigra í
loftorrustum allra orrustuflugvéla heimsstytj-
aldarinnar sfðari. Corsair-flugvélar grönduðu
2.140 óvinaflugvélum í loftbardögum, en aðeins
189 þeirra urðu óvinaflugvélum að bráð, eða
11 á móti 1!
Þó einkennilegt megi virðast voru það Bret-
ar, sem fyrstir urðu til þess að nota Corsair frá
flugvélamóðurskipum. Corsair-vélamar stóðu
sig með mikilli prýði í þessu upphaflega hlut-
verki sínu, sem varð til þess að bandaríski flot-
inn tók þær aftur í þjónustu sína. Því var það
að Corsair-vélin, sem í upphafí var dæmd í út-
legð frá flotanum, átti eftir að ljúka ferli sínum
sem einhver besta flotaflugvél þess tíma. Alls
voru framleiddar tæplega 12.600 Corsair-flug-
vélar., í fjölmörgum útgáfum, allt frá árinu
1940 til loka árs 1952.
Nýju heimkynni Corsair-flugvélarinnar sem
hér hafði viðkomu verður á Biggin Hill-flug-
velli skammt frá London.
Ólafsfjörður:
Gjaldþrot blasir nú við kav-
íarverksmiðjunni Sæveri hf.
ilriimvpS
Viðskiptaráðherra:
Vaxta-
frelsið
aðskila
árangri
Á FUNDI með aðilum fjármagns-
markaðarins á föstudag sagði Jón
Sigurðsson, viðskiptaráðherra að
samkomulagið um sölu spariskfr-
teina markaði tfmamót f peninga-
málum og væri vaxtafrelsið nú
farið að skila árangri. Spumingin
væri hvort unnt yrði á næstunni
að lækka vaxtagólfið enn frekar.
í upphafí fundaríns með aðilum
fjármagnsmarkaðaríns vék við-
skiptaráðherra að samkomulagi
ríkisins við banka, sparísjóði og verð-
bréfafyrirtæki um sölu spariskírteina
ríkissjóðs og sagði það marka tíma-
mót í peningamálum. Þar hefði tek-
ist að leysa innlenda lánsflárþörf
rfkissjóðs án teljandi þensluáhrífa og
ná um leið lækkun raunvaxta um
0,5% um leið og lánastofnanir lýstu
vilja sfnum til að lækka aðra skulda-
bréfavexti að sama skapi. „Þetta
sýnir, að sú endurröðun á vaxtaróf-
inu, sem kom í kjölfar vaxtafrelsis í
árslok 1986, er að skila árangri,"
sagði Jón Sigurðsson. „Nú eru ríkis-
skuldabréfavextir í aðalatriðum
lægstu vextir eins og eðlilegt er.
Spuminginn er, hvort menn sjá fram-
undan möguleika til þess að taka
frekari skref á þessarí braut. Verður
á næstunni unnt að lækka vaxtagólf-
ið frekar og fylgja þá aðrir vextir á
eftir? Hér koma viðskipti lífeyrissjóð-
anna og húsnæðiskerfisins ekki sfst
til athugunar."
Viðskiptaráðherra sagði að á því
sviði væri enn við lýði mikilvægasta
fhlutun ríkisins á lánamarkaði fyrir
utan takmarkanir á erlendar flár-
magnshreyfingar. Var á fundinum
rætt um þá hugmynd að ríkið hyrfi
frá fastbundinni sölu skuldabréfa til
lífeyrissjóðanna og þeir leituðu sjálf-
ir bestu ávöxtunar á markaðinum.
Ráðherra sagði breytingar á
fslenska lánamarkaðinum hafa veríð
það örar sfðustu árín að lfktist helst
byltingu. Það væri því ekki að undra
að þesum breytingum fylgdu vaxtar-
verkir. Það væri afar mikilvægt að
stofnanir á fjármagnsmarkaðinum
brygðust af ábyrgð við breyttum
aðstæðum f efnahagsmálum, ekki
einungis við að leggja lið við lausn
tfmabundins efnahagsvanda heldur
ekki síður við að tryggja að nýsköp-
un gæti haldið áfram f anda frjáls-
ræðis og nútfmalegra viðskiptahátta.
„Það getur ekki orðið ef menn koma
óorði á frelsið," sagði Jón Sigurðs-
Blaðamaður tók Pál tali í þann
mund er hann var að ljúka við
síðustu klippinguna. „Ég hef
starfað hér á stofunni síðan 1.
september árið 1935. Þetta hefur
verið einstaklega ánægjulegur
tími.“ Meðal fastra viðskiptavina
Páls eru fjölmargir landskunnir
menn og má þar nefna Nóbels-
skáldið Halldór Laxness. „Ég hef
verið mjög heppinn með starfsfólk
og viðskiptavini," sagði Páll.
Um Ieið og Páll hættir verður
rakarastofan í Eimskipafélags-
húsinu lögð niður, en meðeigandi
hans, Lýður Sörlason, flytur starf-
GJALDÞROT blasir nú við kav-
íarverksmiðjunni Sæveri hf. á
Ólafsfirði. Skuldir fyrirtækisins
nema um 40 milljónum kr e eign-
ir eru metnar & um 20 mil(jónir
króna. Ef sala þeirra tekst er
OPINBERRI heimsókn Þorsteins
Pálssonar, forsætisráðherra, til
Bandaríkjanna lauk f gær, laug-
ardag. John C. Whitehead, starf-
andi utanríkisráðhera, kvaddi
forsætisráðherra stuttu frá
Washington minnismerkinu.
. Heimsókninni var ekki formlega
semi sína í Nóatún 17. Að sögn
Páls var rakarastofan fyrsta fyrir-
tækið á fyrstu hæð hússins. Á
liðnum árum hafa ýmis fyrirtæki
leigt í Eimskipafélagshúsinu en
rakarastofan er eina fyrirtækið
sem leigt hefur í húsinu svo lang-
an tfma.
Páll sagði að það hefði verið
viðburðaríkt á stofunni alla tíð
enda margir landsfrægir menn
fastagestir. Á vegg hangir mynd
af föður Páls, stofnanda stofunnar
og mynd af Páli að klippa Halldór
Laxness á fimmtíu ára afmæli
hans. Þar gefur einnig að líta
hreint tap hluthafa fyrirtækisins
20 milljónir króna. Mikil birgða-
söfnun hefur orðið fyrirtækinu
fjötur um fót. Eftir góða grá-
sleppuvertíð í fyrra og góðar
horfur í markaðsmálum kom upp
lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun í gær, en gert var ráð fyr-
ir að Þorsteinn Pálsson, forsætis-
ráðherra, og fylgdarlið yfírgæfu
Washington í forsetaþyrlunni frá
Washington minnismerkinu. For-
sætisráðherra fer í sumarfrí til
Flórída ásamt fjölskyldu sinni.
mynd af Páli og Ásgeiri Ásgeirs-
sjmi foreeta, þar sem hann er að
klippa Ásgeir í síðasta sinn í for-
setatíð hans.
„Ég vil þakka forystumönnum
sölutregða eftir að markaðurinn
hafði yfirfyllst og kom hún ekki
sist niður á Sæveri hf., sem þá
var nýtt og ekki stöndugt fyrir-
tæki, að sögn Sigurðar P. Sig-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar,
sem jafnframt hefur verið settur
framkvæmdastjóri Sævers frá
því framkvæmdastjórinn lét af
störfum.
Fyrirtækið var stofnað árið 1985,
en vinnsla hófst ekki fyrr en í jan-
úar 1987. „Þá var rekstrargrund-
völlur fyrirtækisins þegar orðinn
nokkuð ótraustur. Lausafé var svo
til ekkert. Fyrirtækið fór af stað á
mjög ótraustum grunni. Þrátt fyrir
það lofuðu markaðimir og verðlag
góðu svo að Sölumiðstöð lagmetis
hvatti fyrirtækin mjög til að kaupa
sem mest af hrognum. Síðan kemur
það upp úr kafínu í júnímánuði í
Eimskips í gegnum árin en þeir
hafa verið mér séretaklega vin-
veittir og einnig meðeigenda
mínum fyrir samstarfíð," sagði
Páll að lokum.
fyrra að Kanadamenn hafa tvöfald-
að veiði sína. í kjölfarið yfírfylltist
markaðurinn sem leiddi til sölu-
tregðu. Því kom það af sjálfu sér
að fyrirtæki eins og Sæver, sem fór
af stað á brauðfótum, þoldi ekki
slíkt áfall,“ sagði Sigurður Sig-
mundsson. Hann hefur gert úttekt
á stöðu fyrirtækisins og framtíðar-
möguleikum og segist álíta að eng-
inn grundvöllur sé fyrir áframhald-
andi rekstri við núverandi aðstæð-
ur.
Stæretu hluthafamir í fyrirtæk-
inu eru Ólafsfjarðarbær, Kaupfélag
Eyfírðinga, Guðmundur ólafsson
hf., Magnús Gamalíelsson hf.,
Hraðfrystistöð Ólafsfjarðar og Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar. Hlutafé
var í upphafi sex milljónir. Lausafé
var þó aðeins helmingurinn af því
þegar hafíst var handa þar sem ein
milljón fór í uppbyggingu hús-
næðis, ein milljón fór í vöruúttekt
og ein milljón í skuldaeftirgjöf. Iðn-
þróunarfélagið vann áætlun árið
1985 og voru foreendur þá allt aðr-
ar en nú og lofaði rekstur kavíar- j
verksmiðju mjög góðu.
Sigurður sagði að Ólafsflarðar-
bær kæmi veret út úr gjaldþrotinu
þar sem bærinn hefði gengið í
ábyrgð fyrir afurðalánunum.
Líklegt er talið að aðalfundur fyrir-
tækisins fari fram um miðjan sept-
ember, en aðalfundi hefur tvívegis
verið frestað í sumar. Búast má þá
við að formleg ákvörðun um slit
félagsins verði tekin. Að jafnaði |
unnu tíu manns hjá Sæveri hf. og j
var starfsemi hætt í mars sl.
Akranes:
Ók á ljósastaur
Umferðarslys varð á Suður-
götu á Akranesi aðfararnótt
laugardagsins þegar ökumaður
Ladabifreiðar, sem grunaður er
um ölvun, ók á ljósastaur.
Að sögn lögreglu varð árekstur-
inn mjög harður og bifreiðin er |
gjörónýt. Ökumaðurinn slapp lítið
meiddur en nokkuð skorinn í aldliti.
son.
Eimskipafélagshúsið:
Rakarinn hættur eft-
ir hálfrar aldar starf
RAKARASTOFA Sigurðar Ólafssonar í Eimskipafélagshúsinu
hefur verið starfrækt í 67 ár, eða frá 1921. Sonur Sigurðar,
Páll, hefur verið rakari á stofunni í rúma hálfa öld. Páll hætti
hins vegar störfum fyrir aldurs sakir á föstudag.
Morgunblaðið/KGA
Páll að klippa síðasta viðskiptavininn, Pétur Jóhannesson, bygginga-
meistara.
Opinberri heimsókn
forsætisráðherra lýkur
Washington. Frá Óla Birni KÁrasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.