Morgunblaðið - 14.08.1988, Page 29

Morgunblaðið - 14.08.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 29 ón“, og þar sem ég á greiðan að- gang að skáldaæðinni í sjálfum mér er ég tiltölulega fljótur að vinna. Ég á oft í erfiðleikum með að byrja á verki, en þegar ég er kominn í gang er ég snöggur að ljúka því. Og þetta hefur fyrst og fremst ver- ið útvíkkun á starfi mínu, það eru til dæmis augljós tengsl milli ljóð- listar og kvikmynda. Ég hef oft sagt um kvikmyndir að það sé mikil- vægt að þær horfí útum gluggann ef svo má segja, að þær séu ekki bara ferköntuð dramatík, að þær innihaldi augnablik þar sem maður fær aðra vídd, aðra sýn á hlutina. Kvikmyndin hefur það framyfir prósa að geta komið mörgu til skila samtímis, ein mynd getur sagt það sem tekur nokkrar blaðsíður að lýsa með orðum. I ljóðum mínum, sér- staklega þeim fyrstu á sjötta ára- tugnum, hef ég meðvitað oft beitt frásagnartækni kvikmyndarinnar, þ.e.a.s varðandi sjónarhom, klipp- ingar og fleira, og ég hef skrifað mörg ljóð sem fjalla beinlínis um kvikmyndalistina og eru eiginlega kvikmyndir í orðum.“ — Þú hefur sjálfur sagt að allt sem þú skrifir sé þin eigin reynsla meira og minna dulbúin, færð i stílinn ... „Já, og það segi ég ennþá. Allt sem menn gera, hversu abstrakt eða fjarlægt það virðist vera, bygg- ir jú á þeirra eigin reynslu, það er ekki hægt að komast ekki undan því. Ég legg mikið uppúr því að það sem ég skrifa sé ekta, að tíðarand- inn komist til skila í minnstu smáat- riðum. Ég stunda enga heimildaleit og vinn einungis í krafti hæfileikans til að endurskapa fortíðina eins nákvæmlega og hægt er. Það er grundvöllur alls sem ég hef skrifað, hreint og klárt." — Hefur þetta verið meðvituð stefna frá upphafi? „Nei, ég get ekki sagt það. Ég hef reyndar aldrei velt þessu mikið fyrir mér, og alls ekki í byijun, því þá kastaði maður sér bara útí skrift- imar. Ég hef alltaf verið hrifinn af því sem Georg Brandes sagði í frægri grein um H.C. Andersen, að það krefðist hugrekkis að hafa hæfileika. Það er semsagt ekki nóg að hafa hæfileika, maður verður líka að hafa kjark til þess að beita þeim. Brandes sagði þetta um H.C. Andersen varðandi það þegar hann byrjaði að skrifa ævintýrin, sem leystu hann úr læðingi sem skáld, það þurfti hugrekki á þeim tíma til að fara að skrifa fyrir börn, þó það væri auðvitað ekki bara fyrir böm. Menn verða að kasta sér útí þetta og sjá svo hvað gerist. . . En þrátt fyrir að menn hafi réttilega sett verk mín í skáldlegt „krónólógískt" samhengi, þannig að þau spanni tímabilið frá fæðingu minni fram til dagsins í dag og séu saga mín og saga Danmerkur á þessum tíma, þá hefur það ekki verið meðvituð „strategía" af minni hálfu. Ég fylgi ekki neinni áætlun. Ég gæti það hreinlega ekki, ég er svo langt frá því þannig rithöfundur að ég undir- búi mig vandlega, safni heimildum, smíði grindina og svo framvegis. Ég sest bara niður og skrifa. Ég hef vitaskuld einhveijar fyrirfram hugmyndir um verkið sem ég ætla að skrifa, en ég veit ekki hvað ger- ist eftir tíu síður. Annars væri lítið gaman af þessu og ég myndi ekki skrifa ef þetta væri ekki svona.“ — Þetta em svipuð vinnubrögð og Beat-kynslóðin bandaríska lagði mikið uppúr og þú ert nokkurn veginn jafnaldri þeirra skálda, — em einhver tengsl þarna á milli? „Jú, tengslin em fyrir hendi en þau em ekki meðvituð af minni hálfu. Það sem tengir okkur er tíðarandinn, enda ekkert nýtt að menn fáist við svipaða hluti á svip- aðan hátt á svipuðum tíma, án þess endilega að vita hver af öðmm. Það er ekkert skrýtið að John Slesinger skrifi Bjargvættinn í grasinu á svip- uðum tíma og ég skrifa Den kron- iske uskyld. Hvomgur okkar hafði hugmynd um hinn, en tíðarandinn kallaði á að þessar bækur yrðu skrifaðar. Einu sinni skrifaði gagn- rýnandinn Lundkvist um bók eftir konu að hún væri undir miklum áhrifum frá William Faulkner. Kon- an svaraði honum og sagðist því miður aldrei hafa lesið bók eftir Faulkner, og þá skrifaði Lundkvist henni og sagði ja, þá er svo sannar- lega kominn tími til þess að þú gerir það. Þetta þykir mér lýsa þessu mjög vel. Að sjálfsögðu eru rithöfundar stöðugt að stela frá og stæla aðra, og allt í lagi með það, en undirstaðan hlýtur þó alltaf að vera reynsluheimur þeirra á þeim tíma sem þeir skrifa verk sín. Ég byijaði að skrifa í tíðaranda eftir- stríðsáranna, og þá fannst mér ég ekki geta fundið 'sjálfan mig í því sem eldri kollegar mínir vom að skrifa. Það vantaði alveg að gera þeim hlutum skil sem mín kynslóð var að velta fyrir sér, — og þá var bara að skrifa það sjálfur. Ég gerði það eins heiðarlega og ég gat í Den kroniske uskyld árið 1958, og það urðu mikil læti, „kann danskur æskulýður ekki lengur málið sitt“ og svo framvegis. Eg hef verið svo lánsamur að verk mín hafa alltaf vakið umtal og oft deilur, þrátt fyr- ir að það hafi aldrei veirð meðvituð stefna hjá mér að stuða fólk. En mér hefur fundist maður verða að segja sína meiningu hreint út, og það er ekki síst mikilvægt núna, þegar mórallinn er orðinn þannig, í stjómmálunum og víðast annars- staðar, að enginn segir sína mein- ingu. Þetta er allt saman eitthvert abstrakt snakk á einhveiju plast- máli, mest um hversu mikla peninga við skuldum í útlöndum.“ — Þú skrifar mikið um fólk í allskyns „krísum“? „Já, enda em þær undirstaða þroska. Það er líkt og hvemig talað var um lungnabólgu í gamla daga, þá var sagt nú kemur „krísan“ og ef þú kemst í gegnum hana þá lif- irðu af og verður sterkari á eftir, mótstöðuaflið vex, líkaminn verður sterkari. Það sama gildir um and- ann, mótlæti og „krísur" stuðla áð andlegum þroska. Það hefur verið „ ... varla hægt að segja að Danir þekki mikið til islenskra bók- mennta fyrir utan verk Halldórs Laxness.“ sagt um Strindberg, að hann hafi hreinlega gert sig geðveikan til þess að hafa eitthvað að skrifa um. Ég er nú ekki hlynntur því að fólk búi sér til „krísur“, en það ætti samt að vera þakklátt fyrir þær sem það lendir í því það er alltaf eitt- hvað jákvætt hinumegin. Þetta er sama hugsunin og býr að baki „kaþ- arsis“, útræslunni í leikhúsi forn- grikkja, „krísan" er leið til þroska, leið til að komast í gegnum múrana.“ — Nú er ekki hægt að segja að þú lítir út fyrir að hafa lent í mikl- um erfiðleikum sjálfur? „Já, þakka þér fyrir, en það er líka ein leiðin til að komast í gegn- um „krísurnar“, að skrifa sig frá þeim. Ég hef oft upplifað erfiðleik- atímabil sem skáld, til dæmis þegar ’68-kynslóðin kom fram og hafnaði alveg minni kynslóð. Þá þurfti styrk til þess að treysta á að það væri ekki rétt sem þetta unga fólk var að segja. Og ég var líka gagnrýnd- ur ótæpilega þegar ég byijaði að skrifa. Það hefur krafist þess að maður hefði yfirsýn yfir sinn innri veruleika, maður hefur þurft að styrkja og efla andann til þess að verða ekki settur af. Þess vegna hef ég verið ánægður með alla þá gagnrýni sem yfir mig hefur dunið. Og það þarf meira en nokkrar ’68- kynslóðir til að slá mig útaf laginu. Hugmyndir þeirrar kynslóðar voru raunar afleiðing af hlutum sem ég hafði verið með í að skapa, en svo vorum við bara ekki lengur nógu róttæk. Ég hef hinsvegar alltaf sagt bless þegar róttækni fer að snúast um vitleysu, eins og því að hafna fortíðinni, leggja niður al- menna kurtéisi eða eyðileggja tungumálið, eins og þegar mennta- fólk fór að tala eins og unglingar, því það hélt að þannig sýndi það samstöðu með verkalýðnum eða eitthvað í þeim dúr. Það þótti mér fáránlegt og ekki þjóna neinum til- gangi. Tungumálið er mikilvægasta tækið sem við höfum til að skýra hlutina út og gera okkur skiljanleg, líka pólitískt og það má ekki henda því á öskuhaugana.“ — Af hveiju ertu forstjóri Gyld- endal? „Það er margt sem spilar inní. Ég hef lengi verið tengdur forlag- inu, byijaði til dæmis árið 1959 að ritstýra bókmenntatímariti þess, Vindrosen, ásamt Villy Serensen. Hér hef ég líka lengi verið bók- menntalegur ráðgjafi, lesið og valið handrit til útgáfu. Svo kom að því að ég var beðinn um að taka að mér þetta starf. Mér leist ekkert á það í fyrstu, en svo hugsaði ég sem svo að það gæti verið gaman, því ég hef alltaf verið hér bakatil að koma fram í dagsljósið og setjast við þetta borð í einhvem tíma. Og ég hef lofað sjálfum mér því að vera hér ekki lengur en til sextugs, það eru því í mesta lagi þtjú ár þangað til ég hætti. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt starf, og líka hollt fyrir mig sem rithöfund að breyta til, þó að starfið snúist áfram um bókmenntir. Jú, og vissu- lega verið erfitt fyrir rithöfundinn í mér, núna hef ég bara tvo mán- uði á ári eingöngu til ritstarfa. En í sambandi við aðra rithöfunda þá hafa menn brugðist „allavega" við því að ég gerðist forstjóri stærsta bókaforlagsins í Danmörku, margir óhressir yfir því eins og gengur. Ég vil þó segja um mína jafnaldra að milli okkar hefur aldrei verið lélegur „mórall", öfundsýki og sam- keppni. Það er sjálfsagt vegna þess að við höfum alltaf haft svo afslapp- að viðhorf til þess sem við erum að gera. Og þess vegna var það auðvelt fyrir mig að taka þetta starf að mér. Ég á gott með að ræða við fólk, en auðvitað gildir um þetta starf eins og önnur að til þess að ná árangri verður maður að gefa sig allan í það. En ef mér þætti starfið ekki skemmtilegt myndi ég ekki vera hér sekúndunni lengur." — Er von á bók frá þér á árinu? „Já, í september kemur út ljóða- bók sem á að heita Septembersöng- ur og innihalda þar af leiðandi mest hauststemmningar." — Hvernig meturðu sjálfur allan þann flölda verka sem liggur eftir þ'g? '„Það er að sjálfsögðu útilokað fyrir mig sjálfan að leggja hlutlægan dóm á höfundarverk mitt. Það er líka á mörgum plönum, og sum liggja dýpra en önnur. En ég er ánægður með að hafa gert allt það sem ég hef gert og þykir jafnvænt um allar bækurnar mínar. Þetta hefur oft verið erfitt, en alltaf gam- an. Það kemur svo seinna í ljós hvað stendur eftir, hvað hefur skipt mestu máli. Ég vil líka undirstrika þetta með mína kynslóð; við vorum svo heppin að koma fram á upp- gangstíma, þar sem nýir miðlar voru að koma til sögunnar og við höfum fengist við allt, ekki látið neitt vera okkur óviðkomandi. Við vorum sem sagt aldrei í neinum vafa um að það sem við gerðum, eins og manni virðist fólk vera í dag, við kýldum bara á það. Auðvit- að vona ég eins og flestir rithöfund- ar að ég hafi skrifað eitthvað fyrir eilífðina, en það hefur þó alltaf skipt mig mestu að vera hér og nú og sjá hvað væri á seyði.“ JWtfjgjifr í Kaupmannahöfn F/EST j BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI EINSTÖK RIJTUFERÐ UMÞÝSKALAND 21.09.-02.10.88 DINERS CLUB Þessi 12 daga ferð hefst með flugi til Frankfurt þar sem gist verður tvær fyrstu næturnar, borgin skoðuð að degi sem nóttu. Ekið um falleg héruð og viðdvöl höfð i Wiirzburg og Munchen. Ekið áfram um blómlegar sveitir og nú liggur leiðin til bæjarins Lindau við Bodenvatn (Bodensee). — Blómaeyjan Mainau heimsótt. Að lokinni dvöl i Lindau haldið til Freaudenstadt og þá ekið meðfram Boden vatni um Zimer/Rottweil, Alpirsbach ofl. Frá Freaudenstadt verður farið um Svartaskóg sem leið liggur til Stuttgart þar sem m.a. verður höfð næturdvöl. Á meðan á Stuttgart heimsókninni stendur verður farið á hina mikilfenglegu „Cannstatter Wassen“ útihátið. Háskólabærinn Heidelberg er næsti viðkomustaður okkar og þaðan liggur leiðin til Frankfurt þaðan sem flogið veróur heim aftur þann 2. október. (nUMTK FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SÍMAR 28388-28580

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.