Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 9 11. sunnudagur eftir trinitatis. Lúk. 18,9.-14. HUGVEKJA iii i) 1 M \ 1 i II Q iiin LU 1 eftir séra GUÐMUND ÓLA ÓLAFSSON Frammi fyrir Guði - í húsi hans Hver var hann, tollheimtumað- urinn? Var hann aldrei til nema í þessari sögu Jesú? Getur nokkur maður orðið svo fátækur frammi fyrir Guði, slíkur betlari í húsi Guðs? Jesús hlaut, að því er hann sjálfur sagði, það viðumefni, sem enginn annar bar, hvorki fyrr né síðar: „vinur tollheimtumanna og syndara". Hvað er þá trúlegra en það, að hann hafi tekið dæmi af einum vina sinna? Ríkur kynni sá að hafa verið, því að tollheimtu- menn þar eystra voru að seilast eftir gæðum þessa heims, eins og aðrir. Sagan segir, að þeir hafi auðgazt á öðrum mönnum og þeim stundum fátækum, eins og gengur, — að þeir hafí. gengið á hönd erlendu valdi, selt sæmd sína og þjóðerni. Hann var, að líkind- um, eins konar ranglátur ráðs- maður í húsi Guðs. Því að gyðing- ur var hann þó. Nú kom hann fátækur á fund Guðs. Hann stóð álengdar, líklega úti við dyr, þorði ekki einu sinni að hefja augu sín til himins, barði sér á brjóst. Það merkir, að hann bar innri þjáningu sína og mein fram fyrir auglit Guðs. Sjálfs- myndin var í molum. Þannig kynnu einhverjir að orða það nú. Páll hefði fremur sagt það svo: Hann var ekki einungis leirkerið, sem átti að geyma Qársjóð, en var þó öðru brothættara. Hann var brotið ker, brotin ein og ekk- ert annað, — fjársjóðurinn allur farinn í súginn og svaðið. „Guð, vertu mér syndugum líknsamur." — Hefur þú heyrt slíka bæn af vörum manns? Þær eru að vísu margar fáorðar og gagnorðar á blöðum Biblíunnar, en varla er þar nokkur önnur svo nakin og allslaus og hjálparþurfí, — nema hróp Jesú á krossinum: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig!“ Og enn er eitt fágætt og næsta íhugunarvert og svalandi sár- þyrstum, fátækum anda, í þessari sögu Jesú. Hér verður engin bið eftir svari Guðs. Hjá Lúkasi er ekki eitt einasta orð í milli bænar tollheimtumannsins og þessara orða Jesú: „Eg segi yður: Þessi maður fór réttlættur heim til sín.“ Ekki er víst, að þú þekkir nokk- um mann, líkan þessum toll- heimtumanni. Hitt er harla trú- legt, að Jesús hafi kynnzt mörgum slíkum. Hinn maðurinn, sá, sem ekki var eins og aðrir mennj kynni að standa þér miklu nær. I þeirri tilgátu virðist að vísu fólgin þver- sögn., Engu að síður er hún ættuð frá Jesú sjálfum og úr guðspjöll- unum. Af þeim og orðum hans verður varla önnur ályktun dregin en sú, að sómakært fólk, sem ekki var eins og ræningjar, toll- heimtumenn eða annað slíkt hyski, hafi verið miklu fleira í þjóðfélaginu. Hvað sem því líður, þá standa þeir nú frammi fyrir dómara sínum og frelsara sínum báðir, tollheimtumaðurinn og fariseinn, annar úti við dyr, hinn nokkuð framarlega í biðröðinni. Hann, sá síðartaldi, væntir skjótra svara og úrlausnar. í rauninni er hann einungis að sækja stimpilinn á skjöl sín. Þar er allt eins og bezt verður á kosið, slétt og fellt, hvítt og krumpulaust. En hann fær ekki stimpluð skjölin, heldur enga skjóta úr- lausn. Hann fer allslaus heim, þótt hann virðist ekki sjá það né vita sjálfur. í augum Guðs er hann ekki sá, sem hann hyggur. Saga þessi er einstök. Þú færð að skyggnast í hin dýpstu rök, inn í sjálft hjarta Guðs. Og elska hans og samúð villa ekki á sér heimild- ir. Hinn mikli læknir er sendur til þess asð lækna sjúka, ekki „heilbrigða". Frelsara hafa ekki allir þörf, eða hvað? Jú, syndarar hafa hans þörf, ranglátir menn. Hinir ekki, eða svo virðist. Mein faríseans er engu að síður illkynjað. Hann þarf ekki elsku Guðs, finnur ekki til þorsta né hungurs né nokkurrar fátæktar. 1 orði kveðnu er hann að þakka Guði fyrir sig. Sú þakkarbæn er ekkert nema sjálfshól. Hann er sjálfbjarga. Hlöður hans eru full- ar. Hann veit, að hann þarf ekki að betla. Hann treystir sjálfum sér. Hann er meiri og betri en aðrir. Þar er ekkert sambærilegt við þennan tollheimtumann. Er sagan ekki því lík, að Jesús hafi þó einnig verið býsna kunn- ugur þessum farísea, — ef til vill einnig vinur hans? Þú skalt ekki lesa úr henni for- dæming yfir neinum. Það er svo augljóst, já, deginum ljósara, að Jesús er að lækna sekan og hel- sjúkan tollheimtumann með þess- um orðum. En er hitt ekki aug- ljóst einnig, að hann á erindi við þá menn, sem svo eru illa stadd- ir, að þeir hvorki þekkja né þurfa elsku Guðs? UFAHDIPENINGAMARKAÐUR í KRINGLUNNI RMli tfut i Primsm *» __ aeue puucinc fj/Uuwi fjoukww™ Margrét Hinriksdottir Brynhildur Sverrisdóttir Hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni erlifandi peningamarkaður og persónuleg þjónusta. Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson FJARFESTINGARFEIAGIÐ Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Opið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18 og laugardaga kl. 10 - 14 Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 12. ágúst 1988: Kjarabréf 3,193 - Tekjubréf 1,533 - Markbréf 1,673 - Fjölþjóðabréf 1,268
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.